Alþýðublaðið - 29.12.1994, Page 3

Alþýðublaðið - 29.12.1994, Page 3
FIMMTUDAGUR 29. DESEMBER 1994 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 3 Alþýðuflokkurinn á að státa sig af SUJ - Opið bréf til Jóns Baldvins Hannibalssonar. „Þú og þínir nánustu samstarfsmenn þurfa að ná til unga fólksins í landinu sem tekur undir með SUJ og Alþýðuflokknum um hans helstu baráttumál. Til að ná til unga fólksins þarf Alþýðuflokkurinn að tefla fram ungu fólki ofarlega á framboðslista í öllum kjördæmum landsins. Alþýðuflokkurinn státar af einni sterkustu ungliðahreyfing- unni innan íslenskra stjórnmála í dag. Athugaðu það foringi.“ Ólgan er mikil á vinstri væng stjórnmálanna á Islandi í dag. Ungt félagshyggjufólk hrópar á breyting- ar. Við viljum sjá þann dag að fé- lagshyggjufólk á Islandi sameinist í einum stórum jafnaðarmannaflokki. Við viljum sjá Reykjavíkurlistaæv- intýrið endurtaka sig á landsvísu í stómm jafnaðarmannaflokki sent rúmar alla jafnaðarmenn. Jón Baldvin Hannibalsson, þú skrifaðir grein í Alþýðublaðið föstu- daginn 16. nóvember síðstliðinn. Þar skrif- aðir þú um sundrung vinstri manna í gegn- um tíðina. Þar skrifað- ir þú um hatur og heimsku. Allar tilraunir urn sameiningu jafnaðar- manna í einn nýjan „flokk“ hafi verið byggðar á hatri og heimsku. Ég get tekið undir með þér að leiðin að sam- einingu jafnaðarmanna er ekki þær að fjölga þeim flokkum eða llokks- brotum, sem segjast vilja vinna að sameiginlegu markmiði. Það þekkir þú vel þar sem þú hefur sjálfur brennt þig á því. Hvad sundrar félagshyggjufólki? Jón Baldvin, þú fórst víða í grein þinni til að benda á hvað sundrar fé- lagshyggjufólki. Þú fórst inn á mál- efnin og skrifaðir um fjölda mála- flokka þar sem þú útskýrðir afstöðu Alþýðuflokksins og síðan afstöðu hinna flokkanna. Þú verður hins veg- ar að átta þig á þvf að það er ekki ungt fólk í hinum flokkunum sem hefur mótað hentistefnu Framsókn- arflokksins eða hið gamla forrit Al- þýðubandalagsins. Svo tókst þú fyrir nokkur málefni: 1. ALÞJÓÐAHYGGJA. Jón Baldvin, það er rétt að Alþýðuflokk- urinn hefur stutt aðild Islands að NATO, Norðurlandasamvinnu, EFTA, EES. Og að við viljum láta reyna á hvað fæst út úr aðild að ESB. Það er rétt að þar stendur SUJ fremst í flokki. Unga fólkið í hinum félags- hyggjuflokkunum getur tekið undir það með SUJ og Alþýðuflokknum. Hinir eldri í hinum félagshyggju- flokkunum eru á móti, sitja hjá eða vilja ekki hafa málið á dagskrá. 2. AT- VINNULÍF- IÐ. Það errétt, Jón Baldvin, að Alþýðu- flokkurinn vill að atvinnulíf- ið lúti lögmál- um sam- keppni á opn- um markaði en verði ekki hneppt í fjötra ríkisfor- sjár. Unga fólkið í hinum félags- hyggjuflokkunum getur tekið undir það með SUJ og Alþýðuflokknum. ' 3. VELFERÐIN. Það er rétt, Jón Baldvin, að Alþýðuflokkurinn vill að velferðin sé fyrir fólk. Það má aldrei verða sérhagsmunakerfí fyrir þá sem við það starfa. Unga fólkið í hinum félagshyggjuflokkunum getur tekið undir það með SUJ og Alþýðu- flokknum. Hinir eldri í hinum félags- hyggjuflokkunum eru í vinsældaleit með því að blása þá mynd upp að Al- þýðuflokkurinn sé.vondur við sjúka og aldraða og þeir vilja senda reikn- inginn á komandi kynslóðir. 4. VIRKT LÝÐRÆÐI. Það er líka rétt, Jón Baldvin, að SUJ er í farar- broddi með heildstæðar og rökréttar tillögur um jöfnun atkvæðisréttar með landið sem eitt kjördæmi. Unga fólkið í hinum félagshyggjuflokkun- um getur tekið undir það með SUJ og Alþýðuflokknum. Hinir eldri í hinum félagshyggjuflokkunum eru á móti. Aldurshópurinn 18-35 er stór markhópur Jón Baldvin þú gerir þér kannski ekki grein fyrir því að ungu kjósend- urnir á aldursbilinu 18 til 35 er mjög stór hópur kjósenda. Það er fólkið sem mun taka við stjóm landsins á næstu árum. Unga fólkið nær ekki að stefnu Alþýðuflokksins vegna þeirra slæmu myndar sem dregin er upp af flokkn- um í fjölmiðlum þrátt fyrir sterka málefnastöðu flokksins. Til að ná eyrunt ungu kjósendanna þarf Al- þýðuflokkurinn að bera gæfu til að tefla frant ungu og fersku fólki fram- arlega á framboðslistum sínum. AI- þýðuflokkurinn má ekki láta hina flokkana taka frá okkur unga kjós- endur, en þeir eru þegar famir að raða ungu fólki á lista, jafnvel í efstu sæti í sumum kjördæmum. Jón Bald- vin við vitum það báðir að andstæð- ingar okkar hafa oftsinnis auglýst jarðarför Alþýðuflokksins en hún hefur ekki farið fram ennþá og mun ekki gera það þvf unga fólkið í land- inu aðhyllist í rfkum mæli stefnu Al- þýðuflokksins og SUJ. Stefna SUJ í mörgum málum á fylgi langt inn í raðir hinna ungliðahreyfinga félags- hyggjuflokkana og ungu kvenna- listakvennanna. Þú og þínir nánustu samstarfsmenn þurfa að ná til unga fólksins í landinu sem tekur undir með SUJ og Alþýðuflokknum um hans helstu baráttumál. Til að ná til unga fólksins þarf Alþýðuflokkurinn að tefla fram ungu fólki ofarlega á framboðslista í öllum kjördæmum landsins. Alþýðuflokkurinn státar af einni sterkustu ungliðahreyfingunni innan íslenskra stjómmála í dag. At- hugaðu það foringi. Höfundur er formaöur Æskulýössam- bands fslands. Pallborðið Gylfi Þ. Gíslason ;1 skrifar Einsog ffam hefur komið í fréttum mælist Þjóð- vaki Jóhönnu Sigurðar- dóttur nú með 25% fylgi, og er því næststærsti ílokk- ur landsins. Sjálfstæðis- flokkur er með 35%, Fram- sókn 17%, Alþýðubanda- lagið 10%, Kvennó 6% og Alþýðuflokkur 5%. Davíð Oddsson forsætisráðherra túlkaði könnunina á Al- þingi í fyrradag sem mik- inn stuðning við ríkisstjórn sfna: 65% þjóðarinnar styddu stjómina samkvæmt þessum tölum. Davíð sagði að auðvitað bæri að reikna fylgi Þjóðvaka sem stuðn- ing við stjómina, enda hefði Jóhanna til skamms tíma verið þar innanborðs og bæri sömu ábyrgð á verkum stjórnarinnar og aðrir ráðherrar. Þetta virðist óneitanlega nokkuð pott- þétt röksemdafærsla hjá forsætisráðherra... Framboðsmál Alþýðu- flokksins á Suðurlandi eru ekki enn komin á hreint en mikill áhugi er í kjör- dæminu að fá Lúðvík Bergvinsson, ungan lög- fræðing úr Eyjum, í 1. sæt- ið. Lúðvík hefur til skamms tíma verið í hinu vaska fótboltaliði Eyja- manna, en það hefur sýnt af sér dæmafáa þrautseigju ár eftir ár í 1. deildinni. Það er því von manna að Lúð- vík geti fært alþýðuflokks- mönnum stríðsgæfu í þeirri erfiðu barátlu sem fram- undan er. Arni Gunnars- son reyndi síðast fyrir sér á Suðurlandi en hafði ekki erindi sem erfíði. Hann er nú framkvæmdastjóri NLFÍ í Hveragerði og hefur verið talsvert orðaður við fram- boð. í viðtali við Tímann f gær þvertók Árni fyrir framboð að þessu sinni, og sagðist að undanfömu hafa neitað mörgum pólitískum biðlum. Af þeim orðum má ráða að Jóhanna Sigurð- ardóttir haft leitað eftir fulltingi Árna - en semsagt verið hryggbrotin... Nú er jólabókaflóðið að fjara út og útgefendur hafa víst flestir hverjir sloppið fyrir hom. Sigur- vegarar flóðsins em ótví- rætt íslenskir skáldsagna- höfundar. Olafur Jóhann Olafsson var í sérflokki einsog venjulega, en næst komu þau Vigdís Grímsdótt- ir og Hall- grímur Helgason. __ Þá seldust bækur Fríðu Á. Sigurðar- dóttur, Einars Kárasonar og Guðbergs Bergssonar harla vel. Senuþjófurinn er tvímælalaust Hallgrímur Helgason; honum var ekki spáð sérlega góðum árangri í harðri samkeppni við flesta kunnustu höfunda landsins. En hann kom semsagt, sá og mokaði út bókinni sinni. Og ekki að ástæðulausu: Skáldsaga hans þykir einhver sú hressilegasta og frantleg- asta í háa herrans tíð... Hinumegin Umsátur dagsins Þeir kunna að búa til fyrirsagn- ir, vinir okkar og félagar sem gefa út Alþýðublað Kópavogs. Topp tíu úr nýjasta tölublaðinu: Óábyrgir stjórnendur á fjárfestingarfylleríi Rannveig kenndi „pörupiltunum" mannasiði: Rannveig tók Mörð og Hannes Hólmstein í gegn Reiðir foreldrar rassskelltu Braga Rosalegar skuldir Gleymdu 400 milljóna láni! Voru rangar tölur kynntar af ásettu ráði? Menningarmusterið hvarf á 14 dögum Þjóðvaki ómögulegt og ónothæft (orð) á sænsku Sigurrós fær kaldar kveðjur Kópavogur skuldsettastur allra bæjarfélaga Fimm á förnum vegi Hvaða jólabækur hefur þú lesið? Bjarni Jóhannsson þingvörður: Ég fékk engar bækur. Séra Þorvaldur Karl Helgason: Sniglaveislan. Hún er ekkert sérstök en rann samt ljúflega niður. Laufey Guðmundsdóttir nemi: Ég er búin að lesa tvær blaðsíður í Guðbergi og hún lofar góðu. Alda Steindórsdóttir nemi: Blautir kossar. Meiriháttar bók. Inga Hrund Arnardóttir nemi: Leiftursýn, sem er frábær. Viti menn Þeir virtust strax kannast við andlitið og er þeir áttuðu sig næsta dag á því hver ég var sögðu þeir að ég yrði settur á aftökulistann, röðin kæmi að mér. Cesar Ferhar, vinsæll alsírskur söngvari, sem var meðal farþega í þotu Air France sem rænt var um jólin. Mogginn í gær. Þessvegna er spurt: Hvers á Guðmundur Gíslason Hagalín að gjalda? Er ekki enn búið að fyrirgefa honum Gróður og sandfok og öfluga menningar- baráttu hans fyrr og síðar? Því er bágt að trúa eftir fall múrsins. Ritdómur Jóhanns Hjálmarssonar um bókmenntaannál 1930-44 i ritinu I deiglunni eftir Árna Sigurjónsson og Friðrik Rafnsson. Morgunblaðið í gær. Þótt höfundur hafi ást á bókstafnum ypsilon, sem er og verður góðra gjalda vert, er nú kannski óþarfl að rekast á það í öðru hverju orði. Að minnsta kosti leið mér undariega þegar ég sá orðin: fornleyfafræðingur, breykk- aði, áþreyfanlegur, lýkjast, skylja, afleyðingar, dreyft, óneytanlega, systkyni... Ritdómur Kristínar Ómarsdóttur um bókina UFO - fljúgandi furðuhlutir eftir Einar Ingva Magnússon. Mogginn í gær. Já, ég ætla að hafa herbergið mitt hreint næstu 500 árin. Thelma Rut Kristinsdóttir aðspurð hvort hún ætli að strengja áramótaheit. DV í gær. Osborne sá óvini í hverju horni og lét fúkyrðin óspart dynja á þeim. Hann hafði þó einkum ímugust á leiklistar- gagnrýnendum. „Það ætti að fletta ofan af þeim reglulega,“ skrifaði hann, „einsog spilltu lögregluliði eða biluðum skolplögnum.“ Morgunblaöiö í gær. Enska leikskáldið John Osborne lést á aðfangadag. Hér á landi eru allar aðstæður til að hafa megi stjórn á afbrotatíðninni. Ómar Smári Ármannsson lögregluþjónn. Grein í Morgunblaðinu í gær. Það er orðið þreytandi að þurfa stöðugt að vera á varðbergi gegn leyniskyttum stjórnvalda sem settar eru til höfuðs dreifbýli þessa lands. Sveinbjörn Jónsson sjómaður á Súg- andafirði. Kjallaragrein í DV í gær. Á ársþingi Knattspyrnusam- bands íslands á dögunum kom fram tillaga um að setja upp knattspyrnuminjasafn á Akranesi. Sagan segir að þessi tillaga hafi fengið góðan hljómgrunn hjá öllum nema KR-ingum. Ástæðan sé sú að bikarasafn KR-inga sé minja- safn sem færi í heilu lagi upp á Akranes ef til þessa kæmi! Víkverji í gær.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.