Alþýðublaðið - 05.01.1994, Qupperneq 5
Miðvikudagur 5. janúar 1994
ÁVARP VIGDÍSAR
ALÞYÐUBLAÐIÐ 5
/ /
Aramótaávarp forseta Islands - Vigdísar Finnbogadóttur
Atvinnuleysi og sár fátækt
eru blettir á samfélagi okkar
„Góðir íslendingar.
Góðan dag og gleðilegt ár.
A árinu sem leið voru 75 ár liðin síðan Is-
land varð fullvalda ríki. Það gerðist hinn
fyrsta desember 1918 og þann dag öðlaðist
íslensk þjóð í raun á nýjan leik það sjálfstæði
sem hún hafði átt í árdaga. Með fullveldinu
fékk hún allan rétt til að stýra eigin málum
ein og óstudd, þótt hún gerði um leið nýjan
sáttmála við Dani um að hafa sama konung
og þeir um sinn og að Danir skyldu fyrst í
stað sinna utanríkismálum og landvamar-
málum og æðsti dómstóll landsins yrði í
Kaupmannahöfn. Hæstiréttur var stofnsettur
í Reykjavík árið 1920 og utanríkismál sín
tóku íslendingar í raun í sínar hendur á stríðs-
árunum síðari. Fullveldið, sem þama var
fengið, var svo að sínu leyti beint framhald
þess sem gerst hafði hinn fyrsta febrúar árið
1904 þegar við fengum heimastjóm og við
getum nú að réttum mánuði liðnum minnst
níutíu ára afmæli þess merka áfanga. Frelsi
sitt eignuðust Islendingar með fullveldis-
samningnum árið 1918, frelsi sem síðan end-
anlega var staðfest með sjálfstæði íslands
meðal þjóða heims við stofnun lýðveldisins
hinn 17. júní 1944. Fimmtíu ára afmælis þess
fögnum við nú á því ári sem gengið er í garð.
Dugnaður fólksins
Saga Islendinga síðustu öldina einkennist
miklu fremur af stómm stökkum en hægri
þróun. Þjóð sem um aldir hafði búið við
kröpp kjör lagði ofurkapp á að afla sér ver-
aldlegra gæða og tryggja velferð sína og
bama sinna. Við höfum unnið hörðum hönd-
um að því í öll þessi ár frá því í byrjun aldar-
innar að byggja upp sjálfbjarga ríki og síðan
velmegunarþjóðfélag. Dugnaður fólksins
hefur ekki síst tengst þeim metnaði sem það
hefur átt í hjarta sínu fyrir hönd bama sinna -
þau áttu að eignast ekkert minna en sjálfa
lífshamingjuna. En þessu fylgdi þversögn,
sem einmitt er í því fólgin að þetta vildu
menn gera með því að gefa nýrri kynslóð
þegar í stað allt það sem þeir sjálfir höfðu
ekki notið.
Nú kreppir að
Viðfangsefni handa öllum verkfúsum
höndum hafa verið gæfa þessarar þjóðar
mestan hluta sjálfstæðistímans og lýðveldis-
áranna. Oft hefur meira að segja skort vinnu-
afl í landinu. En nú kreppir að. Atvinna er
ekki nóg, og framtíðargötumar reynast ekki
eins sjálfgengnar til auðsældar og áður sýnd-
ist. Okkur sem enn njótum fullrar atvinnu
hlýtur öllum að vera ljóst að atvinnuleysi og
sár fátækt, sem við vitum af em blettir á sam-
félagi okkar, blettir sem okkur ber siðferðileg
skylda til að beita öllum ráðum til að afmá.
Enginn íslendingur getur unað því að horfa á
meðbræður og systur líða fyrir atvinnuleysi.
Til þess emm við of fá, fjölskyldubönd okk-
ar of sterk, ábyrgð okkar hvers á öðm of aug-
ljós.
Kjölfestu raskað
Á góðum stundum höfum við hugsað til
þess með gleði og nokkm stolti að á Islandi
sé að finna bæði hreint land og gott mannlíf.
Við höfum trúað á samræmi milli landsins
hreina, loftsins tæra og mannlífs í öryggi. Við
höfum lifað við óttaleysi og traust til grann-
ans, og mörgum sem stærri ból byggja hefur
þótt við öfundsverð í þeim efnum.
En skyndilega hrökkvum við nú upp sem
af draumi við ótíðindi af ofbeldisverkum,
tíðari og hörmulegri en okkur áður uggði.
Fjölmiðlar greina um hveija helgi frá fólsku-
legum misþyrmingum og segja okkur jafn-
framt fregnir af mönnum sem gera sér ung-
linga og böm að féþúfu og skirrast ekki við
að pranga inn á þau hvers kyns ólyfjan.
Menn spyija að vonum sjálfa sig og aðra:
Hvað er hér að gerast?
Ekkert svar er einhlítt. Sumir leita svara í
vaxandi hörku lífsbaráttunnar, sem hér sem
annars staðar láti ungu fólki finnast sem eng-
inn spyrji framar eftir hæfileikum þess, getu
og kunnáttu. Aðrir leita skýringa í ofbeldis-
dýrkun sem gerst hefur fyrirferðamikil í af-
þreyingariðnaði síðustu ára. Sú ofbeldis-
dýrkun er nú áhyggjuefni víða um lönd, svo
ráðamenn stórþjóða lýsa hver af öðmm óhug
sínum og hvetja til andófs,
En við getum einnig spurt að því hvort
ekki þurfi að skoða þann heimafenginn
bagga sem hveiju bami og hverjum unglingi
ætti að vera hollur. Um aldir vora ljölskyldu-
líf og heimili kjölfesta í siðferði og siðlfæði
allra þjóða. Þar kenndu fordæmin umferðar-
reglur allra mannlegra samskipta. Hræringar
síðustu ára, tæknibylting nútímans og
hömlulaust lífsgæðakapp virðast hafa leitt til
þess að þessi kjölfesta tjölskyldunnar hefur
raskast.
Dýr stundarsæla
Hér er brýnt að hyggja í eigin barm og
skoða þá ræktun tilfmninga og gilda sem hef-
ur með einhverjum hætti mistekist. Okkur
má öllum ljóst vera að heimilið er það tilfinn-
ingalega athvarf sem allir menn vilja og
þurfa að eiga. En við getum líka spurt okkur
hvort ekki væri æskilegt að skólar okkar
væra betur í stakk búnir til að miðla því sem
heimilin kenndu áður. Við hljótum að spyrja
hvort það geti verið bömum okkar og bama-
bömum til velferðar ef við vanrækjum að
tryggja þeim hvort tveggja í senn, menntun
og siðmenntun; ef við svíkjumst um að veita
þeim þá siðferðilega þjálfun sem felst í því
að aga dómgreind sína. Engum getur dulist
að við höfum í þjóðfélagsumrótinu þokað
uppeldisskyldum okkar yfir á skólana.
Hversu sem að okkur kann að þrengja í efna-
legu tilliti getum við aldrei varið fyrir sam-
visku okkar að skera framlög til þessara upp-
eldisstofnana svo við nögl að það komi niður
á menntun og um leið framtíð næstu kyn-
slóða. Þá höfum við keypt eigin stundarsælu
of dýra verði.
Hvað viljum við?
Árið 1994 er að framkvæði Sameinuðu
þjóðanna kallað „Ár fjölskyldunnar“. Við
hugsum fæst nógu oft og mikið um þá stað-
reynd, að fólk vill í rauninni ekkert fremur en
gott fjölskyldulíf. Það setja menn, þegar um
er spurt, öðram lífsgæðum ofar.
Á heimilum okkar er lagður grannur að
framtíðarheill landsins bama. Böm heyra allt
og skynja allt, tileinka sér allt. Þess vegna er
gott uppeldi ekki umfram allt fólgið í boði og
banni, eins þótt skynsamleg séu, heldur öðra
fremur í fyrirmyndum: Að við höfum fyrir
bömum og unglingum það líf sem við viljum
að þau lifi. Það stoðar lítið að búa til óska-
mynd af hegðun og breytni og ætla bömum
okkar að falla inn í hana ef athafnir okkar,
hinna fullorðnu, benda í allt aðra átt. Og það
hljótum við að viðurkenna að umgengnis-
reglur okkar í mannlegu félagi hafa raglast.
Því þurfum við að spyija okkur af hreinskilni
og hlífðarleysi:
Hver axlar þá ábyrgð að breyta rangri þró-
un í rétta?
Hver annast bömin okkar ef við bregðumst
þeim?
Höfum við gefið okkur tíma til að hlusta
og tala við bömin?
Höfum við sýnt skóla þeirra þann áhuga og
þá virðingu sem böm okkar eiga skilið og
veitt honum og sjálfum okkur um leið það
aðhald sem að gagni má verða?
Höfum við virt þann góða kost að ljöl-
skyldan getur skemmt sjálfri sér, ferðast
saman um eigið land, notið svo margra hluta
saman?
Eða höfum við gert allt sem við höfum get-
að til að flétta þeirri einföldu vitneskju inn í
tilfmninga- og vitsmunalíf unglinganna, að
sá er ekki sterkastur sem hefur barefli eða
vanstillta hnefa á lofti, heldur hinn sem kem-
ur fram við aðra menn með þeirri virðingu og
tillitssemi sem honum sjálfum verður dýr-
mætust?
Hvað viljum við? Stöðugan ótta við grann-
ann, varðhunda við hvert hús?
Öflug samstaða
„Án er ills gengis nema heiman hafi“, seg-
ir í Gísla sögu Súrssonar. Ekkert gerist af
sjálfu sér. Það er ofurbjartsýni að ætla að
böm drekki í sig með móðurmjólkinni arf-
leifð sína og tungu, og þann innri siðferðis-
styrk sem hjálpar þjóðum jafnt sem einstak-
lingum að bera höfuðið hátt.
Þótt mestu varði framlag okkar sjálfra sem
einstaklinga og fjölskyldna þurfum við líka
öfluga samstöðu í uppeldismálum. Og þar
verður stærsti félagsskapur okkar, sjálft sam-
félagið, einnig að bæta fyrir sínar vanrækslu-
syndir meðal annars með því að standa betur
við bakið á foreldram í viðleitni þeirra og
áhyggjum - til dæmis í því að koma á sam-
felldum skóladegi, vinna gegn því að böm
séu á hrakhólum, leggja þeim lið sem erfíðast
eiga.
Virk forvitni
Ég gat þess í upphafi að við væram nú
stödd mitt á milli þjóðminningardaga, fyrsta
desember þegar minnst var 75 ára fullveldis
og 17. júní þegar lýðveldið er hálfrar aldrar.
Þjóðminningardagar geta vel orðið leiði-
gjamir, ef við geram þá að vana einum sam-
an. En við getum líka átt okkur þá virku for-
vitni um fortíð okkar og minningar sem gera
þá að kærkominni hátíð. Við lærðum það
sem böm, að í ævintýram er ekkert verra en
að missa minnið, það era verstu álögin; sá
sem fyrir verður er ekki lengur hann sjálfur
og ef til vill gerir hann eitthvað sem aldrei
skyldi. Viska ævintýrsins sagði okkur líka,
að það var svo sigurinn mesti að endurheimta
minnið - verða maður sjálfur afmr.
Manngildið öllu æðra
Sagt er að ekki skuli menn og þjóðir einatt
horfa um öxl. En við getum með góðri sam-
visku lagt rækt við hið þakkláta minni, sem
segir okkur að leið þjóðarinnar var löng og
gangan einatt ströng og lýsir virðingu við þá
sem raddu brautir, minni sem sækir styrk í
það líf sem lifað var og veit að ekkert sem er
nokkurs virði fæst án fyrirhafnar og baráttu.
Það minni gerir okkur kleift að þakka ein-
staklingum og heilum stéttum það, sem vel
hefur verið gert, eljusemi þeirra sem hefur
gert okkur mögulegt að komast af í þessu
landi. Þá mun okkur takast að sækja styrk í
þann dugnað og útsjónarsemi ferðanna sem
til þessa hefur leyft okkur að taka við nútím-
anum á eigin forsendum. En síst af öllum
megum við gleyma því að manngildið er öllu
æðra.
Abyrgðarhlutverk
Á merku afmælisári hljótum við að þurfa
að draga skynsamlega lærdóma af skyndi-
leika breytinganna á okkar tíð og því að
tengsl okkar við umheiminn era miklu meiri
og virkari en nokkra sinni fyrr. Okkur er
brýnt að minna okkur sjálf á þá ábyrgð sem á
hveiju okkar hvflir; að skila til framtíðarinn-
ar því lífi sem við kjósum að lifa í þessu
landi; þá miklu ábyrgð að varðveita tungu
okkar, myndríka og kröfuharða, sem er sjálf-
ur kjaminn í sérleika okkar, og minningar
okkar sem hvorki við né umheimurinn vilj-
um að gleymist eða verði settar á safn fyrir
fáa forvitna.
Guð blessi ísland
Góðir landar mínir. Á þessari stundu er
mér ofarlega í huga að þakka alla þá velvild
og gestrisni sem mér hefur verið sýnd hvar
sem mig bar að garði á nýliðnu ári. Ég sendi
öllum þeim innilegar samúðarkveðjur sem
harmur og raunir hafa sótt heim. Ég bið þeim
allrar blessunar sem era að stíga sín fyrstu
skref í tilveranni. Megum við öll njóta sam-
hygðar, gagnkvæms trausts og kjarks sem
verði þjóðinni til velfamaðar á nýbyijuðu ári,
afmælisári íslenska lýðveldisins og á ókomn-
um tímum.
Guð blessi ísland og íslendinga.“
Millifyrirsagnir
og fyrirsagnir:
Alþýðublaðiö