Alþýðublaðið - 11.03.1994, Page 1
Fl I IGÍ .RIÐIR - Slæm afkoma á síðasta ári.
hluthafar fá ekkert í arð:
Tap Þráti Fyrir
Yfirlýsingar Um
Væntanlegan
Gróða
YFIRLÝSINGAR
Flugleiða hf. um
væntanlegan hagn-
að/tap á rekstri fé-
Iagsins á síðasta ári
vekja nokkra furðu
manna í viðskipta-
heiminum. Eina
stundina var lýst yfir
væntanlegu tapi, en
örfáum vikum síðar
virtist hafa rofað til
og sagt að stefndi í
bærilega afkomu. Nú
hefur félagið sent frá
sér fréttatilkynningu
sem leiðir sannieik-
ann í Ijós, - tap upp á
198 milljónir króna,
eða sem svarar til
1,4% af veltu félags-
ins á síðasta ári. Arið
1992 varð 134 milljón
króna tap á rekstri fé-
lagsins. Sé dæmið
skoðað fyrir greiðslu
tekju- og eignarskatts
er útkoman tap upp á
372 milljónir króna
Samsvarandi tap árið
1992 var 298 milljón-
ir.
Astæðan fyrir
slæmri afkomu errakin
til aukinna fjármagns-
gjalda og áhrifa af mis-
vægi gengis og verð-
lags.
Ekki eru allar rekstr-
artölur Flugleiða hf.
grábölvaðar. Þrátt fyrir
erfitt árferði var af-
koma af rekstrarliðum
utan fjármagnsliða lít-
illega betri í fyrra en
árið á undan og var
hagnaður að fjárhæð
703 milljónir króna,
miðað við 687 milljón-
ir árið 1992. Rekstrar-
tekjur félagsins, veltan,
varð rúmlega 13,3
milljarðar miðað við
12,4 milljarða árið á
undan, eða 7,3% veltu-
aukning milli ára.
Rekstrargjöld reyndust
hinsvegar 12,6 millj-
arðar í fyrra miðað við
11,7 milljarða. 1992,
sem er 7,6% hækkun
milli ára. Þó tókst með
ýmsu móti að lækka
kostnað á tilteknum
þáttum í rekstri félags-
ins og talið að það hafi
þýtt 400 milljón króna
sparnað.
Farþegum Flugleiða
fjölgaði á árinu um 3%
og voru 831.567 tals-
ins. Fraktflutningar
jukust einnig, eða um
7%, og voru flutt
13.207 tonn af ýmsum
vörum.
Aðalfundur Flug-
leiða hf. verður haldinn
á Hótel Loftleiðum eft-
ir viku. Væntanlega
niunu hluthafar ekki
mæta í sínu allra besta
skapi. Stjóm félagsins
hefur ákveðið að
leggja til við aðalfund-
inn að ekki verið
greiddur arður af liluta-
fé í ár.
Ljóst er að hlutabréf
í Flugleiðum hafa ekki
reynst góð ávöxtun á
síðari ámm. I árs-
skýrslu Eimskipafé-
jags Islands, eiganda
um liðlega þriðjungs
hlutafjár í Flugleiðum
hf., em hlutabréf í
Eimskipafélaginu lágt
skráð. Bréf Eimskips
em að nafnverði rétt
um 700 ntilljónir en
bókfært verð þeirra að-
eins 801 milljón. A
Verðbréfaþingi Islands
er sömu sögu að segja.
Þar hafa hlutabréf í
Flugleiðum hf. farið
niður á við, og selst rétt
yfir og jafnvel rétt und-
ir pari. Þessa staðreynd
munu hluthafar eflaust
ræða á aðalfundinum.
Gamalt baráttumál krata í höfii?
Tvöfalt hagsmunakerfi
bænda lagt niður
Ríkisrcknuni hagsmunavörðum bænda gæti fækkað stórlcga
NÚ ERLJ líkur á að
Búnaðurl'élag íslands
og Stéttarsamband
bænda gangi í eina
sæng og sameinist
undir merkjum
Bændasamtakanna.
Jafnaðarmenn hafa
lengi barist fyrir hag-
ræðingu af þessu tagi,
en málið hefur ekki
hlotið hljómgrunn
meðal annarra
stjórnmálaflokka eða
hagsmunasamtaka
bænda.
Stéttarsamband
bænda klofnaði út úr
Búnaðarfélaginu árið
1947, meðal annars
vegna persónulegrar
valdabaráttu innan
bændastéttarinnar. Síð-
an þá hal'a skattgreið-
endur og neytendur
greitt kostnaðinn af
hagsmunakerll bænda
sem í raun er tvöfalt
þar sem bæði þessi
samtök hafa mikið ver-
ið að sinna söntu lilut-
unum.
í núverandi fjárlög-
um er gert ráð fyrir að
ríkið greiði á milli 200
og 300 milljónir króna
til Búnaðarfélagsins og
ýmiskonar fagþjónustu
bændasamtakanna. I
drögum að samþykkt-
um nýrra Bændasam-
taka er gert ráð fyrir að
ríkið greiði einungis
fyrir svokallaða leið-
beiningarþjónustu
bænda, sem verði skýrt
afmörkuð frá sjálfri
hagsmunagæslunni.
Samkvæmt heimild-
um Alþýðublaðsins
eru möguleikar á að
rfkið geti sparað
hundruðir milljóna
með lækkun framlaga
til hagsmunasamtaka
bænda. Gera má ráð
fyrir að Alþingi þurfi
að breyta lögum um
bændasamtökin í kjöl-
farið á yfirvofandi
sameiningu og þá mun
reyna á hvort stjóm-
málamenn em tilbúnir
í að lækka fjárframlög-
in.
Forystumenn bænda
hafa nú þegar lýst því
yfir að tilgangur sam-
einingar sé ekki að
spara heldur að efla
hagsmunasamtök
bænda og sitt sýnist
hverjum um þær yfir-
lýsingar. Forystu-
mennirnir hafa enn-
fremur ekki viljað tjá
sig um það hvort sam-
einingin komi til með
að leiða til fækkunar
starfsmanna, en til
samanburðar má nefna
að sameining samtaka
iðnaðarins hafði í för
með sér um 20 prósent
fækkun starfsmanna.
Hjá bændasamtökun-
um em nú starfandi um
100 starfsmenn og hef-
ur þeim fjölgað vem-
lega á undanförnum ár-
urn þrátt fyrir fækkun
bænda og sanrdrátt í
þjóðfélaginu.
Þrátt fyrir að málið
hafi fengið farsæla af-
greiðslu á nýliðnu
Búnaðarþingi, þá er
formleg sameining eft-
ir.
Nú liggur fyrir að
kynna málið tugum
búnaðarfélaga og sam-
banda, auk þess sem
stefnt er að skoðana-
könnun meðal bænda
samfara sveitarstjóm-
arkosningunum í vor.
Aðalfundur EIMSKIPS var haldinn í gœrdag. Myndin hér að ofan var tekin við upphaf fundar og
þarna má sjá gömlu keppinautana ALBERT GUÐMUNDSSON, fyrrum st/órnarformann Hafskips,
og HÖRÐ SIGURGESTSSON, forstjóra Eimskips, heilsast. Á milliþeirra sést íINDRIÐA PÁLSSON,
stjórnarformann Eimskips. - Sjá nánar umfjöllun á blaðsíðu 4.
Alþýöublaðsmynd / Einar Ólason
em
*
ætt
i mmm
Afi og amma komu þessu öllu af stao. Þau
sögðu að ég væri svo músíkölsk, að ég yrði
að eignast alvöru hljóðfæri. Samt trúði ég
varla eigin augum þegar ég settist við nýja,
fallega píanóið í stofunni heima.
Mer fmnst mjög gaman að æfa mig, og
stundum er ég köliuð litli snillingurinn í
fjölskyldunni. En það eru afi og amma sem
ég kalla snillinga. Þau gáfu mér það besta,
sem ég gat hugsað mér.
«r
Vandaö hljoöfæri
-varanleg ánægja
.
✓ /• /? w, /
LÉIFSH.MAGNUSSONAR
GULLTEIGI6-105 REYKJAVÍK • SÍMI91 - 688611
'TirTirTTimrTTirTirTTirl