Alþýðublaðið - 18.05.1994, Síða 8
8 (a) ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Miðvikudagur 18. maf 1994
Frumvarp tíl laga um umboðsmann bama samþykkt á Alþingí:
Málsvari allra barna
FRUMVARP til laga
um umboðsmann barna
var samþykkt á Alþingi
skömmu fyrir þinglok.
Lögin öðlast gildi um
næstu áramót en tilgang-
ur þeirra er að bæta hag
barna í samfélaginu og
skal embætti umboðs-
manns hafa það hlutverk
að standa vörð um hags-
muni og réttindi barna
allt að 18 ára aldri.
Frumvarp til laga um
umboðsmann barna var
samið og lagt fram að til-
hlutan Jóhönnu Sigurð-
ardóttur félagsmálaráð-
herra.
I 2. grein laganna kemur
fram að forseti Islands skipar,
að tillögu forsætisráðherra,
umboðsmann barna til fimm
ára í senn. í athugasemdum
með frumvarpinu segir að
heppilegt sé talið að sami ein-
staklingur gegni starfinu ekki
lengur en tíu ár. Umboðsmað-
ur skal hafa lokið háskóla-
prófi og vera eldri en 30 ára.
I 3. grein segir að umboðs-
maður bama skuii vinna að
því að stjómsýsluhafar, ein-
staklingar, félög og samtök
einstaklinga taki fullt tillit til
réttinda, þarfa og hagsmuna
bama. I starfi sfnu skuli um-
boðsmaður bama setja fram
ábendingar og tillögur um úr-
bætur sem snerta hag bama á
öllum sviðum samfélagsins. í
lögunum kemur fram að öll-
um sé heimilt að Ieita til um-
boðsmannsins með erindi sín.
Hann taki mál til meðferðar
að eigin fmmkvæði eða eftir
ábendingum. Umboðsmaður
bama tekur ekki til meðferðar
ágreining milli einstaklinga,
en honum ber að leiðbeina
þeim sem til hans leita með
slík mál um leiðir sem færar
eru innan stjómsýslu og hjá
dómstólum.
Stjómsýsluhöfum er skylt
þrátt fyrir þagnarskyldu að
veita umboðsmanni bama all-
ar þær upplýsingar sem að
hans mati em nauðsynlegar til
að hann geti sinnt hlutverki
sínu. Hann skal einnig er
hann telur nauðsyn bera til
hafa óheftan aðgang að öllum
stofnunum sem vista börn eða
hafa aðgang að bömum á einn
eða annan hátt í starfsemi
sinni hvort sem þær em rekn-
ar af opinbemm aðilum eða
einstaklingum, félögum eða
samtökum einstaklinga.
Fjölmennasti
aldurshópurinn
Með hinum nýju lögum
tekur til starfa umboðsmaður
fyrir fjölmennasta aldurshóp-
inn í íslensku þjóðfélagi, það
er einstaklinga frá fæðingu til
18 ára aldurs. I lok desember
1993 vom þeir 77.616 talsins
eða 29,7% heildarmannfjölda
þjóðarinnar.
Það var þann 13. september
1993 að Jóhanna Sigurðar-
dóttir félagsmálaráðherra
skipaði nefnd til að semja
fmmvarp til laga um umboðs-
mann bama. Nefndina skip-
uðu Ragnheiður Thorlacius
héraðsdómslögmaður, for-
maður, Aslaug Þórarinsdóttir
deildarstjóri í dóms- og
kirkjumálaráðuneytinu, Elín
Norðdahl lögfræðingur ,og
Guðjón Bjamason deidlarsér-
fræðingur í félagsmálaráðu-
neytinu.
Hugmynd að stofnun emb-
ættis umboðsmanns bama hér
á landi kom fyrst fram árið
1978 í greinargerð með
þingsályktunartillögu sem
þingmenn Alþýðuflokksins
fluttu um umbætur í málefn-
um bama. Drög að lögum um
umboðsmann bama komu frá
sifjalaganefnd í greinargerð
með frumvarpi til barnalaga
árið 1981. Á 109. löggjafa-
Frumvarp til laga um umboðsmann barna var samþykkt á Alþingi skömmu fyrirþinglok. Lögin öðlast gildi
um nœstu áramót en tilgangur þeirra erað bœta hag barna í samfélaginu og skal embœtti umboðsmanns
hafa það hlutverk að standa vörð um hagsmuni og réttindi barna allt að 18 ára aldri.
Alþýðublaðsmynd/Einar Ólason
Gróandinn er kominn út!
GRÓANDINN, tíma-
rit um garðyrkju og úti-
veru, er komið út. Blað-
ið er að vanda efnismik-
ið og prýtt fjölda fal-
legra mynda. Ritstjóri
blaðsins er Hjörleifur
Hallgríms.
Gróandinn hefur
komið út í tæpan áratug
og hefur á þeim tíma
öðlast traustan og breið-
an lesendahóp um land
allt.
Fyrir áhugasama má
geta þess að áskriftar-
síminn er 91 -23233.
Efni þessa tölublaðs
er eftirfarandi: „Vor-
laukar - Hvernig væri
að reyna eilthvað nýtt?“
eftir Björgvin Stein-
dórsson garðyrkju-
fræðing; „Skógartoppur
- Viljug, falleg klifur-
planta og sannkallaður
ilmdniumur" eftir Ólaf
Njálsson garðyrkjusér-
SKOGARTOPPUR
ÁHUGAVERÐ LAUFTRF.
SKIPULAGNING LÓÐAR
LÍFRÆN RÆKTUN
fræðing og kennara við
garðyrkjuskóla;
„Mjólkurjurt - Prýði í
görðum“ eftir Ágústu
Björnsdóttur; „Lauftré
- góð grein fyrir unn-
endur trjáræktar við
heimahús og sumarbú-
staði“ eftir Jón Geir
Pétursson líffræðing;
„Skipulag lóðar" eftir
Steinþór Einarsson
skrúðgarðyrkjumeist-
ara; „Lífræn ræktun í
matjurtagarðinn" eftir
Björn Gunnlaugsson
garðyrkjukandidat;
„Lífrænn landbúnaður"
eftir Guðfínn Jakobs-
son garðyrkjufræðing;
„Af laukblómum" eftir
Magnús Ágústsson yl-
ræktarráðunaut; „Land-
græðsla og fræðslu-
start'1 eftir Andrés
Arnalds; „Sellerí" eftir
Guðrúnu Þóru nær-
ingarráðgjafa.
þingi árið 1986 var lagt fram
frumvarp til laga um embætti
umboðsmanns bama. Frum-
varpið var endurflutt á 110.
löggjafarþingi árið 1990 og
endurflutt árið eftir en var þá
vísað til ríkisstjórnar að til-
lögu allsherjamefndar.
Óháöur
embættismaður
1 greinargerð með fmm-
varpinu segir um tilgang
fmmvarpsins og hlutverk um-
boðsmanns bama:
Tilgangur fmmvarpsins er
fyrst og fremst sá að hér á
landi verði starfandi óháður
embættismaður sem vinni að
því að fullt tillit sé tekið til
réttinda, hagsmuna og þarfa
bama, jafnt hjá opinberum
sem einkaaðilum. Umboðs-
manni bama er ætlað að vera
málsvari eða talsmaður allra
bama í samfélaginu og hon-
um er ætlað að hafa fmm-
kvæði að gagnrýnni og
stefnumarkandi umræðu um
stöðu barna í samfélaginu.
Með því móti veiti hann
stjómvöldum og einstakling-
um aðhald. Honum er ætlað
að hafa áhrif á jafnt stjómvöld
sem einstaklinga, félög þeirra
eða samtök, þannig að þeir
hafi hagsmuni bama að leið-
arljósi í störfum og öllum af-
skiptum af börnum.
Þjóðfélag
hinna fullorðnu
Hér á landi em í gildi ný og
ítarleg lög á sviði barnavernd-
ar og bamaréttar. Þá er börn-
um einnig tryggður í lögum
réttur til heilsugæslu, mennt-
unar og svo framvegis. En
þótt réttindi og vemd bama
séu vel tryggð í löggjöf verð-
ur að telja að verulega skorti á
að fullt tillit sé tekið til þessa
fjölmenna þjóðfélagshóps.
Þjóðfélaginu er stjórnað af
hinum fullorðnu. Ákvarðanir
um uppbyggingu þess, for-
gangsröð verkefna, fram-
kvæmdir og skiptingu fjár-
magns virðast fyrst og fremst
taka mið af hagsmunum og
þörfum hinna fullorðnu.
Böm em ekki þrýstihópur
hérá landi. Þau hafa ekki sök-
um ungs aldurs og réttarstöðu
forsendur til að fylgja eftir
réttinda- og hagsmunamálum
sínum eða vekja athygli á því
sem betur má fara. Heild-
stæða fjölskyldustefnu skortir
hér á landi og tilhneiging hef-
ur verið til að skilgreina mál-
efni bama sem „hin mjúku
mál“ með þeim afleiðingum
að þau hafa setið á hakanum
þegar ákvarðanir em teknar
um skipulagningu þjóðfélags-
ins og ráðstöfun fjármuna rík-
isins. Því er full þörf á því að
hér á landi starfi umboðsmað-
ur bama.
Það skal tekið fram að með
fmmvarpi þessu er ekki ætl-
unin að setja á stofn embætti
sem taki við verkefnum sem
stjómvöldum, stofnunum eða
einstaklingum hefur verið fal-
ið að vinna samkvæmt lögum
í þágu bama. Með fmmvarp-
inu er ekki heldur ætlunin að
hrófla við fjölmörgum laga-
fyrirmælum sem leggja ýms-
ar skyldur á herðar einstak-
lingum, stjómvöldum eða
stofnunum í málefnum bama.
I frumvarpi þessu er umboðs-
manni bama ekki ætlað að
hafa afskipti af ntálefnum
einstakra bama, deilum for-
sjáraðila og stofnana eða öðr-
um einstaklingsbundnum
ágreiningsefnum hvort heldur
þau eru á sviði barnaréttar,
barnavemdar, skólamála eða
öðmm sviðum. Löggjafinn
hefur nú þegar falið ýmsum
stjómvöldum og stofnunum
að leysa þau verk af hendi.
Tveir um
boðsmenn
Hér á eftir verður fjallað
um valdmörk umboðsmanns
barna.
Fyrst verður vikið að vald-
mörkum umboðsmanns barna
og umboðsmanns Alþingis. I
2. grein laga um umboðs-
mann Alþingis er hlutverk
umboðsmanns Alþingis skil-
greint. Honum er ætlað að
hafa eftirlit með stjómsýslu
ríkis og sveitarfélaga, tryggja
rétt borgaranna gagnvart
stjómsýslunni, gæta þess að
jafnræði sé í heiðri haft í
stjómsýslunni og að hún fari
að öðm leyti ffarn í samræmi
við lög og góða stjómsýslu-
hætti.
Hinu lögboðna hlutverki
sínu sinnir umboðsmaður Al-
þingis hvort heldur eiga í hlut
börn eða fullorðnir. Á sex ára
starfstíma umboðsmanns Al-
þingis hefur embættið haft af-
skipti af ýmsum málum sem
snerta böm á einn eða annan
hátt. Má þar nefna málaflokka
eins og barnavemdar-, for-
sjár- og umgengnismál auk
ýmissa málaflokka sem snerta
böm beint eða óbeint, svo
sem skólamál, byggingar- og
skipulagsmál, heilbrigðismál,
almannatryggingamál og svo
framvegis.
Með hliðsjón af framanrit-
uðu og hlutverki umboðs-
manns bama, eins og það er
skilgreint í frumvarpi þessu
og greinargerð, er ljóst að
hlutverk og starfssvið um-
boðsmanns Alþingis og um-
boðsmanns bama samkvæmt
ffumvarpinu eru í gmndvall-
aratriðum ólík. Umboðs-
manni bama er ætlað að vera
opinber talsmaður bama.
Honum er ætlað að tryggja
bættan hag þeirra og að við
ákvarðanatöku í þjóðfélaginu
sé réttur og hagsmunir þeirra
tryggðir jafnt hjá opinbemm
sem einkaaðilum.
Ekki árekstrar
Umboðsmanni bama er
ekki ætlað það hlutverk að
láta í ljósi álit sitt á því hvort
stjómvöld hafi brotið gegn
lögum eða góðri stjómsýslu
við ákvarðanir eða úrskurðum
í einstökum málum, svo sem
forsjár- og umgengnismálum.
Umboðsmanni bama er held-
ur ekki ætlað að álit sitt á því
hvort bamaverndaryfirvöld
hafi til dæmis staðið löglega
að einstökum íþyngjandi
ákvörðunum.
Eftirlit með því að stjóm-
völd hafi það að leiðarljósi
sem bami er fyrir bestu við
ákvarðanir og úrskurði heyrir
eftir sem áður undir valdsvið
umboðsmanns Alþingis að
uppfylltum nánar tilteknum
skilyrðum.
Umboðsmanni bama er
hins vegar ætlað að leiðbeina
þeim sem hagsmuna eiga að
gæta í slfkum málum um rétt
þeirra til endurskoðunar á
ákvörðun, hvort heldur er
með málskoti til æðri stjórn-
valda eða dómstóla eða með
því að vísa málinu til um-
boðsmanns Alþingis. Vitn-
eskja umboðsmanns bama
gæti hins vegar orðið þess
valdandi að hann tæki um-
ræddan málaflokk almennt til
sérstakrar athugunar teldi
hann að hagsmunum bama
vegið eða réttur þeirra væri
ekki nægilega tryggður. Um-
boðsmaður barna kæmi síðan
athugasemdum sínum og til-
lögum á framfæri við við-
komandi aðila.
Telja verður að embætti
umboðsmanns Alþingis og
embætti umboðsmanns barna
geti tryggt, hvort með sínum
hætti, að fullt tillit sé tekið til
hagsmuna, réttinda og þarfa
bama við ákvarðanatöku í
þjóðfélaginu og að nægilegt
eftirlit sé með því að réttur sé
ekki brotinn á bömum. í
þessu sambandi er rétt að
vekja athygli á því að í Noregi
hafa ekki orðið árekstrar milli
embættis umboðsmanns
bama sem hefur starfað þar í
landi frá árinu 1981 og emb-
ættis umboðsmanns Stór-
þingsins sem sett var á stofn
árið 1963.