Alþýðublaðið - 04.03.1994, Síða 8

Alþýðublaðið - 04.03.1994, Síða 8
8 ALÞÝÐUBLAÐIÐ LANDBÚNAÐARBLAÐ Opin viðskipti - heiðarleg samkeppni: Viðskiptaumhverfi þar sem agi og festa mun ráða ríkjum í stað yfirgangs og aflsmuna Nafnsiftin GATT er skammstöfun á cnska heit- inu „Hið aimenna samkomuiag um tolla og við- skipti“ (General Agreement on Tariffs and Trade). GATT er alþjóðlcgur samningur um viðskiptaregl- ur sem yfir 110 ríki eiga aðild að, stofnun sem gefur álit um hvort þessum reglum sé fylgt og vettvangur til þess að standa að samningaviðræðum um endur- bætur á GATT samningnum og sérsamningum hans og auknu viðskiptafrelsi i heiminum með tolla- lækkunum og afnámi viðskiptatálmana almennt. GATT og sérsamningar hans ganga oft undir nafn- inu hið Ijölþjóðlega viðskiptakerfi. Starfsemi GATT birtist þannig einkum með eftirfar- andi hætti: (1) I GATT eru settar leikreglur um alþjóðaviðskipti með alþjóðasamningum. (2) GATT er vettvangur svonefndra samningalota sem stofnað er til í þeim tilgangi að ná fram auknu frelsi og festu í viðskiptum með opnun markaða annars vegar og hinsvegar með skýrari, virkari og víðtækari reglum um viðskipti og eftirlit og aðhald með því að þeim sé fylgt. Til þessa hefur verið stofnað til 8 samningalota. Síðasta og lang viðamesta lotan til þessa hófst árið 1986 og lauk í desember 1993. Er hún kennd við Uruguay þar sem henni var hrint af stokki. (3) GATT fjallar um viðskiptadeilur milli aðildar- ríkja GATT og gefur álit um þær. Reglur um alþjóðaviðskipti Um mitt ár 1993 voru aðildarlönd GATT orðin 111 og fer þeim sífellt fjölgandi. Um ni'utíu af hundraði vöruviðskipta í heintinum eru milli aðildarlanda GATT og falla því undir GATT samninginn og sérsamninga hans. Markmið GATT er að skapa aga og festu í alþjóð- legum viðskiptum, stuðla að auknu viðskiptafrelsi og örva þannig fjárfestingu, atvinnumyndun og viðskipti almennt. Með þessum hætti vinnur GATT að auknum hagvexti í heiminum og framþróun. SagaGATT Við lok síðari heimsstyrjaldarinnar ákváðu Banda- menn að setja á laggirnar stofnun fyrir alþjóðlegt pólit- ískt samstarf, Sameinuðu þjóðimar. A efnahagssviðinu var hugmyndin sú að setja á stofn þrjár nátengdar stofn- anir, það er Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, Alþjóðabankann og Alþjóðaviðskiptastofnunina. Skyldu þær helgaðar alþjóðlegri efnahags- og viðskiptasamvinnu innan vé- banda Sameinuðu þjóðanna. Samningar um síðast- nefndu stofnuninadrógust á langinn. Af þeim sökum og til að hefja þegar sókn gegn hinum miklu viðskipta- tálmunum sem við lýði voru og hinni sterku verndar- hyggju sem ríkti eftir stríðið, tókust samningar um bráðabirgðasamkomulag árið 1948 sem nefnt var GATT. Var hugmyndin sú að GATT skyldi gilda þar til hin fyrirhugaða viðskiptastofnun tæki til starfa. Hins vegar reyndist hin Alþjóðaviðskiptastofnun andvana fædd þar sem samkomulag tókst aldrei um stofnskrána. Stofnaðilar GATT voru 23 riki af þeim 50 sem stóðu að samningunum um Alþjóðaviðskiptastofnunina. GATT er eini alþjóðlegi samningurinn sem setur reglur um viðskipti ríkja heims. Takist að leiða Uru- guay-viðræðumar til jákvæðra lykta verður stofnun Al- þjóðaviðskiptastofnunarinnar væntanlega að raunveru- leika eins og fjallað verður um síðar. Viðskipti án mismununar Homsteinn GATT og fyrsta grundvallarregla er bestu- kjararcglan. Þessi mikilvæga regla hefur f för með sér að öll aðildarlönd GATT skulu njóta sömu kjara hvað tolla og tollameðferð varðar. Hún kveður á um að viðskipti skuli stunduð á gmndvelli jafnræðis eða án mismununar. Riki mega því ekki við innflutning mismuna vöm vegna uppruna þeirra eða áfangastaðar, til dæmis með hærri tollum eða magntakmörkunum. Af þessu leiðir að engu aðildarríki er heimilt að veita öðm ríki viðskiptaívilnanir fram yfir önnur né heldur mis- muna því í viðskiptum. Þetta þýðir til að mynda að ef Nýsjálendingar lækkuðu tolla á þorskflökum frá Kan- ada gegn því að Kanada lækkaði tolla á lambakjöti frá hinum fyrmefndu, myndi það gilda fyrir öll aðildarríki GATT án þess að þau hefðu tekið þátt í slíkum samn- ingaviðræðum. Ef þessi regla væri ekki til staðar gætu til dæmis Evrópusambandið og Bandaríkin knúið fram tollalækkanir hvort hjá öðm án þess þó að önnur riki nytu góðs af því. Slíkt myndi leiða til þess að efnahags- leg stórveldi gætu nánast útilokað önnur ríki af mörkuð- um sínum sem ekki hefðu burði til þess að ná fram sömu viðskiptakjömm og þau hefðu samið um sín á milli. Hefur bestu-kjarareglan til dæmis tryggt aðildar- ríkjum GATT ýmsan ávinning, ekki síst minni ríkjum. Sem dæmi má nefna að vegna bestu kjarareglunnar nýt- ur Island 25000 tonna kvóta á saltfiski með engum toll- um gagnvart Spáni, sent Noregur og Kanada sömdu um við Spán á sjöunda áratugnum. Með þessu móti er sam- keppni skerpt og hærra stigi fríverslunar náð. Undantekningar frá bestu-kjarareglunni eru þó heim- ilaðar í vissum tilvikum. Samkvæmt bestu-kjararegl- unni er tryggt að allar vörur GATT landa njóta sömu kjara við innflutning. Þegar varan er komin inn fyrir landamærin, tekurönnurgrundvallarregla við sem köll- uð er jafnréttiskjarareglan. Hún bannar að innfluttu vör- unni sé mismunað til að mynda með sköttum innan- landsvörunni í vil. Er þetta til þess gert að bestu-kjara- reglan verði ekki gerð áhrifalaus þegar varan er komin inn á markaðinn og þannig er réttlát samkeppni tryggð. Vernd með tollum Þó svo GATT vinni þannig að frjálsari viðskiptahátt- um og aukinni samkeppni bannar samningurinn ekki alla vernd fyrir innanlandsframleiðslu. Hins vegar er eitt af grundvallarmarkmiðum GATT að það sé gert með tollum en ekki öðrum verndaraðgerðum. Þó vissu- lega sé stöðugt unnið að lækkun tolla til að stuðla að frjálsari viðskiptum, eru rökin þau að tollar séu illskásta tækið til að vemda innanlandsframleiðslu ef þess er óskað, þar sem ljóst sé hver tálmunin sé þegar um tolla er að ræða. Verra er hins vegar að eiga við til dæmis magntakmarkanir, innflutningsleyfi og fleira sem bjóða upp á mismunun og erfitt er oft og tíðum fyrir útflytj- endur að henda reiður á þeim. Areiðanleiki og festa í viðskiptum er að hluta til sköpuð með því að aðildarríki GATT „binda" tolla í ákveðnu hámarki sem samið hefur verið um í samn- ingalotum. Þessir bundnu tollar eru birtir í skrám fyrir hvert land og eru þær hluti af GATT samningnum. Er ríkjum ekki heimilt að hækka tolla sína sem hafa verið bundnir með þessum hætti, nema í sérstökum tilvikum. Ef ríki telur sig knúið til að Ieysa einhverjar vöruteg- undir undan tollbindingum, verður það að hefja viðræð- ur við önnur ríki sem hagsmuna eiga að gæta og bæta viðskiptaskaðann með lækkun á tollbindingum á öðrum vöntfiokkum sem skipta hitt ríkið máli. f viðskiptalotum GATT hefur verið tekist á um lækk- anir tollbindinga. Má segja að það sé hið hefðbundna umfjöllunarefni viðskiptalotna GATT að stuðla að lækkun þeirra og auka umfang bindinga (það er að segja fjölga þeim vöruflokkum sem eru með bundna tolla). Frá því GATT komst á laggirnar hafa meðaltoll- ar iðnríkja þannig lækkað úr 40% í lok fimmta áratug- arins í 5 % nú á dögum. Heiðarleg samkeppni GATT er ekki fríverslunarsamningur enda eru vissar viðskiptatálmanir heimilar samkvæmt ákveðnum regl- um. GATf er ekki heldur tollabandalag þar sem slík samtök fela í sér sameiginlega ytri tolla gagnvart þriðju ríkjum. GATT stuðlar hinsvegar að opnari viðskiptum, heiðarlegri og óbrenglaðri samkeppni. I milliríkjaviðskiptum grípa stjómvöld oft til ýmissa úrræða til að auðvelda framleiðendum sínum að koma vöru sinni á framfæri og selja hana á erlendum mörkuð- um. Slík úrræði eru gjaman á kostnað frjálsrar sam- keppni og felast oftar en ekki í niðurgreiðslum og und- irboðum. Mikið af hinu almenna starfi GATT snýst um aö setja niður deilur sem hafa risið af slíkum aðgerðum og gagnráðstöfunum þeirra ríkja sem telja sig hafa orð- ið fyrir barðinu á þeim. Þannig hafa sérsamningar GATT um undirboð og um niðurgreiðslur, sem gerðir voru í Tókíó- viðræðunum, að geyma reglur um það hvemig ríki geta brugðist við undirboðum frá öðmm ríkjum (það er að segja með undirboðstollum) - eða þegar niðurgreiðslur skekkja samkeppnisstöðuna. Nið- urgreiðslur feíast oftast í útflutningsbótum (bætur greiddar er varan er flutt út til að hægt sé að selja hana á lægra verði á mörkuðum erlendis). Undirboð á í aðalat- riðum sér stað þegar vara er flutt út á Iægra verði en sem nemur eðlilegu verðmæti hennar (venjulega flutt út á lægra verði en hún er seld á innanlands). GATT heimil- ar álagningu undirboðstolla á undirboðna vöru, sem skal nerna muninum á útflutningsverðinu og eðlilegu verði, ef undirboð veldur framleiðendum samkeppni- svöru viðskiptatjóni. Einnig er heimilt að grípa til gagn- aðgerða í formi jöfnunartolla, þegar niðurgreidd vara veldur viðskiptatjóni, til að jafna þann mun í verði sem niðurgreiðslurnar skapa. Vandinn er hins vegar sá að sýna fram á að undirboð eða niðurgreiðsla hafi átt sér stað, hvort viðskiptatjón hafi hlotist af og hvort gagn- ráðstöfun hafi verið réttmæt (í réttu hlutfalli við undir- boð niðurgreiðsluna og svo framvegis) eða hvort verið er að beita duldri vemdaraðgerð gagnvart erlendum samkeppnisaðilum. I Uruguay-viðræðunum var samið um enn frekari reglur sem vinna eiga gegn óheilbrigð- um viðskiptaháttum milli ríkja. Viðskiptalotur Stærstu stökkin fram á við fyrir auknu viðskiptafrelsi hefur verið árangur viðskiptalotanna sem GATT hefur staðið fyrir. Uruguay-viðræðumar em áttunda lotan í röðinni. Þær hófust árið 1986 í Uruguay og vom lang viðamestu viðskiptaviðræður GATT til þessa. Viðskiptaviðræður GATT hafa verið afar mikilvæg- ar til að knýja fram aukið frelsi í heimsviðskiptum, styrkja og útvíkka reglur hins fjölþjóðlega viðskipta- kerfis. Svokölluð „pakkalausn“ f slíkum viðræðum hef- ur marga kosti. I fyrsta lagi geta þátttökuríkin náð fram árangri á mörgum sviðum. í öðm lagi auðveldar það ríkjum að taka á sig skuldbindingar einu sviði sem erf- itt getur verið að fá samþykktar heima fyrir, gegn því að fá ávinning á öðmm. í þriðja lagi auðveldar það burð- arminni ríkjum til að ná fram breytingum á viðskipta- kerfinu og kjörum sér í hag sem annars gæti reynst erf- itt ef eingöngu tvíhliða samkomulag stærstu ríkjanna réði ferðinni. Fyrstu samningalotur GATT fjölluðu einkum um lækkun tolla. I síðari lotum var byrjað að endurskoða, endurtúlka og útvíkka hinar upprunalegu reglur GATT. T ókíó-viðræðurnar Tókíó-viðræðumar hófust í höfuðborg Japans árið 1973 og lauk árið 1979. Arangurinn var verulegar tolla- lækkanir auk nokkurra samninga um viðskiptatálmanir aðrar en tolla. Tollar á iðnvömm lækkuðu þannig að vegnu meðaltali frá 7 í 4,7% á níu stærstu mörkuðum veraldar eða um 34%. Þegar GATT hóf göngu sína í lok fimmta áratugarins, vom meðaltolliu- hins vegar um 40%. Auk tollalækkana voru gerðir ýmsir sérsamningar um aðrar viðskiptahindranir en tolla og nánari túlkun á reglum GATT en þeir fjalla um eftirfarandi: Niðurgreiðslur og jöfnunartolla: Skuldbindur samningsaðila til að tryggja að notkun niðurgreiðslna valdi viðskiptahagsmunum annara samningsaðila ekki tjóni. Heimilar álagningu jöfnunartolla ef sýnt er fram á að niðurgreidda innflutningsvaran sem í hlut á hafi valdið raunvemlegu tjóni eða valdi hættu á slíku tjóni fyrir innanlandsframleiðsluna. Tæknilegar viðskiptahindranir: Leitast við að tryggja að tæknilegar reglugerðir, staðlar, prófanir og lleira, til dæmis vegna neytenda, öryggis, heilsu eða umhverfis, skapi ekki ónauðsynlegar hindranir fyrir viðskipti. Opinber útboð: Miða að aukinni alþjóðlegri samkeppni í opinbemm útboðum. Tollvirði: Setur samræmdar, sanngjarnar og hlut- lægar reglur við mat á vömm við tollaálagningu. Endurskoðaðar reglur um undirboöstolla: Nær til varnings sem er undirboðinn sem mætti skilgreina sem vöm selda á lægra verði erlendis en framleiðandi krefst fyrir hana innanlands. Þessi samningur endurskoðar eldri samning um sama efni frá Kennedy-viðræðunum og fjallar um skilyrði þess að leggja megi á undirboðs- tolla. I Tókíó-viðræðunum vom einnig gerðir samningar sem miða að aukningu viðskipta tneð kjöt- og mjólkur- afurðir auk þess að iðnríkin sömdu um tollfrelsi fyrir fiugvélar til friðsamlegra nota. U ruguay-viðræðurnar Uruguay-viðræðunum var formlega ýtt úr vör á ráð- herrafundi í Punta del Este í Uruguay árið 1986 eftir töluverðan aðdraganda og undirbúning. Þær em um- Föstudagur 4. mars 1994 fangsmestu samningaviðræður um viðskipti til þessa. Aldrei hafa jafn mörg lönd tekið þátt í viðskiptaviðræð- um á vegum GATT, eða á annað hundrað ríki, né held- ur hefur verið fjallað um jafn mörg svið áður. Heildar- niðurstaða Umguay-viðræðnanna er fólgin í fjölmörg- um samningum. Að auki taka þátttökuríkin á sig yfir- gripsmiklar skuldbindingar hvert um sig sem miða að tollalækkunum og fækkun viðskiptahindrana í vömvið- skiplum auk sérstaks samnings sem setur reglur um þjónustuviðskipti og eykur frelsi í Jreim. Uruguay-viðræðunum hefur verið lýst með þeim hætti að með þeim sé verið að taka hið alþjóðlega við- skiptakerfi rneð heljarstökki inn í nútímann. Orðið er mjög aðkallandi að hinar alþjóðlegu viðskiptareglur GATT verði lagaðar að nútímaþörfum. Reiknað hefur verið út að Umguay-viðræðurnar niuni leiða til aukinna þjóðartekna f heiminum sem nemur 200 milljörðum dollara. Þá em þessar viðræður eitt helsta haldreipi þró- unarlanda og kommúnistaríkjanna fyrrverandi til að auka viðskiptamöguleika og koma á opnara hagkerfi og þannig stuðla að hagvexti og framþróun. Rétt er að benda á að viðskipti með búvömr er ein- ungis viðfangsefni eins af 28 samningum. Með öðrum orðum er mun meira fólgið í Umguay-viðræðunum en ráða má af þeirri miklu umljöllun sem þetta svið hefur fengið þótt það sé vissulega mikilvægt og afar erfitt pól- itískt. Fjögur meginsvið í gmndvallaratriðum má skipta Uruguay-viðræðun- um í fjögur meginsvið eða þætti: í fyrsta lagi aðgerðir til npnunar markaða, svo sem tollalækkanir sem er hið hefðbundna viðfangsefni GATT. í öðru lagi samningar sem miða að því að styrkja reglur GATT. Undir þetta svið mætti fella skýrari og virkari reglur um undirboðstolla og niðurgreiðslur. I þessum hópi eiga einnig heima samningarnir um við- skipti með vefnaðarvömr sem hafa verið háð sérsamn- ingum á skjön við hinar almennu reglur GATT og um búvöruviðskipti sem hafa verið stunduð í skjóli óskýrra og ctvirkra reglna. I þriðja lagi samningar um ný svið efnahagsstarf- semi sem ekki hafa áður fallið undir GATT, það er að segja viðskipti með þjónustu, vemd hugverkarétt- inda (til dæmis höfundarréttur og einkaleyfi) og fjár- festingar í viðskiptum. Að auki má nefna að t' fyrsta skipti er alvarlega tekið á viðskiptum tneð landbúnaðar- afurðir. I fjórða lagi stendur til að stofna alþjóðlega við- skiptastofnun sem mun mynda stofnanalegan ramma utan um alla hina nýju samninga og endurbæta ketfið til lausnar deilumála. ísland og Uruguay-lotan En hvaða akkur er í þessum samningum fyrir Island? Islenskir hagsmunir hafa að vísu að mestu verið tryggð- ir á mikilvægasta markaði okkar með EES-samningn- um. Hins vegar munu útflutningsmöguleikar til annarra markaða, hvort heldur er með vöru eða þjónustu, aukast verulega með Uruguay-samningnum. Þannig opnast leiðir til sölu á tækniþekkingu í sjávarútvegi og við nýt- ingu jarðhita, svo dæmi séu nefnd. Tollalækkanir á sjávarafurðum í tengslum við samninginn munu verða um 30% hjá ýmsum mikilvægum viðskiptaþjóðum eða meira. Nefna má að af þeim sjávarafurðum sem fluttar eru út til Bandaríkjanna frá íslandi falla nær allir tollar niður (99%) en almenn tollalækkun á sjávarafurðum á Bandaríkjamarkaði verður 68% að meðaltali. íslensku atvinnulffi opnast möguleikar til sóknar á nýjum svið- um á mörkuðum sem liggja utan okkar hefðbundnu við- skiptalanda. Lokaorð I heild munu Uruguay-samningarnir leiða til mun betra efnahagsástands í heiminum á næstu árum sem þýðir betra efnahagsumhverfi og viðskiptakjör fyrir fs- land. Þannig hefur verið reiknað út að árlegar tekjur í heiminum aukast um að minnsta kosti 270 milljarða dollara. Farsælar lyklir Uruguay-viðræðnanna eru sterkt mótvægi við vemdarhyggju og einhliða aðgerð- um hinna sterku, sem örlað hefur á í auknum mæli, einkum í Bandarikjunum. Með þessum samningum hefur Ioks tekist að snúa viðskiptum með landbúnaðar- vörur í frjálsræðisátt, til mikilla hagsbóta fyrir neytend- ur og þróunarríki. Síðast en ekki síst munu hinar nýju reglur um lausn deilumála á vegum GATT treysta rétt- arstöðu smærri ríkja, sem verða að geta reitt sig á að al- þjóðlegar skuldbindingar ráði meiru en aflsmunur í milliríkjaverslun. Með Uruguay viðræðunum hafa verið sköpuð skil- yrði til nýrrar sóknar í heimsbúskapnum. Viðskipta- kerfið er tekið með heljarstökki inn í núlímann og við- skiptum er rudd leið inn á nýjar brautir, þar sem agi og festa mun ráða ríkjum í stað yfirgangs og aflsmuna. Haftapostular og þjóðminjaverðir þrengstu sérhags- muna hafa verið kveðnir í kútinn en almenn skynsemi og heildarhagur munu njóta góðs af. Alþýðublaðsmyndir / Einar Ólason ■+

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.