Alþýðublaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 5

Alþýðublaðið - 16.02.1994, Blaðsíða 5
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 Miðvikudagur 16. febrúar 1994 PÓLITÍK RÖKSTOLAR „Alveg óvenjulega ógeð- felldur ungur maður“, sagði Bjarni heitinn Benedikts- son með sínum sérkenni- lega hreim urn Ólaf Ragnar Grímsson á árum áður þeg- ar Ólafur Ragnar kom einna fyrst fram opinberlega. Frá þessu segir í fréttaskýringu tímaritsins EFST Á BAUGI sem nýkomið er út. Jónas Sigurgeirsson sagnfræð- ingur tekur skrautlegan stjórnmálaferil Ólafs Ragn- ars fyrir í mikilli grein í blaðinu. Þar kemur fram að Ólafur Ragnar hefur nú gerst talsmaður siðbótar í ís- lenskum stjómmálum. Sú siðbót kemur úr nokkuð óvæntri átt. I fréttaskýringu blaðsins er lýst uppvexti Ólafs Ragn- ars sem einbirni vestur á fjörðum, hann er sonur Gríms Kristgeirssonar, rakarameistara, krata og bæjarfulltrúa Alþýðuflokks- ins á ísafirði, og Svanhildar Ólafsdóttur Hjartar, sem lést fyrir aldur fram. Snemma bar á röggsemi í fari Ólafs Ragnars, rnælsku og stjómsemi. Hann haslaði sér ungur völl innan ung- liðahreyfingar Framsóknar- flokksins og hvatti þá mjög til „víðtækrar vinstri hreyf- ingar“. Hvað getur Framsókn gert fyrir Ólaf Ragnar..? En hjá Ólafi Ragnari gætti snemma þess ágalla að fara fijálslega með fé, kem- ur fram í tímaritinu á EFST Á BAUGI. Aðeins 23 ára gamall var hann með út- varpsþáttinn Þjóðlíf og þá gerðist það að hann lét Rík- isútvarpið borga fyrir sig Vestmannaeyjaferð sem hann notaði meðfram til að halda fund með ungum framsóknarmönnum þar í bæ. Þetta komst í hámæli og þótti hið versta mál hjá ung- um siðvæðingarmanni. Eitt fyrsta verk Ólafs að loknu doktorspróli í stjóm- málafræðum í Manchester var að bjóða þeim Eysteini Jónssyni, leiðtoga fram- sóknarmanna, og Erlendi Einarssyni, þá forstjóra SÍS, í hádegisverð í Grillinu á Hótel Sögu. Að loknum snæðingi lagði Ólafur Ragnar frá sér hnífapörin, leit á boðsgesti sína og sagði: „Jæja, hvað getur Framsóknarflokkurinn gert fyrir Ólaf Ragnar Gríms- son?“ Varð fátt um svör. Hinsvegar segir í grein- innni að í raun hafi Gylfi Þ. Gíslason komið Ólafi Ragnari til hjálpar með því að beita sér fyrir stofnun bandalag- ið 1976 og var tekið með kostum og kynjum. Fór Ól- afur senn hamfömm á mannamótum og boðaði nú stefnu Alþýðubandalagsins. Inn á þing - og út af því aftur Ólafur Ragnar náði lang- þráðu rnarki þegar hann settist á þing 1978 og náði endurkjöri í kosningunum 1979, en féll út af þingi 1983 og hafði þá verið for- maður þingflokksins í þrjú ár. í grein Jónasar Sigur- geirssonar er greint frá íjöl- miðlabrellum Ólafs Ragn- ars. Hann stundaði það að hringja í fréttafátæka DV- menn á réttum tímum á morgnana og lak í þá ýmsu sem honum kom vel. Síðar áttuðu blaðamenn sig á hvemig þeir höfðu verið (mis)notaðir, og símtöl Ól- afs Ragnars mæltust ekki eins vel fyrir og fyrrum. Margar þær „fréttir" sem Ólafur símaði inn eins og hver annar fréttaritari blaðs- ins, voru þvaður eitt og urðu fjölmiðlum síður en svo lil framdráttar. Formennskan undirbúin Rúinn fylgi og þing- mennsku tók Ólafur við rit- stjórastarfi á Þjóðviljanum sáluga frá 1983 til 1985 auk þess sem hann gerðist frið- arpostuli í alþjóðlegunt þingmannasamtökum. Inn- an samtaka þessara villti Ól- námsbrautar við Háskóla ís- lands í almennum þjóðfélagsfræð- um. Þar fékk hinn ungi f r a m - sókn- a r - m a ð u r stöðu sem lektor og síðar sem prófessor. Síðar átti hann eftir að láta „geyma“ stöðuna fyrir sig árum santan við litlar vinsældir manna meðan hann vasaðist í pólitík. Vonlaust í Framsókn En metorðin innan Fram- sóknarílokksins létu á sér standa. Ólafur Jóhannes- son sem tók við formennsk- unni 1968 var sama sinnis og Bjarni Benediktsson og lagði fæð á efnisdrenginn. Ólafur Ragnar varð þó full- trúi í útvarpsráði og varð frægur að endemum í því staríi sínu, fékk jafnvel út- varpsstjórann, Andrés Björnsson, gegn sér og neitaði Andrés að sækja fundi útvarpsráðs. Árið 1971 sá Ólafur fram á að framinn yrði enginn innan Framsóknarflokksins og ákvað að róa á önnur mið. Hann gekk þá í Samtök frjálslyndra og vinstri manna undir forystu Hanni- bals Valdimarssonar og Björns Jónssonar. Þar hreiðraði hann um sig og myndaði hóp sem kallaður var Möðruvallahreyfingin. I þingkosningum 1974 var Ólafur í framboði á Austfjörðum og átti nokkrar snerrur við Lúðvík Jóseps- son. Leist Lúðvík vel á pilt- inn. Samtökin áttu ekki upp á pallborðið hjá kjósendum og lognuðust senn útaf, - en Ólafur var nánast kominn með boðsmiða inní Alþýðu- bandalagið vegna áhuga Lúðvíks á hinum orðljóta klofningsmanni úr Fram- sóknarflokknum. Ólafur gekk því til liðs við Alþýðu- Pínulítið útgáfufélag, Svart á hvítu, í eigu Alþýðu- bandalagsmanna, var að fara á hausinn. Ólafur Ragn- ar gerði þá þau siðlausu „viðskipti" við vini sína í því félagi að kaupa af þeim gagnagrunn fyrir 24 millj- ónir króna sem veð upp í launa- og söluskattsskuldir. Þetta var að sjálfsögðu hrein gjöf til vina og gerði ekki annað en að lengja líf þessa ólukkufyrirtækis um meira en ár. Gjaldþrolið varð fyrir vikið enn stærra en ella, hátt í 400 milljónir króna þrátt fyrir smæð Svarts á hvítu. Siðleysi Ólafs Ragnars í þessu tilviki vakti óhemju athygli enda var hann kom- inn til valda sem hinn flekk- lausi stjómmálamaður og siðvæðingarmaður. Sem fjármálaráðherra hafði hann líka heldur betur gert í bólið sitt, því veðtakan í hinum gagnslausa gagnagrunni þýddi að ríkissjóður missti forgangskröfurétt í búið og tapaði um 10 milljónum króna. Samherjum þakkað með tugmilljóna gjöf En einkavinir Ólafs Ragnars voru víðar en í Al- þýðubandalaginu. Sem fjár- Nú blasti við Ól- afi nrikil dýrð og mikil dásemd, frægð, frami og völd. Haustið 1988 varð hann (jánnálaráðherra í stjóm Steingríms Hermannsson- ar. Jónas Sigurgeirsson bendir á að snemma hafi hann notað tækifærin til að hygla einkavinum sínum. Em þar nefnd nokkur skýr dæmi. málaráðherra gerði hann góðverk við samheija sína í Framsóknarflokknum þegar hann gaf eftir skatlaskuldir Nútímans - blaðsins NT sem frægt var að endemum. Það kostaði skattborgarana 8,5 milljónir króna - og ekki afur Ragnar á sér heimildir, enda ekki þingmaður lengur. Þrátt fyrir v a x a n d i a n d ó f g e g n Ólafi nóg með það, Coca Cola keypti tap Nútímans og rík- issjóður varð þarmeð af 70 milljón króna skatttekjum framleiðanda drykkjarins, Vífilfells hf. Einkavinavæðingin tók nú á sig hin ýmsu form. Rifjað er upp dæmið af Jóni Gunnari Ottóssyni, for- stöðumanni rannsókna- stöðvar Skógræktar ríkisins sem Steingrímur Jóhann Sigfússon vék úr stöðu sinni. Ólafur tók hinn brott- rekna upp á sína arma og réð hann þegar í sérverkefni á vegurn fjánnálaráðuneytis þrátt fyrir svarta skýrslu rík- isendurskoðunar á embætt- isfærslu hans. Með þessu hreppti Ólafur vináttu Margrétar Frímannsdótt- ur alþingismanns, sarnbýl- iskonu forstöðumannsins. Bruðlið í ráðuneyti Ólafs Sem ljármálaráðherra réð Ólafur Ragnar þrjá aðstoð- armenn, vini sína, Má Guð- mundsson, Svanhildi Jón- asdóttur, varaformann Al- þýðubandalagsins og loks Mörð Árnason. Hækkaði rekstrarkostnaður ráðuneyt- is Ólafs mest allra ráðu- neyta, eða um 112% á tveim árum. Skrifstofukostnaður sjálfs ráðherrans hafði hækkað um 129% frá tíð fyrirrennarans, Jóns B a 1 d v i n s Hannibals- sonar og þurfti ráðu- neytið 990 millj- óna króna aukafjárveit- ingu í fjáraukalög- urn vegna taumlausrar eyðslu. Þannig hafði Ólafi nær tekist að gera tjármála- ráðuneytið gjaldþrota! Brotlegum embættismanni umbunað En Ólafur Ragnar telur sig þó þess umkominn að i nnan Alþýðu- bandalags- ins undirbjó hann framboð sitt til formennsku í fiokknum 1985, þegar vitað var að Svavar Gestsson hygðist láta af fonnennsku á landsfundinum 1987. Flokkseigendur svokallaðir vildu fyrir alla muni hindra Ólaf Ragnar, en tókst ekki. Fámennt lið en harðsnúið nægði Ólafi til að ná æðstu völdum. Vinirnir fá sín laun - þjóðin borg- ar ræða af hita um ráðdeild og spamað. Það rifjar upp und- irfurðuleg afskipti hans af málefnum fræðslustjóra norðan heiða, sem Sverrir Hermannsson lét reka fyrir að l'ara ítrekað fram úr Ijár- lögunt. Ólafur lék í þessu til- viki hinn miskunnsama samverja og lél greiða hin- um brotlega embættismanni stórl'elldar bætur og tók mál hans frá Hæstarétti. Það kostaði ríkissjóð mikið fé og var slæmt fordæmi fyrir aðra embættismenn. í grein Jónasar eru rifjaðir upp hinir stórkostlegu samningar Ólafs Ragnars við vini sína í Bandalagi há- skólamenntaðra ríkisstarfs- manna - BHMR í maí 1989. Öllum er Ijóst hvílík tíma- sprengja þar var tendmð. Enda lýsti Ólafur Ragnar því yfir 14 mánuðum síðar að samningurinn væri óskapnaður og sagði honum upp. Öll voru vinnubrögð Ólafs Ragnars lítt ígrunduð og flaustursleg og honurn til mikillar skammar sem stjómmálamanni. Fyrirtæki nánast gefin - vinum Enn dæmi um einkavina- væðinguna eru nefnd. Ólaf- ur Ragnar gaf nánast fyrir- tækið Þormóð ramma á Siglufirði undir merkjum einkavæðingar. Ríkisendur- skoðun fór í kaupsamning- inn og komst að raun um að fyrirtækið hafði verið afhent á hálfvirði. Kaupendur voru ein tjölskylda, vilhöll Al- * þýðubandalaginu. Fómar- kostnaður skattborgara var talinn vera í það minnsta 100 milljónir króna. Annað fyrirtæki á Siglufirði afhenti Ólafur reykvískum aðilum á undirverði og skaðaði ríkis- sjóð þar stórlega. Fleiri dæmi em urn óráð- síu og einkavinavæðingu Ólafs Ragnars á valdastóli í greininni í EFST Á BAUGI, en hér látum við staðar num- ið að sinni. Ljóst er að Ólaf- ur Ragnar hefur reynst þjóð- inni dýr starfskraftur. Það var því ánægjuefni að Davíð Oddsson tók af öll tvímæli urn það að hann muni aldrei sitja í ríkisstjóm með þess- um fyrrverandi tjármálaráð- herra þjóðarinnar á ámnurn 1988-1991. Nú bíðurn við eftir næstu siðvæðingar- ræðu ráðherrans fyirverandi úr ræðustóli Alþingis. Mun- ið að þar fer maðurinn sent slundum hefur verið kallað- ur Hriflujónas án hugsjóna. H

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.