Alþýðublaðið - 17.09.1993, Page 10

Alþýðublaðið - 17.09.1993, Page 10
10 ALÞÝÐUBLAÐIÐ GETRAUN & SKILABOÐ Föstudagur 17, september 1993 GETRAUNASPÁ ALÞÝÐUBLAÐSINS 1 Halmstad - Malmö FF Malmö, sem var lið 9. áratugarins, hefur ekki spilað sannfærandi í sænsku úrvals- deildinni í sumar. Þeir náðu þó að vinna lið AIK 2-0 á heimavelli sínum, í leik sem spilaður var síðastliðinn laugardag, en það var fyrsti sigurinn í íjórum leikjum. Halmstad, sem var í fimmta sæti fyrir leik- ina á laugardaginn, hefur staðið sig með prýði í sínum heimaleikjum í sumar. Þeir hafa unnið sex, gert eitt jafntefli og aðeins tapað þremur. Eg held að heimasigurinn sé líklegastur hér, en ég myndi ef til vill setja X á seðilinn líka því þetta verður baráttu- leikur og ekkert augnayndi. X Helsingborg - Öster Öster tapaði núna á laugardag þriðja leik sínum í röð en í öllum þremur lagði Hácken Öster að velli, en þar var einmitt Amór í að- alhlutverki fyrir Hácken. Venjulega er Öst- er klassanum betra en Helsingborg og því set ég jafntefli á þennan leik og tel það vera raunhæft. Helsingborg vann sinn fyrsta leik í fjölmörgum leikjum síðastliðinn laugar- dag en þá mættu þeir Frölunda á heimavelli Frölunda í Gautaborg. Ef þið eruð ekki al- veg viss um þennan leik þá er allt í lagi að setja útisigur líka, en hann er líklegri en heimasigur. 1 Hácken - Degerfors Háckenmenn em sigurstranglegri í þess- um leik en Degerfors á ekki að geta gert mikið á móti Amóri og félögum hans í Hácken. Amór hefur fengið mjög góða dóma upp á síðkastið í sænskum blöðum og á það líka við um síðasta leik sem var á móti Öster. Eins og kom fram áðan sigraði Hácken í þeim leik með þremur mörkum gegn tveimur og hefur liðið þá unnið tvo leiki í röð í sænsku deildinni. Þegar þessi leikur er spilaður þá hafa Degerforsmenn spilað á móti Parma í Evrópukeppninni en sá leikur er á þriðjudaginn og er örugglega mikilvægasti leikurinn á tímabilinu. Hver sem úrslitin verða í þeim leik þá mun hann örugglega syngja í höfðinu á flestum leik- mönnum Degerfors. 1 Trelleborg - Brage Trelleborg tapaði síðasta leik fyrir Norr- köping 0-3 en er engu að síður mun betra lið en Brage. Trelleborg hefur einn veik- leika og það er útivöllurinn. Þar em þeir ekki nógu sannfærandi tii þess að geta ver- ið í toppbaráttunni. A heimavelli em þeir hins vegar óstöðvandi, hafa ekki tapað neinum leik og aðeins gert þrjú jafntefli í heimaleikjunum tíu. Eg er sannfærður um sigur Trelleborg í þessum leik þrátt fyrir að Brage hafi í síðustu umferð unnið fyrsta heimaleikinn sinn á þessu tímabili. I þeim leik vom mótherjamir ekki af besta toga (Örgryte) svo að sá leikur hefur ekkert að segja. 2 Örebro - Norrköping Örebro er í bullandi fallhættu með 23 stig og í fjórða neðsta sætinu. Hins vegar er Norrköping í ágætis málum enda í öðm sæti, aðeins tveimur stigum eftir Gautaborg sem er með 45 stig. Norrköping unnu góð- an sigur á Trelleborg á laugardaginn var en leikurinn fór 3-0 og var sigurinn aldrei í hættu. NoiTköping er eitt af þeim sænsku liðum sem er í Evrópukeppninni og á góða möguleika á móti Mechelen frá Belgíu núna á miðvikudaginn. Utisigurinn hér er ekki í neinni hættu því að ef þeir ætla að verða sænskir meistarar þá verða þeir að vinna lélegu liðin líka. 1 Coventry - Chelsea Coventry er eina liðið í deildinni sem ekki hefur tapað leik á þessu tímabili. Þeir hafa unnið þtjá og gert fjögur jafntefli og geta í þessum leik bætt við ljórða sigrinum. Það er nú ekki það léttasta í heimi að vinna Chelsea en allir leikir þeirra hingað til hafa verið mjög jafnir og núna á laugardag unnu þeir það mikla afrek að vinna Manchester United en það var fyrsta tap þeirra rauð- klæddu í deildinni í sex mánuði. Eg giska á að hér verði heimasigur en eins og alltaf þá veit maður aldrei hvar maður hefur Chels- ea. Þeir geta unnið frábær lið en geta líka tapað fyrir lélegri liðum. X Everton - Liverpool Klassískur leikur sem margir bíða eftir neð eftirvæntingu á Englandi því leikir á nilli þessara tveggja liða hafa alltaf verið .neð þeim bestu og oft skoruð mörg mörk. Liverpool er í fimmta sæti og Everton í því áttunda en bæði liðin eru með 12 stig eftir sjö leiki. Liverpool tapaði síðast fyrir Blackbum sem er undir stjórn Kenny Dalglish með 0-1 og skoraði Mike Newell sigurmarkið á 54. mínútu fyrir framan 40.000 áhorfendur. Everton sótti Oldham á útivelli og unnu þeir 0-1 með marki Tony Cottee á 32. mínútu. Mjög erfitt er að spá um þennan leik því hann getur farið á alla vegu. Athugið einnig með heimasigur. X Ipswich - Aston Villa Ipswich fékk skell á laugardaginn þegar þeir sóttu Arsenal heim. Leikurinn endaði 4—0 og em þeir væntanlega staðráðnir í því að gera betur í þessum leik. Ipswich menn hafa ennþá ekki tapað á heimavelli en í þessum leik sem er tvísýnn getur sigurinn bmgðið til beggja vona. Aston Villa hefur ekki leikið vel en þó aðeins tapað einum leik í deildinni og er í sjötta sæti með 12 stig. Þeirgerðu aðeins markalaust jafntefli á móti Coventry á Villa Park um daginn sem þeir eiga að taka á venjulegum degi. Það hlýtur að taka sinn tíma fyrir Aston að fá spilið til að ganga því nokkrir nýir em komnir frá öðmm félögum eins og til dæm- is Townsend frá Chelsea. X Manc. Utd. - Arsenal Þessi leikur fer 1-1 og er það næstum því pottþétt. Manchester United tapaði fyrsta leik sínum á laugardaginn en það var á móti grimmu liði Chelsea-manna sem fögnuðu sigrinum vel. Það hlýtur að vera erfitt fyrir Alex Ferguson að velja leikmenn í þessar ellefu stöður sem er á vellinum. Hann hefur um allt of mikið að velja um enda hópurinn mjög breiður. Arsenal vann góðan sigur á móti Ipswich um daginn en þar voru þeir félagar Wright og Campbell að verki. Campbell skoraði þrívegis og Wright eitt í 4—0 sigri. Bæði liðin em með 16 stig en Manchester er með betri markatölu og er því í efsta sæti. 2 QPR - Norwich Bæði liðin töpuðu síðustu umferð og ætla bæði liðin að gera betur í þessum leik. Nor- wich er nú líklegra til vinnings í þessum leik þrátt fyrir að spila á ágætis heimavelli QPR. Þeir í Norwich hafa ekki tapað á úti- velli í deildinni en þetta verður þá íjórði leikurinn án taps ef leikurinn fer eftir minni spá. Leikmennimir í QPR hafa alls ekki spilað illa í deildinni, en að tapa 3-0 á móti Manchester City getur ekki talist gott þegar þetta var fyrsti heimasigur þeirra síðast- nefndu. Kannski áttu þeir í QPR að kaupa leikmenn í stað þess að halda til dæmis Stinton, Ferdinand og svo framvegis. Deildin er bara rétt byrjuð og eftir er að sjá hvaða lið munu vera í toppbaráttunni. 2 Swindon - Newcastle Eg býst ekki við því að Swindon fari að vinna sinn fyrsta leik á móti Newcastle þrátt fyrir slæmt gengi Newcastle þá em þeir að minnsta kosti einum klassa fyrir ofan Swindon. Ef þeir höfðu ætlað sér mikið í deildinni þá hefði stjóm Swindons þurft að kaupa marga nýja leikmenn fyrir peninga sem ekki em til á þeim bæ. Newcastle gerði það gott í fyrstu deildinni síðasta tímabil og ætla sér að vera ofarlega í ár. Til að mynda keyptu þeir Beardsley fyrir þetta tímabil en vom mjög óheppnir að missa hann síðan vegna meiðsla. Eg er alveg viss um að þeir eiga eftir að ná sér á strik í úrvalsdeildinni f ár. 1 Tottenham - Oldham Tottenham geta nú varla klúðrar þessurn leik á heimavelli sínum White Hart Lane. Það hefur gengið ágætlega hingað til í deildinni og er ég viss um að þeir fá þrjú stig til viðbótar í þessum leik. Tottenham gerði 2-2 jafntefli á útivelli á móti Sheffield United í síðustu umferð og telst það gott því þeir em ósigraðir þar. Reyndar komust menn Spurs í bæði 1-0 og 2-1 en Sheffield menn náðu alltaf að jafna en síðasta rnarkið kom á 62. mínútu. Oldham hefur aðeins náð að fagna einum sigri hingað til og var það á móti neðsta liði deildarinnar, Swindon, sá leikurfór 1-0. Þar varað verki Bemard sem hefur skorað þrjú af fimm mörkum liðsins. ' 1 Wimbledon - Manc. City Þess ber að geta í upphafi að leik þessum hefur verið frestað frant á mánudag og verður því að kasta upp teningi til að fá úr- slit. Þar skulu menn athuga að líkur á að I komi upp em mun meiri heldur 2 eða X. Hvað sem þessu líður hcfur Wimbledon i mönnum vegnað vel í úrvalsdeildinni en í j síðasta leik þá unnu þeir frækilegan sigur á j Norwich. Leikurinn endaði 0-l og var þar að verki Sanchez sem ásamt Fashanu hefur verið duglegur að skora fyrir Wimbledon. ManchesterCity unnu sinn fyrsta heimaleik um daginn þegar þeir unnu QPR með þrent- ur mörkum gegn engu en þá skomðu Qu- inn, Sheron og Flitcroft mörkin fyrir City. Þessi tvö lið eiga eftir að vera í miðri deild- inni í vetur en hafa samt nógu ntikinn styrk til þess að næla sér í nokkur stig af toppíið- unum ef sjálfstraustið er í lagi. á Sjávarútvegssýningunni ■ CP F00D MACHINERY A/s LAXAHNIFAR Frá CP-FOOD kynnum við nýja gcrð laxaskurðarhnífa, sem sneiða reyktan lax við - 4 úl + 6 C°. Hnífamir em eingöngu rafdrifnir, án þrýstilofts, sem er mikill kostur. Við þrif er auðvelt að taka úr hnífnum alla hluti, sem em í beinni snertingu við flökin. CP-FOOD framleiðir þrjár stærðir hnífa með afköst frá 30 - 120 sneiðar á mfnútu. Frank Nielsen frá CP-FOOD verður hjá okkur dagana 15.-19. seplember. HOWDEN FOOD EQUIPMENT LOFTTÆMIVELAR Frá HOWDEN FOOD kynnum við HENCOVAC vacuumpökkunarvélar. Við kynnum loftskipta pökkun, sem eykur geymsluþol matvæla og treystir sölu á fjarlæga markaði. Hans von Neienhof frá HOWDEN FOOD verður hjá okkur dagana 14.-17. september. Hann er matreiðslumeistari og kynnir „vacuum eldun". Matreitt við hitastigið 70-90 C° í lofttæmdum pokum. Þannig aukast bragðgæði verulega. FORMUNARVELAR Frá DEIGHTON sýnum við FORMATIC formunarvél, sem gerir t.d. fiskstauta, fiskborgara o.s.frv. Þessi vél er mjög auðveld í notkun og fljótlegt að skipta um mót í henni. Við vélina er hægt að tengja deig-, brauðmylnslu- eða þurrsteikingar- vél. Peter Hicks frá DEIGHTON verður hjá okkur dagana 16.-19. september. ZEBRA Frá ZEBRA kynnum við hitaprentara. L2ULMA PÖKKUNARLÍNA Frá ULMA sýnum við pökkunar- vél, sem pakkar frystum fiskflökum og bitum í plastfilmu. SJALFVIRK MERKING Frá ESPERA sýnum við tölvuvog ES600 með færibandi og sjálfvirkri miða- álímingu. Hein/. Pluta frá Espera verður hjá okkur dagana 15.-16. september og svarar fyrirspurnum um vogakerfi fyrir matvælaiðnað. EMTEAW' Á LAGERINN Frá EXTEND sýnum við kassabindi- vélar og brettavafningsvélar. BOTEK BRETTAV'OGIR Frá BOTEK kynnum við hand- lyftara með innbyggðri vog. WDŒELÐEF SPRAUTUPRENTARAR Frá VIDEOJET kynnum við nýja gerð bleksprautuprentara Videojet 37e, sem er einfaldari í notkun og ódýrari en eldri gerðir sömu prentara. Mjög góð reynsla er af Videojet prenturum á Islandi og má m.a. nefna fyrirtækin Lýsi hf., Osta- og smjörsöluna, ORA, Mjólkurbú Flóamanna, Ölgerð Egils Skallagrímssonar, EMMESS, Vífilfell, íslenskt Bergvatn o.fl. ofl. sem nota VIDEOJET. £B!i VIDEX Frá VIDEX kynnum við strikamerki og hnappalesara. Við val á tækjum leggjum við áherslu á gæði, hagstætt verð og góða þjónustu. og bjóðum nú heildarlausnir fyrir margskonar framleiðslu. Við erum þekkt fyrir góð tæki, hagstætt verð og góða þjónustu ! Það borgar sig að koma við hjá okkur... Krókhálsi 6 110 Reykjavík Sími 67 1900 - FAX 67 1901 Getraunaspá Alþýðublaðsins Halmstad - Malmö FF 1 Helsingborg - Öster X HAcken - Degerfoss 1 Trelleborg - Brage 1 Örebre - Norrköping 2 Coventry - Chelseca 1 Everton - Liverpool X Ipswich Tewn - Aston Villa X Manchester United - Arsenal X QPR - Norwich 2 Swindon - Newcastle 2 Tottenham - Oidham 1 Wimbledon - Manchester Utd. 1 - Ólafur Lútlier Einarsson

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.