Alþýðublaðið - 10.05.1994, Blaðsíða 1
Verö í lausasölu kr. 140 m/vsk
Dagsbrún vill rannsókn á verktökum sem bjóða í verk hjá ríki og borg:
Bakgrannur fyrirtækja og ferill
forsvarsmanna verði kannaður
VERKAMANNAFÉ-
LAGIÐ Dagsbrún viU að
bakgrunnur fyrirtækja og
ferill forsvarsmanna þeirra
sem bjóða í verk hjá borg og
ríki verði athugaður. Dags-
brún vil ennfremur að tekið
sé tillit til fyrri verka og fer-
ils verktaka við mat á verk-
tilboðum. Forráðamenn
verkamannafélagsins segja
að sú skylda hljóti að hvíla á
opinberum aðilum að taka
fremur tilboðum verktaka
með öruggan fjárhagslegan
bakgrunn og standi skil á
öllum gjöldum þótt tilboð
þeirra séu einhverjum pró-
sentum eða prósentubrot-
um hærri en tilboðsgjafa
sem þekktir eru af óreiðu og
gjaldþrotum.
Þessi krafa Dagsbrúnar
kemur fram í nýju tölublaði
Dagsbrúnar, málgagns verka-
mannafélagsins. Dagsbrún
krefst þess að við mat á verk-
GUÐMUNDUR J. GUÐMUNDSSON, fonnaður Verkamannafélags-
ins Dagsbrúnar. Krafa félagsins er að bakgrunnur fyrirtækja ogferill
forsvarsmanna þeirra sem bjóða í verk hjá borg og ríki verði
athugaður. Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
tilboðum verði athugað hvort lagsins eða hvort um sé að
fyrirtækin skili sínu til samfé- ræða að menn sem skipta
reglulega um kennitölu fyrir-
tækjanna. Þá krefst Dagsbrún
þess að opinber fyrirtæki og
stofnanir setji reglur um að til
tiltekinna verka þurfi lág-
marksmannafla á iaunaskrá
verktakafyrirtækis og að
verktími sé miðaður við eðli-
legan mannafla sem vinnur
verkið á eðlilegum vinnutfma.
Forráðamenn Dagsbrúnar
segja að það gangi ekki lengur
að kunnir þrotamenn séu
verktakar hjá borg og ríki, sér-
staklega þegar atvinnuástand
sé eins og nú er. „Er það raun-
in að opinberir aðilar eins og
ríki, sveitarfélög og opinber
fyrirtæki ýti undir svarta at-
vinnustarfsemi sem engu skil-
ar til samfélagsins? Hvers
vegna er ekki tekið af festu á
vandanum þar sem hann er að
finna í stað þess að djöflast í
láglaunafólki sem þegar
greiðir sit til samneyslunnar
og meira en það?“ segir í
blaði Dagsbrúnar.
Sjúkrahúsið á Sauðárkróki:
Samningur um verklok
yið hjúkrunarheimifið
- eftir að heilbrigðisráðherra samþykkti viðbótatgreiðslur
úr ríkissjóði svo ljúka mætti framkvæmdum
„ÞAÐ ER nánast búið
að ganga frá samningi um
verklok við nýja hjúkrun-
arheimilið. Heilbrigðis-
ráðherra hefur samþykkt
að ríkið greiði stóran
hluta kostnaðar við þær
framkvæmdir sem eftir
eru. Þeim verður lokið í
heild á næsta ári,“ sagði
Birgir Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri Sjúkra-
hússins á Sauðárkróki í
samtali við blaðið.
Birgir sagði að um væri
að ræða 13 rúma deild sem
væri tengd sjúkrahúsinu.
Ekki er um að ræða fjölgun
rúma frá þvi sem nú er
heldur verður starfsemin
flutt úr alls ófullnægjandi
húsnæði í nýbygginguna.
„Það kostar tæplega 30
milljónir króna að ljúka
framkvæmdum við hjúkr-
unarheimilið. Við fáum
Ijárveitingu ríkisins hins
vegar ekki fyrr en á árunum
1996 og 1997 en heimaað-
ilar taka á sig íjármögnun
fram að þeim tíma. Á þessu
ári verður gengið frá þess-
ari 13 rúma deild en á næsta
ári verður unnið við frá-
gang á ýmsu öðru svo sem
kjallara," sagði Birgir.
Hann sagði að hjúkrunar-
deildin væri búin að vera í
byggingu síðan árið 1981
og menn orðnir langeygðir
eftir þeim verklokum sem
nú væru í augsýn Samning-
ur var gerður við ríkið um
þessar framkvæmdir árið
1987 og samkvæmt heim-
ildum blaðsins hafði ríkis-
sjóður þegar greitt sinn
hluta að fulla. En þegar
ljóst var að nær 30 milljón-
ir skorti til að ljúka þessum
framkvæmdum féllst Guð-
mundur Ámi Stefánsson
heilbrigðisráðherra á að
ríkissjóður greiddi tæp
70% af kostnaði við þær
framkvæmdir sem eftir em,
en það er sama hlutfall og í
upphaflegum samningi.
Samþykki ráðherra er
bundin því skilyrði að
framkvæmdum Ijúki á
næsta ári eins og nú hefur
verið ákveðið. Þetta viðbót-
arframlag ríkisins mun
nema 18 til 20 milljónum.
Alþýðublaðinu ídag
fylgir GLÓÐIN - mál-
gagn jafnaðarmanna á
Sauðárkrókl Blaðinu
er afþví tilefni dreift
inn á hvert heimili á
Sauðárkróki.
HEILSÁRS SUMARHÚS
Qlæsileg og sérlega vönduð bjálkahús fyrir íslenskar aðstæður.
W Tryggðu þér hús fyrir veturinn. W
íi'MOLI
VUOKATTIÁ ÍSLANDI
Skúlagötu 26 • 101 Reykjavík
Sími 91-13999 Fax 91-29922