Alþýðublaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 16. febrúar 1994 TIÐIHDI ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 íslendingar „erí‘a“ allt að 100 þúsund tonna loðnukvóta eftir Grænlend- inga og Norðmenn sem varla mun nást að veiða fyrir lok loðnuvertíðar: FREGNIR AF NÝRRIGÖNGU Á FERÐINNIFYRIR AUSTAN „Það er býsna góð veiði þessa dagana og búið að landa á næstum öllum hefð- bundnum höfnum lands- ins“, sagði Teitur Stefáns- son, framkvæmdastjóri Fé- lags íslenskra fiskmjöls- framleiðenda í samtali við Alþýðublaðið í gær. Víða um land eru annir við loðnubræðslu og frystingu og loðnan ótvíræð blessun fyrir atvinnulífið um sinn. Teitur sagði að svo virtist sem íslenski flotinn fengi um 100 þúsund tonna aukakvóta, sem hann „erfir“ eftir Norð- menn og Grænlendinga, sem ekki hefur tekist að taka sinn hluta kvótans innan fiskveiði- lögsögu okkar á tilsettum líma. Þá eru eftir 450 þúsund tonn fyrir íslenska flotann. Teitur sagði að svo gæti farið að ekki næðist að ná þeirri viðbót, ekki nema að veiðar gengju áfram með sama krafti og undanfarið. Aðalganga loðnunnar steðjar vestur með Suðurlandi, en að sögn Teits hefur firést af göngu við Hvalbak suðaustur af Breiðdalsvík. Binda menn eðli- lega miklar vonir við nýja göngu, því reynist hún efnileg lengist veiðitfminn. Yfirleitt hefur loðnan staðið fram undir mánaðamót mars-apríl, en þá leggst hún til botns og verður ekki veiðanleg. Fremur hljótt hefur verið um mjölmarkað að undanfömu. Teitur sagði þó að frést hefði af allgóðu verði á okkar helsta markaði, Bretlandi, 315 pund fyrir tonnið af eldþurrkuðu mjöli, og nokkru hærra verði fyrir gufuþurrkað. Auk útflutn- ings til Bretlands fara markaðir í Noregi og í Danmörku vax- andi. Lýsisverðið er nú 390 Bandaríkjadalir og fer afurðin aðallega til Danmerkur og Nor- egs, þar sem lýsið er einkum notað til smörlíkisgerðar og til fiskeldis. Háskóli íslands: Konur í meirihluta I vetur em konur í meirihluta námsmanna við Háskóla ís- lands. þær em 2.712 eða 55,7% - karlar em 2.160 eða 44,3%. Athygli vekur að læknastarfið virðist æ meira verða kvenna- grein. í læknadeild stunda nú nám 716 konur og 280 karlar, þar af eru í læknisfræði 203 karlar og 158 konur, í lyfjafræði 23 karlar og 46 konur, í hjúkmnarfræði 409 konur en 11 karlar og í sjúkraþjálfun 43 karlar og 103 konur. Karlar em í miklurn meirihluta í verkfræði, viðskiptafræði, og raunvísindum. Konur em fleiri í guðfræði 59 á móti 44 körlum. heimspékideild og fé- lagsvísindadeild. Námsgagnastofnun: Nýjar bækur og tvö myndbönd Námsgagnastofnun hefur sent frá sér nokkrar nýjar bækur og tvö myndbönd með fræðsluefni. Hér er um að ræ&aíslenska lýðveldið 50 ára eftir Guðrúnu Guðfinnu Jónsdóttur og Stef- aníu Björnsdóttur, bækling með hugmyndum fyrir grunn- skólakennara til að minnast afmælis lýðveldisins. Nokkrar smá- bækur gefur stofnunin út, en þær em ætlaðar til lestrarkennslu, bækumai’ Pysja og Pœja eftir Bryndísi Gunnarsdóttur og Kaninur og kátir krakkar eftir Björgyin Jósteinsson, Ragn- hciði Herniannsdóttur og Þóru Kristiasdóttur með teikning- um eftir Magnús B. Óskarsson. Þá gefur Námsgagnastofnun út bókina Annað sumar hjá afa eftir Friðrik Erlingsson. Pennasala Rauða krossins í dag Börn og unglingar á vegum deilda Rauða krossins munu núna á öskudaginn selja penna til fjáröflunar fyrir deildir félagsins. Deildirnar eru 50 talsins og öskudagur hefur verið Ijáröflunardagur Rauða krossins allar götur síðan 1926. Pennasalan er mikilvæg l]ár- öflun fyrir Rauða kross deild- imar en blómlegt starf þeirra byggist á sjálfboðavinnu. Þar til í fyrra vom seld merki á ösku- daginn en þá vom pennar seldir í staðinn. Pennasalan gafst vel og var því ákveðið að endurtaka leikinn. Hver penni kostar 200 krónur. Flestar deildir Rauða kross- ins reka sjúkrabíla, sinna öldr- uðum með námskeiðahaldi, opnu húsi, skipulögðum ferðum og heimsóknarþjónustu. Þær halda skyndihjálpamámskeið fyrir almenning, sjá um blóð- söfnun og fatasöfnun. Saman leggja þær fram fé til reksturs Hússins, sem neyðarathvarf fyr- ir böm og unglinga í Reykjavík, og styrkja þróunarverkefni í fjarlægum löndum. Verðlaun fyrir tíu ára starf. Frœðimaöurinn JÓN GUNN- L4 UGUR FRWJÓNSSON, 49 ára gamall, hlaut Islensku bókmennta- verðlaunin 1993 í flokki frœðirita fyrir bók sína MERG MÁLSINS, sem Örn og Örlygurgaf út fyrir jól- in. Að þeirri bók vann höfundurinn meira og minna í fristundum sín- um í heilatt áratug. Arangurinn er líka frábœr. HANNES PÉTURS- SON, Ijóðskáld, hlaut Itinsvegar verðlaunin í flokki fagurbók- mennta, fyrir Ijóðabók sína ELD- HYL, sem Iðunn gaf út. Forseti ís- lands, frú VIÖDÍS FINNBOGA- DÓTTIR, afhenti verðlaunin í fyrradag. Verðlaun hvors verð- launahafa um sig eru 500 þúsund króitur. A myndinni er Jón G. Friðjónsson ásamt AGLI BJARKA, syni sínum, sem lieldurá verðlaunagripnum, sem listasmið- urinn JENS GUÐJÓNSSON gcrði, opna silfurbók i granitstöpli. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason § FLOKKSSTJÓRNARFUNDUR Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands - boðar til flokksstjórnarfundar laugardaginn 5. mars 1994. Fundurinn verður haldinn á Hótel Holiday Inn í Reykjavík og hefst klukkan 10.15. Dagskrá auglýst síðar. Að venju er fundurinn opinn öllum flokksmönnum, en ef til atkvæðagreiðslu kemur hafa einungis kjörnir fulltrúar í flokksstjórn atkvæðisrétt. - Formaður. STIJTTFRFTTIR Nýr sýslumaður í Borgarnesi Forseti íslands hefur að tillögu dóms- og kirkjumálaráðherra skipaðStefán Skarp- héðinsson, sýslumann á Patreksfirði, tii að vera sýslumaður í Borgarnesi frá og með næstu mánaðamótum. Málfarið í sænska ríkisútvarpinu Það er víðar en á íslandi sem menn hafa áhyggjur af málfarinu í fjölmiðlum. Á morg- un, fimmtudaginn 17. febrúar. heldur Dr. Áke Joasson, lektor, fyrirlestur í stofu 101 í Odda, um skoðanir hlustenda á málfari sænska ríkisútvarpsins. Fyrirlesturinn heitir Men snalla Sveriges radio! Jonsson var á árunum 1981-1991 málfarsráðunautur Sveriges Radio, en stundar nú rannsóknir á kvörtunum almennings um málfar í ljós- vakaljölmiðlunum. Fyrirlesturinn er á sænsku og er öilum opinn. Minningar frá Sigló í Fold Gallerí Fold í Austurstræti 3, sýnir um þessar mundir vatnslitamyndir eftir Sigurjón Jóhannsson. Sigurjón er ekki aðeins einhver besti leiktjaldamálari okkar, heldur hef- ur hann vakið athygli fyrir minni myndir sínar og málverk. Hann hefur haldið nokkr- ar einkasýningar og tekið þátt í fjölda samsýninga. Myndimar sem Siguijón sýnir eru minningar ffá Siglufirði, heimabæ málarans, frá stldarárunum þar í bæ. Opið er á af- greiðslutímum verslana í Gallerí Fold. Líf kvenna árið 2000 Framkvæmdanefnd Nordisk Forttm, norræna kvennaþingsins sem fram fer í Aho í Finnlandi í sumar, hefur ákveðið að cfha til ritgerðarsamkeppni ungs fólks 16 til 19 ára um efnið: Ungar komir á Norðurlöndunum, - hvernig verður Itf kvenna árið 2000? Upplýsingar um keppnina hafa verið sendar til framhaldsskólanna. Vegleg verðlaun eru í boði, frá 30 þúsundum niður í 10 þúsund. Auk þess er vinningshöfum boðið á Nordisk Forum og frítt uppihald þar. Það er því til mikils að vinna. Birna Hreiðarsdóttir hjá skrifstofu Nordisk Forurn, símar 27065 og 27420 veitir allar upp- lýsingar. Mannlífsmynd frá Ábo, scm Finitar nefna reyndar oftast Turku, borg sem fólk hrífst auð- veldlega að. Myndirnar tók Þórunit Gestsdóttir, ritstjóri Farvtss-Áfanga, en í blaðinu sem varað koma út ergrein um borgina. Talar gegn Evrópusambandinu Daninn Jens Peter Bondc er frægur fyrir andstöðu súia gegn Evrópusambandinu eins og það nú heitir. Hefur hann haldið fyrirlestra svo hundmðum skiptir og gefið út bækur og blöð og haldið úti hinu harðvítugasta trúboði gegn Evrópubandalaginu - nú Evrópusambandinu. Bonde er með fyrirlestur í dag klukkan 16 íNorrœna húsinu. Hann þykir sérlega áheyrilegur. Allir velkomnir. Gjaldskrá lögmanna hafnað IJjgmannafélag íslands óskaði eftir því við Samkeppnisráð að fá undanþágu frá banni í samkeppnislögum til að gefa út leiðbeinandi gjaldskrá. Á lúndi Samkeppnis- ráðs í síðustu viku var þcssari beiðni lögmanna um undanþágu alfarið hafnað. Þeir verða í framtíðinnl að semja sínar eigin gjaldskrár, hver fyrir sig, og án samráðs við kollegana. Sterkasfa kona landsins valin Nýstárleg keppni verður haldin í Reiðhöllinni í Víðidal 16. apríl næstkomandi. Þar verður valin Sterkasta kona landsins, eftir að keppendur hafa stundað bfidrátt; haldið útréttum höndum; sekkjadrátt, steinatök á tunnur og gengið Dauðagöngu. Upplýsingar um þetta gefa Andr- és í sfma 79234 og Pétur í 650809. Konurgeta vcrið stcrkar eins og sjá má á myndinni, þessi cr ekki beinlinis að lyfta innkaupapokum frá Bónus. Einar Hákonarson í Hafnarborg Listmálarinn Einar Hákonarson opnaði 18. einkasýningu sfna íHafnarborg í Hal'n- artirði á laugardaginn. Hann hefur undanfarið mikið sýnt í útlöndum. en síðast hér heima á Kjarvalsstöðum 1991. Á sýningunni í Hafnarborg eru 30 verk unnin með akrýllitum á striga og plexígler. Aðferðin gerir Einari kleift að fá myndimar til að rísa upp af léreftinu og f'á aukna dýpt, auk þess sern tvöfaldur flöturinn - léreftið og plex- íglerið - býður upp á óvænta möguleika í samspili mynda og bakgrunns. Opið í Hafn- arborg frá 12 til 18 alla daga nema þriðjudaga. Sýning Einars stendur til 28. febrúar.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.