Alþýðublaðið - 15.03.1995, Blaðsíða 1
Formaður Alþýðuflokksins á fundum með forystumönnum kennara
Viðræðurnar mjög gagnlegar
- segir Jón Baldvin Hannibalsson og telur að tengja verði lausn kennaradeilunnar við umbætur í skólastarfinu.
Milliliðalausar samræður Elna Katrín Jónsdóttir formaður
HÍK kemur til fundar með Jóni Baldvin Hannibalssyni í gærmorgun.
„Ég staldra fyrst og fremst við að það verði með einhverjum hætti að
tengja lausnina núna við skipulagsumbætur í skólastarfi á næstu ár-
um. Það er vantraust ríkjandi milli aðila," segir Jón Baldvin. A-mynd: E.ÓI.
„Þessar viðræður mínar við for-
ystumenn kennarasamtakanna
voru gagniegar en ég vil ekki
byggja upp neinar sérstakar vænt-
ingar. Ég staidra fyrst og fremst
við það núna, að það verði með
einhverjum hætti að tengja lausn
málsins við umbætur í skóiastarf-
inu á næstu árum, þannig að sam-
starf kennara og ríkisins geti
byggst á einhverjum gefnum for-
sendum sem traust skapist um að
haldist,“ sagði Jón Baldvin Hanni-
balsson, utanríkisráðherra og for-
maður Alþýðufiokksins, í samtaii
við Alþýðublaðið í gær.
Jón Baldvin átti í gærmorgun fund
með Elnu Katrínu Jónsdóttur for-
manns Hins íslenska kennarafélags
og áður hafði hann rætt við Eirík
Jónsson formann Kennarasambands
íslands. Verkfall kennara hefur stað-
ið síðan 17. febrúar.
„Ég ræddi við þau Eirík Jónsson
og Elnu Katrínu milliliðalaust til að
fá þeirra hlið málsins ffam í dags-
ljósið. En þessar viðræður fóru fram
í trúnaði og ég skýri ekkert frá þeim í
einstökum atriðum. Ég á eftir að gera
ijármálaráðherra betur grein fyrir
jjeim viðhorfum sem þama komu
fram. Nú má búast við gagntilboði
kennara á næstunni og ég hef ef til
vill núna betri hugmyndir um hvað
þær snúast. Ég hef ekki tekið að mér
hlutverk sáttasemjara en allar við-
ræður af þessu tagi eru gagnlegar.
Það er ríkt í kennurum að þeir erfa
mjög bráðabirgðalög fyrri ríkis-
stjómar sem svipti þá umsömdum
kjarabótum. Það situr í þeim að ríkið
hefur ekki lengi getað náð samning-
um við þá og þeir hafa dregist aftur
úr. Það er einnig ráðandi viðhorf
kennara að störf þeirra, sem em
vandasöm og erfíð, séu ekki metin
að verðleikum. Eftir að hafa kennt í
17 ár á ég mjög auðvelt með að setja
mig í spor þeirra hvað þetta varðar,"
sagði Jón Baldvin Hannibalsson.
„Það hefur legið íyrir ifá því að
samningar tókust á almennum
vinnumarkaði að kennumm stendur
til boða sömu kjarabætur og þar
samdist um sem við getum gróflega
metið á sjö prósent á tveimur ámm. í
annan stað hefur ríkið boðið 750
milljónir í auknum framlögum sem
kæmu fram sem laun til kennara. Það
er 10 prósent af launasummunni sem
er sjö milljarðar til kennara. Tilboð
ríkisins em þannig komin í 16 til 17
prósent á tveggja ára samningstíma.
Þetta tilboð um 750 milljónir er hins
vegar tengt skipulagsbreytingum,
það er að segja fjölgun virkra
kennsludaga um 12 á skólaárinu.
Þriðja atriðið varðar síðan sérkjara-
samninga en þar eru stærðimar
nokkuð á reiki, en þar er meðal ann-
ars um að ræða kennsluskyldu og
launaflokkatilfærslur," sagði Jón
Baldvin.
„Ég staldra fyrst og fremst við að
það verði með einhveijum hætti að
tengja lausnina núna við skipulags-
umbætur í skólastarfi á næstu ámm.
Það er vantraust ríkjandi milli aðila.
Við jafnaðarmenn viljum að á næsta
kjörtímabili verði gerð ljögurra ára
umbótaáætlun í skólamálum, rétt
eins og Alþingi gerir í vegamálum.
Þama vantar ffamtíðarsýn," sagði
Jón Baldvin.
Hann sagði ennfremur að sjónar-
mið ríkisins takmarkaðist af því að í
almennu samningunum væri ákvæði
um að fái aðrir meiri kjarabætur en
þar samdist unr væm samningar
lausir. Það væri því takmarkað sem
ríkið gæti lagt fram í fjármunum án
þess að kollvarpa jæim vinnuffiði
sem um var samið.
Kristján Möller, forseti
bæjarstjórnar Siglufjarðar
„Þeir sem eiga
flesta vélsleoa fá
flest atkvæði"
„Hér er allt svoleiðis á kafi í snjó að
við látum okkur ekki dreyma um að
þetta verði farið 8. apríl. Þetta er nú enn
eitt dæmið um hvað þessir þingmenn
okkar em fjarri raunvemleikanum, að
ætla sér að láta kjósa 8. apríl. Við verð-
um að keyra kjósendur á vélsleðum á
kjörstað. Þeir sem eiga flesta vélsleða fá
flest atkvæði," sagði Kristján Möller,
forsed bæjarstjómar Siglufjarðar og 9.
maður á lista Alþýðuflokksins í Norður-
landskjördæmi vestra, í samtali við Al-
þýðublaðið í gær.
„Við emm bullandi reiðir héma á
Siglufirði útaf síðustu afrekum þing-
manna Norðurlands vestra í vegamál-
um. Við höfum verið að beijast fyrir fé
til að byggja upp veginn að skíðasvæði
okkar og höfum ekkert fengið, en svo er
Sauðkræklingum úthlutað fé til að
leggja veg að sinu skíðasvæði. Það er
ömggt að ef einhver þingmanna kjör-
dæmisins, sem stóðu að þessu, hefði
verið flokksbróðir minn, þá væri hann
það ekki lcngur," sagði Kristján. „Þess-
ari umræðu er ekki lokið og þingmenn-
imir þurfa að standa fyrir máli sínu
gagnvart okkur. Ég vil taka það fram að
ég hef ekkert á móti því að byggð sé upp
aðstaða til skíðaiðkunar á Sauðárkróki.
Það er ungur og efnilegur Siglfirðingur
sem er einn helsti hvatamaður íþróttar-
innar þar í bæ. En það hryggir mig að
það verði ekki ráðist í þetta á næstu ár-
um.“
Aðspurður um hvemig kosningabar-
áttan gengi sagði Kristján að hún endur-
speglaðist í veðráttunni. „Hér er allt á
bólakafr og um leið og það hreyfir eitt-
hvað vind, þá er allt orðið ófært. Það er
engin furða að menn séu reiðir, hér þarf
að hækka veginn upp. Við búutn við
þetta ófremdarástand, á meðan búið er
að malbika heim að sumarbúsiað sumra
þingmannakjördæmisins. Ég nefni eng-
in nöfn, en fyrsti stafurinn er Stefán.
Það er einnig búið að malbika heim að
fjárhúsunum á Hólum í Hjaltadal,"
sagði Kristján. „Það er slæmt að þing-
menn kjördæmisins, sem hafa setið á
þingi í samtals 98 ár og em því að verða
aldargamlir í starf, hafa verið að etja
mönnum saman hér í kjördæminu með
vitlausum útdeilingum á takmörkuðu
fé. Við verðum að standa saman," sagði
Kristján að lokum.
Eyjastrákarnir eru komnir á beinu brautina í úr-
slitakeppni 2. deildar „Þetta var bara hörkuleikur. Við höfum
alltaf átt í erfiðleikum gegn Þór á Akureyri og við vorum dauðhræddir
fyrir leikinn enda höfum við yfirleitt tapað á Akureyri. Við vorum efstir
og þeir neðstir fyrir leikinn, svo við vissum að þeir myndu selja sig dýrt,"
sagði Sigbjörn Óskarsson aðstoðarþjálfari ÍBV í handbolta í samtali við
Alþýðublaðið í gær, en lið hans sigraði Þór í hörkuleik í fyrrakvöld. Línur
eru óðum að skírast í úrslitakeppni 2. deildar og er óhætt að segja að
Eyjamenn hafi algerlega stolið senunni. Þeir tóku ekki með sér neitt stig
í úrslitakeppnina en hafa unnið sex fyrstu leikina og eru á toppnum.
- Sjá umfiöllun um handboltann í Vestmannaevium á blaðsíðu 4.
Þrír af helstu leiðtogum Alþýðubandalagsins
eru sammála um að fara ekki í ríkisstjórn með
Sjálfstæðisflokknum
„Alþýðubanda
lagið stefnir ekki
í stjórn með
Sjálfstæðisflokki"
- segir Ragnar Arnalds, sem gefur lítið fyrir þær
yfirlýsingar Jóhönnu Sigurðardóttur, að aldrei
fari Þjóðvaki í stjórn með Sjálfstæðisflokki.
„Ég er sammála þeim sjónarmið-
um Ógmundar Jónassonar og
Steingríms J. Sigfússonar að Al-
þýðubandalagið og Sjálfstæðisflokk-
urinn eigi illa saman í ríkisstjóm og
að slík stjóm yrði síðasti kosturinn,"
sagði Ragnar Arnalds þingflokks-
formaður Alþýðubandalagsins í
samtali við Alþýðublaðið í gær.
Ögmundur og Steingrímur J. hafa
báðir lýst því yfir í Alþýðublaðinu að
stjórnarmyndun með Sjálfstæðis-
flokknum komi ekki tíl greina. „Ég
held að það liggi alveg í augum uppi
að það er afar ólíklegur kostur að
mynduð verði samstjóm Alþýðu-
bandalags og Sjálfstæðisflokks,“
Varðberg heldur Stasi-fund
Það væri nú eitthvað skrítið
//
ef þeirfæru að bjóða mér"
- segir Guðmundur Ágústsson bankastjóri sem mjög kom við sögu í
margumtöluðum þætti Áma Snævarrs um íslenska njósnara kommúnista.
Guðmundur Agústsson banka-
stjóri í íslandsbanka hló dátt þegar Al-
þýðublaðið sló þráðinn til hans og
spurði hvort Varðberg - samtök
ungra áhugamanna um vestræna sam-
vinnu - hefðu boðið honum á fund
sem þeir boða til á laugardaginn um
Leyniveldið Stasi eins og það er orðað
í tilkynningu frá samtökunum sem
ungur jafnaðarmaður að nafni Kjart-
an Emil Sigurðsson veitir for-
mennsku. „Það væri nú eitthvað skrít-
ið ef þeir færu að bjóða mér,“ sagði
hann og kannaðist ekkert við það að
fundurinn stæði tíl. Sem kunnugt er
kom nafn Guðmundar mjög við sögu
í miklum umræðum sem sköpuðust
eftir frægan sjónvarpsþátt Ama
Snævarrs og Vals Ingimundarson-
ar sem fjallaði um tengsl íslendinga
og kommúnistaríkjanna og hugsan-
lega njósnastarsemi hér á landi.
Breskur fræðimaður hefúr verið feng-
inn úl landsins af þessu tilefni og mun
hann halda fyrirlestur um Stasi. Hann
heitir David H. Childs og hefur gert
austur-Þýsku leyniþjónustuna Stasi
að sínu sérsviði og væntanleg er bók
eftir hann um njósnir, mannrán og
hryðjuverk Stasi víða um heim.
Ragnar: Tilburðir Jóhönnu eru
heldur hlálegir.
sagði Steingrímur í blaðinu í gær.
„Pólitísk markmið Alþýðubandalags
og Sjálfstæðisflokks ganga í þveröf-
ugar áttir.. .Ef stjómarsamstarf kæmi
til greina þarf einhver að slá mjög af
sínum sjónarmiðum og taka mjög
krappa beygju. Það vil ég ekki gera,“
sagði Ögmundur í blaðinu síðastlið-
inn fimmtudag.
Ragnar sagðist aðspurður vera
fyllilega sammála þessum sjónar-
miðum þótt ávallt væri erfitt að úti-
loka nokkuð í pólitík. „Alþýðu-
bandalagið stefnir ekki í stjóm með
Sjálfstæðisflokki," sagði hann.
Ragnar gaf hinsvegar ekki mikið fyr-
ir þær yfirlýsingar Jóhönnu Sigurð-
ardóttur og Þjóðvaka að ekki kæmi
til greina af þeirra hálfu að fara f rík-
isstjóm með Sjálfstæðisflokknum.
„Þessir tilburðir Jóhönnu og Þjóð-
vaka em heldur htálegir í ljósi þess
að Jóhanna sat með Sjálfstæðisflokki
í ríkisstjóm ámm saman án athuga-
semda,“ sagði Ragnar.
Alþýðublaðið í dag
Eru „vinir bænda"
hinir raunveru-
legu óvinir þeirra
- skrifar Hrafn Jökulsson í
Einsog gengur á blaðsíðu 2.
Kvótakerfið
er mesti örlaga-
valdur vestfirskra
byggða
- skrifar Ægir Hafberg
í Pallborðinu á blaösíðu 3.
„Ýmislegt hefur
skilað sér við erf-
iðar kringum-
stæður"
-segir Jón Karlsson
á Sauðárkróki á blaðsíðu 5.
Tíminn er naumur
til samninga ef
stúdenta á að
útskrifa
- segir Jón Hjartarson
skólameistari á blaðsíðu 5.
„Maður er ekki
einhver móralskur
hákarl"
- segir Baldur Bragason
í viötali á blaðsíðu 7.
„í birtingu héld-
um við tíu saman
í leit að vatni"
- segir í frumbirtu Ijóði Jóns
Stefánssonar á blaðsíöu 7.
Fyrrum alþýðubanda-
lagsmenn leiða lista
Þjóðvaka í að minnsta
kosti helmingi
kjördæma
Snorri
Styrkárs-
son efstur
á Aust-
fjörðum
I gær var birtur listi Þjóðvaka á
Austijörðum og er Snorri Styrk-
ársson í efsta sæti. Hann gekk úr
Alþýðubandalaginu fyrir nokkr-
um vikum og er einn margra fyrr-
um alþýðubandalagsmanna sem
eru áberandi á listum Þjóðvaka.
Svanfríður Jónasdóttir fyrrum
varaformaður Alþýðubandalags-
ins og aðstoðarmaður Ólafs Ragn-
ars Grímssonar í fjármálaráð-
herratíð hans er í 1. sæti Þjóðvaka
á Norðurlandi eystra. A Norður-
landi vestra er Sveinn Allan Mort-
hens efstur. Hann er fyrrum mið-
stjórnarmaður í Alþýðubandalag-
inu og var formaður kjördæmis-
ráðs flokksins. Þá verður Runólf-
ur Agústsson lögfræðingur í 1.
sæti á Vesturlandi. Hann var einn
af forystumönnum alþýðubanda-
lagsfélagsins Birtingar. I Reykja-
vík er svo Mörður Árnason, fyrr-
um miðstjórnarmaður og upplýs-
ingafulltrúi Ólafs Ragnars, í
þriðja sæti.