Alþýðublaðið - 15.12.1993, Side 8
12 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
S K
I N N
Miðvikudagur 15. desember 1993
Axels Svelnbjörnssonar
Verslun Axels Sveinbjömssonar
hf. er mjög sérstök verslun fyrir
margra hluta sakir. Hún hefur þjón-
að fyrirtækjum í útgerð sem iðnaði
og einstaklingum til sjávar og
sveita í rúma hálfa öld. Hún er gott
dæmi um verslun sem notið hefur
mikilla vinsælda gegnum tíðina
þrátt fyrir það að ytri breytingar,
það er að segja í húsnæði og skipu-
lagi, hafi verið sáralitlar. Astæða
vinsældanna er áreiðanlega sú að
Axel Sveinbjömsson hf. hefúr alla
•rið boðið viðskiptavinum góða vöm
á góðu verði og þjónustu sem er til
fyrirmyndar. Verslunarfólkið í Ax-
elsbúð, eins og hún er venjulega
nefnd, með þá Axel Sveinbjömsson
og Guðjón Finnbogason í broddi
fylkingar hefur reynst viðskiptavin-
um einstaklega vel.
Til fróðleiks er ekki úr vegi að
við stiklum í örfáum orðum á sögu
Axels Sigurbjömssonar og verslun-
ar lians. Axel Gústafsson, dóttur-
sonur Axels Sveinbjömssonar, sem
nú hefur tekið stöðu afa síns við
hlið Guðjóns Finnbogasonar, upp-
lýsti undirritaðan um sögubrotin og
var blaðinu innan handar um að út-
vega myndir og fleira.
Axel Sveinbjömsson fæddist 10.
desember 1904. Hann er skipstjóra-
menntaður og gerði um skeið út tvö
skip, Sjöfn og Sæfara, með uppeld-
isbróður sínum Magnúsi Guð-
mundssyni. Axel stundaði sjó-
mennskuna til ársins 1937 en þá
gerðist hann verslunarmaður í
Verslun Haraldar Böðvarssonar og
starfar þar til 1942. Það ár, eða nán-
ar tiltekið 18. nóvember 1942,
kaupir Axel pakkhúsið af Kristrúnu
Ólafsdóttur í Frón og llytur það á
lóðina við Hafnarbraut sem Olís
hefur í dag og er á móts við Heima-
skagahúsin. Mánuði síðar, eða 18.
d'-sember opnaði Axel verslunina. I
býrjun önnuðust þau hjónin, Axel
og Lovísa Jónsdóttir, afgreiðslu í
búðinni. Verslaði hann fyrst og
Guðjón Finnbogason við afgreiðsluborðið. „Axel Sveinbjömsson hf. hefur alla
tíð boðið viðskiptavinum góða vöru á góðu verði og þjónustu sem er til fyrir-
myndar. Verslunarfólkið í Axclsbúð, eins og hún er venjulega nefnd, með þá
Axcl Sveinbjömsson og Guðjón Finnbogason í broddi fylkingar hefur rcynst
viðskiptavinum eiastaklcga vel. Til fróðlciks er ekki úr vcgi að við stiklum í ör-
fáum orðum á sögu Axcls Sigurbjömssonar og verslunar hans. Axel Gústafs-
son, dóttursonur Axels Sveinbjömssonar, scm nú hcfur tekið stöðu afa síns við
hlið Guðjóns Finnbogasonar, upplýsti undirritaðan um sögubrotin og var blað-
inu innan handar um að útvega myndir og (leira.“
Alþýðublaðsmynd / Einar Óla.
Elsta vcrslunarhúsið, frá 1942. „Axel Sveinbjömsson fæddlst 10. descmbcr 1904. Hann er skipstjóramenntaður og gerði
um skeið út Ivö skip, Sjöfn og Sæfara, með uppeldisbróður sínum Magnúsi Guðmundssyni. Axel stundaði sjómcnnskuna
til ársins 1937 en þá gérðist liann vcrslunarmaður í Verslun Haraldar Böðvarssonar og starfar þar til 1942. l>að ár, eða
nánar tiltckið 18. nóvembcr 1942, kaupir Axel pakkhúsið af Kristrúnu Ólafsdóttur í Frón og flytur það á ióðina við Hafn-
arbraut sem Olís helur í dag og er á móts við Heimaskagahúsin. Mánuði síðar, eða 18. dcsember opnaði Axel verslunina.
í byrjun önnuðust þau hjónin, Axel og I.ovísa Jónsdóttir, afgrciðslu í búðinni."
Hafnarbraut — Sími 77 — Ahranesi
SELUR ÁSAMT FLEIRU:
Stormúlvur og stígvél bezt,
stýrishjól og keSjur.
Pakningar, sem passa á flest,
prýZis hnifa og suedjur,
pilka, sökkur, linur, logg,
lugtir, tangir, skœri,
öngla, skóflur, gaffla, gogg,
geyma, belgi, fœri.
Skiptilykla, skrúfjám stór,
skrúfur, rær og splitti.
Pilsner, kex og kaldan bjór,
kopar, rör og snitti.
ffemst og ffemst með veiðarfæri og
annað er tengdist útgerðinni. Síðar
fór Axel að auka vöruúrvalið.
Verslunin bauð fljótlega upp á vör-
ur fyrir iðnaðinn og einnig fyrir
bændur ásamt því að versla með
vaming fyrir útgerðina, eins og áð-
ur segir. Þá hefur Axelsbúð lengst
af verslað með ýmislegt fyrir ein-
staklinga, svo sem vinnufatnað
hvers konar, skó, stígvél, verkfæri,
og fleira ásamt ýmsum munaðar-
vamingi eins og tóbaki, kók, prins
og þess háttar.
Eins og áður segir hefur Guðjón
Finnbogason lengst af verið annar
máttarstólpi verslunarinnar. Guð-
jón réðist til verslunarstarfa í Axels-
búð í september 1943, þá ungur að
árum og hefur starfað þar síðan, eða
í rétt hálfa öld. Guðjón, sem nú
gegnir stöðu verslunarstjóra, hefur
reynst mörgum raungóður, snar í
snúningum og hvers manns hug-
ljúfi.
Árið 1950 keypti Axel verslunar-
húsnæðið, þar sem verslunin er enn
þann dag í dag, af iðnaðarmönnum
á Akranesi, en þeir höfðu keypt
versiunina eftir að Bjami Olafsson
& Co. hætti rekstri og nefndu hana
versl. Bjarg.
Það er ffóðlegt og gaman að
skoða ýmsar auglýsingar frá íyrri
tíð, því þær lýsa betur en margt
annað hvað var verslað með í þá
daga og hvemig verslunarhættir
vom hér áður á Skaga.
Ein þeirra var svona úr jólablaði
AKRANES 1943:
Viðskiptavinir mínir!
Eg óska ykkur gleðilegra jóla 1
Því miður hef ég lítið af jólavam-
ingi handa ykkur fyrir þessi jól, en
með nýja árinu hefst á ný baráttan
fyrir lífinu og þá skulum við athuga
hvort ekki er til hjá mér:
Olíufatnaður allur. - Gúmmí-
stakkar. - Gúmmívettlingar. -
Peysur. - Buxur. - Samfestingar. -
Sjósokkar. - Vettlingar, margar
tegundir. - Ullartreflar. - Kulda-
húfur. - Vattteppi. - Matressur. -
Lóðarbeigir. - Bambusstengur. -
Manillur. - Færaefni. - Vélapakkn-
ingar. - Vélareimar. - Vélatvistur.
- Olíuluktir. - Hnífar. - Brýni. -
Lyklar. - Tengur. - Björgunarbelti
og vesti. - Björgunarhringir og þó
nokkuð margt fleira, sem ekki er
hægt að telja hér.
Heillaríkt komandi ár!
Axel Sveinbjörnsson
Skaginn óskar starfsfólki og við-
skiptavinum Verslunar Axels
Sveinbjömssonar hf. gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári.
- Ingvar.