Alþýðublaðið - 16.02.1994, Qupperneq 8
S A M ,T O K
UM ADSKILNAD RÍKIS OG KIRKJU
Björgvin
upplýsingar og skráning stofnenda
s: 95-22710
(kl. 17-19)
MHBUBLMÐ
S A M T O K
UM AÐSKILNAD RÍKIS OG KIRKJU
upplýsingar og skráning stofnenda
Björgvin S! 95-22710
Ikl. 17-19)
Miðvikudagur 16. febrúar 1994
26. TOLUBLAÐ - 75. ARGANGUR
Tilboð í brú yfír Jökulsá á Brú:
HAGSTÆÐU TILBOÐIHAFNAÐ VEGNA UTLITS
I greinargerð segir að brúarstæðið verði líklega vinsæll áningarstaður ferðamanna í framtíðinni,
enda vel í sveit sett á hringveginum. Bent er á að brúarstæðið sé eitt hið elsta á landinu
og af þeim sökum þyki mikilvægt að útlit brúarinnar verði eins og best verði á kosið
Vegagerð ríkisins
hafnaði frávikstilboði
sem ístak hf. gerði í
byggingu brúar yfir Jök-
ulsá á Brú undir lok
janúar síðastliðins. Var
tilboðið þó um 10 milljón
krónum lægra en það til-
þoð sem næst kom og
Istak átti einnig.
Þetta lága tilboð var í stál-
grindarbrú úr hægtryðgandi
stáii með steyptu gólfi úr for-
steyptum einingum, segir í
Framkvæmdafréttum Vega-
gerðarinnar. Millistöplar voru
úr V- laga stáli.
En tilboðinu var hafnað af
fegurðarástæðum, en gengið
til samninga við Istak á
grundvelli hærra tilboðs fyrir-
tækisins.
I greinargerð segir að útlit
grindarbrúarinnar geti varla
talist viðsættanlegt út frá fag-
urfræðinni. Nýja brúin verður
hæsta brú á landinu, um það
bil 30 metra ofan við vatns-
borð árinnar. Slík mannvirki
draga gjaman að sér athygli
vegfarenda. Brúin kemur til
með að blasa við af veginum
beggja vegna því vegurinn
liggur í mjúkum sveig að
henni. Frá veginum út í Jök-
ulsárhlíð sést hún hinsvegar
beint frá hlið. Segir í greinar-
gerðinni, sem Baldvin Einars-
son verkfræðingur samdi, að
brúarstæðið verði líklega vin-
sæll áningarstaður ferða-
manna f framtíðinni, enda vel
í sveit sett á hringveginum.
Einnig er bent á að brúarstæð-
ið er eitt hið elsta á landinu.
Af þeim sökum þyki mikil-
vægt að útlit brúarinnar verði
eins og best verði á kosið og
að brúin falli vel að umhverfi
sínu.
Bogabrúin sem boðin var út
þyki uppfylla öll skilyrði
varðandi útlit. Bogabrýr þyki
almennt fallegar, sérstaklega í
gljúfrum þar sem bogaformið
fær að njóta sín til fulls. Þá sé
brúin með sama formi og
gamla brúin sem var byggð
1931. „Grindabrýr hafa aidrei
þótt fallegar og er tillagan í
frávikstilboðinu þar engin
undantekning", segir í grein-
argerð Baldvins Einarssonar.
Stjórnandinn - Dietfried
Bernet, sem nú gerir stóra
hluti eftir langa jjarveru
vegna veikinda.
Einleikarinn - Einar Jó-
hannesson, sem gestir á tón-
leikum Sinfóníuhljómsveitar
íslands þekkja af góðu.
Vor í lofti á tónleikum
Sinfóníunnar annað kvöld:
Dáður austurrískur
STJÓRNANDI
Austurríski hljómsveitarstjórinn Dietfried Bernet
mun stjóma Sinfóníuhljómsveit Islands á tónleikunum
annað kvöld. Hann hleypur í skarðið fyrir bandarískan
starfsbróður sinn, Maximiano Valdes, en hann átti ekki
hcimangengt. Bemct þurfti að leggja hljómsveitastjóm á
hilluna sökum heilsubrests tæplega þrítugur að aldri, en
um það leyti var feriil hans óvenju glæsilegur. Stíirfaði
hann þá við bæði óperuhúsin í Vínarborg, auk þess að
vera tónlistarstjóri í Maittz í Þýskalandi. Eftir að Bernet
náði heilsu á ný hefur hver stórviðburðurinn rekið ann-
an í ferli hans.
Einleikari á lónleikunum annað kvöld er Einar Jó-
hannesson, 1. klarinettuleikari Sinfóníuhljómsveitar-
innar og tónleikagestum að góðu kunnur. Einar er vel
menntaður og hefur starfað og numið erlendis, auk þess
sem hann hefur farið í tónleikaferðir víða um heini og
oft Ilutt verk sem sérstaklega hafa verið samin fyrir
hann. Hefur hann hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir leik
sinn.
Tónleikamir hefjast með forleiknum að óperu We-
bers, Töfraskyttunni; þá tekur við klarinettukonsert nr. 1
cftir Weber og loks Sinfónia nr. 1 eftir Robert Schu-
mann, Vorsinfónían, sem er við hæfi nú, þegar menn
I'ara að huga að nýju vori, sem vonandi er handan við
homið.
• »
FJAROFLUNARDAGUR
RAUÐA KROSSINS
OSKUDAGUR
' er hefðbundinn fjáröflunardagur Rauða kross deildanna. Á hveiju ári
síðan 1925 hafa börn og unglingar aðstoðað Rauða krossinn við landssöfnun þennan dag.
í ár bjóða sölubörnin áletraða penna til sölu sem kosta 200 krónur og stendur salan
fram að næstu helgi.
Fénu sem safnast er varið til mannúðar- og þjóðþrifamála á vegum
Rauða kross deildanna sem eru 50 talsins.
Við hvetjum alla landsmenn til að taka vel á móti sölubörnunum og styrkja þannig
innanlandsstarf Rauða kross Islands á sjötugasta afmælisári hans.
+
Rauöi kross Islands
Rauðarárstíg 18, 105 Reykjavík, sími 91-626722
Sölubörn athugið: Afhending penna fer fram í öllum félagsmiðstöðunr í Reykjavík,
hjá URKI R Þingholtsstræti 3, félagsmiðstöðinni Vitanum Hafnarfirði og Bólinu í Mosfellsbæ.