Alþýðublaðið - 05.01.1994, Síða 3
Miðvikudagur 5. janúar 1994
___________________BJÓR, FLOKKSSTJÓRN & STUTT
Ellefu milljónir til landverndar
frá framleiðanda Budweiser
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
Bjórpeningar
til Þórsmerkur
Bandaríski bjór-
framlciðandinn Anhe-
user-Busch sem fram-
leiðir meðal annars
Budweiserbjórinn sýn-
ir árlega áhuga sinn á
íslenskri náttúruvernd
með því að gefa fé til
Landgræðslu ríkisins.
Núna nýlega afhenti
umboðsmaður bjórs-
ins hér á landi nærri
þrjár milljónir sem
verja á til að berjast
gegn landeyðingunni.
Gjöfin verður nýtt til
að bregðast gegn land-
eyðingu í náttúruperl-
unni Þórsmörk og
endurheimta landgæði
á því svæði.
Landspjöii vegna of-
beitar og vindrofs og
sandfoks í kjölfarið
valda gróðureyðingu,
sem er einn mesti um-
hverfisvandi sem Is-
lendingar glíma við í
dag. Talið er að nteira en
helmingur af upphaf-
legri gróðurþekju lands-
ins hafi tapast frá því
land var numið fyrir
rúmum 1100 árum síð-
an.
„Meira en 30 þúsund
ferkílómetrar lands hafa
eyðst frá landnámi",
segir Sveinn Runólfs-
son, landgræðslustjóri.
„Líklega hefur engin
þjóð tapað jafnstórum
hluta af upphaflegum
gróðri lands síns á sögu-
legum tfma. Við eigum
gríðarlegt verk fyrir
höndurn og framhald á
þessu framlagi Anheus-
er-Busch, hinu fyrsta
sinnar tegundar sem er-
lent fyrirtæki leggur
fram á Islandi, hefur
sannarlega skipt máli“,
segir Sveinn Runólfs-
son, landgræðslustjóri.
Landgræðslan var
stofnuð 1907 og hefur
síðan leitt baráttuna fyrir
því að endurheimta upp-
blásin eða sködduð
landsvæði með því að
hefta sandfok með sán-
ingu og girðingu lands
til að hindra beit búfjár
þar sent uppblástur er al-
varlegt vandamál. A si'ð-
ari árum hafa fiugvélar
verið nýttar við sáningu
og áburðargjöf á upp-
blásið land.
Jack H. Pumell,
stjómarformaður og að-
alforstjóri Anheuser—
Busch segir að hann og
fyrirtæki hans sé þakk-
látt Islendingum fyrir að
hafa dmkkið þeirra bjór
allt frá Bjórdeginum
1989, viðtökur Islend-
inga hefðu síðan verið
mjög góðar. „Þetta
framlag okkar er í sam-
rænti við stefnu fyrir-
tækisins að vemda um-
hverfið", segir Jack H.
Pumell. „Við emm stað-
ráðnir í að vernda um-
hverfið handa komandi
kynslóðum, og þetta
markmið endurspeglast
í öllum okkar gerðum.
Okkur er ánægja að geta
veitt íslendingum lið í
baráttu við þennan
vanda".
Heildatframlag hins
bandaríska bjórrisa,
stærsta framleiðanda
heims með um 9% hlut í
heimsmarkaði, til ís-
lenskra umhverfismála,
er orðið um 11 milljónir
króna á þrem árum. Það
munar um minna.
Sveinn Runólfsson, landgræðslustjóri, tekur við styrknum frá stærsta bjórframleiðanda heims, Anheuser-Busch, úr hendi Magnúsar Jónssonar,
umboðsmanns fyrirtækisins hér á landi. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
■----------------------------------7-----------1
Alþýðuflokkuriim - Jafnaðarmannaflokkur Islands
FLOKKSSTJÓRNARFUNDUR
✓
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur Islands - boðar til
flokksstjórnarfundar laugardaginn 22. janúar 1994. Fundurinn
verður haldinn í Borgartúni 6, Reykjavík, og hefst klukkan 10.15.
Dagskrá:
1. Sjávarútvegsmál.
2. Starf og stefna AIþýðu 11 okksins.
3. Önnur mál.
Að venju er fundurinn opinn öllum flokksmönnum,
en ef til atkvæðagreiðslu kemur hafa einungis
kjörnir fulltrúar í flokksstjórn atkvæðisrétt.
— Formaður.
JTTFRÉTTIR
Op/ð hús í Rósinni
Rósiit - félagsiniðstöð jafnaðarmanna í Reykjavík - verður opið öll laugardags-
kvöld frá og með 15. janúar ncestkomandi, frá klukkan 9 á kvöldin til klukkan 01,
i tilefni af undirbúningj undir prófkjör flokksins vegna borgarstjómarkosninga í
maL Aðalheiður Fraitzdófíir mun annast um þessi kvöld fram að prófkjörinu sem
ætlunin erað farifram seintífebrúarmánuðl Mcð kvöldum þessum erœtlunin að
Alþýðuflokksmenn komi saman og rœði borgannáUn, stjónmiálaviðhorfið og
annað sem efst er á baugi, og njóti um leið léttra veitinga sem á borð verða born-
ar. Hvert kvöld verður á vegum eins eða fleiri gestgjafa, sent verða í hópi þeirra
sem gefa kost á sér til framboðs á vegum fiokksins. Aðalheiður sagði að þettafyr-
irkomulag hefði verið reyntfyrir síðustu Alþingiskosningar og orðið mjög vinsœlt
tneðalflokksmanna. Sagði Aðalheiður að nauðsynlegt vœriað vœntanlegir fram-
bjóðendur á prófkjörslista pöntuðu tíma fyrir umrœðukvöldin í Rósinni hjá skrif-
stofu Alþýðujlokksins, eða hjá AðaUteiði ísíma 72027.
Konur „Menn
ársins 1993“
Eins og venján er vom menn ársins
vuldir á ýmsum fjölmiðlum um ára-
mótin. Þannig völdu hlustcndur Rás-
ar 2 Björku Guðmundsdóttur
mann ársins, en Jóhönnu Sigurðar-
dóttur, félagsmálaráðhena í annað
sæti. Konur áttu því sannarlega upp á
pallborðið hjá almenningi. Frjáls
verslun valdi líka konu, - og mann-
inn hcnnar mcð henni. Þctta em hjón-
in Ágúst G. Sigurðsson og Guðrún
Lárusdóttir, en þau reka togarafé-
lagið Stálskip hf. í Hafitarfirði, - og
gcra það með miklutn glæsibrag svo
sent kunnugt er.
--------------------------
Agúst G. Sigurðsson og Guðrún Lár-
usdóttir, - mcnn ársins lyá Frjálsri
verslun.
Sféstm léméélfk &g ágssf Slg
ARSINS1993
lynaaiBflnBDDBnn
. , .
'
Þágufallið lagt niður!
Eitt fyrsta verk Magnúsar Jónssonar, þegar hann tók við embætti veðurstofu-
stjóra, var að leggja niður þá fáránlcgu reglu, sem fyrirrennarinn kom á síðastliðið
sumar. að lesa staðamöfn veðurathugunarstöðva f þágufalli í útvarpi. Létti mörgum
þegar þeir heyrðu um |x:ssa ákvörðun, sem farið hefur mjög fyrir btjóstið á mörgum,
ekki síst þeint sem þurftu að lesa veðurskeytin f útvarp. Kærar þakkir, Magnús!
Magnús Oddsson
ferðamálastjöri
Halldór Blöndal. sanigiinguráðherra, hefur ráðið Magnús Oddsson í starf ferða-
málastjóra frá 1. janúar 1994 til loka árs 1997. Magnús var eini umsækjandinn um
stöðuna, sem auglýst var 8. október sfðastliðinn. Ferðamálarúö samþykkti sam-
hljóða að mæla með Magnúsi í stöðuna. Magnús hefur starfað hjá Ferðantálaráði í
nærri 4 ár, nteira og rninna sem ferðanrálastjóri. Magnús er 46 ára, fæddur Skaga-
maður, kvæntur Ingibjörgu Kristinsdúttur og eiga þau einn son.
Landsvirkjun tekur stórt lán
Undir lok nýliðins árs fór iMiidsvirkjun á stúfana á hinum erlenda lánantarkaði.
Fyrirtækið gerði samning við Industrial Bank ofjapan lniernational og Merrill
Lyitch Iniernational unt lán að upphæð 2.4 milljarðar íslenskra króna til fimm ára á
3,6% vöxtum. Lánsfénu verður varið til að greiða upp týrirfram eldra lán Landsvirkj-
unar að stiinu upphæð hjá japanska lðnaðarbankanum. Gamla lánið var ffá 1987 og
ber 4,9% vexli.
Allir synir mínir
Leikrit Þjóðleikhússins, AUir synir mínir eftir öndvegisskáldið Arthur Miller er
aftur að kornast á fjalimar. Næstu sýningar eru á föstudaginn 7. janúar og síðan föstu-
daginn 14. janúar. Lcikritið hefur fengið ntjög góðar untsagnir og mikla aðsókn.
Verkið er átakaverk og spennandi. Með helstu hlutverk í leikritinu fara Róbcrt Arn-
finnsson, Kristbjiirg Kjeld, Hjálmar Hjálmarsson og Erla Ruth Harðardóttir.
Góð sýning sem Alþýðublaðið mælir eindregið með.
Eria Ruth Harðardóttir og Lilja Guðrún I>orvaldsdóttir í hlutverkum sínum í vcrki Art-
hurs Millers, Öllum sonum inínum.