Alþýðublaðið - 29.04.1994, Síða 2

Alþýðublaðið - 29.04.1994, Síða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ Föstudagur 29. apríl 1994 MÞBWBIIBIÐ HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566 Útgefandi: Alprent hf. Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason Setning og umbrot: Alprent hf. Prentun: Oddi hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566 Fax: 629244 Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140 Ríkisstjórn sem nær árangri Ríkisstjóm Sjálfstæðisflokks og Alþýðuflokks er nú að ljúka næstsíðasta þingi sínu. A stundum hefur verið tekist þéttings- fast á í samstarfi flokkanna, og á köflum gustað drjúgt um gættir stjómarinnar. Aftur og aftur hefur stjómarandstaðan staðhæft, að tími samstarfsins sé úti og kosningar á næsta leiti. En hrakspámar hafa aldrei ræst, og um helgina fagnar ríkis- stjómin þriggja ára starfsafmæli sínu. Þegar litið er yfir feril hennar kemur í ljós, að hún hefur verið einkar atkvæðamikil, og hægt og sígandi hefur hún komið stefnumálum sínum í höfn, - einu af öðm. Þegar ríkisstjóminni var ýtt úr vör á vordögum 1991 bar fjög- ur mál einna hæst á starfsskrá hennar: Aðild íslands að Evr- ópska efnahagssvæðinu, að ná stöðugleika og festu í ríkisfjár- málum, að móta nýja landbúnaðarstefnu þar sem tekið yrði tilliti til breytinga í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi, og að ná niðurstöðu um framtíðarstjómun fiskveiða. Oll þessi mál em flókin og viðamikil, og umdeild. Bæði inn- an og milli stjómarflokkanna hafa skoðanir verið skiptar á þeim. Og það er fróðlegt að rifja það upp, að hvert og eitt þeirra taldi stjómarandstaðan nægja til að fella ríkisstjórn Davíðs Oddssonar. En þegar upp er staðið blasir nú við, að ríkisstjórnin er að ná öllum þessum málum í höfn. Aðild fslands að Evrópska efnahagssvæðinu er orðin að veruleika og í afgreiðslu málsins fólst mikill sigur fyrir ríkis- stjómina. Með henni em stoðir atvinnulífsins í landinu, ekki síst sjávarútvegsins, treystar vemlega. Smám saman em gagnrýnisraddimar að hljóðna, þegar ávinningur samningsins um Evrópska efnahagssvæðið tínast fram í dagsljósið. Hrak- spámar um að EES yrði til að veikja ríkisstjómina snemst upp í ranghverfu sína; umræður um deilur um aðildina urðu þegar upp var staðið til að styrkja innviði stjómarinnar. Hitt er mála sannast, að ágreiningur um málið spratt upp innan allra stjóm- arandstöðuflokkanna, og kom fram í hreinum málefnalegum klofningi innan bæði Framsóknar og Kvennalista. Traust tök ríkisstjómarinnar á fjármálum ríkisins hafa sömu- leiðis leitt til þess, að mikill stöðugleiki ríkir í verðlagsmálum, - en verðbólga á ársgmndvelli er nú innan við einn af hundr- aði. Þá hafa vextir lækkað vemlega, og von á frekari vaxta- lækkun. Landbúnaðardeilan var jafnframt til lykta leidd með góðri sátt, þar sem náðist fram sú meginregla að innflutningur á landbúnaðarafurðum verður fijáls, en hins vegar kleift að beita jöfnunargjöldum til að gera framleiðendum innanlands kleift að aðlaga sig að breytingunni. Sama máli gegnir um sjávarútvegsmálin. Þar hefur náðst samstaða milli stjómarflokkanna, og þessa dagana er verið að afgreiða málið á Alþingi. Með afgreiðslu málsins mun nást stöðugleiki til framtíðar í stjóm fiskveiða, og fyrirtæki í sjáv- arútvegi geta byggt áætlanir sínar á niðurstöðu, sem ekki verður hringlað með á næstu árum. Jafnhliða verður iögfestur Þróunarsjóður sjávarútvegsins, sem mun gegna lykilhlutverki við hagræðingu innan greinarinnar. Samþykkt hans verður söguleg ákvörðun fyrir íslenskan sjávarútveg. Þegar litið er yfir feril ríkisstjómarinnar sést því svart á hvítu, að hún er óðfluga að sigla í höfn öllum helstu málum sínum. Auðvitað hljóta alltaf að koma upp deilur um markmið og leiðir í samstarfi tveggja flokka, en núverandi ríkisstjóm hef- ur sýnt það með ótvíræðum hætti, að hún hefur burði til að leiða umdeild stjómmál til lykta. Það sýnir styrk, sem fyrri ríkisstjómir hefúr skort. Tíðindamaður Rök- stóla hitti gamlan kunn- ingja sinn á rölti í hinni glaðbeittu sumamepju í miðborginni. Kunninginn var dapur á svip og við nánari eftir- grennslan kom í ljós að honum hafði verið sagt upp deildarstjórastöðu hjá íslenska útvarpsfé- laginu. Tíðindamaður Rök- stóla bauð kunningjan- um í kaffi á næsta kaffi- hús og spurði hann nánar út í atvikið. Að læra af mis- tökunum Jaaa, það var þannig, sem sagði deildarstjór- inn fyrrverandi um leið og hann pantaði bolla af Cappuccino, að ég hef ferðast töluvert til Fær- eyja vegna starfsins... - Færeyja? Greip ég forviða fram í. - Já, ég hef mikið farið til Færeyja til að sjá hvemig ekki á að senda út sjónvarpsefni, því menn læra mest á mis- tökunum. - Hefði ekki verið nær að stúdera sögu Stöðvar 2? Spurði ég. - Nei, það er góð rekstrarpólitík að velta sér upp úr fortíðinni, svaraði deildarstjórinn. - En það gera þeir hjá íslandsbanka og það ger- ir sjálfur forsætisráðherr- ann, sagði ég í mótmæla- skyni. - Já, það er öðruvísi, sagði kunningi minn. Bæði íslandsbanki og ríkissjóður em reknir þannig, að því meira sem tapið er, þeim mun betri er staðan. Fimm stjörnu hótel, eðalvagnar, kampavín og blóma- rósir Við sötraðum kaffið og ég spurði hvað hefði gerst í Færeyjum. - Ekkert svo sem, svaraði félagi minn. Ég bjó á fimm stjömu hót- eli, leigði mér eðalvagn með bílasíma, sjónvarpi og einkabflstjóra og skálaði í kampavíni við færeyskar blómarósir á kvöldin. Þetta var af- skaplega gagnlegur túr. Það kom mikið út úr honum. - Ekki efast ég um það, svaraði ég. En hvað gerðist? Félagi minn þurrkaði sér um munninn. - Æ, stundi hann. Ég flaug auðvitað með Saga-CIass til Þórshafn- ar eins og hver einasti maður með mönnum gerir. Þá brjálaðist sjón- varpsstjórinn og rak mig. - Hvað segirðu? Spurði ég forviða. - Já, svona er mórall- inn orðinn. Heldur þú að Ted Tumer hefði farið til Færeyja á skrælingja- rými? Að vera eða vera ekki á Saga-CIass Við horfðum út í sól- bjartan og vindasaman kuldann. Deildarstjórinn fyrrverandi sagði svo: - Þetta er skítamórall. Menn vinna hörðum höndum allan sólar- hringinn, þvælast til sól- arlanda, sitja á lúxushót- elum með einkabar í London eða era á skíð- um í St. Morits á ströng- um vinnuferðalögum, svo má maður ekki sitja þar sem manni ber. - Var búið að banna þér að sitja á Saga- Class? - Mér var svo fyrir- skipað að kaupa miða á Saga-Class, því fyrirtæk- ið vill að allir sjái að maður fljúgi á Saga- Class. Þannig lítur það út fyrir að við séum á Saga- Class en erum í raun á farþegarými pakksins. Við veifum Saga-Class miðunum um allt þegar við göngum um borð í vélina og þegar við göngum frá borði en sitj- um aldrei á Saga-Class. Þetta heidr að skera nið- ur rekstrarútgjöld án þess að missa stælinn og glamorinn. Það nýjasta er að kaupa fleiri Saga- Class miða handa starfs- fólki en hætta við allar ferðir. Þannig virðist sem allir séu alltaf að ferðast með stæl en í raun fer enginn neitt. Fram- sóknarvist í beinni útsendingu Við lukum við kaffið og stóðum upp. Þegar ég kvaddi vin minn, harm- aði ég enn einu sinni að hann hefði misst vinn- una. Hann leit á mig og sagði: - Já, en ég var ekki rekinn frá fyrirtækinu. Ég var settur í annað starf innan fyrirtækisins. - Hvaða starf? Spurði ég- , - Ég á að stjóma fé- lagsvist í beinni útsend- ingu, svaraði hann. Er það ekki skemmtilegt? Spurði ég, uppörvandi. - Jú, jú. Fyrstu gest- imir verða starfsmenn Seðlabankans. Það verð- ur með öðram orðum Framsóknarvist í beinni. Þegar við kvöddumst var ég ekki alveg viss á því, hvort félaga mínum hefði verið sparkað upp á við eða niður á við í fyrirtækinu. Alþýöublaösmynd / Einar Ólason RÖKSTÓLAR

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.