Alþýðublaðið - 16.11.1994, Síða 8
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
MMUBIMB
Miðvikudagur 16. nóvember 1994 174.tölublað - 75. árgangur
Framsóknarflokkurinn heldur flokksþing 25.-27. nóvember. Sæmundur Guðvinsson kannaði hvað þar verður efst á baugi:
Guðmundur Bjarnason verður varaformaður
Konur ætla sér embætti ritara en ekki hefur náðst samstaða um frambjóðanda.
Nýr varaformaður Framsóknar-
flokksins verður kjörinn á flokksþingi
sem fram fer í Reykjavík um aðra
helgi auk þess sem Halldór Asgríms-
son verður formlega kosinn formað-
ur. Guðmundur Bjamason þingmaður
og ritari flokksins gefur kost á sér til
varaformanns og er talið víst að hann
hljóti örugga kosningu. Finnur Ing-
ólfsson er sagður vilja losna úr emb-
ætti gjaldkera í kjölfar þess að hann
tók við formennsku í þingflokknum.
Konur gera kröfu um þá stöðu eða
þær stöður sem losna í stjóm flokks-
ins. Meðal þeirra sem nefndar hafa
verið í embætti ritara em Ingibjörg
Pálmadóttir, Siv Friðleifsdóttir og
Sigrún Magnúsdóttir en ekki hefur
náðst samstaða um eina ákveðna
konu.
„Ég hef lýst því yfir að ég er tilbú-
inn til að gefa kosta á mér í starf vara-
formanns, en það geta fleiri lýst því
sama yfir,“ sagði Guðmundur Bjama-
son í samtali við blaðið. Hann hefur
lengi verið í forystu flokksins og eftir
viðtölum við flokksmenn að dæma er
Guðmundur ömggur um stöðu vara-
formanns enda nýtur hann virðingar
og vinsælda innan flokksins. Enginn
dregur í efa að Halldór Asgrímsson
verði einróma kosinn formaður. Finn-
ur Ingólfsson er gjaldkeri flokksins en
hann er sagður vilja losna úr því emb-
ætti eftir að hann varð formaður þing-
flokksins. Þetta er þó ekki endanlega
frágengið og því minni umræður um
kandidata í starf gjaldkera heldur en
ritara. Sumir viðmælendur blaðsins
töldu að fast yrði lagt að Finni að
halda áfram sem gjaldkeri.
Þær Ingibjörg Pálmadóttir alþing-
ismaður og Siv Friðleifsdóttir bæjar-
fulltrúi á Seltjamamesi hafa báðar
gefið í skyn að þær væm ekki frá-
hverfar varaformannsembættinu.
Ingibjörg er erlendis en Siv sagðist
Ingibjörg: Hefur veriö orðuð við
framboð til varaformanns en gefur
ef til vill kost á sér til embættis rit-
ara í staðinn.
ekkert gefa út um málið að sinni, enda
væri hún komin á kaf í prófkjörsbar-
áttuna í Reykjanesi og hefði um nóg
að hugsa.
Fólk í fyrirrúmi
„Ég held að störf flokksþingsins
munu mjög mótast af því hve skammt
er til kosninga og ályktanir bera það
með sér að verulegu leyti. Atvinnu-
málin munu skipa þar sess og yfir-
skrift þingsins og raunar kosningabar-
áttunnar líka verður ,JFólk í fyrir-
rúmi“. Við munurn því láta það koma
fram i' okkar ályktunum hvemig hið
svokallaðar velferðarkerfi verður best
varið og þá tekið mið af félags- og
heilbrigðismálum og mennta- og
menningarmálum," sagði Guðmund-
ur Bjamason.
Hann sagði að sérstök nefnd innan
flokksins starfaði nú við tillögugerð
varðandi jöfnun atkvæðisréttar og
væri ætlunin að hún lyki störfum fyr-
ir flokksþingið og leggði málið fram.
Halldór: Verður nú formlega kos-
inn formaður á flokksþingi Fram-
sóknarflokksins.
Varðandi afstöðuna til ESB sagðist
Guðmundur ekki vita annað en það
væri algjör eining í þeim hópi sem er
að undirbúa ályktanir, að aðild að
ESB yrði hafnað. Væntanlega yrði
fylgt þeirri skoðun Alþingis að það
beri að leita nýrra samninga eða
breyta EES-samningnum í tvíhliða
samning.
Fylgi Framsóknarflokksins hefur
dalað í skoðanakönnunum að undan-
fömu. Guðmundur var spurður hvort
hann kynni skýringar á því:
„Nei, ég kann enga eina skýringu á
því. Þar spilar eflaust ýmislegt inn í.
Það er mikið rót f pólitíkinni almennt
þessar vikumar. Ég hef velt því fyrir
mér hvort það stjómmálaafl sem Jó-
hanna Sigurðardóttir er talin standa
fyrir höfði mjög til félagslegra sjónar-
miða og þess að veija velferðarkerfið
sem við framsóknarmenn höfum tal-
að töluvert fyrir. Ég býst við að við
höfum tapað einhveiju í skoðana-
könnunum til þessa stjómmálaafls
Guðmundur: Vinsæll og virtur og
óruggur um embætti varafor-
manns.
þótt það afl sé nú allt óljóst ennþá.
Við í Framsóknarflokknum höfum
ekki verið mjög áberandi í umræð-
unni
að undanfömu því hún hefur eink-
um snúist unt stjómina, samstarfið
þar og erfiðleika einstakra ráðherra.
Stjómarandstaðan hefur nokkuð fall-
ið í skuggann í allri þeirri umræðu á
opinberum vettvangi og það hefúr
einhver áhrif í skoðanakönnunum,"
sagði Guðmundur Bjamason.
Konur á kreiki
Þar sem það má ganga út frá því
sem vfsu að Guðmundur færist upp í
embætti varaformanns er ljóst að nýr
ritari verður kosinn og hugsanlega
einnig gjaldkeri. Nú er Sigrún Magn-
úsdóttir vararitari flokksins og svo er
að heyra sem sumir vilji að hún taki
við af Guðmundi. Er þá vísað til þess
að hún er kona og úr Reykjavík en
bæði Halldór og Guðmundur em
þingmenn dreifbýlis. Aðrir telja Sig-
rúnu hafa nóg með borgarmálin og
auk þess eigi að dreifa tninaðarstöif-
um meira. Unnur Stefánsdóttir í
Kópavogi er varagjaldkeri og þær
raddir heyrast að konur ættu að sam-
einast um hana sem ritara, en Unnur
býður sig frarn í prófkjöri flokksins í
Reykjanesi. Valgerður Sverrisdóttir
þykir ekki koma til greina þar sem
hún er úr sama kjördæmi og Guð-
ntundur. Sumir viðmælendur blaðs-
ins töldu hins vegar að ef Guðmundur
yrði varaformaður ætti Ingibjörg
Pálmadóttir tilkall til embættis ritara.
Aðrir sögðu að Amþrúður Karlsdóttir
ælti að fara í ritarann ef hún yrði í 3.
sæti á lista flokksins í Reykjavík. Þá
nefndu ýmsir að Siv Friðleifsdóttir
væri ung og frambærileg kona sem
fengur væri að í ritarastarfið.
Þrátt fyrir að þessar konur og fleiri
væru nefndar sem hugsanlegir arftak-
ar Guðmundar Bjarnasonar sem ritara
var ekki að heyra að nein ein kona
stæði uppúr með mesta möguleika
enn sem komið er. En það má telja ör-
uggt að kona verður næsti ritari Éram-
sóknarflokksins.
Finnur: Vill gjarnan losna úr starfi
gjaldkera en lagt að honum að
halda áfram.
Siv hugsar málid
„Ég mun hugsa málið fram að
flokksþingi og gef engar yfirlýsingar
að sinni,“ sagði Siv Friðleifsdóttir
þegar hún var spurð hvort hún ætlaði
að keppa um embætti varaformanns.
Hún sagðist heyra það á fólki að það
vildi einhvetja endumýjun innan for-
ystu flokksins. Ef Guðmundur yrði
varaformaður losnaði embætti ritara
og það væru ýmsir möguleikar í stöð-
unni.
- Er ekki Ijóst að konur gera kröfu
itm embcetti ístjóminni?
„Það er mikið f umræðunni og fólk
vill meiri breidd í forystuna. Ingibjörg
Pálmadóttir hefur verið mikið nefnd í
sambandi við varafonnanninn. Hún
og Guðniundur eru bæði mjög hæf í
það embætti og því á ég von á að það
verði sátt urn hvort þeirra sem er. Ég
heyri líka kröfur um að það þurfi að
yngja upp í stjóm flokksins en ég ætla
að bíða og sjá til,“ sagði Siv og vildu
engu svara um hvort hún stefndi á
embætti ritara.
Kjaramál og kosningar
„Það er stutt í að kjarasamningar
verði lausir og kosningar eru í nánd.
Þetta mun setja sitt mark á flokks-
þingið. Það em uppi misjafnar skoð-
anir um hve langt skal ganga í jöfnun
atkvæða hjá okkur eins og er í öðmm
flokkum nema helst hjá krötum og
þau mál verða eflaust rædd. En ég
held að það sé samstaða urn að ekki
beri að sækja um aðild að ESB,"
sagði Sigurður Geirdal bæjarstjóri í
Kópavogi.
Hann sagðist hafa það á tilfinning-
unni að ekki mætti mikið útaf bera við
nýja kjarasamninga til þess að allt
yrði vitlaust. Fólk væri orðið lang-
þreytt á ástandinu og það væri stutt í
hörkuna. Sigurður taldi líklegt að
konur vildu embætti ritara ef Guð-
mundur yrði kosinn varafomiaður,
enda létu konur nú mjög í sér heyra.
„Ég á þó von á að þær hleypi Halldóri
í gegn við formannskjör," sagði Sig-
urður.
„Ég held að vandi heimilanna verði
Siv: Ætlar að hugsa málið fram að
flokksþingi.
eitt af aðalmálum flokksþingsins.
Þegar fólk gerir ekki annað en vinna
fyrir vöxtum og matarreikningi, ef
það hefur þá vinnu, er eitthvað meira
en lftið að. Flokksþingið ber yfir-
skriftina Fólk í fyrirrúmi og það segir
sitt um hvað við leggjum áherslu á. Ef
það stendur ekki upp á stjómmála-
menn að leysa vanda heimilanna,
hvað er það þá sem kemur þeim við?
Og það verður að leggja meiri áherslu
á að koma í veg fyrir skattsvikin.
Þessi mál verða án efa ofarlega á
þinginu,“ sagði Arnþrúður Karlsdótt-
ir sem að öllum likindum mun skipa
3. sætið á lista flokksins í Reykjavík.
Fridsamt þing
Viðmælendur blaðsins vom al-
mennt þeinar skoðunar að þetta yrði
friðsamt flokksþing. Að vísu væri
ekki ljóst hvaða stefnu umræðan um
jöfnun atkvæðisréttar tæki og einnig
væm ekki allir sáttir við afstöðu for-
mannsins til ESB. En þar sem stutt
væri til kosninga fæm menn ekki að
skemmta skrattanum með því að deila
fyriropnun tjöldum um þessi mál þótt
einhver skoðanaskipti væm óhjá-
kvæmileg. Og þegar llokksmenn
vom spurðir um hvað mundi bera
hæst nefndu flestir þjóðmálin al-
mennt.
,J3g á von á að þingstörfm snúist að
mestu um að setja sig í stellingar fyrir
kosningamar. A flokksþinginu verður
rætt um hvemig megi tryggja það að
fólk verði i' fyrirrúmi, ekki sem falleg
orð heldur sem raunhæfa leið. Við
munum setja skýran málefnagrund-
völl fyrir harða kosningabaráttu,"
sagði Hjálmar Amason skólameistari
f Keflavík og frambjóðandi í prófkjöri
flokksins í Reykjaneskjördæmi.
Hann sagðist eiga von á því að
þetta yrði að mörgu leyti skemmtilegt
flokksþing að því leyti að Framsókn-
arflokkurinn væri að sumu leyti að
fara í gegnum breytingaskeið. Undir
þeim kringumstæðum blésu jafnan
ferskir vindar og umræður hreinskipt-
ar.
Sigurður Líndal: Fjallar um laga-
grundvöll verkalýðshreyfinga.
Þórarinn Eldjárn sendir frá sér minningaglefsubókina „Ég man“:
Ég syrgði Presley meira en Ollu frænku
„Ég man þegar Elvis var kalíaður
í herinn og skömmu síðar flaug það
um allt að hann hefði fallið á víg-
vellinum. Samviskubitið sem greip
mig þegar þetta var borið til baka og
ég áttaði mig á því að ég hafði syrgt
hann meira en Ollu frænku.“ Svo
hljóðar glefsa númer 80 í lítilli og
snotuiri bók sem Þórarinn Eldjárn
hefur sent frá sér: „Ég man - 480
glefsur úr gamalli nútíð“. Forlagið
gefur út. Alþýðublaðið sló á þráð-
inn til Þórarins og spurði hvað þessi
bók ætti að fyrirstilla:
„Þetta eru endurminningar og ég
sá nú um daginn til dæmis Ijóðabók
þar sem það var talið skáldinu til
tekna, að verk hans væri án allra út-
úrdúra og uppfyllingarefna. Þetta
fannst mér forvitnilegt að lesa, því
ég hef alltaf lagt mest uppúr útúr-
dúrum og uppfyllingarefnum. En
þessi bók mín nú er endurminning-
ar án allra útúrdúra og uppfyllingar-
efna,“ sagði Þórarinn.
„Þetta er raunar gert að fyrir-
mynd Je me souviens, bókar eftir
franská rithöfundinn Georges
Perec; hugmyndin og titill bókar-
innar er frá honum komin. Maður
rifjar upp næstu gleymt smælki, fá-
nýtt og ómerkilegt sem allir á svip-
uðu reki og maður sjálfur eiga sam-
eiginlegt.
Ég var staddur útí París þegar ég
fann þessa bók eftir Perec og byrj-
aði á mínu verki í flugvélinni á leið
heim til Islands. Perec var skrítinn
og skemmtilegur höfundur og ég
hef lesið eina aðra bók eftir hann,
Lífið leiðarvísir."
Þórarinn Eldjárn: Ég hef alltaf lagt mest uppúr útúrdúrum og uppfylling-
arefnum. En þessi bók mín nú er endurminningar án allra útúrdúra og
uppfyllingarefna. A-mynd: E.ÓI.
Félag frjálslyndra:
Fundur um
Atlanta-málið
Félag frjálslyndra jafnaðarmanna
heldur fund annað kvöld um Atlanta-
málið undir yfirskriftinni: Prófsteinn
á félagafrelsi á vinnumarkaði? A
fundinum mun Sigurður Líndal laga-
prófessor fjalla um lagagrundvöll
verkalýðshreyfinga, einkum með til-
liti til máls Atlanta; Hreinn Loftsson,
lögmaður flugfélagsins, rekur sögu
fyrirtækisins og skýrir þann laga-
grunn sem stofnun Frjálsa flug-
mannafélagsins' byggir á; Halldór
Grönvold, skrifstofustjóri ASÍ, reifar
sjónarmið Alþýðusambandsins í
málinu og Geir A. Gunnlaugsson,
framkvæmdastjóri Marel hf„ mun
ræða reynslu sína af undirbúningi
stóriðju á lslandi með þátttöku er-
lendra fyrirtækja.
Fundurinn er haldinn á Kom-
hlöðuloftinu við Bankastræti og
hefst klukkan 20:30.