Alþýðublaðið - 04.03.1994, Blaðsíða 7
Föstudagur 4. mars 1994
LAN B U R.B
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7
Kjötiðnaðarmaðurinn Jónas Þór hefur trú á íslenskum bændum:
DRAUMASTAÐAN
er að útflutningur standi undir
verðlækkunum innanlands
- Rætt við Jónas Þór Jónasson, kjötiðnaðarmann með meiru,
um verðstríðið, misheppnaðar nautaveislur kúabænda
og útflutning íslenskra landbúnaðarafurða
JÓNAS ÞÓR: „Ég hef oft sagtþað að við eigum til dœmis einstakan nautgripastofn sem hvergi er til annars-
staðar íheiminum. Þetta kjöt á þvíað geta selt sig út á bragðið, hollustuna og hreinleikann - eitthvað sem er
öðnm'si en stóru framleiðendurnir bjóða upp a.“
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Það hefur ekki farið
framhjá landsmönnum
að íslenskur landbúnað-
ur hefur verið í kastljósi
fjölmiðla að undanförnu
og þykir mörgum nóg
um. Þetta hafa ekki ein-
ungis verið deilur milli
stjórnarflokkanna um
breytingar á búvörulög-
um, heldur hefur geisað
verðstríð á kjötmark-
aðnuni, sem beint eða
óbeint má rekja til kröfu
neytenda um lægra mat-
arverð.
En þrátt fyrir mikið tal
um innflutning á erlend-
um landbúnaðarafurð-
um, þá stendur kjötstríð-
ið ekki milli innlendra og
erlendra matvæla heldur
fljúgast þarna á kjúk-
Iingar og naut, svín og
sauðfé. Kjúklingabænd-
um og svínabændum
hefur tekist að skila
raunverulegri Iækkun á
sínum afurðum til neyt-
enda og þessa dagana
stendur yflr útsala á
lambakjöti. Þetta hefur
sett kúabændur í vanda
og þeir segjast ekki geta
lækkað verð á nautakjöti
meira en orðið er.
Kaupmenn og kjötiðn-
aðarmenn eru á öðru
máli og uppá síðkastið
höfum við orðið vitni að
hörðum skeytasending-
um milli formanns Fé-
lags kúabænda og Jónas-
ar Þórs Jónassonar kjöt-
iðnaðarmanns sem rekur
fyrirtækið Kjöt hf. Al-
þýðublaðið settist niður
með grillmeistaranum og
ræddi við hann um verð-
stríðið, viðskiptahætti á
kjötmarkaðnum og
möguleika á útflutningi
íslenskra landbúnaðar-
afurða.
Markaðssetning
skiptir öllu
Jónas Þór segir að þessi
umræða sé ekkert ný fyrir sér,
hann hafi oft á undanförnum
árum bent á nauðsyn þess að
lækka verð á kjötvörum og
boðist til þess að aðstoða
framleiðendur við það að
kynna og markaðssetja afurð-
ir þeirra á betri hátt en gert
hafi verið.
„Eg held í rauninni að þetta
verðstríð núna sé eitthvað
sem menn máttu búast við.
Það sem helst hefur farið úr-
skeiðis að mínu mati er það,
að menn hafa ekki hugað að
því að stjóma framleiðslunni
eftir kröfum markaðarins,
heldur einblínt á beina fram-
leiðslustýringu og svo er farið
að leita að mörkuðum á eftir“,
segir Jónas Þór.
Hann segist þama aðallega
vera tala um nautakjöt, því að
þeir sem til þekkja hafi vitað
það fyrir margt löngu að það
stefndi í offiamleiðslu. Það sé
öllum ljóst að offramleiðsla
þýði verðlækkun, slík staða
hafi haft áhrif á lækkun
lambakjöts og nautakjöt
hafi reyndar lækkað lítillega.
Jónas Þór segir að sú mikla
umræða sem átt hafi sér stað
um aukið viðskiptafrelsi og
innflutning búvara hafi ef-
laust haft einhver áhrif á kröf-
una um lægra vömverð á inn-
lendri framleiðslu.
„Það hafa verið gerðar til-
raunir til innflutnings, sem
ekki hafa borið árangur. Það
góða við þetta er kanski það
að samkeppnin milli tegunda
innbyrðis hér heima hefur
komið betur í ljós. Kjúklingar
og svínakjöt hafa nokkra sér-
stöðu í þessu sambandi, því
þar hafa markaðslögmálin
fengið að ráða.“
Hakká
grillið?
Jónas Þór segir að allt önn-
ur lögmál gildi um fram-
leiðslu og sölu nautakjöts.
Verð á nautakjöti sé til
dæmis bundið í lög og ekkert
tillit sé tekið til þess hvort
markaðurinn vilji kaupa eða
ekki.
Jónas er ósammála for-
svarsmönnum kúabænda sem
telja að ýmislegt hafi verið
gert í kynningar- og markaðs-
málum hvað varðar sölu á
nautakjöti.
Hann segir að ýmislegt hafi
verið reynt, en algjörlega án
samráðs við markaðinn.
„Þessar markaðstilraunir
hafa algjörlega mistekist, en
þær hafa hins vegar kostað
umtalsverðar fjárhæðir", seg-
ir Jónas Þór.
Sem dæmi um misheppnað
markaðsátak nefnir Jónas
Nautaveisluna svonefndu
sem kúabændur buðu til í
fyrravor. Hann segir að mjög
illa hafi verið staðið að öllum
tilboðum til kjötvinnslu-
stöðva.
„Það hafði meðal annars
áhrif á stórmarkaðina sem
ekki vildu vera með í þessu
átaki.
Fyrir utan það að þessi til-
raun til aukinnar sölu á nauta-
kjöti var ekki í neinu sam-
ræmi við markaðinn. Þetta
var á vitlausum tfma, því
menn voru að reyna að selja
hakk og gúllas þegar sumarið
var að fara í hönd og grilltím-
inn að hefjast. Auðvitað átti
að selja grillkjöt á þessum
tíma.“
Seljum
sérstöðuna
En Jónas Þór leggur
áherslu á að ekki megi hengja
sig um of í þau mistök sem
gerð hafi verið á undanföm-
um ámm því margt bendi til
þess að framundan séu já-
kvæðir straumar og spenn-
andi verkefni.
I því sambandi á hann með-
al annars við hreinleikavott-
orðið sem íslenskir kjötfram-
leiðendur hafa fengið frá
bandarískum yfirvöldum.
Jónas Þór segir að þetta vott-
orð hafi reyndar átt að vera
komið fyrir löngu sfðan og
minnir á að fyrir 5-6 árum síð-
an hafi hann byijað að skrifa
um möguleika á því að flytja
út íslenskt nauta- og lamba-
kjöt og selja sem gæðavöm
erlendis. A þeim tíma hafi
bara verið hlegið að honum.
„Eg hef oft sagt það að við
eigum lil dæmis einstakan
nautgripastofn sem hvergi er
til annarsstaðar í heiminum.
Þetta kjöt á því að geta selt sig
út á bragðið, hollustuna og
hreinleikann - eitthvað sem er
öðruvísi en stóru framleið-
endurnir bjóða upp á.“
Jónas Þór er semsagt sam-
mála ýmsum íslenskum fram-
leiðendum að það eigi að
markaðssetja þetta kjöt sem
gæðavöm vegna heinleikans
og umhverfisins. „Við verð-
um að leggja áherslu á sér-
stöðu íslenskra afurða og fara
með þetta kjöt á markaði þar
sem mjög hátt verð fæst fyrir
það.
Það sem teljast vera miklar
umframbirgðir hér heima er
mjög Iftið magn þegar komið
er út í hinn stóra heim. Ætli
það yrði ekki nóg fyrir okkur
að ná góðum samningum við
eina stóra hótelkeðju út í
Bandaríkjunum, eða við stórt
alþjóðlegt flugfélag?"
Úrvalskjöt á
útsöluverði
„Ég er hins vegar ósáttur
við þann mikla trylling sem
hefur orðið hjá ýmsum aðil-
um með tilkomu þessa hrein-
leikavottorðs. Menn hafa
stokkið upp til handa og fóta
og gert einhverja tilrauna-
samninga án þess að spá mik-
ið í afleiðingamar fyrir fram-
tíðina.
Mér sýnist að framleiðend-
ur ætli að selja úrvals nauta-
kjöt á svona 160 krónur kíló-
ið, sem þýðir að bændur cru
að fá 100 krónur í sinn vasa.
Samkvæmt fullyrðingum
þeirra um framleiðslukostn-
að, þá er þama um hreinar
niðurgreiðslur að ræða.“
Jónas þór segir að þama
geti verið um dýrmæt mistök
að ræða, því það sé mjög erf-
itt að koma svo eftir á og
krefjast stórhækkaðs verðs
fyrir sömu vöm.
í kjölfar þessara útflutn-
ingstilrauna kúabænda hafa
Jónas og fleiri kjötiðnaðar-
nienn krafist þess að fá nauta-
kjötið á sama verði og vænt-
anlegir kaupendur í Banda-
ríkjunum l'á það á.
Fonnaður Félags kúa-
bænda hefur sakað Jónas um
að eyðileggja mikilvæga
markaðssetningu erlendis
með svona kröfurn. Þetta er
hinn mesti inisskilningur seg-
ir Jónas.
„Ég benti á það fyrir tveim-
ur ámm síðan að það væri að
skapast offramleiðsla á nauta-
kjöti og grípa þyrfti til rót-
tækra aðgerða í markaðsmál-
um, meðal annars hyggja að
útflutningi. Þessu var ekki
sinnt og á meðan hafa íslensk-
ir neytendur haldið fram-
leiðslunni á floti. Þeir hafa
ekki fengið að njóta verð-
lækkanna eins og gerðist
vegna ofífamleiðslu hjá kjúk-
linga- og svfnabændum.
Ég get síðan ekki horft á
það þegjandi og hljóðalaust
að það eigi að fara flytja þetta
úrvals nautakjöt úr landi og
bændur sætti sig við mun
lægra verð en mér er boðið til
þess að vinna nautakjöt fyrir
íslenska neytendur," segir
Jónas Þór.
Hagsmunir
neytenda
Hann segir að aðalatriðið
sé að íslenskir neytendur njóti
sömu verðlækkanna og verið
sé að bjóða á þessu sama ís-
lenska kjöti erlendis.
Jónas Þór segir að drauma-
staðan í framtíðinni sé hins
vegar sú að hægt verði að
selja bæði nautakjöt og
lambakjöt á það háu verði er-
lendis að það gefi möguleika
á verulegum verðlækkunum
hér heima.
„Þá verður staðan orðin sú
að útlendingar greiða í raun
niður kjötvömr fyrir innan-
landsmarkað - en hingað til
hefur þetta verið öfugt því ís-
lenskir neytendur hafa verið
að greiða niður lambakjöt
sem síðan hefur nánast verið
gefið útlendingum".
Hann segir að söluaðilum
bændahreyfingarinnar hafi
aldrei tekist að flytja út kjöt
með hagnaði, eftir hefð-
bundnum markaðsleiðum.
Jónas Þór fullyrðir hiús vegar
að það sé hægt. Hann hefur
sjálfur verið að gera smá til-
raunir með markaðssetningu.
Þær hafi borið góðan árangur,
en of snemmt sé að segja til
um áframhaldið.
VIII vinna
með bændum
Jónas Þór leggur áherslu á
það að gagnrýni hans á for-
mann Félags kúabænda bein-
ist ekki gegn bændum sjálf-
um. Þvert á móti, því hann vill
vinna fyrir bændur og leggja
sitt að mörkum við að tryggja
íslenskunr neytendum betri
gæði og lægra verð á kjötvör-
um. Jónas Þór vill deila með
þeim sinni reynslu og sínurn
hugmynduin um útflutning
íslenstaa landbúnaðarafurða.
Hann hefur meira að segja
boðið þeim starfskrafta sína
formlega. í byrjun þessa árs
var starf framkvæmdastjóra
félags kúabænda auglýst laust
til umsóknar. Jónas Þór sótti
um enda með víðtæka reynslu
af vinnslu og sölu nautgripa-
kjöts. Hann segir að untsókn-
arfresturinn sé runninn út, en
hann hafi ekkert heyrt frá
stjóm félags kúabænda. „Þar
sem mér hefur ekki verið
hafnað skriflega, þá túlka ég
það svo að ég sé ennþá inni í
myndinni. Þeir halda kanski
að ég sé að grínast með því að
sækja um starf hjá bænda-
samtökunum, en ég tel mig
hafa talsverða hæfileika í
þessa stöðu og sæki því um í
fúlustu alvöru."
Það sem Jónas vill rneðal
annars beita sér fyrir er mark-
vissari ræktun á íslenska naut-
gripastofninum en verið hefur
hingað til. Hann segir að
ræktun hafi skilað miklum ár-
angri hjá sauðíjárbændum, en
nautin hafi gleymst. Þá leggur
hann á það áherslu að kjötvör-
ur til útflutnings verði full-
unnar hér heima og síðan
fluttar út í neytendapakkning-
um. Þannig fáist hærra verð
fyrir þær auk þess sent það
skapi meiri atvinnu hér
heima.
Að lokum nefndi hann að
það væri mikilvægt fyrir alla
aðila sem starfa við frarn-
leiðslu, fullvinnslu og sölu
kjötvöm að þeir nýti krafta
sína sameiginlega í stað jiess
að deila. Jónas Þór telur því
brýnt að bændur, sláturleyfis-
hafar, fulltrúar afurðarstöðva
og kjötiðnaðarmenn setjast að
samningaborði á næstunni.
Hvort þai' verður samið urn
frið í „kjötstríðinu“ verður
tíminn að leiða í ljós.
JÓNAS ÞÓR á góðri stundu með áhugamálinu. Hvernig skyldi það
liafa smakkast... ?
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason