Alþýðublaðið - 29.12.1994, Blaðsíða 8

Alþýðublaðið - 29.12.1994, Blaðsíða 8
MHMBIMD Fimmtudagur 29. desember 1994 196.tölublað - 75. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk Lítill samdráttur í bóksölu frá því í fyrra: Hlutur Hagkaups jókst á kostnað bókaverslana Algeng ágiskun bókaútgefenda hljóðar uppá 10% samdrátt. Einhver samdráttur virðist hafa verið í bóksölu fyrir þessi jól miðað við jólin í fyrra. Utgefendur telja að verðhækkanir á bókum vegna auk- inna áhrifa virðisaukaskatts hafa dregið eitthvað úr sölu. Þá virðist ljóst að veruleg tilfærsla hafi átt sér stað í bóksölu frá hefðbundnum bókabúðum yfir í verslanir Hag- kaups. Jóhann Páll Valdimarsson í For- laginu sagðist hafa það á tilfinning- unni að einhver samdráttur hafi orð- ið í bóksölu í heild en sá samdráttur væri vel innan við 10%. Þar hefði al- mennt efnahagsástand mest að segja auk neikvæðrar umræðu um að bæk- ur hafi hækkað vegna áhrifa virðis- aukaskatts á bækur. Staðreyndin væri hins vegar sú að útgefendur hefðu áfram að mestu tekið á sig virðisaukaskattinn en ýmsar kostn- aðarhækkanir hefðu hækkað bóka- verð. Verð á pappír hefði til dæmis rokið upp úr öllu valdi. „Það hefur orðið mikil tilfærsla í bóksölu fyrir jólin og ljóst að Hagkaup hefur stór- aukið hlutdeild sína á kostnað bóka- verslana. Hagkaup seldi óhemjumik- ið á útsölunni og naut þeirrar sölu- aukningar áfram eftir að útsölunni lauk,“ sagði Jóhann Páll. Hann sagði að af bókum Forlagsins hefði mest selst af skáldsögu Fríðu A. Sigurðar- dóttur, I luktum heimi, og síðan Æv- inlega eftir Guðberg Bergsson. „Salan gekk nokkuð vel en það er samdráttur í bóksölu í heild og þar kenni ég um áhrifum virðisauka- skattsins. Bækur eru í samkeppni við aðra gjafavöru og ef á að reyna að tryggja stöðu bókarinnar verður að afnema þennan skatt. Höfundar, út- gefendur eða prentsmiðjur geta ekki tekið á sig meiri klyfjar til að halda verðinu niðri,“ sagði Steinar J. Lúð- víksson hjá Fróða. Steinar sagði að Fróði hefði ekki gefið út margar bækur í ár en af þeim væri mest sala í bók Omars Ragnarsson enda væri hún í fyrsta eða öðru sæti yfir mestu seldu bækurnar í heild. Síðan kæmi Amo Amas eftir Þorgrím Þráinsson og í þriðja sæti NBA-stjömurnar. Aðspurður um sölu á bókum um Hrafn Gunnlaugsson og Guðmund Arna Stefánsson sagði Steinar að þær bækur hefðu selst þokkalega en þó minna en vonir stóðu til. „Ef ekki verður mikið um skil á bókum þá ætti útkoman að verða svipuð og í fyrra. Eg hef það þó á til- fmningunni að sala á bókum sé eitt- hvað minni en í fyrra en held að sam- drátturinn nái varla 10 prósentum," sagði Bjöm Eiríksson í Skjaldborg. Hann sagði þessa söluvertíð hafa verið óvenjulega vegna útsölunnar í Hagkaup og það ruglaði menn svo- lítið í ríminu þegar spáð væri í bók- söluna. Bjöm sagði að af útgáfubók- um Skjaldborgar hefði verið mest sala í Enn fleiri athugunum Berts sem hefði selst upp og ekki verið hægt að anna eftirspurn. Síðan kæmu Sidney Sheldon og Oli í Olís. % -j jr—v. j» “— " ' WM ■■ R y .il f í !»i r itiiffiif; mr dÉ.1 Sighvatur Bjarnason: Maður viðskiptalífsins 1994 Sérstök dómnefnd Frjálsrar verslunar og Stöðvar 2 hefur útnefnt Sighvat Bjarnason framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum og stjórnarformann SÍF mann ársins í viðskiptalífinu 1994. Sighvatur, sem er 32 ára, hlaut út- nefningu fyrir frábært starf fyrir Vinnslustöðina. Á myndinni er Sighvatur með viðurkenningarskjalið sem hon- um var afhent í hófi í gær, en til hliðar er Magnús Hreggviðsson formaður dómnefndar. A-mynd: E.ÓI. Hugsanlegt sérframboð Eggerts Haukdal á Suðurlandi: Eggert meö helling affólki - segir Georg Þór Kristjánsson í Vestmannaeyjum. „Eg á síður von á því að fara á lista með Eggerti Haukdal. Mað- ur hefur nóg með sitt hér í Eyjum eins og er, en við Eggert höfum rætt þetta fram og til baka,“ sagði Georg Þór Kristjánsson bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum í samtali við blaðið. Eggert Haukdal hefur boðið Georg sæti á sérlista sem hann hyggst bjóða fram við komandi kosningar. Georg Þór klauf sig frá Sjálfstæðisflokknum í Vest- mannaeyjum fyrir síðustu bæjar- stjórnarkosningar og náði kjöri af óháðum lista. „Eggert er með helling af fólki á Suðurlandi á bak við sig og á Iíka töluvert fylgi hér í Eyjum. Ég stakk nú upp á því að ég færi í 1. sæti en hann sjálfur í baráttu- sætið. Það hlaut engar undirtekt- ir. En ég veit ekki hvað ég geri í þessu. Það er nógur tími ennþá til að ákveða sig,“ sagði Georg Þór Kristjánsson. Útflutningur sjávarafurða 1994: Aldrei meira fyrir fiskinn Fiskifélagið áætlar að andvirði út- flutnings sjávarafurða verði um 86,6 milljarðar króna á árinu 1994. Arið áður nam verðmætið liðlega 76 milljörðum. Það hefur því aukist um 13,8% milli ára og aldrei verið hærra í krónum talið. Endanlegar tölur um afla og verðmæti 1994 liggja ekki fyrir, en Fiskifélagið áætlar heildaraflann um 1.490 þús- und tonn og verðmæti hans um 46 milljarða miðað við óslægðan fisk upp úr sjó. Árið 1993 var heildarafl- inn 1.699 þúsund tonn og verðmæt- ið 49,8 milljarðar. Aflamagn hefur þvf dregist saman um 12,3% en verðmæti upp úr sjó aðeins minnkað um 7,6% milli ára. Botnfiskaflinn er til muna minni nú en um árabil. Þó er aukning á úthafskarfa og hafa Is- lendingar aldrei veitt jafn mikið af karfa og nú. Þorskaflinn dregst sam- an um 81 þúsund tonn sem samsvar- ar 32% milli ára. Þorskaflinn hefur ekki verið svona lítill síðan um 1950. Ysuaflinn eykst og verður 58 þúsund tonn eða um 23,4% meiri en í fyrra. Ufsaaflinn verður minni en skelfiskaflinn eykst og munar þar mestu að rækjuafii eykst um nær 18 þúsund tonn. Á þessu ári hafa ís- lensk skip veitt um 35.350 tonn af fiski í Barentshafi og Svalbarða- svæðinu og mest af þeim afla er þorskur. Verðmæti Smuguaflans er áætlað tæplega 2,4 milljarðar. Góður drengur og vafalaust góð stelpa í Sjónvarpinu birtist fyrir skömmu viðtal við íslenskan kari- mann sem hefur látið breyta sér með skurðaðgerð í konu. Það hefur að vonum vakið athygli, því okkar litla samfélag er ekki vant opinskárri umfjöllun um persónuleg málefni af þessu tagi. Vestmannaeyingar, sem telja sig eiga nokkuð f manninum þar sem hann bjó og starfaði í Eyjum um nokkurra ára skeið, elta í hinu þykka og vandaða héraðsfréttablaði sínu „Frétturrí* uppi þá sem þekktu hann á þeim árum. Gefum eyja- mönnum orðið: „Fátt hefur vakið meiri athygli en viðtal við Önnu Kristjánsdóttur í Nýju Lífi sem þangað til fyrir nokkr- um árum var Kristján Kristjánsson. Anna er fyrsti íslenski kynskipting- urinn sem segir frá reynslu sinni af því að ganga í gegnum kynskipti. Með viðtalinu er mynd af Önnu f vélarrúminu á togaranum Vest- mannaey VE. Myndin var tekin árið 1975 en Kristján var vélstjóri á Guðmundur Alfreðsson, viðmælandi Frétta, og Kristján Kristjánsson þeg- ar þeir voru skipsfélagar á Vestmannaey VE. (Mynd: Fréttir) Vestmannaey í fjögur ár og bjó með fjölskyldu sinni í Vestmannaeyjum. Þeir Vestmannaeyingar sem kynnt- ust Kristjáni á þessum árurn bera honum í alla staði vel söguna. Magnús Kristinsson, fram- kvæmdastjóri Bergs-Hugins sem gerir út Vestmannaey, man vel eftir Kristjáni og segir að hann hafi f alla staði verið góður starfsmaður. „Hann stóð sig vel í öllu sem hann gerði og var í alla staði til fyrir- myndar sem vélstjóri. Meðan Krist- ján var hjá okkur bjó hann í Ráða- gerði við Skólaveg ásamt eiginkonu og þremur börnum þeirra,“ sagði Magnús en aldrei hafði hvarflað að honum að Kristján væri kona f karl- mannslíkama. „Mig grunaði þetta aldrei og varð aldrei var við neitt sem benti til þess að hann ætti eftir að fara í kynskiptingu." Guðmundur Alfreðsson, ber Kristjáni vel söguna. „Þetta var sómadrengur, það er ekki hægt að segja annað og það var í alla staði gott að vinna með honum,“ sagði Guðmundur. Anna Kristjánsdóttir í dag. Hugrakkur kynskiptingur sem fyrstur slíkra é (slandi hefur sagt sögu sína. (Mynd: Nýtt líf/Fréttir) Eftir á að hyggja sagði Guðmund- ur að eitt í fari Kristjáns hafi verið svo lítið einkennilegt. „Þegar við vorum erlendis fór hann aldrei út að skemmta sér með okkur strákunum. Hann fór alltaf einn í land en þá var maður ekkert að velta þessu fyrir sér, en Kristján var góður drengur og ég er sannfærður um að hann er líka ágætis stelpa," sagði Guðmund- ur en hann hefur ekki hitt Kristján eftir að hann varð Anna.“

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.