Alþýðublaðið - 25.01.1994, Page 4
4 ALÞYÐUBLAÐIÐ
BORGARSTJORNARKOSNINGARNAR
Þriðjudagur 25. janúar 1994
PALLBORÐIÐ: Gylfi Þ. Gíslason skrifar
s PALLBORÐIÐ: Gunnar Ingi Gunnarsson skrifar S
PALLBORÐIÐ: Njáll Harðarson skrifar
Söguleg stund
Tvær skoðanakannanir sem gerðar
voru fyrir skömmu sýna fram á að sam-
eiginlegur listi getur fellt núverandi
meirihluta í komandi borgarstjómar-
kosningum. Eftir að þessar kannanir
birtust tókst félagshyggjuflokkunum að
koma sér saman um sameiginlegt fram-
boð þessara flokka. Þetta er söguleg
stund: félagshyggjuflokkunum er tak-
ast að sameinast um einn lista gegn
íhaldinu í borginni. Draumur félags-
hyggjumanna er að verða að raunveru-
leika.
Ég gekk til liðs við Samband ungra
jafnaðarmanna árið 1978. Síðan þá hef
ég gengt ýmsum störfum fyrir Félag
ungra jafnaðarmanna í Reykjavík og
SUJ. Ég tók þátt í prófkjöri Nýs vett-
vangs fyrir síðustu borgarstjómarkosn-
ingar. I því prófkjöri varð ég annar al-
þýðuflokksmaðurinn af átta sem þátt
tóku í prófkjörinu, næstur á eftir Bjarna
P. Magnússyni.
Ég gef kost á mér í prófkjöri fulltrúa-
ráðs Alþýðuflokksfélaganna í Reykja-
vík um val fulltrúa Alþýðuflokksins í 4.
og 9. sæti á sameiginlegum lista félags-
hyggjuflokkanna fyrir komandi borg-
arstjómarkosningar í vor.
Vilji
borgarbúa
Það er ljóst að borgarbúar vilja
breytingar. Borgarbúar vilja sjá mann-
eskjulegri borg. Borgarbúar vilja hafa
meiri áhrif við stjómun borgarinnar.
Reykjavíkingar em búnir að fá nóg af
yfirgangi íhaldsins við stjómun borgar-
innar. Reykjavíkingar hafa horft upp á
íhaldið ráðstafa eigum borgarbúa án
þess að nokkuð tillit hafi verið tekið til
óska þeirra. Borgarbúar vilja sjá borg
þar sem öryggi barna þeirra er tryggt og
tekið verði tillit til þarfa fjölskyldnanna
íborginni.
Ég gef kost á mér til baráttu um
borgarmálin þar sem ég vil hafa áhrif til
að stuðla að manneskjulegri og betri
borg.
Höfundur er iðnrekstrarfræðingur og forseti
Æskutýðssambands íslands.
Útsala - Útsala
50% afslóttur til
Verslunin flytur.
Verslunin okkar
Strandgötu 9,
Hafnarfirði.
A mótum
breyttra tíma
Það rikja merkileg tímamót hjá
íslensku þjóðinni um þessar mund-
ir. Á nokkurra ára tímabili, sem ein-
kennst hefur, öðm fremur, af vam-
arbaráttu gegn versnandi ytri sem
innri skilyrðum þjóðarbúsins, hefur
loks tekist að skapa heibrigðari
stoðir undir hið íslenska efnahags-
og atvinnulíf. Hér á ég fyrst og
fremst við vaxta- og verðbólguþró-
unina, EES- og GATT- samning-
ana, betrumbætta Qármálapólitík
og lækkun skatta á fyrirtækin. Al-
þýðuflokkurinn hefur gengt
ákveðnu forystuhlutverki í þessum
áfangasigrum, sem em í sjálfu sér
mjög táknrænir fyrir meginmark-
mið okkar jafnaðarmanna, það er
að móta varanlegan gmnn undir
velmegun og velferð íslenskrar al-
þýðu.
Með hlutdeild sinni í áðurnefnd-
um áfangasigmm, hefur Alþýðu-
flokkurinn enn sýnt og sannað,
hvers hann er megnugur við stjórn-
völinn, þegar hann fær tækifæri til
að ná árangri í baráttunni fyrir hin-
um almennu hagsmunum. En þótt
farið sé að birta til á landsvísu, em
stór verkefni framundan. Það er
verið að sá og öll þjóðin bíður upp-
skemnnar.
Meðal annars með tilvísan í
áfangasigra Alþýðuflokksins í rík-
isstjómarsamstarfi undanfarin ár, er
það raunar skylda flokksins að taka
tilboði um samstarf um stjórnun
sveitarfélags á grundvelli þeiira
gilda, sem flokkurinn stendur fyrir.
Því var það ekkert annað en löngu
tímabært verk, þegar gengið var frá
samkomulagi við félaga úr núver-
andi minnihiuta borgarstjómar um
að bjóða fram sameiginlegan lista,
vegna borgarstjómarkosninganna í
vor. Það er kominn tími til að
breyta forgangsröðun verkefna í
Reykjavík. Nú skulu almennir
hagsmunir borgarbúa verða að leið-
arljósi. Um þessar mundir er verið
að fínpússa málefnasamning þar að
lútandi.
Þann 5. og 6. febrúar næstkom-
andi verður haldið prófkjör, þar
sem valdir verða fulltrúar Alþýðu-
flokksins í 4. og 9. sæti hins sam-
eiginlega lista. Ég hef lýst yfir
áhuga á því að verða fulltrúi flokks-
ins á þessum lista.
Eftir 15 ára starf sem heimilis-
læknir í Reykjavík, hef ég öðlast
dágóða þekkingu á högum borgar-
búa. Mér telst til að ég eigi til dæm-
is að baki að minnsta kosti 3000
heimavitjanir víðs vegar um borg-
ina á þessum ámm. Hvað varðar
reynslu af stjómun og félagsmálum
má benda á eftirfarandi:
Ég hef verið nokkuð virkur í fé-
lagsmálum lækna. Tók þátt í stofna
Félag íslenskra heimilislækna og
var um tíma í stjóm þess. Hef verið
formaður nokkurra ^ samninga-
nefnda Læknafélags Islands um
nokkurra ára skeið. Frá 1986 hef ég
verið formaður stjómar Lækna-
vaktarinnar sf. Ég hef setið í stjóm-
arnefnd Ríkisspítalanna frá 1991
og var stjómarformaður fyrirtækis-
ins Biro-Steinar hf. um nokkurt
skeið. Ég sit í stjóm Alþýðuflokks-
félags Reykjavíkur.
Sem dæmi um áhugasvið mín,
varðandi borgannálefnin, má
nefna:
Heilbrigðismál, atvinnumál, um-
hverfismál, öryggismál og málefni
fjölskyldunnar.
Á næstu dögum mun ég kynna
lesendum Alþýðublaðsins nánar
viðhorf mín til þessara málaflokka.
Hafi einhver hug á að ræða málin,
þá er heimasínti minn 87 04 77 og
vinnusími 67 15 00.
Höfundur er heimilislæknir við
heilsugæslustöðina í Árbæ.
Opin s a m k e p [ ini um g e p ð söng 1 a g s
1 y p i p Þ 1 óöhátíöapárið 1994
Þjóðhátíðamefnd 50 ára lýðveldis á fslandi hefur ákveðið að gangastfyrir opinni samkeppni um gott sönglag í tilefni 50 ára
lýðveldis á fslandi. Lagið skal verafrumsamið viðfrumsaminn texta, eða útgefið Ijóð eða texta sem talinn er hæfa
verkefninu íslandslag.
Þátttökuskllyrði:
o Þátttaka er öllum heimil. Laginu skal skila á nótum eða hljóðsnœldu og má það taka allt að 3-4 mínútur íflutningi
TextíAjóð skal fylgja. Lagið má ekki hafa komið út áður né hafa verið flutt opinberlega. Nótur, snælda og texti skulu merkt
heiti lagsins og dulnefni höfundar. Rétt nafn höfundar, heimilisfang og símanúmer skulu fylgja með í lokuðu umslagi, sem
merkt skalsama dulnefni. © Tillögur skulu merktar: „íslandslag" og sendast Þjóðhátíðamefnd, Bankastræti 7,150 Reykjavík.
Skilafrestur er til 10. mars 1994. © Sérstök dómnefnd velur lagið og útnefnir sigurlag. í dómnefndinni eiga sœti 5fulltrúar,
einn frá hverjumþessara aðila: Tónskáldafélagi fslands, T.Í., Félagi tónskálda og textahöfunda F.T.T., Félagi islenskra
hljómlistarmanna, F.Í.H., hljómplötuútgefendum og Þjóðhátíðamefnd. e Veitt verða ein verðlaun 400.000,- kr.
o Þjóðhátíðamefnd áskilur sér tímabundinn notkunar- og ráðstöfunarrétt á því lagi og þeim texta sem hlýtur verðlaun í
samkeppninni og notað verður án þess að aukagreiðslur komi til. Þjóðhátíðamefndin mun taka ákvörðun um hvaða tillaga,
sem borist hefur, verður notuð sem fslandslag.
Nánari upplýsingar um tilhögun eru veittar hjá Þjóðhátíðamefnd í síma: 60 94 60.
Trúnaðarmaður dómnefndar er Steinn Lárusson
ÞJÓÐHÁTÍÐARNEFND 50 ÁRA LÝÐVELDIS Á ÍSLANDI
Kjósum
Bolla Runólf
í annað sætið
Fyrir þá sem ekki þekkja til
Bolla Runólfs er sjálfsagt að
týna ffam eftirfarandi stað-
reyndir: Bolli Runólfur Val-
garðsson er ungur og upp-
rennandi stjómmálamaður
með mikla pólitíska hæfileika
og gott auga fyrir smáatrið-
um. Hann er fæddur og upp-
alinn í Hveragerði og hefúr
B.A. próf í Islensku. Bolli
Runólfur hefur meðal annars
starfað sem fréttamaður
Bylgjunnar, blaðamaður á
Pressunni, háseti, við kennslu
og unnið verkamannavinnu
svo eitthvað sé nefnt. I dag er
hann starfandi sem biaða-
maður hjá Kynningu og
markaði í Austurstræti. Það er
því ljóst að Bolli Runólfur
hefur haldgóða þekkingu á
hinum ýmsu sviðum atvinnu-
lífsins. Það má jafnframt geta
þess að Bolli Runólfur átti
stóran þátt í að settar vom á
laggimar málefnanefndir Al-
þýðuflokksins síðastliðið
haust, en þær eru að sjálf-
sögðu mikilvægur þáttur í efl-
ingu innra starfs flokksins.
Bolli Runólfur Valgarðsson á
svo sannarlega erindi inn á
lista Alþýðuflokksins til
borgarstjómarkosninga nú í
vor, sem verðugur fulltrúi
flokksins og allra ungra jafn-
aðarmanna innan hans.
Mikið og
gott stari'
Bolli Runólfur hefur und-
anfarin ár starfað sem for-
maður Félags ungra jafnaðar-
manna í Reykjavík og var
einnig nýlega kjörinn vara-
formaður Sambands ungra
jafnaðarmanna. Innan hreyf-
ingar ungra jafnaðarmanna
hefur hann unnið mikið og
gott starf sem kemur best
fram í auknum umsvifum í
starfinu og auknu félagatali.
Allir þeir sem fylgst hafa eitt-
hvað með starfi FUJ í Reykja-
vík og SUJ gegnum árin sjá
hve miklu lífi hefur verið
blásið í þau síðan Bolli Run-
ólfur kom þar að málum. Ef
verkin hafa einhvem tímann
talað, þá hafa þau talað þama
og sýnt það og sannað að
þama fer mikill efniviður í
rösku dreng til framfara. Það
em svona menn sem við þurf-
um í borgarstjóm til þess að
hrista upp í gömlum glæðum
borgarinnar og reisa við
tengslin við almenning og
mannlega fyrirhyggju.
Það er einmitt núna á þess-
um tímamótum sem em að
renna upp, þar sem Alþýðu-
flokkurinn verður þátttakandi
í því að endurheimta borgina
úr greipum íjölskyldnanna
fjórtán og öllum þeirra kol-
krabbaörmum, að við eigum
að verðlauna og hvetja ung-
liðanna fyrir þeirra mikla og
fómfúsa starf. Sýnum þeim
það í verki að það sé tekið
Bolli Runólfur Valgarðsson.
mark á þeim og tillit til þeirra
skoðana með því að kjósa
fulltrúa þeirra, Bolla Runólf
Valgarðsson, í annað sæli á
lista Alþýðuflokksins til
borgarstjómarkosninga nú á
vori komanda.
Ný viðhorf og
brennandi áhugi
Okkur vantar menn einsog
Bolla Runólf Valgarðsson í
borgarstjóm, menn sem ekki
hafa tamið sér gamla siði
heldur konta inn með ný við-
horf og brennandi áhuga á
málefnum borgarinnar. Það
er beinn hagur allra þeirra
sem áhuga hafa á málefnum
borgarinnar. Það er beinn
hagur allra þeirra sem áhuga
hafa á þeim málefnum sem að
yngra fólki, svo sem atvinnu-
málum, húsnæðismálum og
ýmsum íþrótta- og útivistar-
málum, að sjá til þess að Bolli
Runólfur Valgarðsson verði
kosinn í annað sætið. Sannar-
lega verður því atkvæði ekki
kastað á glæ.
Ég skora á alla sem vilja
borginni vel og vilja stuðla að
því að efla og treysta hag
borgarinnar til framtíðar að
kjósa BoIIa Runólf í annað
sætið - níunda sætið á sam-
eiginlegum lista minnihluta-
flokkanna. Með því tryggjum
við okkur stuðning ungs fólks
úr öllum flokkum til sigurs í
komandi kosningum til borg-
arstjómar þar sem Bolli Run-
ólfur mún koma fram sem
ímynd alls ungs fólks úr öll-
um flokkum í Reykjavík. Það
er því rökrétt fyrir Alþýðu-
flokksmenn, bæði unga og
gamla, að styðja hann í það
sæti og þannig auka vel-
gengni og bæta ímynd flokks-
ins ásamt því að stuðla að
tryggri framtíð Alþýðu-
flokksins.
Það er brýnt að þú, lesandi
góður, látir ekki undir höfúð
leggjast að koma og taka þátt
í kosningu Alþýðuflokksfé-
laganna um efstu tvö sæti Al-
þýðuflokksmanna á sameig-
inlegum lista og leggja þann-
ig þín lóð á vogarskálamar
við að skapa nýjan borgar-
stjómarmeirihluta.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Drögum úr hraða 63- -ökum af skynsemi! mÉUMFEROAR Urád