Alþýðublaðið - 04.01.1995, Page 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 4. JANÚAR 1995 í*
Samband ungra jafna
er ekld samansafii frai
JT
Samband ungra jafnaðarmanna er ekki
samansafhfranmgosa í leit aðfeitum sér-
verkefnum í ráðuneytum og sendiráðum.
Við viljum hafa áhrif innan og utan
flokksins og það geriun við aðeins með
því, að vera trá okkar skoðunum og láta
flokkssvipuna ekki hafa áhrif á okkur.
Alþýðuflokkurinn hefiir haft gœfu til að
leyfa ungum jaftuiðarmönnum að halda
sínu strikL ” segir Jón Þór Sturluson.
ungur hagfrœðingur sem œttaður er frá
Stykkishóhni. Á átmánuðum síðasta árs
var hann kjörinn formaður Sambaiuls
ungra jaftuiðarmanna eftir að hafa
starfað þar innan framkvœmdastjómar í
nokkur ár. Stefán Hrafii Hagalín settist
niður með Jóni Þór í gœrdag og átti við
hann samtal um landsins gagn og
nauðsynjar — lífið og tilveruna:
-Staða Alþýðuflokksins - Jafn-
aðarmannaflokks Islands - er
óneitanlega erfið ídag. Hverniglíð-
ur ungu fólki í Alþýðuflokknum?
„Vel, þakka þér fyrir. Að minnsta
kosti hefur þetta unga fólk í Alþýðu-
flokknum tekið þá ákvörðun, að
halda áfram að vera ungt fólk í Al-
þýðuflokknum. Talandi um vellíðan
í Alþýðuflokknum, þá er það eftir-
tektarvert að engin flótti er í okkar
röðum til hennar Jóhönnu blessunar-
innar, sem sést best á því að sfðasta
sambandsþing okkar, sem haldið var
í nóvember síðastliðnum, var það
fjölmennasta á lýðveldistímanum."
-Eg samgleðst ykkur. Hverjar
sýnist þér vera helstu ástœðurnar
fyrirþessari erfiðu stöðu flokksins?
„Brotthvarf Jóhönnu Sigurðar-
dóttur og umrótið í kringum Guð-
mund Ama Stefánsson skýra að
mestu lélegt gengi Alþýðuflokksins í
vinsældakönnunum. Ég held þó, að
til viðbótar liggi grundvallarskýring,
sem er ríkisstjómarþátttaka Alþýðu-
flokksins. Þessi skýring gleymist
stundum í hamaganginum við að
finna persónur til að skella sökinni á.
Það er dagljóst, að þrátt fyrir gott
starf í ríkisstjóm af hálfu Alþýðu-
flokksins, hefur árangur Davíðs
Oddssonar og félaga ekki orðið sem
skyldi í veigamiklum málum. Aftur-
hald og skammsýni virðast orðin
homsteinninn að hinni mjög svo
óljósu „sjálfstæðisstefnu", svosem í
mennta-, landbúnaðar-, viðskipta-,
og velferðarmálum. Þegar Alþýðu-
flokkurinn þarf að skrifa undir slíkt
er ég ekki hissa á, að kjósendur hans
séu í vafa um áframhaldandi stuðn-
ing sinn við flokkinn.“
-Þú ert lítt hrifinn af Sjálfstœðis-
flokknum, heyri ég. En hvernig
meturðu málefnastöðu flokksins og
árangur undanfarinna ára? -
Hverjar standa uppúr sem best
heppnuðustu aðgerðirnar og hvað
mœtti betur fara?
„Það er auðvitað ótalmargt sem
betur mætti fara. ísland er sem betur
fer engin Utópía, en stefna Alþýðu-
flokksins er bæði framsækin og sam-
kvæm sjálfri sér. Ef litið er á störf
hans sést hinsvegar glöggt hversu
þrengt hefur verið að honum í þessu
stjórnarsamstarfl. Þar hefur stundum
ekki reynst mikið svigrúm til at-
hafna. Ráðherrar og þingmenn Al-
þýðuflokksins hafa hinsvegar með
fádæma þrautseigju komið mörgum
mjög mikilvægum málum í höfn, og
ber þar hæst samninginn um
Evrópskt efnahagssvæði, raunhæfar
aðhaldsaðgerðir - til að mynda í
heilbrigðismálum - og lækkun
vaxta. Þetta em stóru málin.“
-Hvaða aðgerðir vilja ungir jafn-
aðarmenn til að bregðast við lakri
stöðu flokksins í skoðanakönnun-
um? Hvernig cetlið þið sjálf að láta
til ykkar taka?
„Alþýðuflokkurinn þarf að kom-
ast sem allra fyrst úr þeirri vamar-
stöðu sem hann er í. Það er lífsnauð-
syn og atriði númer eitt, tvö og þrjú.
Ef stefnu flokksins og árangurs hans
í erfiðu stjómarsamstarfi er komið til
skila mun fylgi við flokkinn aukast
samstundis. En hvernig á að koma
þessu í kring er erfiðara mál. Ungir
jafnaðarmenn ætla að minnsta kosti
ekki að láta sitt eftir liggja. Við ætl-
um að vekja athygli á yfirburðar-
stöðu flokksins, málefnalega séð,
með skýrum og beittum málflutn-
ingi. Ljóst er, að breyta þarf ásjónu
flokksins og til þess þarf nýtt fólk
framarlega í baráttusveitina. Þar
skorast ungir jafnaðarmenn ekki
undan ábyrgð.“
-Það er sívinsœlt að gagnrýna
unga fólkið fyrir handahófskennd
vinnubrögð - að það vaði úr einu í
annað og sé ístöðulaust. Gildirþetta
um SUJ eða eru vinnubrögð ykkar
ef til vill markvissari en margir
œtla? Er metnaðurinn að aukast?
„Það er náttúrlega ekki hægt að
bera málflutning Sambands ungra
jafnaðarmanna eða annarra ungliða-
hreyfinga saman við boðskap at-
vinnupólitíkusa. Pólitfk er fyrst og
fremst áhugamál hjá okkur félögum.
Ég hef þó tekið eftir síauknum metn-
aði í röðum ungra jafnaðarmanna og
tel reyndar, að ungir jafnaðarmenn
geti borið málflutning sinn saman
við hvaða stjórnmálahreyfmgu sem
er með reist höfuðið. Okkar stefna -
markmið og leiðir - er skýr. Ég tek
undir þau sjónarmið, að við unga
fólkið eigum að kappkosta að vera
trúverðug. Þannig næst hámarks ár-
angur.“
-Hverjar eru persónulegar skoð-
anirþínar á hugsanlegum breyting-
um á forystusveit flokksins - eða
áherslubreytingum á stefnu? Þú
hefur við fleiri en eitt tœidfœri lýst
þeirri skoðun, að forystan hafi van-
rœkt fólkið í flokknum. Er fót-
gönguliðið tekið að þreytast?
„Ég fer ekkert ofan af því að mér
finnst forystusveitin hafa vanrækt
fótgönguliðið, nema ef til vill rétt
fyrir kosningar. Ég tel nauðsynlegt
að breyta starfsháttum flokksins í átt
til aukins dreifræðis. Þingflokkalýð-
ræði er því miður staðreynd á ís-
landi, en við eigum ekki að sætta
okkur við það. Einsog flokkurinn
starfar í dag er forystan því ábyrg
fyrir öllu, hvort heldur til góðs eða
ills. Það væri hinsvegar óráð að
skipta um forystu nú á aukaþinginu í
febrúar, aðeins þremur mánuðum
fyrir kosningar. Ef flokkurinn fær
slæma útreið í kosningum er aftur á
móti rétt að huga að nýrri foiystu.
Það segir sig sjálft."
-Hvað segja félagar þínir í SUJ
um þessi mál?
„Ég held að við séum allflest sam-
mála um þetta."
-Þegar þú tókst við formaður
ungra jafnaðarmanna seint á síð-
asta ári lýstirðu þvíyfir, að þú vœr-
ir „ekki nýr Jón Baldvin“. Hvað
varstu að meina? Varstu að gleðja
félaga þína eða svekkja?
„I þessari yfirlýsingu fólst loforð
um að stunda aðra stjómunarhætti en
viðgangast í Alþýðuflokknum. Ég
vil gera allt sem í mfnu valdi stendur
til að forystusveit ungra jafnaðar-
manna sé breið og að fámenn valda-
klíka einangrist ekki á toppi pýram-
ídans.“
-Nú naut Jóhanna Sigurðardótt-
ir nokkurs stuðnings meðal ungra
jafnaðarmanna á flokksþinginu
síðastliðið sumar og þú sjálfur varst
í undirhúningshópi Jafnaðar-
mannafélags Islands sem síðar
sagði sig úr Alþýðuflokknum. Hafa
Jóhanna og Þjóðvakinn einhver
skörð höggvið í raðir ykkar? - Og
afhverju gekkst þú ekki úr flokkn-
um með svo mörgum öðrum með-
limum Jafnaðarmannafélagsins ?
„Úrsögn Jafnaðarmannafélags ís-
lands úr Alþýðuflokknum var í hróp-
legu ósamræmi við þau áform sem
undirbúningshópurinn hafði sett sér.
Markmið félagsins voru í upphafi
tvö: Annarsvegar að breikka ásýnd
flokksins og vekja aukna umræðu
innan flokksins um verkalýðs-, neyt-
enda- og velferðarmál. Hinsvegar að
vinna að auknu lýðræði og valddreif-
ingu í starfi flokksins. Eftir að Jó-
hanna ákvað að kveðja flokkinn,
breyttist tónninn í hluta bráðabirgða-
stjómar félagsins, sem ég sat í. Nú
voru markmiðin gleymd, aðeins fá-
einum vikum eftir stofnunina og fé-
lagið gafst upp á tilgangi sínum án
þess að reyna hið minnsta til að bæta
flokkinn. Þeir ungu jafnaðarmenn
sem tóku þátt í stofnun félagsins
fylgdu fyrmm foringja sínum, Sig-
urði Péturssyni, ekki í faðm Jó-
hönnu. Vissulega studdu margir úr
röðum ungra jafnaðarmanna Jó-
hönnu, en sá stuðningur var til for-
mennsku í Alþýðuflokknum, ekki til
einkalandvinninga að hætti popú-
lista. Ég veit ekki um neinn ungan
jafnaðarmann sem yfirgaf Alþýðu-
flokkinn og gekk til liðs við Þjóð-
vaka, þvert á móti hafa aðilar sem
komu inn í flokkinn í gegnum Jafn-
aðarmannafélagið gengið til liðs við
Samband ungra jafnaðarmanna."
-Nánar um Jafnaðarmannafé-
lagið; hverjar voru fyrírœtlanirþín-
ar ífélaginu - semsagt hvað varþað
sem þú vildir sjá þar gerast og
eygirðu nú tœkifœri til að vinna að
þeim markmiðum sem formaður
SUJ?
„Ég var sammála upphaflegum
markmiðum Jafnaðarmannafélags-
ins um bætta starfshætti flokksins og
mun, eins og ég gerði félögum mín-
um grein fyrir, meðal annars vinna
að þeim innan SUJ. Þessar áherslur
eiga ríkan hljómgrunn innan SUJ
eins og víðtækur stuðningur ungra
jafnaðarmanna við Össur Skarphéð-
insson á flokksþinginu í sumar bar
vitni um. Það var einmitt Össur sem
lagði áherslu á bætta starfshætti inn-
an flokksins, enda innanflokksmál
oft tengd varaformannsembættinu."
-Samband ungra jafnaðarmanna
virðist lifa nokkuð sjálfstœðu lífi
innan Alþýðuflokksins - kannski
ekki ósvipað Félagi frjálslyndra
jafnaðarmanna. Þið hafið sjálf-
stœðu stefnu gagnvart mönnum og
málefnum og eruð óhrœdd við að
láta í ykkur heyra; samanber Evr-
ópumálefnin þar sem þið voruð
hrópandinn í eyðimörkinni árum
saman. Nú eru teknar að heyrast
raddir um að þið Ityggist reka ykkar
„eigin kosningabaráttu“. Hvað er
hœft íþeim orðrómi?
„Ef einhver heldur, að ungt fólk
sem er í stjómmálum af hugsjóna-
ástæðum sætti sig við að ganga und-
ir þrönga flokkslínu í öllum málum,
þá hefur sá hinn sami rangt fyrir sér.
Samband ungra jafnaðarmanna er
ekki samansafn framagosa í leit að
feitum sérverkefnum í ráðuneytum
og sendiráðum. Við viljum hafa áhrif
innan og utan flokksins og það ger-
um við aðeins með því, að vera trú
okkar skoðunum og láta flokkssvip-
una ekki hafa áhrif á okkur. Alþýðu-
tlokkurinn hefur haft gæfu til að
leyfa ungum jafnaðarmönnum að
halda sínu striki. Það erum við þakk-
lát fyrir. Sá orðrómur, að SUJ ætli að
reka eigin kosningabaráttu er þannig
á rökum reistur. Við teljum að okkar
kraftar nýtist best ef við fáum nokk-
uð frjálsri hendur en áður. Engin þarf
þó að óttast, að ósamræmi verði milli
kosningabaráttu Alþýðuflokksins og
SUJ. Við munum hins vegar leggja
meiri áherslu á önnur mál en móður-
flokkurinn."
-Eiga sérstakar ungUðahreyfing-
ar innan stjórnmálaflokkanna rétt
á sér? Er þetta ekki úrelt fyrirbœri
og aðeins til að ala á sundurlyndis-
fjandanum; að menn loki sig af í
„klíku“ - einhverskonar útungun-
arstöð pólitíkusa eða geymslustöð
œskunnar?
„Sú hætta er vissulega fyrir hendi,
að ungliðahreyfingar verði útungun-
arstöðvar og sérstaklega ef ungt fólk
lítur á slíkar stofnanir sem biðstöð í
frekara pólitísku tafii. Hugsjónafólk
í Sambandi ungra jafnaðarmanna er
afar meðvitað um þessa einangrun-
arhættu og hefur því reynt að efia
tengsl sín við annað ungt fólk með
svipaðar hugsjónir bæði innan ann-
arra flokka og utanllokka."
-Er Samband ungra jafnaðar-
manna sterkt afl í Alþýðuflokkn-
um? Hlustar forysta flokksins á
ykkur œskufólkið?
„Forysta ungra jafnaðarmanna
hefur yfir litlu að kvarta í þeim efn-
um. Þingmenn flokksins eru jafnan
opnir fyrir hugmyndum og ábend-
ingum okkar, þó svo að okkar tillög-
ur séu oft einunt of róttækar fyrir
fólk í real-pólitík. Gott dæmi um
áhrif SUJ innan flokksins er skipun
ungliðans Eiríks Bergmanns Einars-
sonar í nefnd þingsins um jöfnun at-
kvæðisréttar. Því má svo ekki
gleyma að formaður Félags ungra
jafnaðarmanna í Grindavík, Petrína
Baldursdóttir, situr nú á þingi. Fleira
mætti tína til en ég læt þetta nægja."
-Ungir jafnaðarmenn hafa tölu-
vert látið í sér heyra um sameining-
armál félagshyggjuaflanna. Eftir
það sem á undan hefur gengið síð-
astliðið ár, hverjar eru hugsanir
þínar um málið á nýju ári?
„Sigur Reykjavíkurlistans er stór-
kostlegt dæmi um hvað sameinaðir
vinstrimenn geta gert. Reynslan af
samstarfinu fram að þessu afsannar
glundroðakenningu Sjálfstæðis-
manna. í landsmálum held ég, að við
þurfum að bíða nokkuð til að vinna
sambærilega sigra. Þar held ég raun-
ar að samstarf allra þessara flokka
komi aldrei til. Ungt fólk í Alþýðu-
flokknum vill sjá sameinaðan jafn-
aðarmannaflokk í framtíðinni og við
munum vinna að þeim draumi okkar
í samvinnu við hugsjónabræður og
systur á öðrum vettvangi. Kosningar
í vor hafa hinsvegar sett allt slíkt
samstarf í biðstöðu."
-Yfir í skylda sálma. Formanns-
embœtti Sambands ungra jafnaðar-
manna hefur stundum virkað sem
stökkpallur yfir í aðrar og á stund-
um meiri pólitískar vegtyllur. Hver
er metnaður þinn í því sambandi?
Blundar í þér þingmaður, ráð-
herra..., hvað?
„Engin veit sína ævina... Mínar
framtíðaráætlanir miðast ekki við
þingsetu. En úr því ég tróð mér í
embætti formanns SUJ þá gæti ým-
islegt breyst. Ég held þó að ég - líkt
og fleslir forverar mínir - lendi frek-
ar einhvers staðar á hliðarlínu stjórn-
málanna. Ég held að það sé að
mörgu leyti betra hlutskipti.“
-Þegar þú ert ekki upptekinn við
A-mynd: E.ÓI.