Alþýðublaðið - 05.01.1994, Page 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
LEIÐARI & STEFÁN FRÁ HOFSÓSI
Miðvikudagur 5. janúar 1994
IMMIUIIÐ
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóður Sigurðsson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Alþjóðlegar
alvörustjörnur
og heimatilbúnar
stórstjörnur
Björk Guðmundsdóttir söngkona er í óða önn að leggja heiminn að
fótum sér. Sífelltbætist á frægð hennar á alþjóðavettvangi. Alþýðu-
blaðið greindi frá því á forsíðu í gær, að gagnrýnendur bresku stór-
blaðanna The Sunday Times og The Observer, hafa bæði kosið
Björku besta popplistamann ársins. íslendingar gera sér kannski
ekki grein fyrir því hversu mikil upphefð það er að hljóta fyrstu
verðlaun þessara risablaða í Bretlandi í áramótauppgjöri þeirra.
Heimsfrægar stjömur telja slíka nafnbót mikilvæga vörðu á frama-
brautinni í alþjóðlegum listaheimi.
✓
Islendingar, vegna einangrunar og fákunnáttu sinnar um alþjóðleg
málefni, hafa sjaldnast megnað að greina kjamann frá hisminu þeg-
ar upphefð að utan er annars vegar. Minni spámenn í íslenskum
listaheimi hafa notfært sér þetta þekkingarleysi landans. Hljóti þeir
nokkur vinsamleg orð í einhverjum erlendum sveitablöðum, er það
þegar orðið fyrir þeirra eigin tilverknað að stórfrétt á íslandi. Oft-
sinnis blasa við íslenskum blaðalesendum feitleitraðar fyrirsagnir af
„listsigmm“ íslenskra listamanna á erlendum vettvangi. Við nánari
skoðun em flestallir „listsigramir“ þess eðlis, að hinn alþjóðlegi
listaheimur hefur ekki hugmynd um meinta snilld viðkomandi lista-
manns frá íslandi. Þar að auki er neikvæðu gagnrýninni sem birtist
um íslenska listamenn erlendis ávallt sópað undir teppið og birtist
sjaldnast íslenskum blaðalesendum.
Það er sama hvert er litið: Fréttir af þýðingum á íslenskum skáld-
verkum á erlendum tungumálum er slegið upp sem heimsfréttum,
þótt þessar þýðingar séu lesnar af nokkmm tugum, í mesta lagi ör-
fáum hundmð erlendra lesenda. Islenskar kvikmyndir em margar
hveijar gerðar að alþjóðlegum snilldarverkum þótt sannleikurinn sé
sá, að nokkrar hræður sjái myndina í einhveijum smásölum á af-
skekktri kvikmyndahátíð. Meintir íslenskir stórsöngvarar frá Is-
landi leggja hveija álfuna á fætur annarri undir sig þótt alþjóðlegur
markaður hafi ekki hugmynd um það, heldur aðeins íslenskir blaða-
lesendur. Auðvitað em til undantekningar frá þessari reglu. Halldór
Laxness, ein undantekningin frá blekkingarreglu íslenskra lista-
manna, skapaði Garðar Hólm, holdtekninguna fyrir listblekking-
una; stórsöngvarann sem Frónbúar héldu að hafði skapað sér al-
þjóðlega frægð en enginn hafði heyrt syngja.
Onnur undantekning er Björk Guðmundsdóttir. Hennar frægð er
óumdeilanleg. Vera má að íslendingar séu orðnir svo mglaðir af öll-
um blekkingarleik íslenskra listamanna, að þeir geri ekki greinar-
mun á skandinavískum héraðsblöðum og bresku stórblöðunum. AI-
þýðublaðið fullyrðir, að enginn íslenskur listamaður - og að þeim
öllum ólöstuðum - hafi komist með tæmar þar sem hælar Bjarkar
em í dag. Hún er mesti og frægasti sendiherra landsins hingað til.
Og það ánægjulega er, að Björk er rétt að hefja sinn frægðarferil.
Alþýðublaðið spáir því að á næstu misserum verði Björk enn meira
heimsnafn en hún þegar er orðin. Hún mun verða ein af stærstu
listastjömum heimsins sem sama áframhaldi. I raun er Björk þegar
orðin alltof stór fyrir molbúaskilning landans. Kannski einmitt þess
vegna og vegna hógværðar hennar sem listamanns, hafa íslending-
ar ekki skynjað hve hátt stjama hennar skín á alþjóðlegum lista-
himni.
Við bætist hið hefðbundna listasnobb Frónbúans. Þeir sem stjóma
lögum og lofum í íslenskum listaheimi em yfirleitt þröngsýnir lista-
snobbarar. Flestir em þeir hafnir yfir poppið. Meðan íslensku stór-
stjömurnar em að syngja ópemaríur fyrri alda fyrir hveija aðra í
lokuðum, rikisstyrktum listaheimi íslands, heldur hin eiginlega list-
sköpun áfram utan þeirra stöðnuðu umdæma. Björk er besta dæm-
ið um þetta. Hún semur bæði texta og lög og flytur: Hún er í senn
skapandi og túlkandi listamaður. Fmmleiki hennar og útgeislun
hefur lagt allan heiminn að fótum hennar. Á sama tíma gráta ís-
lensku stórstjömumar með úrklippumar úr erlendu afdalapressunni
um meiri ríkisstyrk til að halda áfram ófmmleik sínum og vangetu.
PALLBORÐIÐ: STEFAN GUNNARSSON SKRIFAR
EGGJA-GRIMUR OG
ALÞÝÐUFLOKKURINN
Eggja-Grímur lét
sig hafa það að síga
lofthræddur og skjálf-
andi af ótta í þrítugt
bjargið. En hann lifði
það af; kom með fulla
vasa af vormetinu úr
bjarginu, og kenndi
aldrei sighræðslu
framar. Á endanum
stóð hann uppi sem
annálaður sigmaður,
sem menn gátu ævin-
lega reitt sig á að afl-
aði matar þegar allt
annað þraut. Þá seig
Eggja-Grímur og sótti
fugl og egg; pilturinn
sem áður þorði ekki
einu sinni að stíga
framá bjargbrúnina,
hvað þá að líta niður.
Sigmaðurinn
að vestan
Ég hafði aldrei heyrt
söguna af Eggja—
Grími fyrr en ég las
áramótagrein for-
mannsins sem birtist í
Alþýðublaðinu á
gamlársdag. Ég var
ekki alveg viss um
hvert formaðurinn var
að leiða okkur; þannig
eiga líka djúpar dæmi-
sögur að vera, og ára-
mótatextar formanns-
ins fylgja þeirri hefði
vestfírska galdra-
manna að vera marg-
ræðir.
Það eru kannski
ekki mannasiðir að
ætla sér að leggja út af
prédikunum prest-
anna. En við í sveit-
inni höfum ekki alltaf
á hreinu hvað er kurt-
eisi með höfðingjum.
Og satt að segja hefur
dæmisaga formanns-
ins leitað nokkuð
sterkt á mig síðustu
dægur, kannski af því
ég hef verið minntur á
hana þegar Drangey,
höfuðprýði okkar
Flofsæsinga, hefur ris-
ið í nýársstillunum
uppúr sjónum héma
framanvið. Drangey
var nefnilega um aldir
forðabúr okkar Skag-
firðinga, en það var nú
með björgin í henni
einsog hamra Vest-
fjarða: Það þurfti hug-
aða menn til að síga og
sækja fenginn.
Ætli Alþýðuflokk-
urinn hafí nokkum
tímann eignast eins
kjarkaðan sigmann og
Jón Baldvin? Ósjálfr-
átt leitar hugurinn aft-
ur til síðustu áratuga.
Ég var að komast til
pólitísks vits í þann
mund sem blessuð
Viðreisnin var að
kveðja, södd lífdaga.
Þá tók nú heldur að
sneiðast um forðann,
og fáir sem þorðu í
bjargið. Það er ekki of-
sagt, að í kjölfar Við-
reisnarinnar hafí Al-
þýðuflokknum næst-
um því verið úthýst úr
íslenskum stjómmál-
um með sameinuðu
átaki hinna flokkanna.
Allt fram til ársins
1987 var flokkurinn
einsog sigmaður, sem
ekki þorði að síga;
lafði utan ríkisstjóma,
áhrifalaus og einskis
metinn. Þá tel ég ekki
með heldur gæfulausa
ríkisstjóm sem við átt-
um þátt í.
Á þessum ámm var
Alþýðuflokkurinn í
lífsháska. Það lá við
að hinum flokkunum
tækist það markmið
að þurrka hann út.
En það var gæfa
flokksins, að hann
eignaðist - næstum
því á einni nóttu -
vestfírskan sigmann,
sem einsog
Eggja-Grímur, lagði í
bjargið. Það var Jón
Baldvin sem bjargaði í
rauninni Alþýðu-
flokknum. Hann
þorði. Hann fór í
fræga herför um Is-
land og byggði upp
Alþýðuflokkinn;
laðaði til liðs við hann
viðurkennda atgervis-
menn úr öðrum grein-
um þjóðlífsins, og hik-
aði ekki við að leiða
undir þá sína eigin
klára, einsog þegar
hann fómaði fyrsta
sætinu í Reykjavík
undir núverandi
bankastjóra í Helsinki.
Ætli hafí ekki þurft
svipað hugrekki til
þess og þegar
Eggja-Grímui' renndi
sér í bjargið í fyrsta
sinnið?
En það hreif. Sig-
maðurinn að vestan
braut Alþýðuflokkn-
um aftur leið inn í
stjómmál Islands;
hann lagði undir, og
vann. En hver naut
sigursins? Allur flokk-
urinn. Síðan hefur Al-
þýðuflokkurinn verið í
ríkisstjóm, áhrifamesti
stjórnmálaflokkurinn
á Islandi, og úr sæti
sveitamannsins á Hof-
sósi líta þessi ár þann-
ig út, að íslensk stjórn-
mál á þeirn tíma hafi
meira og minna snúist
um Alþýðuflokkinn -
og formann hans.
Fleiri í
vaðinn
Nú er sótt að flokkn-
um. Kannski ekki síst
vegna þess að mörg-
um svíða yfirburðir
formannsins, sem hef-
ur veitt foringjum ann-
arra safnaða marga
skráveifuna í stórorr-
ustum síðustu missera.
Og meðulin sem not-
uð em sáust vel í ára-
mótaskaupinu; þar
vom þau vopnin notuð
sem erfíðast er að
skjalda sig gegn.
En það má leggja út-
af prédikuninni um
Eggja-Grím og bjarg-
sigið á fleiri vegu. Er
ekki komið að Al-
þýðuflokknum að síga
í bjargið?
Ég hef nú einsog
sveitamanna er háttur
staðið á jaðrinum og
horft álengdar á bar-
dagann, en kannski
notið þess að fjarlægð-
in gerir mér kleift að
horfa yfír sviðið frá
öðm og stærra sjónar-
homi. Og mér fínnst
satt að segja, að
flokksmenn standi sig
ansi illa í vöminni. Al-
þýðuflokkurinn hefur
undir forystu Jóns
Baldvins náð ótrúlega
góðum árangri síðustu
árin. Ég nenni ekki að
telja upp ávinningana
nema í stikkorðum, -
staðgreiðslubyltingin
frá 1987, verðbólgu-
draugurinn kveðinn
niður, erlendar skuldir
að minnka, húsnæðis-
átakið, vaxtalækkun-
in, EES - og landbún-
aðarstefnunni gjörbylt
með GATT. Og svo-
sem margt fleira.
Andspænis öllum
þessum sigmm, sem
aðrir flokkar myndu
berja sér á brjóst yfir í
sigurvímu, þá hanga
jafnaðarmenn í keng,
finnast þeir hafa áork-
að litlu, - og fara á
taugum í hvert einasta
skipti sem kemur ný
skoðanakönnun! Og
það læðist að mér, að
það kunni að vera
samhengi á milli dap-
urs gengis í skoðana-
könnunum, og van-
mats okkar sjálfra á
öllum þeim áföngum
sem flokkurinn hefur
skilað sjálfum sér og
þjóðinni á síðustu ár-
um og misserum.
Menn verða að meta
sín eigin verk að verð-
leikum, ef þeir ætla að
hafa sjálfstraust. Og
tapi þeir sjálfstraust-
inu, þá tapa þeir líka
trúnaðartrausti ann-
arra.
Alþýðuflokkurinn
nær sér aldrei uppúr
lægðinni nema flokks-
menn skilji hvað hefur
áunnist, og hafí kjark
til að fara út og préd-
ika. Þeir eiga ekki að
hengja haus, heldur
standa uppréttir, gleðj-
ast yfir því sem vel
hefur verið gert, - og
segja þjóðinni það!
Jafnaðarmenn eiga
að taka Eggja-Grím
sér til eftirdæmis, og
sækja í sig kjark til að
síga í bjargið, verja
sinn flokk og sinn for-
mann, ef á þarf að
halda.
Eggja-Grímur hefði
aldrei sótt aflann í
bjargið nema af því
hann þorði að síga.
Það sama gildir um
Alþýðuflokkinn. Það
gengur ekki til lang-
frama að láta bara einn
vera á vaðnum.
Flokkur, sem þorir
ekki að síga fær engin
egg-
Höfundur erformaður
kjördœmisráðs Alþýðu-
flokksins - Jafnaðar-
mannaflokks Islands - á
Norðurlandi vcstra.
STEFÁN
GUNNARS-
SON:
„Ég hefnú
einsog sveita-
manna er háttur
staðið á jaðrin-
um og horft
álengdar á
bardagann, en
kannski notið
þess að fjar-
lœgðin gerir
mér kleift að
horfa yfir sviðið
frá öðru og
stœrra sjónar-
horni. Og mér
finnst satt að
segja, að flokks-
menn standi sig
ansi illa í vörn-
inni. Alþýðu-
flokkurinn hef-
ur undir forystu
Jóns Baldvins
náð ótrúlega
góðum árangri
síðustu árin. Ég
nenniekkiað
telja upp ávinn-
ingana nema í
stikkorðum, -
staðgreiðslubylt-
ingin frá 1987,
verðbólgu-
draugurinn
kveðinn niður,
erlendar skuldir
að minnka, hús-
nœðisátakið,
vaxtalœkkunin,
EES - og land-
búnaðarstefn-
unni gjörbylt
með GATT. Og
svosem margt
fleira...Alþýðu-
flokkurinn ncer
sér aldrei uppúr
lœgðinni nema
flokksmenn
skilji hvað hefur
áunnist, og hafi
kjark til að fara
út og prédika.
Þeir eiga ekki
að hengja haus,
heldur standa
uppréttir, gleðj-
ast yfir því sem
vel hefur verið
gert, - og segja
þjóðinni það ! “