Alþýðublaðið - 17.09.1993, Side 5

Alþýðublaðið - 17.09.1993, Side 5
Föstudagur 17. september 1993 SERUMFJOLLUN ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 SJAVARUTVEGSSYNING I N 1993 Ævintýralegur uppgangur hjá Marel hf Stærsti framleiðandi skipavoga í heiminum - Um 80% afframleiðslu Marels er flutt út til 25 landa og fyrirtœkið er leiðandi aðili íframleiðslu tölvuvoga og tengds hugbúnaðar fyrir fiskiðnað „Þið þyrftuð nú að vera hér drjúg- an hluta úr degi til að kynna ykkur allt það sem Marel hefur upp á að bjóða. Hér eru til dæmis flokkarar, tíma- og verkskráningakerfi, fram- leiðslu- og eftirlitskerfi, flokkunar- bönd, farvog, hjúpmælir og skipa- vogin sem er hraðvirkari og ná- kvæmari en nokkur önnur skipa- vog,“ sagði Þorkell Halldórsson sem við hittum að máli á sýningarsvæði Marels hf. Þetta eru orð að sönnu hjá Þorkeli. Það er erfitt að lýsa í stuttu máli öllu því sem Mar- el sýnir og kynnir á sjávarútvegssýning- unni. Við getum nefnt skipavogina sem hefur farið sigurför um fiskiðnaðarheiminn. Vogin er ákaflega Ijölhæf. Hvemig sem allt veltist um borð getur vogin meðal annars stjómað færiböndum, prentað límmiða og framleiðsluupplýsingar og með tengingu við tölvubúnað skapast heildstætt vigtunar- og skráningakerfi. Marel skipavogin var fyrst kynnt árið 1985, en er nú notuð í flest- um verksmiðjutogurum og rannsóknaskip- um um allan heim. Vogimar em starfhæfar við öll hugsanleg veður- og starfskilyrði með sömu nákvæmni og sama hraða og unnt er að ná með venjulegri vigtun í landi. Allar framleiðsluvörur Marel em hann- aðar með sveigjanlega notkunarmöguleika í huga. Annars vegar er búnaður sem teng- ist ýmis konar sérlausnum, til dæmis stök vog, prentari og lyklaborð og hins vegar em tæki sem geta tengst tölvukerfum í tengsl- um við framleiðslueftirlitskerfi. Þorkell Halldórsson hefur ástæðu til að brosa brcitt þcgar hann lýsir kostum tækjanna frá Marel hf. Alþýðublaðsmyndir/Einar Ólason Áhugasamir sýningargestir kynna sér framleiðslu Marels. IceMac hf framleiðir fœranleg frystihús Seldum heila vinnslustöð til Kamtsjatka - fyrir þrjár milljónir dollara segir Gunnlaugur Ingvarsson og jyrirtœkið heldur áfram markaðssetningu í óðrum heimsálfum Glaðbcitt sölu- og kynningarfólk frá IceMac. Frá vinstri: Ásta Ragnarsdóttir, Gunnlaugur Ing- varsson, Jón Ingi Gíslason og ltryndís Iæifsdóttir. Alþýðublaðsmynd / Einar Olason „Við höfum þróað mjög sérstaka að- ferð til að framleiða færanlegar fisk- vinnslustöðvar sem hafa vakið verð- skuldaða athygli. Það er þegar búið að selja slíka stöð til Kamtsjatka með öllum búnaði frá A til Ö fyrir þrjár milljónir dollara. Unnið er við að kynna þetta víða um heim. Þeir þurfa sjálfir ekki að gera annað en að veiða fiskinn til að vinna í stöðinni. Mörg íslensk fyrirtæki fram- leiða hluta ■ vinnslustöðina og má þar nefna Landssmiðjuna, Sigurplast og stöðinni fylgja 300 fiskker frá Sæplasti,“ sagði Gunnlaugur Ingvarsson hjá Ice- Mac hf. Vinnslueiningamar sem fýrirtækið fram- leiðir geta verið allt ffá lítilli einingu sem rúmast í einum gám og upp í stórt fullkom- ið frystihús með hámarks afkastagetu. Ein- ingamar em þannig uppbyggðar að full- komnum fiskvinnsluvélum og vinnslulín- um er komið fýrir í gámum. Gámarnir em innréttaðir sem nútíma vinnsluhús. Veggir og loft em klæddir treijastyrktum plastsam- lokum með innsteyptri úretan einangmn. Gólf em lögð trefjaplasti og loftræsi-, raf-, pípu- og frárennslikerfi er komið fyrir í þessum glæsilegu gámahúsum. Á vinnslu- stað, hvort sem er á sjó eða landi em gámar tengdir saman og mynda þá rúmgóð nútíma fiskvinnsluhús. „Við segjum að ef ekki sé hægt að flytja fiskinn í vinnslustöð þá flytjum við vinnsl- una til fisksins. Þessi framleiðsla hentar einnig vel við ýmislegt annað svo sem slát- urhús og kjötvinnslur," sagði Gunnlaugur. Vösk sveit frá Plastos á sjávarútvegssýningunni. Plastos kynnir stórmerka nýjung Vélar til kolsýru- pökkunar á fiski Eykur geymsluþolið að miklum mun án þess að kostnaður hœkki og skapar möguleika á að flytja útferskan fisk með skipum Á sjávarútvegssýningunni kynnir Plastos í Reykjavík Henkovac lofttæmi- og loftskiptaválar til kolsýrupökkunar. Plastos hefur að undanförnu staðið fyrir tilraunum til að meta geymsluþol fisks sem pakkaður er með þessari aðferð. Allt bendir til að tilraunin hafi tekist eins og vonast var til og í framtíðinni verði hægt að stórlækka flutningskostnað á ferskum fiski til útlanda með því að nota þessa að- ferð og flytja fiskinn með skipum í stað fiugvéla. Kostnaður við kolsýrupökkun er svipað- ur og þegar pakkað er í hefðbundnar um- búðir. Fram til þessa hefur geymsluþol á ferskum fiski í hefðbundnum umbúðum hins vegar verið það lítið að það hefur orðið að senda hann á erlendan markað með flugi sem er mjög dýr flutningsmáti miðað við sjóflutninga. Með nýju aðferðinni er flök- um pakkað í plastumbúðir, þær síðan loft- tæmdar og kolsýmblöndu dælt inn í um- búðimar. Þar með haldast gæði fersku flak- anna mun lengur en áður. Áhugasamir viðskiptavinir kynna sér nýjungar frá Plastos. Alþýðublaðsmyndir / Einar Ólason Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra Reykjanesi Forstöðumaður og deildarþroskaþjálfar óskast! Svæðisskrifstofa málefna fatlaðra á Reykjanesi óskar eftir að ráða til starfa forstöðumann við sambýli fatlaðra í Njarðvík. Óskað er eftir þroskaþjálfa eða öðrum fagmenntuðum starfsmanni með uppeldisfræðilega menntun og reynslu af stjómunarstörfum. Ennfremur óskar Svæðisskrifstofan eftir að ráða deildarþroska- þjálfa til starfa við sambýli fatlaðra í Kópavogi og Hafnarfirði. Forstöðumenn og deildarþroskaþjálfar taka þátt í framsæknu starfi í málefnum fatlaðra á vegum Svæðisskrifstofu með öflugum fagleg- um stuðningi í formi handleiðslu, námskeiða og víðtæku faglegu samstarfi með öðrum stjórnendum hjá Svæðisskrifstofu. Umsóknarfrestur er til 24. september. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 641822 og umsóknareyðu- blöð liggja frammi á Svæðisskrifstofu Reykjaness, Digranesvegi 5 í Kópavogi.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.