Alþýðublaðið - 06.07.1994, Side 5
Miðvikudagur 6. júlí 1994
OJAFNRETTI
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 5
Kjaimaimsóknandhdsegirkaupináttfoumhaiarýrnaðum2,l%
MMl munur á launum karia og k\enna
-Manaðariaunafgreiðshimannaeru 119.600 síuiikvænit könnuninni, en konur scm viniiii
við afgreiðslu fá 85.100 krónur. Verkamenn hafa 109.900 en veriíakonur 90500
Greitt tímakaup í dag-
vinnu landverkafólks
innan vébanda Alþýðu-
sambands Islands hækkaði um
0,4% frá fyrsta ársfjórðungi
1993 til sama tímabils á þessu
ári, segir Kjararannsókna-
nefnd. Vísitala framfærslu-
kostnaðar hækkaði aftur á móti
um 2,6% á tímabilinu, þannig
að kaupmáttur greidds tíma-
kaups í dagvinnu minnkaði um
2,1%. Kauptaxtar flestra starfs-
hópa voru óbreyttir á tímabil-
inu.
Hinsvegar segir Kjararann-
sóknanefnd að mánaðarlaun
landverkafólks innan ASÍ í fullu
starfi hafi hækkað á áður-
greindu tímabili um 0,8%.
Kaupmáttur launa þessa hóps
rýmaði því um 1,8%.
BókabúðLámsar
Blöndal semur \ið
Evrópusambandíð!
~T~%itstjórnin fregnaði það í gœr að EINAR
f^HELGASON, eigandi BÓKABÚÐAR
X X^LÁRUSAR BLÖNDAL stœði um þessar
mundir í stórrœðum. Þannig er mál með vexti
að fyrir skömmu var undirritaður samningur
milli bókabúðarinnar og ÚTGÁFUSTOFN-
UNAR EVRÓPUSAMBANDSINS, en sam-
kvœmt honum tekur Bókabúð Lárusar Blön-
dal að sér alla sölu og dreifingu á Islandi fyrir
stofnunina. Útgáfustofnun ESB er staðsett í
Lúxemborg og hefur með höndum umsjón
með allri útgáfustarfsemi ESB og sér jafn-
framt um dreifingu allra bóka og bœklinga
sem gefnir eru út á vegum þess. Við stofnunina
starfa um 500 manns og er útgáfustarfsemin
afar viðamikil - gefnir eru út um 900 titlar ár-
lega og auk þess 60 titlar í tímaritsformi. I
Bókabúð Lárusar Blöndal verður hœgt að fá
alla þessa titla, annaðhvortá staðnum eða með
hraðvirkri póntunarþjónustu. A myndinni má
sjá Einar Helgason, að vonum stoltan, með op-
inbert merki Útgáfustofnunar ESB.
Alþýðublaðsmynd / Einar Ólason
Örlítil stytting vinnuviku
skýrir meiri hækkun mánaðar-
launa samanborið við greitt
tímakaup í dagvinnu. Mánaðar-
laun hækkuðu mest hjá skrif-
stofukonum og afgreiðslukörl-
um, en minna hjá verkafólki.
Mánaðarlaun lækk-
uðu hjá öðrum starfs-
stéttum.
Fram kemur tals-
vert misvægi í laun-
um kvenna og karla.
Þannig em mánaðar-
laun afgreiðslu-
manna 119.600 sam-
kvæmt könnuninni,
en konur sem vinna
við afgreiðslu fá
85.100 krónur.
Verkamenn hafa
109.900 - en verka-
konur 90.500.
Iðnaðarmenn í könnuninni
vom með 140.300 krónur til
jafnaðar í laun.
Vegna mikillar hækkunar hjá
skrifstofukonum í samanburði
við aðra hópa bendir nefndin á
að skrifstofufólk er minnsti
hópurinn í úrtakinu og jafnframt
sá hópurinn þar sem launamun-
ur er mestur. Urtakssveiflur
geta því verið meiri í þessum
hópi en í stærri hópunum.
Fram kemur í könnun Kjara-
rannsóknanefndar að meðal-
íjöldi vinnustunda á viku er
mestur hjá verkamönnum, 49,6
stundir, en næstmestur hjá iðn-
aðarmönnum og afgreiðslu-
mönnum 46,2 stundir. Af-
greiðslukonur vinna45,5 stund-
ir að meðaltali, en verkakonur
45,1. Vinnustundaíjöldi skrif-
stofukvenna er minnstur, eða
40,2 stundir, skrifstofumanna
41,3. Á tímabilinu hefur orðið
lítil sem engin breyting á vinnu-
framlagi starfsfólks.