Alþýðublaðið - 29.12.1994, Blaðsíða 1
Jólapakki í lélegum umbúðum
- segir Garðar Mýrdal formaður Alþýðubandalagsfélags Reykjavíkur um framboðsmálin.
„Það var búið að segja að það yrði
prófkjör. Þá kemur fólk sem hafði
áður farið í prófkjör, fólk eins og
Auður Sveinsdóttir og Guðmundur
Þ. Jónsson, rýkur í fjölmiðla og seg-
ist til í slaginn. Svo kemur bara yfír-
lýsing um að það ætli að hætta við.
Mér fannst það ekki smart. Mér
fannst það illa innpakkaður jóla-
pakki, umbúðimar lélegar,“ sagði
Garðar Mýrdal formaður Alþýðu-
bandalags Reykjavíkur í samtali við
blaðið. Garðar beið ósigur þegar
kjördæmisráð Alþýðubandalagsfé-
laganna í Reykjavík samþykkti með
41 atkvæði gegn 22 að viðhafa ekki
forval eða prófkjör við uppstillingu á
lista flokksins í Reykjavík fyrir kom-
andi þingkosningar. Ýmsir fulltrúar
á fundinum brugðust illa við því að
hætt var við prófkjör. Alfheiður
Ingadóttir sagði leitun að öðm eins
klúðri. Heimildir innan Alþýðu-
bandalagsins herma að Garðar og fé-
lagar hans sem stóðu fast við kröfu
um prófkjör hafi fengið einhverja
dúsu til að þeir sættu sig við niður-
stöðuna. Garðar neitar þessu ákveð-
ið. „Ég varð í minnihluta í þessari at-
kvæðagreiðslu kjördæmisráðs þar
sem kjömefnd fékk umboð ráðsins
til að klára málið og stilla upp á list-
ann. Hún klárar væntanlega það verk
og ég hef ekki frekar blandað mér í
þeirra störf. Þeir hafa ekki snúið sér
til mín og ég hef ekki verið að leita
þá uppi. En væntanlega reynir kjör-
nefnd að leita sem víðtækastrar sam-
stöðu um röðunina innan flokksins
og meðal fylgismanna hans,“ sagði
Garðar. Hann sagðist ekki hafa á
móti framboði Ögmundar Jónasson-
ar eða Bryndísar Hlöðversdóttur en
vera á móti því að viðhafa ekki pról'-
kjör.
Vöruskipti við
útlönd fyrstu 11
mánuði ársins:
Hagstæð
um 18
milljarða
Fyrstu ellefu mánuði þessa árs
vom fluttar út vörur fyrir 102,6
milljarða króna en inn fyrir 84,5
milljarða fob. Afgangur var þvf á
vömskiplunum við útlönd sem
nam 18,1 milljarði króna en á
sama tíma í fyrra vora þau hag-
stæð um tæpa 12 milljarða króna á
föstu gengi.
Þetta kemur fram í frétt frá
Hagstofunni. Verðmæti vörainn-
flutningsins fyrstu ellefu mánuði
þessa árs var 8% rneira á föstu
gengi en á sama tíma árið áður.
Að frátöldum innflutningi sér-
stakrar fjárfestingarvöru reyndist
annar innflutningur hafa orðið 6%
meiri á föstu gengi en á sama tíma
í fyrra. Þar af jókst innflutningur á
matvöra og drykkjarvöru um
10%, fólksbílainnflutningur dróst
saman um 4%, innflutningur ann-
arrar neysluvöra var 3% meiri en
á sama tíma í fyrra en innflutning-
ur annarrar vöru jókst um 8%.
Alþýðuflokkurinn í Kópavogi:
Vilja bjóða Kársnesið
undir olíustöð Irwing Oil
Guðmundur Oddsson: Á Kársnesi
Myndi skapa mikla atvinnu.
„Þessi tillaga okkar miðar að því
að efla atvinnu í bænum. Kópavogur
virðist því miður ekkert í umræðunni
þegar atvinnuuppbygging er annars-
vegar. Því viljum við breyta,“ sagði
Guðmundur Óddsson bæjarfulltrúi í
Kópavogi í samtali við Alþýðublað-
ið.
Guðmundur hefur ásamt Kristjáni
Guðmundssyni, öðram bæjarfulltrúa
flokksins í Kópavogi, lagt til að bæj-
arstjórn hefji viðræður við Irwing
Oil um hvort óbyggt landssvæði yst
á Kársnesi komi til greina undir olíu-
birgðastöð. í tillögu Guðmundar og
Kristjáns er ennfremur sagt að auð-
velt sé að byggja upp góða hafnarað-
er hægt að útbúa besta viðlegukant á landinu.
stöðu við Kársnes, þarsem mikið
dýpi geri stóram skipum kleift að
komast að nesinu.
Irwing Oil ætlar að hefja staifsemi
á íslandi og hefur leitað hófanna við
Reykjavíkurborg vegna væntanlegr-
ar uppbyggingar. Guðmundur Odds-
son segir að Kópavogur eigi tví-
mælalaust að freista þess að fá fyrir-
tækið til sín. „Reykjavíkurborg er
búin að bjóða þeim land sem er enn
undir sjó. Það eina sem við þurfum
að gera er að slá niður þili, og þá er
kominn besti viðlegukantur á höfuð-
Guðmundur: Vill bjóða Kársnesið
undir olíustöð Irwing Oil.
borgarsvæðinu. Við eram búin að sjá
á eftir nógu mörgum fyrirtækjum til
Reykjavíkur."
I rökstuðningi með tillögu sinnt
segja Guðmundur og Kristján meðal
annars: „Ef samningar tækjust, þá
eru þama miklir möguleikar á að
landsmenn fengju ódýrari olíuvörar
og raunveraleg samkeppni yrði í ol-
tuversluninni. Það er einnig nokkuð
Ijóst að þessi starfsemi myndi skapa
mikla atvinnu við uppbyggingu og
eins myndi bæjarfélagið vonandi
hafa tekjur af þessu fyrirtæki."
Bæjarráð Kópavogs fundar í dag.
og er búist við að tillagan verði þá
rædd til hlítar.
Sportveiðiblaðið storkar áfengislöggjöfinni með Vodkaauglýsingu:
Forboöin auglýsing
I nýjasta tölublaði Sportveiðiblaðs- svo málamyndaumljöllun um vodka smugur sem menn gætu skýlt sér í. tækju ávallt vel í að færa hlutina til
ins er heilsíða sem illmögulegt er að
skilja öðravísi en sem áfengisauglýs-
ingu fyrir Finlandia vodka, enda fylli-
lega sambærileg við aðrar slíkar fyrir
sömu áfengistegund sem birst hafa í
blöðum og tímaritum erlendis. Þetta
væri í sjálfu sér ekki frásagnarvert
nema fyrir þær sakir að slíkar auglýs-
ingar era bannaðar samkvæmt ís-
lenskri löggjöf. A sfðunni á móti er
þar sem verksmiðjunni sem framleið-
ir þá áfengistegund, sem auglýsingin
á við, er hælt á hvert reipi. Jón Guð-
bergsson hjá áfengisvamarráði tjáði
Alþýðublaðinu að að öllum líkindum
yrði þetta tiltæki kært. Hann sagði
jafnframt að áfengisvamaráð hefði
einu sinni kært ákveðinn aðila fyrir
sömu sakir, en þá hefði ekkert komið
út úr kæranni. Það væra svo margar
Jón tók það jafnframt fram að hann
sæi ekki fyrir sér neina smugu fyrir
þessa auglýsingu. Ómar Smári Ar-
mannsson, aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn, sagði að lögreglan tæki svona
mál fyrir ef kæra bærist og bæri sam-
an auglýsinguna og löggjöfina. Hann
sagði að talsvert væri um það að
áfengisauglýsingar væra birtar vegna
vanþekkingar á lögunum og að menn
betri vegar. „En svo era til menn sem
notfæra sér gráu svæðin vísvitandi."
sagði Ómar Smári ennfremur. Börkur
Amason hjá Globus, sem hefur með
innflutning viðkomandi áfengisteg-
undar að gera, neitaði allri aðild að
rnálinu og vísaði alfarið á útgefenda
Sportblaðsins. Hann kvaðst hins veg-
ar ekki hanna umfjöllun um þá vöru-
tegund sem væri hans lifibrauð að
selja. Aðspurður um afstöðu sinnar til
löggjafarinnar um bann við auglýs-
ingum á áfengi, sagðist Börkur ekki
leyna þeini skoðun sinni að hann teldi
að áfengis- og tóbaksauglýsingar sem
slíkar, hefðu engin áhrif á neyslu
áfengis og tóbaks. Þær yrðu aðeins til
þess að þeir sem neyttu þess þegar,
færðu sig á milli tegunda.
Ekki náðist í útgefanda og ábyrgð-
Áfengisauglýsingin sem birtist á
heilsíðu í nýjasta tölublaði Sport-
blaðsins. Áfengisvarnaráð hyggst
að öllum líkindum kæra tiltækið.
armann Sportblaðsins, Gunnar Bend-
er, þar sem hann er í jólafríi, fjarri
skarkala höfuðborgarinnar.
Stungið saman nefjum Þingmenn fengu rétt tækifæri til
að taka utan af gjöfunum sínum og sporðrenna jólasteikinni áður en þeir
voru kallaðir aftur til skyidustarfa við Austurvöll. Halldór Blöndal land-
búnaðarráðherra og Össur Skarphéðinsson umhverfisráðherra voru al-
varlegir í bragði í gærdag enda sjálfsagt að ræða um einhver framfaramál
í þágu lands og þjóðar - nema Halldór hafi verið að sýna Össuri nýjustu
vísurnar sínar. A-mynd: E.ÓI.
Landsmönnum fjölgaði um 0,70%
Sjaldan jafn lítil fjölgun
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofunnar var mannljöldi á land-
inu 1. desember 266.786. Á einu ári
fjölgaði íbúum um 1.867 eða 0,70%.
Fjölgun hefur sjaldan orðið minni
hlutfallslega, en 1993 var ijölgunin
1,04%. Nákvæmar tölur um breyt-
ingar manntjöldans árið 1994 liggja
ekki fyrir, en svo virðist sem tala að-
fluttra til landsins verði um 850 lægri
en tala brottfluttra, en tala fæddra um
2.700 hæni en tala dáinna. Að lík-
indum fæðast um 4.450 börn á árinu
og 1.750 manns deyja. Til landsins
flytjast um 2.700 manns en frá því
um 3.550.
Mannfjöldi óx um 1,5% á höfuð-
borgarsvæðinu 1994, 0,7% á Suður-
nesjum, 0,4% á Suðurlandi og 0,1%
á Norðurlandi eystra. Á Austurlandi
fækkaði fólki um 1,0%, á Norður-
landi vestra um 1,4% og um 1,6% á
Vestíjörðum og á Vesturlandi.
Fækkunin á Vesturlandi, Norður-
landi vestra og Austurlandi er hin
mesta sem orðið hefur þar á liðnum
áratug. I Reykjavik fjölgaði fólki um
1.212 eða 1,2%. Reykvíkingar era
nú 103.036 talsins. I öðrum sveitar-
félögum á höfuðborgarsvæðinu
fjölgaði um 2,1 %, mest í Bessastaða-
hreppi eða um 3,5%.
Þann 1. desember vora karlar á
landinu 133.784 en konur 133.002.
NEISTI
málgagn jafnaðarmanna
á Norðurlandi vestra er
samferða Alþýðublaðinu
í dag og er dreift á öll
heimili í kjördæminu.
Alþýðublaðið í dag
Gylfi Þ. Gíslason:
Opið bréf til Jóns
Baldvins
Pallborð 3
Ellefubíómaður
gerir upp sakir við
listina
Silfur Egils 2
Vilhjálmur
Þorsteinsson um
siðbót og stjórnmál
Pallborð 4
Alger Fáviti:
Arnór Benónýsson
skrifar um Fávitann
Leikhús 5
Lítill, feitur karl ríf-
ur kjaft: Karl Th.
skrifar um Krumma
Bókarumfjöllun 5
Fortíðarþráin og