Alþýðublaðið - 11.03.1994, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 11.03.1994, Blaðsíða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ UMRÆÐA Föstudagur 11. mars 1994 MJYBIBHBffl HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566 Útgefandi: Alprent hf. Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason Setning og umbrot: Alprent hf. Prentun: Oddi hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566 Fax: 629244 Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140 Sellafíeld og norræn samvinna ✓ Islendingar hafa frá upphafí gengið harðast þjóða fram í bar- áttunni gegn kjamorkustöðvunum í Sellafíeld og Dounreay. Fyrirhuguð aukning á starfsemi beggja stöðvanna hefur orðið tilefni ítrekaðra mótmæla íslenskra stjómvalda, og framganga þeirra hefur vakið athygli víða um lönd. Við öllum þessum mótmælum íslendinga og annarra þjóða hafa bresk stjómvöld daufheyrst. í orði hafa þau sannarlega hafíð umhverfisvernd til vegs - en á borði hafa þau sýnt lífríki náttúmnnar fádæma virðingarleysi. Þetta skeytingarleysi Breta hefur vakið reiði fjölmargra þjóða, sem eiga land að Atlantshafínu. Nú liggur fyrir, að breskir dómstólar hafa rutt úr vegi síðustu hindmninni fyrir starfrækslu nýrrar endurvinnslustöðvar í Sellafíeld, sem gengur undir nafninu Thorp. Allt bendir til að endurvinnsla kjamokuúrgangs muni hefjast þar innan örfárra daga. Afleiðingin verður sú, að geislamengun frá Sellafíeld mun allt að tífaldast. Það tekur hafstraumana einungis 4 til 6 ár að bera mengunina til hafsvæðanna norður fyrir Island. Aukin umsvif í Sellafield geta því ekki annað en leitt til skaða á hefðbundnum veiðisvæðum fslendinga. Þess vegna verða íslensk stjómvöld að gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir það. Þegar írsk stjómvöld kröfðust þegar í stað aukafundar í Par- ísamefndinni svonefndu, sem fjallar um mengun hafsins, þá lýsti Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra því yfir, að ís- lendingar myndu styðja þá kröfu. En það þarf hins vegar þrjár aðildarþjóðir til að slíkur aukafundur verði haldinn. Auk ís- lendinga eiga aðrar Norðurlandaþjóðir aðild að Parísamefnd- inni, og allar hafa þær áður tekið undir mótmæli við vaxandi umsvifum í Sellafíeld. í fljótu bragði hefði því átt að reynast auðvelt að ná nægilegum fjölda til að styðja kröfuna um auka- fund. Á fundi Norðurlandaráðs, sem lauk í Stokkhólmi í gær, gerðu bæði umhverfis- og forsætisráðherra málið að umtals- efni. En þrátt fyrir fögur orð um mikilvægi norrænnar sam- vinnu og samstöðu hefur enn engin vinaþjóð okkar á Norður- löndunum lýst yfir, að hún styðji kröfuna um aukafund til að fjalla um Sellafield. Þetta er dapurleg niðurstaða. Norðurlöndin stæra sig sameig- inlega af því, að fylgja harðari uinhverfisstefnu en nokkur annar heimshluti. Á fundi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi var gengið frá nýrri umhverfisáætlun Norðurlandanna, þar sem sérstök áhersla er lögð á vemdun hafsins. En samt tekst ekki að ná norrænni samstöðu um þetta brýna mál. Það vakti at- hygli, hversu skýrt íslensku ráðherramir töluðu á fundinum í Stokkhólmi. Forsætisráðherra tók af öll tvímæli um afstöðu íslands í ræðu sinni við lok almennu umræðnanna á þinginu. í yfirlýsingu umhverfisráðherra Norðurlanda lét íslenski ráð- herrann sérstöðu Islands koma skýrt fram, þar sem ítrekað var að ísland myndi styðja kröfu íra, án tillits til afstöðu annarra Norðurlanda. Afstaða hinna Norðurlandanna virtist byggja á því, að óvíst væri hvort Bretar létu teyma sig til sérstaks aukafundar París- amefndarinnar um Sellafield. Slrk afstaða byggist hins vega á ótta. Það skiptir ekki meginmáli hvort Bretar kæmu, - eða kæmu ekki. Fjarvera þeirra myndi einungis sýna öllum heim- inum, hversu málstaður þeirra er vondur. Styrjöldin um Sel- lafield verður aldrei unnin, nema eins mikill alþjóðlegur þrýstingur verði settur á Breta og mögulega er unnt. Það er siðferðileg skylda okkar að efla þann þrýsting, og það er sið- ferðileg skylda hinna Norðurlandanna að styðja okkur íslend- inga til þess. Annars blikna öll orðin um norræna samvinnu. PALLBORÐIÐ: Grímur Sæmundsson Að detta inn í útvarpsgeislann GRÍMUR SÆMUNDSSON: „Þess vegna er krafa Sambands ungra jafnaðarmanna mjög skýr - og hefur verið það í tæplega fímm ár: Islendingar eiga kröfu á bestu mögulegum lífsgæðum; sækjum um aðild að Evrópusambandinu.“ Kæru félagar. Eitt af því sem við al- vöru sjómenn förum á mis við er að geta hlust- að á útvarp. Það gerist ekki oft að við séum að veiðum svo nærri landi að við heyrum fréttir. En þegar það gerist hlustum við af mikilli athygli, og slæmar fréttir snerta okkur mjög. Við duttum inn í út- varpsgeislann um dag- inn og það hittist þannig á að verið var að lesa kvöldfréttir í útvarpinu. Fögnuðurinn varð að sjálfsögðu gífurlegur um borð, og áhyggjumar að sama skapi miklar þegar fréttimar vom að baki. í þessum fréttatíma var sagt frá því að á síð- asta ári tók Norður-Atl- antshafið sem næst tvö mannslíf á dag að jafn- aði. Að sönnu ógnvekj- andi tölur, en árið var víst ekkert óvenjulegt. Þetta vildu menn helst kenna því að útgerðir sjá sér ekki lengur fært að sinna viðhaldi skipa sinna sem skyldi. Flotinn látinn ganga úr sér í þessum sama frétta- tíma var viðtal við iðn- aðarráðherra um vanda skipasmíðaiðnaðarins á Islandi. Hann strengdi þess heit, að með góðu eða illu yrði tryggt að ís- lenskar útgerðir skyldu greiða meira fyrir við- hald skipa sinna en ná- grannaþjóðimar. Það skyldi tryggt með öllum tiltækum ráðum; Vemd- artollum, viðskipta- þvingunum eða hveiju sem er. Fiskiskipaflotinn á Is- landi er sjálfsagt einn sá besti í heiminum. Hon- um hefur að stærstum hluta verið vel við hald- ið, en hann er líka mjög tæknivæddur. Stjóm- völd hafa fram til þessa borið gæfu til að tryggja íslenskum útgerðum að- gang að tækniþekkingu annara þjóða við smíðar og viðhald á fiskiskip- um. Við höfum á þennan hátt getað tryggt okkur allskyns nýjungar um leið og þær hafa komið fram. Við höfum bæði fengið þær að utan og fundið sjálfir upp hluti. En það sem mikilvægast er, að hvað snertir sjáv- arútveginn emm við virkir þátttakendur í þeirri þekkingaröflun og miðlun sem nauðsynleg er í nútímalegu atvinnu- lífl. Þannig er hætt við að lítið verði úr útflutningi okkar á þekkingu á sviði sjávarútvegsmála, ef við eigum ekki að fá að fylgjast með hvað er að gerast annars staðar í heiminum. Við drög- umst mjög fljótlega aftur úr. Og tæknin sem við höfum upp á bjóða verð- ur tækni gærdagsins. , Hagur Islendinga Rökin fyrir frelsi í utanríkisverslun em fyrst og fremst þau, að þannig eiga íslendingar, bæði neytendur og fyrir- tæki, kost á að fá vömr og þjónustu eins og hún gerist best og ódýmst. Þessi rök hafa auðvit- að farið fram hjá lopa- peysuliðinu, enda ekki við öðm að búast. En það sorglega er að ráð- herrar Alþýðuflokksins haga sér eins og þeir hafi aldrei heyrt á þetta minnst. Einn af kostum þess að ganga til sainstarfs við aðrar Evrópuþjóðir í Evrópusambandinu væri sá að þar fengjum við hindmnarlausan aðgang að vömm og þekkingu sem er eins og hún gerist best í heiminum. Mis- tækum stjómmálamönn- um væri forðað frá freistingum til að hindra viðskipti Islendinga við umheiminn. Þess vegna er krafa Sambands ungra jafnað- armanna mjög skýr - og hefur verið það í tæplega fimm ár: íslendingar eiga kröfu á bestu mögu- legum lífsgæðum; sækj- um um aðild að Evrópu- sambandinu. Höfundur er sjómaður frá Snœfellsnesi og meðsljórnandi íframkvœmdastjóm Sambands ungra jafnaðarmanna. ÉSamband ungra jafnaðarmanna OPINN FUNDUR FRAMKYÆMDASTJÓRNAR OG BJÓRKVÖLD Framkvæmdastjórn Sambands ungra jafnaðar- manna heldur opinn fund fyrir unga jafnaðar- menn á morgun, laugardaginn 12. mars. Fund- urinn verður í félagsmiðstöð jafnaðarmanna í Kópavogi, Hamraborg 14A (IL hæð), og hefst hann klukkan 19.30. Dagskrá: 1. Innra starf SUJ. 2. Úrslit tf prófkjörum. 3. Ráðning seðlabankastjóra. 4. Önnur mál. Að loknum opnum ftindi framkvæmdastjðmar verður haldið BJORKVÖLD á veguin Félags ungra jafnaðarmanna í Kópa- vogi, sem þekkt er fýrir sanngjamt þjóðarsáttarverð á veiting- uin. FJÖLMENNUM og tökum með okkur gestL - Stjómin. Alþýðuflokksfélögin í Reykjavík Fulltrúaráðs- fundur Fulltrúaráðsfundur Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík verður haldinn í Rósinni - félagsmiðstöð jafnaðarmanna í Reykjavík - laugardaginn 19. mars klukkan 11. Atkvæðisbærir í fulltrúaráðinu eru allir þeir sem voru kjörnir fulltrúar fyrir Alþýðuflokksfélögin í Reykjavík á síðasta flokksþingi Alþýðuflokksins (1992). Dagskrá: 1. Framboðsmál vegna borgarstjómarkosninga. 2. Önnur mál. - Stjómin.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.