Alþýðublaðið - 29.04.1994, Side 3
Föstudagur 29. aprfl 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3
1. maí ávarp Sambands jafiiaðarmaimaflokka í Evrópu:
Evrópu tíl starfa
„Samband jafnaðar-
mannaflokka í Evrópu
sendir frá sér sérstakt
ávarp og ákall til jafnaðar-
manna um alla Evrópu, í
tilefni af 1. maí - hinum
hefðbundna baráttudegi
launafólks um allan heim.
Fyrirsögn ávarpsins
„Evrópu til starfa" segir
allt sem segja þarf um efni
þess. I ávarpinu er einkum
vísað til starfsáætlunar,
undir þessu heiti, sem jafn-
aðarmannaflokkar Evrópu
hafa orðið ásáttir um að
beijast fyrir.
Upphaf þessa máls er
það að jafnaðarmanna-
flokkar Norðurlanda settu
upp sérstakan starfshóp
fyrir um það bil 3 árum
undir forystu Allan Lar-
sons, fyrrverandi fjármála-
ráðherra sænskra jafnaðar-
manna, og starfshópur
hans skilaði tæpu ári síðar
fyrstu drögum greinar-
gerðar um samræmdar að-
gerðir yflr landamæri - í
evrópsku samhengi - gegn
böli atvinnuleysisins. Þetta
skjal varð síðan grundvöll-
ur frekara samstarfs jafn-
aðarmannaflokkanna í
Evrópu: Fyrst innan sam-
bands jafnaðarmanna-
flokka í Evrópusamband-
inu, einnig með þátttöku
þingmanna jafnaðarmanna
í Evrópuþinginu, sem og
með samráði við auka-
meðlimi Evrópusam-
bandsins frá Mið- og Aust-
ur-Evrópu.
Niðurstaðan er heilstæð
áætlun gegn atvinnuleysi
sem j afnaðarmannaflokkar
urn alla Evrópu hafa kom-
ið sér saman um og munu
beita sér fyrir að nái fram-
kvæmd, hver í sínu landi
og einnig með samþjóð-
legu samstarfí um gervalla
Evrópu.
Um alla Evrópu er ótti
við fjöldaatvinnuleysi.
Fólk minnist níunda ára-
tugarins, þegar ný störf
sköpuðust, en milljónir
„Það er kominn tónl til að slá á nýja strengi, - það er
kominn tími til að vinna! Við viljum byggja á því
besta úr arfi verkalýðshreyfingarinnar; samvinnu,
samstöðu og félagslegu réttlæti...Við treystum á
samstöðu, ekki aðeins innanlands, heldur einnig á
samstöðu um alla Evrópu. Um álfima alla er nú þörf
virkrar eftiahagsstefnu sem skapar ný störf og opn-
ar nýja möguleika fyrir alla þá, karla sem konur og
unga sem aldna, sem nú ganga atvinnulausir.u
manna voru samt án at-
vinnu. Atvinnuleysi vex
enn og fjöldi atvinnulausra
er við að slá öll fyrri met. í
bakgrunninum heyrast
svartnættisspár um viðvar-
andi atvinnuleysi út þenn-
an áratug.
Svar íhaldsmanna við
vandanum er það helst að
við höfum ekki efni á að
fjárfesta í nýjum störfum
og betra samfélagi. Við
jafnaðarmenn höfnum
hugmyndum af þessu tagi.
Hvarvetna í Evrópu eru
svör okkar á sama veg:
Við höfum efni á að koma
okkur til vinnu, en við höf-
um ekki efni á að viðhalda
fjöldaatvinnuleysi.
Það er kominn tími til að
slá á nýja strengi, - það er
kominn tími til að vinna!
Við viljum byggja á því
besta úr arfi verkalýðs-
hreyfingarinnar; sam-
vinnu, samstöðu og félags-
legu réttlæti. Þessi gildi
verkalýðshreyfingarinnar
hafa skipt miklu fyrir þró-
un samfélaganna í Evrópu.
Við treystum á sam-
stöðu, ekki aðeins innan-
lands, heldur einnig á sam-
stöðu um alla Evrópu. Um
álfuna alla er nú þörf virkr-
ar efnahagsstefnu sem
skapar ný störf og opnar
nýja möguleika fyrir alla
þá, karla sem konur og
unga sem aldna, sem nú
ganga atvinnulausir.
Þess vegna höfum við
lagt fram sameiginlega
áætlun um baráttu gegn at-
vinnuleysi í Evrópu, „Evr-
ópu til starfa“. Þessi áætl-
un nýtur stuðnings hinna
20 jafnaðarmannaflokka í
Vestur-Evrópu. Við erum
eina stjórnmálahreyfingin
sem hefur lagt fram ýtar-
lega áætlun til lausnar
stærsta vandamáli í Evr-
ópu á sviði efnahags- og
félagsmála.
Með þessari áætlun er
bent á leið til að komast
hjá takmörkum efnahags-
lífs hvers ríkis um sig og
nýta til fulls þá möguleika
sem felast í sameiginlegu
efnahagslífi álfunnar.
Metnaður okkar stendur til
þess að setja fjármagnið til
starfa, skapa ný störf, fyrst
og fremst í einkageiranum.
Við stefnum einnig að því
að skapa ný störf með því
að fjárfesta í samgöngu-
bótum og fjarskiptum, í
rannsókna- og þróunar-
verkefnunt og í byggingai-
framkvæmdum og aðgerð-
um til varnar umhverfinu.
En þessi áætlun mun því
aðeins gagnast að við lít-
um fyrst og fremst á fólkið
sjálft og fjáifestum í efni-
viðnum, - hverjum og ein-
um einstaklingi. Þannig
þarf að veita fé til mennta,
kennslu og þjálfunar í nýj-
um vinnubrögðum sem
koma til vegna breyttra at-
vinnuhátta og í betra
skipulagi við vinnu. Þess
vegna viljum við skapa
nýja möguleika, ekki að-
eins fyrir atvinnulausa,
heldur einnig fyrir þá sem
vinnu hafa, til að þeir fái
þróað og þroskað hæfi-
leika sína og starfsþekk-
ingu.
Við jafnaðarmenn vilj-
um enn fremur leggja fé í
að stuðla að jafnri stöðu
karla og kvenna, enda er
virk stefna í jafnréttismál-
um forsenda árangurs í
stjórnmálum. Stefna okkar
felur í sér að fé verði veitt
til þess að jafna tækifæri
fólks, bæta þá tækni sem
byggt er á í atvinnulífinu
og fjölga flóknum störfum,
til þess að stuðla að stöð-
ugum hagvexti, skapa ný
störf og bæta lífskjörin.
Aætlun af þessum toga
felur í sér að unnt ætti að
vera að minnka atvinnu-
leysi um helming fyrir lok
þessa áratugar, samfara
því að koma aga á ríkisút-
gjöldin og veija velferðar-
kerfið sem yrði aðlagað
nýjum aðstæðum.
Við, jafnaðarmenn um
alla Evrópu, höfum tekið
fruinkvæði að því að koma
á samráðsvettvangi milli
launamanna og atvinnu-
rekenda til að fara yfir
þessa áætlun. Þetta samráð
mun auðvelda framkvæmd
áætlunarinnai- á sam-evr-
ópskum vettvangi.
Það er kominn tími til að
taka frumkvæði, jafnt inn-
an hvers lands, sem um
alla Evrópu. Það er kom-
inn tími til að setja Evrópu
til verka!”
Alþýðublaðsmyndir/
EinarÓlason