Alþýðublaðið - 04.03.1994, Síða 13
Föstudagur 4. mars 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 13
VÉLAR OG Þ.TÓNUSTA:
ÖFLUG ÞJÓNUSTA
GUNNAR GUNNARSSON. Alþýðublaðsmynd/Einar Ólason
I GEGNUM tíðina hefur upp-
bygging þeirra hjá Vélum og Þjón-
ustu verið jöfn og þétt, en þeir hafa
þjónað vinnuvélamarkaðnum í 19
ár með vaxandi þunga. I dag eru
þeir ekki aðeins þekktir íyrir vara-
hluta og viðgerðarþjónustu, heldur
líka fyrir margþættan innflutning á
hinum ýmsu búvélum. Hér á eftir er
ætlun að kynna að örlitlu leiti þann
búnað sem snýr að bændum. Þó
freistandi sé að miða við árstíma,
og vorverkin þá bíður betri tíma að
minnast á plóga, tætara, og sáðvél-
ar. Það sem mesta athygli vekur nú
er, hin nýja lína af CASE IH drátt-
arvélum sem nú er að koma á mark-
aðinn.
Vélar og Þjónusta eru að byija að
kynna vélamar í stærðum frá 45-90
hestöfl. og verða þær fáanlegar með
L og XL húsum.En í tengslum við
þá kynningu verður opið hús alla
virka daga í mars og apríl að Jám-
hálsi 2 í Reykjavík. Nýju dráttar-
vélamar em byggðir á reynslu sem
svokallaðar MAGNUM og MAX-
UM dráttarvélar hafa skapað en að
baki liggur ítarleg könnun og úttekt
hjá bændum og þjónustu aðilum og
var kröfúm þeirra rnætt.Sérstaka at-
hygli vekur að gírkassar em alsam-
hæfðir. Við hönnun á gírbúnaði
hefur verið tekið tillit til ferðahraða
og hraðastigs. Skiptingin sjálf er
hægri handar á gír og drifi Mis-
munadrifslás og fjórhjóladrif er
tengt með vökvaafli með því að
þrýsta á hnapp.
Gunnar Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri var ánægður með af-
komu fyrirtækisins á síðasta ári.
Þrátt fyrir að almenn velta hafí
minnkað urn 15% þá jókst velta
þeirra hjá Vélum og Þjónustu um
4% á síðasta ári miðað við 1992.
Líklegt má telja að samkeppnis-
staða fyrirtækisins batni enn með
tilkomu nýju línunnar frá CASE,
salan á rúllubindivélum sem em frá
KRONE má ætla að verði álíka og í
fyrra. Pökkunarvélamar frá SILO-,
MAC ættu að fylgja í kjölfarið og
vaxandi eftirspum er eftir mokstur-
tækjum. Moksturstækin hafa fengið
aukið vægi með tilkomu rúllubindi-
vélanna og þar með kröfunni um
öflugri dráttarvélar. Moksturstækin
sem nú er boðið uppá em ekkert í
líkingu við það sem áður var þegar
spotti var notaður til þess að losa
pinnann þannig að skóflan velti úr
sér. I dag er spumingin hvaða kröf-
ur kaupandi geri til tækjanna og að
öllum líkindum er hægt að koma á
móts við þær.
Gunnar benti á þá þróun sem ver-
ið hefði á innflutningi dráttarvéla
undanfarin 17 ár og í framhaldi af
því á þá lægð sem stefndi í með inn-
flutning og sölu á þeim. Innflutn-
ingur á síðasta ári var ekki nema
rúmlega 200 vélar og hafði farið
hraðminnkandi. Ekki vildi Gunnar
spá því að innflutningur færi niður í
100 vélar en taldi líklegt að 200
véla markið næðist ekki í ár.
Gunnar taldi að ekki yrði langt að
bíða að almenn endumýjun hæfist
þá mætti sjá skemmtilegri tölur fyr-
ir augað. Hann benti á að með rúllu-
verkuninni hefði ný og umhverfis-
vænni tækni orðið allsráðandi. En í
henni fer saman auðveldari hirðing,
þó tíðarfar sé ekki upp á það besta
og hey verði því ekki eins illa hrak-
in og áður, þegar fyrri heyskapar-
háttur var í fullu gildi. Aðferðin
væri þægileg og hún væri hagkvæm
fjárhagslega. Fóðrið væri úrvals-
gott og það yrði til þess að mikið
væri hægt að spara í kjamfóðurgjöf.
Minni hætta væri á lungna og of-
næmissjúkdómum vegna rykmynd-
unar, og heilsufar skepnanna væri
allt annað og betra. Ekki mætti
gleyma þeirri hringrás sem fóður-
safínn næði með nýju verkuninni
og færi hann því ekki lengur út í
gmnnvatnið.
GLOBUS:
FJOLBREYTT URVAL
ÞAÐ VAR Magnús Ingþórsson
hjá Globus sem tók að sér að leiða
útsendara Alþýðublaðsins að
nokkm um þær brautir sem þjón-
usta við bændur krefst. Búrekstur í
dag er það tæknivæddur jafnt utan-
dyra sem innan að erfitt er fyrir
þann sem lítt þekkir til að feta sig
áfram svo skammlaust sé. Arin sem
þeir hjá Globusi hafa sett metnað
sinn í að þjóna bændum em orðin
nokkuð mörg. Fjölbreytt úrval véla
og aukatækja hefur gert það að
verkum að hlutdeild þeirra í þjón-
ustu við bændur hefur verið um
langa tíð verið um 40% og í átt að
50%.
Dráttarvélamar sem þeir hjá
Globus bjóða uppá em ZETOR og
svo FIATAGRl. Það var 1968-
1969 sem byrjað var að flytja ZE-
TOR vélamar til landsins. Verð
þeirra var mjög hagstætt og reynsl-
an af þeim þótti það góð að um sí-
vaxandi sölu var að ræða meðan að-
stæður hjá bændum vom eðlilegar.
Verð dráttarvélanna í dag (án
virðisaukaskatts) er 845.000 krónur
fyrir ZETOR 3320, sem er með 45
hestafla vél, að 1.550.000 krónum
fyrir ZETOR 9540 sem er fjór-
hjóladrifinn og með 92 hestafla vél.
Fyrir utan hinn almenna staðal-
búnað má geta þess að fjórhjóla-
drifni ZETORINN er þokkalega
skóaður en dekkjastærð að framan
er 12,4-24 en aftan er hún 16,9-38.
Gírkassinn er með hliðarskiptingu,
16 hraðastig áffam og 4 afiturábak,
vökvamilligír og hámarksökuhraði
er um 40 km á klukkustund.
Það var árið 1985 sem FIAT-
AGRI var fluttur hingað inn til
landsins á vegum Globusar, í byrj-
un vom vélamar fluttar inn frá Bret-
landi en svo kom að hagstæðir
samningar náðust beint við fram-
leiðendur. Fengust vélamar þá strax
á betra verði og betur útbúnar.
Meðal annars er yfirbygging öll raf-
galvanisemð. Hafa vélamar líkað
vel og innflutningur á þeim verið
40 til 50 stykki á ári. Er það góð út-
koma á tegund sem verið er að
vinna sess en innflutningur á drátt-
arvélum hefur hrapað úr 523 vélum
árið 1987 niður í rétt rúmlega 200
árið 1993.
Verðið á FLATAGRI spannar ffá
1469.000 krónum sem 80 hestafla
2x4 vélin kostar, að 1.823.000
krónum sem 100 hestafla 4x4 kost-
ar, en þá á eftir að bæta virðisauka-
skattinum við. FIATAGRI em
stærstir í framleiðslu fjórhjóladrif-
inna véla og það síðan ffá árinu
1919. Þeir vom einnig fyrstir hér á
markaðnum til þess að bjóða vél
með vendigír.
En það er um auðugri garð að
grisja en aðeins dráttarvélar hjá
Globusi því þeir em með umboð
fyrir rúllubindivélamar frá WEL-
GER. Það fyrirtæki var ffumkvöð-
ull í framleiðslu rúllubindivéla og á
einkaleyftð á ffamleiðslu véla sem
sníða rúllumar í fasta stærð.
Verð þeirra er um
980.000 krónur en að auki
má fá ýmsan aukabúnað
með þeim sem eykur nota-
gildi en hækkar verðið að
sjálfsögðu um leið.
Síðan mætti nefha EL-
HO pökkunarvélamar sem
em alsjálfvirkar og stilla
ftlmuna rétt og flauta þeg-
ar þær em búnar. Verðið á
þeim er 640.000 krónur, án
virðisaukaskattsins.
Einn hlutur enn sem er
nauðsynlegur í ffamhaldi
af rúlluvæðingunni em
ámoksturtækin. Þar bjóða
þeir hjá Globusi uppá
ALÖ QUICKE en verðið á
þeim er frá 337.000 krón-
um án virðisaukaskattsins
og að 558.700 krónum.
í framhaldi af þeim töl-
um sem hér er verið að
nefna vaknar sú spuming
hvort nokkuð vit sé í svo
mikilli fjárfestingu á þess-
um síðustu og verstu tímum? Eng-
inn eft, fúllyrti Magnús og stóð
fastur á því að það væri ekki sölu-
maðurinn sem talaði. Sem dæmi
nefndi hann að kjamfóðurskostnað-
ur hjá bændum hefði farið minnk-
andi þar sem hey væm allt önnur og
betri, tvíslegið væri og allt annað líf
varðandi alla hirðingu og gjöf. Og
loks væri rykmyndun sáralítil og
vissu bændur manna best hversu
virði það væri.
í stuttri grein sem þessari er ekki
hægt að gera svo margbrotnu fyrir-
tæki skil þau sem maður vildi, en
þeir hjá Globus hafa lagt metnað
sinn í að koma til bænda og sýna
þeim það sem er á boðstólum og
ekki sakar að geta þess að ein nýj-
asta rósin í hnappagat Globus er
ALFA LAVAL umboðið en það
hafði Sambandið verið með áður.
MAGNÚSINGÞÓRSSON.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
AÐALFUNDUR
OLÍS 1994
Aðalfundur Olíuverzlunar íslands hf,
fyrir rekstrarárið 1993, verður haldinn
í Súlnasal Hótels Sögu, föstudaginn
18. mars nk. kl. 14.00.
Dagskrá:
a) Skv. 13. gr. samþykkta félagsins.
b) Tillaga um breytingu á samþykkt-
um félagsins.
Ársreikningur félagsins og gögn vegna
fundar munu liggja frammi til sýnis
á skrifstofu félagsins að Héðinsgötu
10, Reykjavík, 7 dögum fyrir fundinn.
Stjórn Olíuverzlunar íslands hf.