Alþýðublaðið - 18.05.1994, Qupperneq 7
Miðvikudagur 18. maí 1994
YFIRLÝSING
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 (a)
„Við höfum stofhað leynisamtök tíl þess að vinna að siðbót í íslensku þjóðfélagi“
Ettirfarandi yfirlýsing Gulu
handarinnar barst inn á borð
ritstjórnar Alþýðublaðsins fyrir
skömmu með óundirritaðri beiðni um
birtingu. Ritstjórnarmönnum þótti
hugarsmíðin síst verri en margt
annað sem þangað berst og því er
þetta birt hér þrátt fyrir að slík sé ekki
venjan með óundirrituð plögg. Þetta
verður þá undantekningin sem
sannar regluna. Á þessum síðustu
og verstu tímum er hugsjónafólk
sjaldséðir hvítir hrafnar:
„Þetta er stríðsyfirlýsing á hendur
stjómvöldum. Við höfum stofnað
leynisamtök til þess að vinna að sið-
bót í íslensku þjóðfélagi.
Við lýsum ábyrgð á hendur ís-
lenskum valdhöfum fyrir það hrika-
lega órétti sem grafið hefur um sig í
samfélaginu, það misrétti sem eitrar
h'f þúsund manna, kvenna og barna,
þau líf sem tekin hafa verið eigin
hendi af þeim sem ekki megnuðu að
takast lengur á við það ástand sem
ríkir. Ef þessir valdhafar ekki bæta
sig neyðumst við til að láta til skarar
skríða. Martröðin er þeirra sök.
Við berjumst fyrir bættu og heið-
arlegu samfélagi - með sannleik-
ann, gegn lyginni.
íslenskt þjóðfélag er í dag þjóðfé-
lag sóunnar. Ekki aðeins á verald-
legum verðmætum; atvinnuleysi og
örbirgð leiða til andlegrar og sálai-
legrar sóunar fjöldans. Honum er
haldið niðri í örvæntingu og neyð
meðan örfáir útvaldir velta sér í
krafti ættemis og forráða í ofurefn-
um sem ekki eru í neinu samræmi
við framlag þeirra til þjóðarbúsins.
Andleg örbirgð er sóun á mann-
legum verðmætum. Þær kvaldir og
þjáningar sem leiða af ástandinu em
skelfilegar. Þær þjáningar og kvalir
verða ekki leystar með súpugjöfum
þjóðkirkjunnar eða fögmm fyrir-
bænum úr prédikunarstóli á sunnu-
dögum.
Hversu mörg sjálfsvíg em ekki
framin í hverjum mánuði? Hversu
margir kikna ekki undir þvf ógnar-
afli mannlegrar sjálfsfýrirlitningar
sem fylgir bjargleysi í þjóðfélagi
allsnægtanna? Bjargleysi sem skap-
ast af óvinveittu umhverfi en ekki
eigin döngunarleysi. Almenningurá
í raun aðeins þijá kosti; hengja sig,
skrimta með harmkvælum eða segja
óréttlætinu stríð á hendur.
íslendingar þurfa að leggja spilin
á borðið. Gefa upp á nýtt. Við höf-
um komið okkur upp nýju lögmáli
og fótum troðið hin einu og sönnu
lögmál mannlegrar reisnar. Ráð
gegn vanda em skammtímalausnir
sem leysa ítmstu vandamál dagsins
en gera ekkert til að laga ástandið -
heggur ekki að rótunum.
Kröfugerð
Gulu handarinnar
Við krefjumst þess að:
- Alþingi breyti stjórnar-
skránni þannig að þingmönnum
verði fækkað um tvo þriðju;
þannig myndi fækka lagasctning-
um og pappírsflóð minnka. I
stjórnarskrárbreytingu fælist
einnig að stjórnmálaflokkar yrðu
bannaðir.
Greinargerð: Alþingismenn
skipta um skoðun eftir því hvort þeir
em í stjóm eða stjómarandstöðu;
stefnufesta hugmyndafræðinnar
finnst ekki lengur, hugsjónamenn-
imir em famir en eftir sitja kerfisk-
arlar.
Við krefjumst þess að:
- að kosningar til Alþingis
verði haldnar eftir sex mánuði án
þátttöku stjórnmálaflokka. Fram
fari persónukosningar, þar sem
hver og einn getur boðið sig fram
með þær hugsjónir sem hann
hefur. Þannig niyndi flokka-
kerfið líða undir lok á Islandi.
Greinargerð: Stjómmála-
flokkar eru sama og spilling. Við
viljum fá menn með bein í nefinu
til að stjóma; á íslandi er nóg af
góðurn mönnum sem gætu tekið
það að sér.
Við krefjumst þess að:
- verkalýðsfélögum verði
fækkað og kauptöxtum einnig.
Greinargerð: Lögbinda mætti
20 launaflokka yfir alla lands-
menn, vísitölutryggða. Verka-
Samkomulag um að koma á
sjálfvirkri tilkynningaskyldu
Á 25. LANDSpINGI
Slysavarnarfélags íslands
var undirritað samkomulag
ntilli samgönguráðuneytis,
Pósts og síma og Slysavarn-
arfélagsins unt að hefja upp-
byggingu á sjálfvirkri til-
kynningaskyldu íslenskra
skipa. Stefnt er að því að
hefja notkun eins fljótt og
unnt er.
Samkvæmt þessu sam-
komulagi er Slysavamarfélagi
íslands falið að annast rekstur
sjálfvirku tilkynningáskyld-
unnar og byggja upp og reka
stjórnstöð í þeim tilgangi. Póst
og símamálastofhunin tekur að
sér að byggja upp og reka Ijar-
skiptakerfi í landi ásamt Ijar-
skiptastjórn fyrir sjálfvirka til-
kynningaskyldu. Halldór
Blöndal samgönguráðherra,
Ólafur Tómasson pósl- og
símamálastjóri og Einar Sigur-
jónsson forseti SVFÍ undirrit-
uðu samkomulagið.
Á þinginu urðu talsverðar
umræður um og skiptar skoð-
anir um samstarfssamning
SVFÍ og Landsbjargar. Sani-
þykkt var að halda viðræðum
áfram.
í sérstakri ályktun er lýst yf-
ir ánægju með frumvarp til
laga um ncyðamúmerið 112
sem dómsmálaráðherra hefur
lagt fram til kynningar. Nú em
skráð um 150 neyðamúmcr og
ljóst að öryggi landsmanna
verður betur tiyggt með einu
númeri.
Á þinginu var samþykkt að
hetja undirbúning að átaki í
slysavömum aldraðra.
Landsþingið stóð yflr dag-
ana 13. lil 15. maí og sóttu það
220 fulltrúar. Við setningu
þingsins var þyrlusveitinni á
Keflavíkurflugvelli færð
björgunarorða lélagsins fyrir
afrek við björgun áhafnar Goð-
ans í Vöðlavík.
Ennfremur var Maríu Sig-
urðardóttur svæfingalækni
veitt orðan fyrir einstök við-
brögð við björgun drengs frá
dmkknun i sundlaug Kópa-
vogs á síðasla ári. Halldóri
Blöndal samgönguráðhcna var
veitt þjónustumerki SVFÍ úr
gulli fyrir stuðning við starf-
semi félagsins gegnum tíðina.
Þá vai- lögreglunni í Rcykjavfk
afhent að gjöf talstöð og sigl-
ingaljós á björgunarbát sinn.
Einar Sigurjónsson var end-
urkjörinn forseti Slysavamar-
félagsins.
lýðsfélög og atvinnurekendur sitja
allan ársins hring við að semja um
nánast ekki neitt; sokkabuxur í dag,
vettlinga á morgun. Á meðan svelt-
ur stór hópur manna sem ekki fær
atvinnu og þeir sem hafa atvinnu
gera ekki meira en að framfleyta sér
af sultarlaunum. Verkalýðshreyfing
sem semur um 280 króna tímakaup
fyrir félagsmenn sína ber ekki skyn-
bragð á umhverfi sitt. Verkalýðsfor-
ingjar sem sjá ekkert athugavert við
að þiggja þrjú til fjögur hundmð
þúsund króna mánaðarlaun fyrir að
semja um sextíu þúsund króna mán-
aðarlaun fyrir félagsmenn sína eiga
að segja af sér.
Við krefjumst þess að:
- komið verði á launajöfnun í
þjóðfélaginu, þannig að hæstu
laun verði lækkuð og lækkunin
notuð til að hækka laun hinna
lægst launuðu.
Greinargerð: Við gemm okkur
grein fyrir því að einhver launamun-
ur verður ævinlega í þjóðfélaginu.
En við getum ekki sætt okkur við að
menn sem fá hálfa milljón á mánuði
fyrir að reka fyrirtæki geti um leið
haldið því fram að verkamaðurinn
sem hjá honum starfar geti ekki
fengið nema 60 þúsund; annars fari
fyrirtækið á hausinn. Ekki síst er
þetta óásættanlegt meðan vitað er að
það er ekki hálfrar milljón króna
forstjórinn sem greiðir fína jeppann
sinn, kostnaðurinn af útgerð hans,
símareikningurinn, sumarbústaður-
inn og utanlandsferðimar, heldur
em þessir kostnaðarliðir settir á
rekstur fyrirtækisins.
Við krefjumst þess að:
- framkvæmd verði eignaupp-
taka þeirra manna sem makað
hafa krókinn og sankað að sér
auði og eignum á örbirgð og þján-
ingum annarra.
Greinargerð: Hér má nefna
inenn sem hafa aðstöðu til að afla
milljóna með því einu að setja nafn
sitt undir tryggingarmat; eða lækna
sem geta unnið á ellefu stöðum í
einu. Verðbréfabraskara sem auðg-
ast um stórfé með því að færa bréf
milli sjóða en skapa engin verðmæti
lil þjóðarbúsins. Lögfræðinga og
aðra sem aðstöðu hafa til að kaupa
sér uppboðnar íbúðir á smánarverði
og selja síðan á almennum markaði.
Siðferði þessara manna er löngu
hrunið; þeir vita ekki hvað það er.
Við krefjumst þess að:
- hin evangelísk lútherska
þjóðkirkja verði aðskilin frá rík-
inu og svipt jarðeignum sínum.
Greinargerð: Þjóðkirkjan, sem
stofnun, er of þungur efnahagslegur
baggi á þjóðfélaginu. Hana á að
réka á kostnað þeirra þjóðfélags-
þegna sem vilja tilheyra henni í stað
þess að láta almenning borga rekst-
urinn. Trúfélög á borð við lúthersku
kirkjuna og önnur slík eiga ekki að
eiga stóreignir í jörðum.
Við krefjumst þess að:
- hið stórfenglega dulda at-
vinnuleysi sem tröllríður íslensku
samfélagi verði afnumið og unnið
verði að því að skapa raunveruleg
og arðbær störf í stað mála-
myndastarfa.
Greinargerð: Um land allt
hafa verið búin til ónauðsynleg
störf til að fela hið raunverulega
ástand á vinnumarkaði. Slíkur
feluleikur skapar falska
öryggiskennd og kemur í veg fyrir
að tekið sé á
hinum raun-
verulega vanda í
atvinnumálum.
Sem dæmi um
ónauðsynlega
starfsemi má
nefna rekstur
fjölmargra líf-
eyrissjóða víða
um land.
Slíka sjóði á að
leggja niður og
bæta almanna-
tryggingar að
sama skapi. Sin-
fóníuhljómsveit
Islands, Leikfé-
lag Akureyrar,
Islenska óperan
og Þjóðleikhús-
ið eru einnig
dæmi um starf-
semi sem kost-
uð er af almenn-
ingi sem býr við
sára fátækt og
má ekki við
slíkum aukaút-
gjöldum. Hér
eiga þeir að
greiða sem njóta
vilja.
Hér á undan hafa verið taldar upp
fyrstu kröfur þjóðmálafélagsins"
Gulu handarinnar. Við vörum
sljómvöld við því að skella skolla-
eyrum við þessum boðskap. Honum
verður fylgt eftir af alvöm og þunga
ef breyting verður ekki til batnaðar í
þjóðfélaginu á næstu misserum."
Alþýðuflokksfélag Reykjavíkiir:
Kjör fulltrúa á 47. flokks-
þing Alþýðuflokksins
Uppstillingarnefnd Alþýðuflokksfélags Reykjavíkur hef-
ur lagt fram lista með tillögum nefndarinnar um þá sem
verða í kjöri fulltrúa félagsins á 47. flokksþingi Alþýðu-
flokksins - Jafnaðarmannaflokks íslands. Listinn mun
liggja frammi til kynningar á skrifstofum Alþýðuflokks-
ins í Alþýðuhúsinu í Reykjavík vikuna 15. til 21. maí, að
báðum dögunum meðtöldum.
Kjör fulltrúa félagsins á 47. flokksþing Alþýðuflokksins -
Jafnaðarmannaflokks íslands - fer fram á skrifstofum
Alþýðuflokksins dagana 28. og 29. maí næstkomandi og
stendur yfír frá klukkan 15 til 18 báða dagana.
Uppstillingarnefnd.
Kvenfélag Alþýðuflokksins
íHafiiarfirði
Félagsfundur
á fímmtudag!
Kvenfélag Alþýðuflokksins í Hafnar-
firði heldur félagsfund í Alþýðuhús-
inu við Strandgötu, fímmtudaginn
19. maí klukkan 20.30.
Dagskrá:
1. Kosning fulltrúa á 47. flokksþing
Alþýðuflokksins - Jafnaðarmanna-
flokks Isiands.
2. Avörp: Valgerður Guðmundsdóttir
bæjarfulltrúi (2. sæti A- listans) og
Ómar Smári Armannsson aðstoðar-
yfírlögregluþjónn (5. sæti A-listans.)
3. Önnur mál.
Kaffiveitingar.
Fundarstjóri verður Sigrún Jonný
Sigurðardóttir, formaður kvenfélags
Alþýðuflokksins í Hafnarfirði.
Mætið vel og stundvíslega og takið
með ykkur gesti.
Með baráttu- og sigurkveðjum,
stjórnin.
Valgerður.
Ómar Smári.
*
Jafnaðarmannafélag Islands
Félagsfiindur á fimmtudagskvöldið
Jafnaðarmannafélag íslands heldur félagsfund á Kornhlöðuloftinu við
Bankastræti fimmtudagskvöldið 19. maí klukkan 20.30.
Umræðuefni: Hlutverk jafnaðarmannaflokks
Frummælendur: Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra og
Ólafur Þ. Harðarson stjórnmálafræðingur.
Fundarstjóri: Ólína Þorvarðardóttir borgarfulltrúi.
Einnig verður rætt um undirbúning aðalfundar félagsins og
flokksþings Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks Islands.
Kafflgjald er 500 krónur. Allir jafnaðarmenn velkomnir.