Alþýðublaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 7

Alþýðublaðið - 22.03.1995, Blaðsíða 7
MIÐVIKUDAGUR 22. MARS 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ 7 ó r n m á I Vytautas Landsbergis, leiðtogi frelsisaflanna í Litháen og einn af persónugervingum lýðræðisbaráttunnar í Austur-Evrópu, kemurtil íslands um næstu helgi til fundar- og tónleikahalda o ti staðnum myndi ef til vill hafa ein- hver áhrif á stöðuna. Þeir kalla dag- inn sem þegar öryggissveitir Sovét- ríkjanna létu til skarar skríða Blóðs- unnudaginn. Það sem gerði útslagið um það, að Landsbergis lifði til að sigra, var sá stuðningur sem barst ffá vestrænum ríkjum og þar gegndu íslendingar lykilhlutverki. Þar skipti sköpum að lokum, byltingartilraun hægri afl- anna í Moskvu í ágúst 1990 þegar það gerðist að lokum að Jeltsín stóð uppá skriðdrekunum, varð tákn lýð- ræðishreyfmgarinnar og byltingartil- raunin rann útí sandinn. Utanríkis- ráðherraráð Atlantshafsbandalagsins var á fundi þann sama dag. Það var gert hlé á fundinum og Wömer hafði milliliðalaust samband við Jeltsín. Hann fullvissaði Wömer um að bylt- ingartilraunin hefði fjarað út og lýð- ræðisöflin hefðu undirtökin. Á þess- um sama ráðherrafundi hvatti ég mjög til þess að Atlantshafsbanda- lagið tæki nú af skarið og lýsti af- dráttarlaust yfir stuðningi við for- ystuöfl lýðræðisins innan gömlu Sovétríkjanna; þau væri að finna í Eystrasaltsríkjunum og lýðveldun- um. Því var nú svarað á þeirri stundu með þögn, en eftir þennan fund kom ég við í Kaupmannahöfn og mann- aði alla sfma; hafði samband við utanríkisráðherra Lettlands, forseta Eistlands og Landsbergis sjálfan og boðaði þá til fundar í Reykjavík inn- an tveggja daga til að ganga frá formlegri viðurkenningu Islands á sjálfstæði Eystrasaltsríkjanna og upptöku stjómmálasambands. Þeir samþykktu þessa áætlun og þar með rúllaði boltinn af stað. Innan fárra daga skiptu ríkin sem fetuðu í fót- spor íslendinga í þessu máli tugum. Þar með var hættan liðin hjá. Ég hef hitt Landsbergis í tvígang eftir atburðina 1990, ef ég man rétt. I annað skiptið var ég boðinn á ársaf- mæli Blóðsunnudagsins til þess að taka þar við heiðursmerki. Það er reyndar eina heiðursmerkið sem ég hef þegið um dagana. Hitt skiptið var á ráðstefnu Stofnunar um öryggi og samvinnu í Evrópu - sem nú heitir ÖSE. Þá var Landsbergis nýbúinn að tapa kosningum og leiðir þannig í dag stjórnarandstöðuna. Sú tílfinn- ing var þá þegar orðin útbreidd, að þrátt fyrir að stjómmálamaðurinn Vytautas Landsbergis hefði verið rétti maðurinn til að leiða frelsisbar- áttuna, þá væri tónlistarmaðurinn Vytautas Landsbergis ekki endilega rétti maðurinn til að leiða friðinn og takast á við breytingar - sérstaklega á sviði atvinnu- og efnahagsmála. Það verður fagnaðarefni að hitta Landsbergis á laugardaginn kemur og ég vonast til að komast á tónleik- ana hans síðar um daginn.” Aðdáunarvert að fylgjast með baráttu Landsbergis Gunnar Alexander Ólafsson stjómmálafræðinemi situr í stjóm Varðbergs. Hvað segir hann um Landsbergis og fundinn á laugardag- inn? „Vytautas Landsbergis er fýrrver- andi forseti þings Litháens og gengdi stöðu þjóðhöfðingja landsins á um- brotatímum þeim er þeir tóku sig til og lýstu yfir sjálfstæði 11. mars 1990. Hann leiddi þjóðina í gegnum þær hremmingar sem fýlgdu í kjöl- farið og leitaði eftir viðurkenningu annarra þjóða. Það var aðdáunarvert að fýlgjast með baráttu hans og loks urðum við íslendingar - með Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráð- herra í broddi fýlkingar - fýrstir til þess að viðurkenna sjálfstæði Lithá- ens. Landsbergis á íslandi er hann var enn forseti þingsins í Litháen: „Landsbergis er hinn dæmigerði mennta maður - reyndar hámenntaður tónlistarmaður. Hann er hugrakkur maður og var fullkomlega reiðubúinn til að láta lífið i baráttunni fyrir sjálfstæði lands síns," segir Jón Baldvin Hannibalsson. A-mynd:E.ói. Sú þróun hefur síðan átt sér stað í Austur-Evrópu, að lýðræðissinnar hafa leitt þjóðimar í sjálfstæðisbar- áttunni og síðan hafa flokkar fyrmrn kommúnista náð völd- um á ný í fyrstu ftjálsu þing- kosningunum. Þessi þróun hefur átt sér stað allsstaðar í Austur-Evrópu og Litháen er þar ekkert einsdæmi. Við sá- um þetta gerast í Póllandi, Búlgaríu, Rúmeníu og víðar. Fólkið hefur fengið að kynnast ffelsinu en vandamálin sem þessar þjóðir stóðu frammi fýrir vom gríðarleg. Allt hafði verið undir hrammi ríkisins og menn vom að reyna að fá markaðinn til að taka við. Fólkið hefur hins vegar talið að hægja þyrfti á þeirri þróun. Það útskýrir góða útkomu fýrmm kommúnista. Lands- bergis er annars íhaldsmaður og það er erfitt að dæma um vinsældir hans heima fýrir. Það er nú oft svo með þá aust- ur-evrópsku stjómmálamenn sem em áberandi á Vestur- löndum, að þeir em ekki vin- sælastir stjómmálamanna í sínum löndum. Mikhail Gor- batsjov er gott dæmi um þá staðreynd. Þegar kreppir að hjá fólki, þá hneigist það oftast til þess að kjósa þá sem bjóða því bestu kjörin hvað svo sem er inni fýrir því. Landsbergis stóð í fylking- arbijósti þeirra sem vildu sjálfstæði Litháens á sínum tíma og er að mörgu leyti persónugervingur þess anda sem reið yfir Ausmr- Evrópu er hún var að frelsa sig undan oki Sovétríkjanna. Þetta er maður með fingurinn á púlsi austur-evrópskrar lýð- ræðisþróunar. Það verður skemmtilegt að heyra á laugardaginn hvemig til hefur tekist í Litháen þessi síðustu ár, sérstaklega efna- hagslega. Það verður áhuga- vert að spyija út í samskiptin á milli Rússa og Litháa. Hvað sér Landsbergis fýrir sér ef þjóðemisöfgasinninn Zjír- inovský kemst til valda í Rúss- landi? Zjírinovský hefur sagt það opinberlega að það yrði hans fyrsta verk að endur- skoða afstöðu Rússlands til Eystrasaltsríkjanna. Hvað er maðurinn að gefa í skyn? Það verður einnig ffóðlegt að heyra mat Landsbergis á stöðu mála í Rússlandi og hvaða ugg Litháar bera í brjósti gagnvart Rússum. Eystrasaltsríkin hafa lýst yfir áhuga á því að skoða aðild að Atlantshafsbandalag- inu sem kost í öryggismálum sínum og til að tryggja sjálf- stæði sitt.“ Tónleikar Vytautas Landsbergis, Grazina Rucyté- Landsbergi- ené og Gintaré Skeryté Frelsishetja Litháens kem- urfram Vináttutónleikum íslands og Litháens f tilcfni heimsóknar Vytautas Landsbergis og eiginkonu hans, Grazina Rucyté-Landsbergiené, verða haldnir tónleikar í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar, laugardaginn 25. mars, klukkan 17:00. Landsbergishjónin eru bæði mjög vel þekktir píanóleikarar og tónlistarmenn, en með þcim kemur ung söngkona, Gintaré Skeryté, sem lauk píanónámi frá ríkistónlistarskóla Litháens árið 1983 og fjórum árum síðar söngnámi frá sama skóla. Hún er virkur þátttakandi í tónlist- arlífi heimalands síns, en hefur auk þess komið fram á tónleikum í Póllandi, Bandaríkjunum, Hollandi og Sviss. Gintaré Skeryté starfar með hópi tónlistarfólks sem nefnist Ex Tempore. Hún hefur útsett verk eftir núlifandi tónskáld Lithá- ens, til að mynda O. Balakauskas, F. Bajoras og V. Bartulis og komið fram með kammerhljómsveit- inni Saulius Sondeckis, Kammerhljómsveit Riga, Sinfómuhljómsveit Litháens og auk þess ýmsum hljóðfæra og söngsveitum. Aðgangseyrir á tónlcikana í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar er 1.000 krónur. Gunnar Alexander Ólafsson: Það er nú oft svo með þá austur-evr- ópsku stjórnmálamenn sem eru áberandi á Vesturlöndum, að þeir eru ekki vinsælastir stjórnmála- manna í sínum löndum. Þegar kreppir að hjá fólki, þá hneigist það oftast til þess að kjósa þá sem bjóða því bestu kjörin hvað svo sem er inni fyrir því. A-mynd: e.ói. - í baráttunni fyrir sjálfstæði lands síns, segir Jón Baldvin Hannibalsson: „Vytautas Lands- bergis var réttur maður á réttum stað og á réttum tíma þegartækifæri opnaðistfyrir Litháa til að hrista af sér hlekkina eftir hálfrar aldar undirokun hins sovéska nýlenduveldis." Á laugardaginn kemur verður fundur á vegum Samtaka um vest- ræna samvinnu og Varðbergs í Átt- hagasal Hótel Sögu, þar sem Vy- tautas Landsbergis, leiðtogi stjóm- arandstöðunnar í Litháen, fyrram forseti þingsins og ein helsta sjálf- stæðishetja landsins, flytur erindi. Fundurinn er haldinn í samvinnu við Vináttufélag íslands og Litháen og hefst klukkan 12:00. Sama dag klukkan 17:00 spilar Landsbergis síðan á tónleikum ásamt konu sinni, en frá því er sagt á öðram stað hér á síðunni. Alþýðublaðið ræddi í gær við Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisraðherra og Gunnar Alex- ander Ólafsson stjómarmann í Varðbergi um Vytautas Landsbergis og sjálfstæðisbaráttu Eystrasaltsríkj- anna. „Vytautas Landsbergis var réttur maður á réttum stað og á réttum tíma þegar tækifæri opnaðist fyrir Litháa til að hrista af sér hlekkina eftirhálfr- ar aldar undirokun hins sovéska ný- lenduveldis. Landsbergis er hinn dæmigerði menntamaður - reyndar hámenntaður tónlistarmaður. Hann er hugrakkur maður og var fullkom- lega reiðubúinn til að láta lffið í bar- áttunni fýrir sjálfstæði lands síns. Við íslendingar urðum fyrstir er- lendra þjóða úl að taka upp málstað Eystrasaltsþjóðanna á alþjóðavett- vangi á áranum 1988 til 1990 þegar flestir aðrir þögðu. Forysturíki Vest- urlanda þóttust bundin á höndum og fótum; Bandaríkin vegna þess að þar var ríkjandi sú skoðun að ef gengið væri gegn stefnu Gorbatsjovs þá myndu harðlínumenn festast í sessi og Þjóðveijar vegna þess að þeir sáu ekkert annað en sameiningu Þýska- lands og vildu ekki skaða það ferli með því að styggja Sovétmenn. Það var þess vegna sem ffumkvæði ís- lendinga birúst í formi samstöðu smáríkja. Og með því að taka þetta mál upp á hverjum þeim vettvangi sem okkur var tiltækur - innan Atl- antshafsbandalagsins, Sameinuðu þjóðanna, Evrópuráðsins og annars- staðar - þá varð það okkar hlutverk að minna önnur ríki á grundvallar- mannréttindi Eystrasaltsþjóðanna: Hver er Vytautas Landsbergis? Vytautas Landsbergis er fæddur ár- ið 1932 í Kaunas. Faðir hans var arkitekt og móðirin læknir. Hann lauk stúd- entsprófi og tón- listarnámi í heima- bæ sínum, en framhaldsnámi í tónlist við Tónlist- arskólann í Vilnius. Að því loknu varð Landsbergis pró- fessor í tónlist og gegndi því starfi þartil hann var kosinn forseti þings Litháens árið 1990. Dokt- orsprófi í tónlistarsögu lauk hann 1968. Árið 1988 var Vytautas Landsbergis kosinn i stjórn frelsishreyfingar Lithá- ens, Sajúdis, og síðar sama ár forseti hennar. Hann tók þátt í stofnun Ihalds- og heimastjórnarflokks Litháens árið 1993 og varð síðan fyrsti formaður flokksins. Árið 1989 tók hann um tíma sæti í Æðstaráði Sovétríkjanna sem einn fulltrúa Litháa. Þegar sjálfstæðis- barátta Eystrasaltsríkjanna hófst varð hann fljótt einn helsti leiðtogi frelsisafl- anna og sat meðal annars í stjórn Eystrasaltsríkjaráðsins. I dag er hann leiðtogi stjórnarandstöðuflokkanna í Lit- háen. Landsbergis hefur hlotið fjölda alþjóð- legra viðurkenninga fyrir þátttöku sína í frelsisbaráttu Litháa, til dæmis norsku Friðarverölaun fólksins. Hann notaði verðlaunaféð til að stofna Vytautas Landsbergis-sjóðinn sem er styrktar- sjóður fyrir fötluð börn og efnilegt ungt tónlistarfólk. Sjálfur er han vel þekktur og afar fær píanóleikari. Eiginkona hans er píanóleikarinn Grazina Rucyté- Landsbergiené. Jón Baldvin Hannibalsson: Mér er það ógleymanlegt persónulega þegar kallið kom frá Landsbergis í janúar 1990 er Litháar horfðu fram á að Sovétríkin myndu láta til skarar skríða og kúga Eystra- saltsþjóðirnar til hlýöni með her- valdi. A-mynd: E.ÓI. Það væri óveijandi að ætla gleyma þeim og samþykkja undirokun þeirra með þögninni. Mér er það ógley manlegt persónu- lega þegar kallið kom frá Landsberg- is í janúar 1990 er Litháar horfðu fram á að Sovétríkin myndu láta til skarar skríða og kúga Eystrasalts- þjóðimar til hlýðni með hervaldi. Landsbergis bað um að ég kæmi úl Vilnius til þess að sýna samstöðu og í hans huga var það einskonar trygg- ing; það er að segja, að sú staðreynd að fulltrúar vestrænna ríkja væra á „ Hann er hugrakkur maður var fullkomlega reiðubúinn að láta lífid

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.