Alþýðublaðið - 17.09.1993, Qupperneq 9
KRATAR & SKILABOÐ
j Föstudagur 17. september 1993
TROÐFULLTI
KRATAKAFFI
Þ
að var engu líkara en verið væri að frumsýna
• kvikmyndina Júragarðurinn í Rósinni við Hverf-
isgötu í fyrrakvöld þegar Kratakaffi var haldið.
Fjöldinn var svo mikill að færri komust að en vildu. AIls
voru um 120 manns í Rósinni þetta kvöld. Gestur fund-
arins var Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra
og formaður Alþýðuflokksins. Þegar fundargestir gengu
í húsið fylgdust sjónvarpsmenn og annað fjölmiðlafólk
með af áhuga.
Fundurinn þótti takast hið besta og talaði formaður Al-
þýðuflokksins mjög opinskátt um ríkistjármálin, togstreit-
una um húsaleigubætumar og samstarfið í ríkisstjóminni.
Samkvæmt heimildum Alþýðublaðsins mun Jón Baldvin
hafa leitast við að svara þeirri spumingu hvaða verkefni
væm brýnust í íslenskum stjómmálum, þegar litið væri fram
á veginn. í því sambandi mun hann hafa gert skuldastöðu
ríkissjóðs og afborganir af erlendum lánum að umtalsefni. I
þeim efnum telur Jón Baldvin að það þurfí að ná fjárlaga-
hallanum meira niður til þess að koma í veg fyrir að skulda-
söfnunin fari yfir hættumörk. Þetta telur hann nauðsynlegt til
þess að koma í veg fyrir að komandi kynslóðir sitji ekki uppi
með gjaldþrota þjóðarbú.
Alþýðublaðsmyndir/Einar Ólason
ALÞYÐUBLAÐIÐ 9
i
i
i
i
RAÐAUGLÝSINGAR
Akureyringar athugið!
Bæjarmálafundur verður haldinn mánudaginn
20. september í Gránufélagsgötu 4,
(J.M.J.-húsinu) kl. 20.30.
Gísli Bragi
Hjartarson
bæjarfulltrúi stýrir fundi.
Kaffiveitingar.
Stjórn jafnaðarmanna-
felags Eyjafjarðar.
Heilsugæslustöðin Sólvangi
Hafnarfirði
Móttökuritari
Móttökuritari óskast til starfa frá og með 15. október 1993.
Sveitarstjórnarmenn athugið!
KRATAGOLFMÓTIÐ
Hið árlega golfmót sveitarstjórnarmanna Alþýðuflokksins
verður haldið föstudaginn 17. september í Hafnarfirði á golfvelli Keilis
á Hvaleyrinni. Mótið hefst klukkan 12:00.
Allir jafnaðarmenn velkomnir.
Verðlaunaafhending og matur verður á staðnum um kvöldið.
Þátttökutilkynningar berist Tryggva sem gefur frekari upplýsingar í síma
91-50499 frá og með 14. september.
Undirbúningsnefndin.
Kennarasamband íslands
Auglýsing um námslaun
PÓSTUR 06 SÍMI
Útboð
Umsóknir berist til formanns stjórnar stöðvarinnar fyrir 24.
september 1993.
Upplýsingar veitir Kristín Pálsdóttir framkvæmdastjóri í
síma 652600.
AlMí>liUAí>jÍ>
?y4X 62-92-44
Stjóm Verkefna- og námsstyrkjasjóðs Kennarasambands
íslands auglýsir eftir umsóknum um námslaun til félags-
manna sem hyggjast stunda framhaldsnám skólaárið
1994-1995. Væntanlegir styrkþegar munu fá greidd laun
á námsleyfistíma í allt að 12 mánuði eftir lengd náms.
Umsóknum ber að skila á skrifstofu Kennarasambands
íslands, Kennarahúsinu, Laufásvegi 81, 101 Reykjavík.
Eyðublöð liggja frammi á skrifstofu Kennarasambands-
ins, fræðsluskrifstofum og hjá trúnaðarmönnum í skólum.
Umsóknarfrestur rennur út 1. október 1993.
Verkefna- og námsstyrkjasjóður Kennarasambands íslands.
Tilboð óskast í smíði viðbyggingar við póst- og símahús á
Selfossi. Viðbyggingin afhendist fokheld að innan og full-
frágengin að utan.
Stærð hússins er 212,6 m2 og 777,1 m3.
Útboðsgögn fást afhent á skrifstofu fasteignadeildar Pósts
og síma í Reykjavík, Pósthússtræti 5, 3. hæð, og hjá
stöðvarstjóra Pósts og síma á Selfossi gegn skilatryggingu
kr. 20.000,-.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu fasteignadeildar þriðjudag-
inn 5. október kl. 14 síðdegis.
Póst- og símamálastofnunin.