Alþýðublaðið - 13.09.1994, Qupperneq 6
6 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
SKILÁBOÐ
Þriðjudagur 13. september 1994
RAÐAUGLÝSINGAR
Sumarhótel
Rekstur sumarhótelsins í Lundi í Öxarfirði er laus til um-
sóknarfrá og með næsta sumri (1995).
Tilboð óskast send fyrir 15. október til Öxarfjarðarhrepps,
Bakkagötu 10, 670 Kópaskeri, eða til Kelduneshrepps,
Lóni, Kelduneshreppi.
Upplýsingar veita eignaraðilar f.h. Öxarfjarðarhrepps í
síma 96-52188 að deginum og f.h. Kelduneshrepps í síma
96-52297 á kvöldin.
Skólanefndarformaður.
Leikskólar
Reykjavíkurhorgar
Óskum að ráða leikskólakennara eða annað uppeldis-
menntað starfsfólk í störf í neðangreinda leikskóla:
Hálsaborg v/Hálsasel, s. 78360
Klettaborg v/Dyrhamra, s. 675970
Laufásborg v/Laufásveg, s. 17219
Seljaborg v/Tungusel, s. 76680
Suðurborg v/Suðurhóla, s. 73023
Sæborg v/Starhaga, s. 623664
Tjarnarborg v/Tjarnargötu, s. 15798
í 50% starf e.h.:
Brekkuborg v/Hlíðarhús, s. 679380
Grandaborg v/Boðagranda, s. 621855
Hálsakot v/Hálsasel, s. 77275
Sólborg v/Vesturhlíð, s. 15380
Sæborg v/Starhaga, s. 623664
Ægisborg v/Ægisíðu, s. 14810
Einnig vantar matráðskonu í leikskólann
Hraunborg v/Hraunberg, s. 79770
Nánari upplýsingar gefa viðkomandi leikskólastjórar.
Dagvist barna,
Hafnarhúsinu, Tryggvagötu 17, sími 27277.
Útboð
Vesturlandsvegur í Reykjavík
Bráðabirgðatengingar við Höfðabakka
Borgarverkfræðingur í Reykjavík og Vegamálstjóri óska
eftir tilboðum í gerð bráðabirgðatengingar á mótum Vest-
urlandsvegar og Höfðabakka.
Helstu magntölur:
Fylling og burðarlög 28500 m3
Skering í laus jarðlög 28000 m3
Skering í berg 3300 m3
Malbik 15300 m2
Kantsteinar 1100 m
Verki skal lokið 31. mars 1995.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerðinni, Borgartúni 5,
Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 12. september nk.
Skila skal tilboðum á sama stað fyrir kl. 14.00 þann 26.
september 1994.
Byggðastofnun vill ráða sérfræðing
til starfa á Egilsstöðum
Byggðastofnun auglýsir laust til umsóknar starf sérfræð-
ings við skrifstofu stofnunarinnar á Egilsstöðum. Leitað er
að einstaklingi með háskólamenntun á viðskipta- eða
tæknisviði.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands ís-
lenskra bankamanna og bankanna.
Umsóknir skulu sendar Guðmundi Malmquist, forstjóra
Byggðastofnunar, fyrir 1. október 1994. Upplýsingar um
starfið veita Elísabet Benediktsdóttir, á skrifstofu Byggða-
stofnunar á Egilsstöðum og Guðmundur Malmquist,
Byggðastofnun, Reykjavík.
Byggðastofnun
Rauöarárstíg 25 • 105 Reykjavík •
Sími 91-605400 • Bréfsími 91-605499 •
Græn lína 99-6600 •
Miðvangi 2-4 • 700 Egilsstöðum •
Sími 97-12400 • Bréfsími 97-12089 •
A
ÍStír-J
Húsnæðisnefnd Kópavogs
Fyrir aldraða
almennar kaupleiguíbúðir
Auglýst er eftir umsóknum um átta almennar kaupleigu-
íbúðir.
Um er að ræða fjórar 2ja herbergja og fjórar 3ja herbergja
íbúðir í fjölbýlishúsi sem verið er að reisa við Gullsmára 11
í Kópavogi.
Áætlað er að íbúðirnar verði tilbúnar til afhendingar full-
búnar vorið 1995.
Ekki eru sett skilyrði um eigna- eða tekjumörk, en sýna
þarf fram á greiðslugetu.
Umsóknareyðublöð fást afhent í afgreiðslu Félagsmála-
stofnunar Kópavogs, Fannborg 4.
Umsóknir þurfa að hafa borist fyrir 11. október nk.
Allarfrekari upplýsingar veitir öldrunarfulltrúi eða húsnæð-
isfulltrúi í síma 45700.
Húsnæðisnefnd Kópavogs.
Hafnarfjarðarbær
- Suðurbæjarlaug
Hafnarfjarðarbær auglýsir lausa til umsóknar stöðu starfs-
manns í Suðurbæjarlaug. Baðvarsla karla (laugavarsla).
Góðrar sundkunnáttu krafist. Viðkomandi þarf að standast
hæfnispróf sundstaða.
Nánari uppiýsingar gefur forstöðumaður Suðurbæjarlaugar
frá kl. 8.00-12.00 alla virka daga. Umsóknir, þar sem m.a.
er upplýst um menntun og fyrri störf berist eigi síðar en 16.
september, til Suðurbæjarlaugar, Hringbraut 77, Hafnar-
firði.
Forstöðumaður.
A
Húsnæðisnefnd Kópavogs
Umsóknir
Húsnæðisnefnd Kópavogs auglýsir hér með eftir umsóknum um félagslegar
eignaríbúðir eða kaupleiguíbúðir.
Þeir einir koma til greina sem uppfylla eftirfarandi skilyrði:
1. Eiga ekki íbúð eða samsvarandi eign.
2. Eru innan eigna- og tekjumarka Húsnæðisstofnunar ríkisins sem eru meðal-
tekjur áranna 1991-1993.
Meðaltekjur einstaklinga:
Meðaltekjur hjóna:
Viðbót fyrir hvert barn:
Eignamörk eru:
kr. 1.693.471
kr. 2.116.839
kr. 154.286
kr. 1.800.000
3. Sýna fram á greiðslugetu sem miðast við að greiðslubyrði lána fari ekki yfir
30% af tekjum.
Umsóknareyðublöð verða afhent á skrifstofu húsnæðisnefndar Kópavogs að
Fannborg 4, sem er opin frá kl. 9-15 mánudaga-föstudaga.
Umsóknarfrestur er til 10. október 1994.
Athygli er vakin á því að eldri umsóknir falla úr gildi.
Nánari upplýsingar veittar hjá Húsnæðisnefnd Kópavogs, Fannborg 4, eða í
síma 45140 frá kl. 11-12 alla virka daga.
Húsnæðisnefnd Kópavogs.
HHListahátíö í ReykjavíkH
auglýsir eftir
framkvæmdastjóra
frá 1. október 1994
Umsóknir um starfið ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf þurfa að hafa borist skrifstofu Listahátíðar, póst-
hólf 88,121 Reykjavík, fyrir 25. september 1994.
Stjórn Listahátíðar.
Kosnirigar utan kjörfundar til
sveitarstjóma í Hólmavíkur-
hreppi og Stykkishólmsbæ
Utankjörfundaratkvæðagreiðsla
erlendis vegna kosninga til sveit-
arstjóma í Hólmavíkurhreppi og
Stykkishólmsbœ 1. október næstkom-
andi hófst í gær hjá öllum sendiráðum
íslands, auk aðalræðisskrifstofu íslands
í New York.
Atkvæðagreiðsla getur farið fram á
öllum framangreindum stöðum á venju-
legum skrifstofutíma fram á kjördag.
Óski kjósendur eftir því að fá að greiða
atkvæði hjá kjörræðismönnum íslands
erlendis er þeim bent á að hafa samband
við það sendiráð íslands sem hefur með
sendiráðsstörf í landi viðkomandi kjör-
ræðismanns að gera. Einnig má eftir at-
vikum hafa samband við utanríkisráðu-
neytið. Sendiráðin og utanríkisráðuneyt-
ið munu eftir föngum reyna að koma tii
móts við kjósendur. Þetta kemur fram í
tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu.
Heimilisföng og símanúmer sendi-
ráða og aðalræðisskrifstofu íslands í
New York má nálgast hjá utanríkisráðu-
neytinu. Kjósendur verða sjálfir að
kynna sér hveijir eru í framboði og
hvaða listabókstafir eru notaðir í við-
komandi sveitarfélagi. Athygli kjósenda
er ennfremur vakin á því að kjósendum
ber sjálfum að póstleggja atkvæði sín
eða koma þeim á annan hátt í tæka tíð til
viðkomandi kjörstjómar á íslandi.