Alþýðublaðið - 18.05.1994, Blaðsíða 2
2 (a) ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Sigurður Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Alprent hf.
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Alþýðuflokkurinn
og skýrsla OECD
Þrjú ineginatriði standa upp úr ársskýrsiu OECD sem birt var í
fyrradag. Það fyrsta er að auðlindaskattur sé af hinu góða og sé
hagkvæm tekjuöflun fyrir ríkið. í öðru lagi að opinber afskipti af
búvöruframleiðslu hafi leitt til vemlegra ríkisútgjalda og hærra
matvælaverðs en þekkist í flestum ríkjum OECD. I þriðja lagi að
ein meginástæða þess að snúa megi efnahagsþróuninni til betri
vegar þegar líður á áratuginn sé gildistaka EES um síðustu ára-
mót.
Þetta em afar athyglisverðar niðurstöður skýrsluhöfunda
OECD. Þær eru hlutlaust mat helstu efnahagssérfæðinga Efna-
hags- og þróunarstofnunar Evrópu. Það er áhugavert að bera
þessar niðurstöður saman við stefnuáherslur íslenskra stjórn-
málaflokka því sá samanburður færir Islendingum heim sanninn
um það, hverjir em í raun að beijast fyrir hagsæld og framfömm
í efnahags- og atvinnulífí hér á landi og hverjir ekki.
Hinir þijár meginniðurstöður OECD em samhljóma við helstu
stefnuáherslur eins stjómmálaflokks - og aðeins eins - á íslandi,
Alþýðuflokksins. Allir aðrir stjómmálaflokkar hafa dregið lapp-
irnar eða hreinlega barist með kjafti og klóm gegn þeim stefnu-
málum Alþýðuflokksins sem ríma fullkomlega við niðurstöður
OECD.
Alþýðuflokkurinn berst einn fyrir því að tekinn verði upp auð-
lindaskattur á íslandi. Hluti sjálfstæðismanna, þar á ineðal
Morgunblaðið, er á einnig á þessari skoðun. Andstaða annarra
sjálfstæðismanna með sjálfan sjávarútvegsráðherrann í broddi
fylkingar hefur hins vegar orðið til þess að þetta mikla hags-
munamál hefur ekki náð fram að ganga í tíð núverandi ríkis-
stjómar.
Framsóknarflokkurinn hefur barist hart gegn afnámi núverandi
kvótakerfís og innleiðingu auðlindaskatts. Ekki er trúlegt að þar
verði á stefnubreyting þar eð nýr formaður Framsóknarflokksins
er einn meginhöfundur kvótakerfisins.
Alþýðuflokkurinn hefur einn íslenskra stjómmálaflokka barist
gegn rfkisforsjá landbúnaðarins. Það er gömul barátta sem nær
rúma þrjá áratugi aftur í tímann. Framsóknarflokkur hefur verið
helsti sérhagsmunavörður ríkisrekins landbúnaðar á íslandi og
hefur haft mikinn stuðning Alþýðubandalags og jafnvel Kvenna-
lista.
Sjálfstæðisflokkurinn hefur átt sterka formælendur ríkisafskipta
í búvömframleiðslu, svo sterka að ekki hefur náðst samkomulag
í núverandi ríkisstjóm um eðlilegar og Iöngu tímabærar umbæt-
ur á innflutningshöftum matvæla svo og afnámi ríkisforsjár í bú-
vöruframleiðslu.
Það var fyrst og fremst verk Alþýðuflokksins og formanns hans,
Jóns Baldvins Hannibalssonar utanríkisráðherra að gengið var
frá EES-samningnum án þess að íslendingar afsöluðu sér í einu
eða neinu sérstöðu sinni eða hagsmunum. Gildistaka EES er nú
að sanna sig á fullum krafti og orðin helsti homsteinn í bata ís-
lands á þessum áratug að mati skýrsluhöfunda OECD.
Stjómarandstaðan beitti sér mjög gegn EES-samningnum á sín-
um tíma. Og þótt að þingmenn sjálfstæðisflokksins styddu
flestallir EES-samninginn á Alþingi, mátti einnig heyra hjáróma
mótmæli einstakra þingmanna Sjálfstæðisflokksins við gildis-
töku EES.
Nú hafa hlutlausir efnahagssérfræðingar OECD fellt sinn dóm
um hvað úrskeiðis hafi farið í íslenskum efnahagsmálum og
hvað sé vænlegast til uppbyggingar það sem eftir er af þessum
áratug.
Séu niðurstöður OECD bornar saman við stefnumál íslenskra
stjómmálaflokka, kemur í ljós að aðeins einn stjómmálaflokkur
berst heill og óskiptur fyrir framfömm og hagsæld á íslandi:
Alþýðuflokkuri nn.
PÓLITÍK
Miðvikudagur 18. maí 1994
ROKSTOLAR
Yfirvaraskegg á
Ingibjörgu Sólrúnu
- Rætt við Mörð Förmarai áróðursmeistara íhaldsins í höfiiðborgiraii
Auglýsingaherferð
meirihluta sjálfstæðis-
manna í Reykjavík hefur
vaki verðskuldaða athygli
borgarbúa. Tíðindamanni
Rökstóla fannst því tíma-
bært að ræða við einn
helsta áróðurssérfræðing
D-listans. Þetta er maður
sem óskar nafnleyndar í
viðtalinu og kallar sjálfan
sig Mörð Formann.
Tíðindamaður spurði
Mörð fyrst hvaða áherslur
væru efst á baugi í áróð-
ursstríði sjálfstæðis-
manna.
Að koma vitinu
fyrir borgarbúa
- Það er fyrst og fremst
að koma vitinu fyrir borg-
arbúa sem samkvæmt
skoðanakönnunum hafa
aðeins látið rugla sig í rím-
inu.
- Koma vitinu fyrir
borgarbúa, segirðu..?
- Já, gera þá aftur norm-
al, ef svo má segja. Þú
skilur, meginmálið er að
varðveita hið eðlilega
ástand.
- Sem er hvað?
- Sem er að borginni sé
stjómað af sjálfstæðis-
mönnum, sagði Mörður
Formann og hallaði sér
aftur á stólnum.
Að vita en ekki
fatta
Tíðindamaður spurði
Mörð hvemig hann hygð-
ist koma vitinu fyrir borg-
arbúa.
- Það gemm við fyrst
og fremst með því að út-
mála fyrir borgarbúum
hvað þeir fengju yfir sig ef
þeir kysu vitlaust. Þeir
fengju Alfreð með margar
grímur, Sigrúnu sem bara
vil sinn Framsóknarflokk
og fram eftir götunum.
- Ég næ þessu ekki al-
veg...
- Nei, enda ertu ekki al-
veg normal, er það? Jú,
sjáðu til. Aðalmálið er að
segja borgarbúum að
kjósa eðlilega og rétt. Það
er nefnilega þannig að við
verðum að burðast með
þessar kosningar á fjög-
urra ára fresti. Það er einu
sinni vankantamir á lýð-
ræðinu. Borgarbúar eru
auðvitað einsog allir aðrir
kjósendur: Asnar og fífl
sem vita ekkert í sinn
haus. Það verður því að
hafa vit fyrir þeim. Og það
gerir maður best með því
að segja þeim hvað þeir
eigi ekki að kjósa. Þessi
Reykjavíkurlisti er til
dæmis þannig að maður á
alls ekki að kjósa hann.
Þess vegna búum við til
auglýsingu með frambjóð-
endur bak við grímur: Þeir
þykjast vera allir með
sama andlitið en eru það
ekki. Þeir eru úr ýmsum
flokkum.
- En það vitajú allir...
- Já, en það fatta ekki
allir! sagði Mörður og var
orðinn dálítið æstur.
Borgarbúar elska
aukareikningana
Tíðindamaður þurfti nú
ekki að spyrja frekari
spuminga því Mörður hélt
sjálfur áfram:
- Þegar þessir heimsku
borgarbúar fatta hvað þeir
eiga ekki að kjósa, er nátt-
úrulega bara einn mögu-
leiki eftir: Það er að kjósa
eina sanna og rétta listann:
D-listann!
- Þetta er eins konar úti-
lokunaraðferð?
- Já, fyrir borgarbúa.
Þessir borgarbúar eiga
ekki skilið dýrð og mátt
Sjálfstæðisflokksins.
Hugsaðu þér: Við verðum
að koma vitinu fyrir borg-
arbúa svo þeir megi búa
glaðir og sælir áfram í fyr-
irmyndarborg!!
- En má ekki vera að
fólkið vilji breyta til?
- Breyta til!? hrópaði
Mörður. Þvílíkt og annað
eins!! Veistu ekki að sum-
ir hlutir em óumbreytan-
legir, eilífir, klassiskir?!!
Veistu ekki, að sólin rís í
austri og sest í vestri?
Veistu ekki að á eftir vori
kemur sumar og eftir
sumri kemur vetur? Að
jólin em í desember og á
páskunum fá menn páska-
egg? Á sama hátt eiga
sjálfstæðismenn Reykja-
vík? Þeir eiga þessa borg
og enginn fær að taka
þessa borg frá sjálfstæðis-
ntönnum!! Enginn!! Eða
réttara sagt: Engin!!
Nú var Mörður For-
mann orðin talsvert æstur,
svo ég ákvað að lægja að-
eins öldumar.
- En borgarbúar eru
kannski ekki ánægðir með
allar ákvarðanir sjálfstæð-
ismanna? spurði ég rólega.
— Hvað áttu við? spurði
Mörður aftur.
- Borgarbúar vom
kannski ekki hressir með
að peningar Hitaveitunnar
voru notaðir í að byggja
Perluna...
- Borgarbúar elska Perl-
una! hrópaði Mörður.
- Borgarbúar voru
kannski ekki alls kostar
ánægðir með Ráðhús-
ið.. .stamaði ég.
- Borgarbúar elska
Ráðhúsið! öskraði Mörð-
ur.
- En þeir elska kannski
ekki aukareikningana sem
komu í hausinn á þeim,
andmælti ég.
- Borgarbúar elska
aukareikningana vegna
Ráðhússins, skyrpti Mörð-
ur út úr sér.
Ráðgjöf er
þjóðargjöf
Við héldum áfram að
ræða borgarmálin.
- Svo urðu borgarbúar
óhressir nteð milljónaráð-
gjöf Ingu Jónu, sagði ég
gáfulega.
- Hvaða ráðgjöf? spurði
Mörður.
- Nú ráðgjöftna sem
hann Markús keypti af
henni, svaraði ég.
- Það var fullkomlega
peningana virði, svaraði
Mörður.
- Hvernig geturðu sagt
það? spurði ég.
- Sko, Inga Jóna er besti
heilinn í borgarstjóminni.
Hún er mjög klár og klár-
heitin hennar em alveg
peningana virði. Enda er
ég að leggja síðustu hend-
ina á veggspjald sem verð-
ur dreift um alla borg und-
ir heitinu Ráðgjöf er þjóð-
argjöf, sagði Mörður með
þunga.
Peningar ekkert
próblem
Við ræddunt lftillega
áfram áróðurstækni sjálf-
stæðismanna.
- Aðalatriðið er að ata
andstæðinginn auri, sagði
Mörður.
- Og það kostar aura,
sagði ég.
- Peningar em ekkert
próblem, svaraði Mörður.
Við eigum sand af seðlum.
Byggingaverktakarnir
styðja okkur, heildsalamir
styðja okkur, smáfyrirtæk-
in í miðborginni styðja
okkur og allir sem hafa
fengið lóðir, aðstöðu og
völd. Peningar em ekkert
mál!
- Þú varst að tala um
aurinn, spurði ég.
- Já, þannig aur, já. Jú,
sem sagt aðalatriðið er að
kasta dmllukökum í and-
stæðinginn. Setja grímu á
Alfreð, líma spuminga-
merki á hausinn á Sigrúnu,
setja yfirvaraskegg á Ingi-
björgu Sólrúnu og svo
framvegis.
- Er þetta ekki fremur
bamalegur málflutningur?
spurði ég.
- Jú en borgarbúar em
jú eintóm börn, svaraði
Mörður.
Lýðræði er það
sem Flokkurinn
ákveður
Tíðindamaður lauk við-
talinu með því að spyrja
Mörð um skoðun hans á
lýðræðinu.
- Lýðræðið!! hrópaði
Mörður og fékk hláturs-
kast svo hann varð blá-
rauður í framan. Lýðræðið
er ágætt orð en merkingar-
laust. í Reykjavík ræður
Sjálfstæðisflokkurinn og
þá geturðu alveg sleppt
Sjálfstæðis-forskeytinu.
Flokkurinn ákveður alveg
hveijir fara í framboð.
Stundum höldum við svo-
kölluð prófkjör en við er-
um ekki dús við niðurstöð-
una, köllum við bara á
gömlu uppstillingamefnd-
ina og stokkum listanum
upp á nýtt. Það er nú svo-
kallað prófkjörslýðræði.
Svo segjum við borgar-
búum hverja þeir eigi að
kjósa. Og ef þeir kjósa vit-
laust og Flokkurinn missir
meirihlutann þá segjum
við bara embættismönn-
unum okkar að gera það
sem þeir eiga að gera. Þá
geta aðrir en Flokkurinn
þóst sljórna borginni en
stjóma henni í raun og
veru ekki neitt. Svo það er
nú kosningalýðræðið.
Nei, góði minn. Lýð-
ræði er það sem Flokkur-
inn ákveður. Og það er
það sem er eðlilegt og hef-
ur alltaf verið. Því að
breyta því sem vel hefur
reynst. Því að breyta?
Og þar með var Mörður
Formann rokinn að skoða
nýju veggspjöldin með
Ingibjörgu Sólrúnu þar
sem búið var að teikna
yfirvaraskegg inn á mynd-
ina.