Alþýðublaðið - 10.05.1994, Blaðsíða 5
Þriðjudagur 10. maí 1994
TIÐINDI
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5 (a)
Aðalfundur MÁLMS -
samtaka fyrirtækja í málm-
og skipasmfðaiðnaði -
ályktar um niðurgreiðslur
rfldsstjómarinnar á
viðgerðar- og viðhalds-
verkefnum í skipaiðnaði:
Arðvænleg
ijárfesting
fyrir ríkissjóð
„AÐALFUNDUR Málms fagnar aðgerðum sem miða að
því að treysta samkeppnisstöðu íslensks málm- og skipa-
smíðaiðnaðar. Fundurinn áréttar þá frumskyldu stjórn-
valda, að tryggja að þessi grundvallar atvinnugrein sitji við
sama borð og erlendir keppinautar. Málm - og skipasmíða-
iðnaðurinn hefur sýnt með ótvíræðum hætti að hann er
samkepnnisfær við erlenda keppinauta ef ekki þarf að auki
að mæta niðurgreiddum iðnaði,“ segir í ályktun aðalfundar
Málms - samtaka fyrirtækja í málm- og skipasmíðaiðnaði -
sem samþykkt var fyrir stuttu.
í ályktuninni fagnar fundurinn þeim jöfnunaraðgerðum sem
ríkisstjómin gekkst fyrir með tímabundnum niðurgreiðslum á
viðgerðar- og viðhaldsverkefnum í skipaiðnaði. Fundurinn segir
þessar aðgerðir stjómarinnar hafa í senn jafnað samkeppnisstöðu
íslenskra fyrirtækja gagnvart niðurgreiddum innflutningi og bein-
línis leitt til aukningar á verkefnum frá útgerðum.
,,Nú hefur komið í ljós að þeir fjármunir sem áætlað var að
dygðu til umræddra verkefna til ársloka em uppumir. Er það, að
dómi fundarins, til marks um að aðgerðin leiddi til þess að útgerð-
armenn treystu sér betur til að helja endurbætur á skipum sem
þegar vom famar að dragast úr hömlu.
Fundurinn gerir þá kröfu að staðið verði við upphaflegar áætl-
anir um að umræddar jöfnunaraðgerðir standi að minnsta kosti út
yfirstandandi ár. í því sambandi er bent á niðurstöður Þjóðhags-
stofnunar um að tekjur hins opinbera vegna aukinna umsvifa af
þessu tagi séu allt að helmingi meiri en sem nemur útgjöldum
vegna niðurgreiðslnanna auk spamaðar vegna minni atvinnuleys-
isbóta. Hér er því mjög arðvænleg fjárfesting fyrir ríkissjóð og er
auk þess ekki sértæk aðgerð gagnvart tilteknum fyrirtækjum á
kostnað annarra. Fundurinn áréttar í því sambandi það álit sam-
takanna, að íjárhagslegur stuðningur við skipaiðnaðinn skuli ekki
miðast við einstök fyrirtæki heldur hafa almenna þýðingu fyrir
þau og tengjast því meginmarkmiði að auka verkefni í greininni,“
segir í ályktun aðalfundar Málms.
Fundurinn segir að nú sé svo komið að stjómvöld dragi úr og í
hvort niðurgreiðslumar haldi áfram út árið. Einnig bendir fundur-
inn á að á sama tíma og þetta sé staðreynd þá séu skipaiðnaðarfyr-
irtæki að gera tilboð í verk í samkeppni við erlenda aðila en viti
ekki hvort umrædd niðurgreiðsla sé í gildi í raun. Aðalfundur
Málms telur þetta ástand óþolandi með öllu og gerir þá kröfu að
þessari óvissu linni strax.
MÁLMUR - samtök fyrirtœkja í málm- og skipasmíðaiðnaði -
gerði á aðalfundi sínum þá kröfu að staðið verði við upphafleg-
ar áætlanir um að jöfnunaraðgerðir nkisstjórnarinnar standi
að minnsta kosti út yfirstandandi ár. í því sambandi er bent á
niðurstöður Þjóðhagsstofnunar um að tekjur hins opinbera
vegna aukinna umsvifa af þessu tagi séu alU að helmingi meiri
en sem nemur útgjöldum vegna niðurgreiðslnanna auk spam-
aðar vegna minni atvinnuleysisbóta.
S
Jafíiaðarmannafélag Lslands
Félagsfímdur á
miðvikudagskvöld
Jafnaðarmannafélag íslands heldur
félagsfund miðvikudagskvöldið 11. maí. Fundurinn verður á
Kornhlöðuloftinu við Bankastræti í Reykjavík og hefst
klukkan 2030.
Umræðuefni:
1. Hlutverk jafnaðarmannaflokks.
2. Undirbúningur flokksþings.
Framsögumenn og dagskrá nánar auglýst í Alþýðublaðinu á
morgun.
Stjórnin.
MenningaiMtíð
Reykjavíkurlistans
í Grafarvogi
REYKJA-
V í K U R -
LISTINN
býður Graf-
arvogsbúum
og öðrum
Reykvíking-
um til menn-
ingarhátíðar í
Fjörgyn
(Logafold l),í
kvöld, þriðjudaginn 10. maí. Dagskrá hátíðarinnar er
sneysafuli af frábærum uppákomum og fjölmargir
söngva- og sagnamenn munu koma frain.
Hinn góðkunni Jónas Ámason kemur nú ffam sem söngvari
með fjörkálfunum í hljómsveitinni Keltunu Þetta verður að telj-
ast einstæður menningarviðburður þvt Jónas er landsþekktur fyr-
ir söngtexta sína og Keltamir kraftamenn í írskri og skoskri þjóð-
lagatónlist - en þar er Jónas einmitt á heimavelii.
Af öðrum atríðum má nefna að leikkonan Ólafía Hrönn Jóns-
dóttir ædar að djassa með Þóri Baldurssyni og sagnamennimir
Einar Kárason, Einar Már Guðmundsson og Stefán Jón
Hafstein draga úr skjóðu sinni efni í bundnu rnáli og óbundnu.
Þama kemur einnig ffam leikkonan Aldís Baldvinsdóttir sem
les úr verkum Jónasar.
Fáar samkomur em síðan án ávarps og ura þá hlið mála sér
Ingibjörg Sóirún Gísiadóttir, borgarstjóraeíni Reykjavíkurlist-
ans.
Grafarvogsbúar og aðrir Reykvfkingar eru allir velkomnir og
þeir eindregið hvattir til að íjölmenna (og mæta tímanlega því
húsrými er takmarkað). Aðgangur er vitaskuld ókeypis.
SUMARÁÆTLUN M/S HERJÓLFS
Gildir f rá 6. maí til 4. sept. 1994.
Frá Frá
Vestmannaeyjum Þorlákshöfn
Aila daga 08.15 12.00
Föstudaga
og sunnudaga 15.30 19.00
Auk þess á fimmtudögum í júní og júlí 15.30 19.30
Fer&ir skipsins falla niður 22. maí (hvrtasunnudag)
og 5. júní (sjómannadag).
Annan í hvítasunnu veröa tvœr ferðír eins og
á sunnudögum.
Þá getur áætlunin breyst dagana 29. júlí til 1. ág-
úst vegna Þjóðhátíðar Vestmannaeyja.
Meriólfur h(.
Sími 98-12800, myndsendir 98-12991
Vestmannaeyjum.
REYKJAVIKUR
LISTINN
Viðtalstímar
Hafið augitn opin fyrir viðtalstímum
frambjóðenda Reykjavíkurlistans sem
eru á milli klukkan 16 og 18 alla virka
daga. ídag, þriðjudaginn 10. maí,
munu Jónas Davíð Engilbertsson
(20. sœti) og Steinunn Valdís
Oskarsdóttir (7. sœti) taka á móti
gestum og gangandi í
kosningamiðstöðinni.
ÞRIÐJUDAGUR 10. MAÍ
Jónas Davíð Engilbertsson (20. sœti)
Steinunn Valdís Oskarsdóttir (7. sœti)
MIÐVIKUDAGUR11. MAÍ
Gunnar Levy Gissurarson (9. sœti)
Margrét Sœmundsdóttir (18. sœti)
FIMMTUDAGUR12. MAÍ
Guðrún Jónsdóttir (10. sœti)
Óskar Dýrmundur Ólafsson (19. sœti)
FÖSTUDAGUR13. MAÍ
Guðrún Kr. Óladóttir (15. sœti)
Helgi Pétursson (11. sœti)
Hverfamiðstöðvar
Nú hafa verið opnaðar þrjár glœsilegar
hverfamiðstöðvar Reykjavíkurlistans.
Allar eru þœr opnar fram til kosninga á
virkum dögum frá klukkan 16 til 22 og
um helgarfrá klukkan 13 til 20:
ÁLFHEIMAR 74 (GLÆSIBÆR)
- fyrir gamla austurbœinn.
ÞÖNGLABAKKI1, III. HÆÐ
(MJÓDD)
-fyrir Breiðhollshverfin.
HÖFÐABAKKI1,1. HÆÐ
- fyrir Grafarvog og Árbœ.
Kosningamiðstöðin
Höfuðstöðvar Reykjavíkurlistans
eru að Laugavegi 31 (nánar tiUekið
á 1., 2. og 3. hœð gamla
Alþýðubankahússins). Gestir eru
velkomnir í heimsókn hvenœr sem er,
hvort heldur til að taka þátt í starfinu
og láta skoðanir sínar í Ijóseða bara
til að sýna sig og sjá aðra. 1 kaffiteríu
á jarðhceð er boðið upp á súpu og
salat í hádeginu og það er heitt á
könnunni allan daginn. Síminn í
kosningamiðstöðinni er 15200 og
myndsendirinn 16881.