Alþýðublaðið - 27.04.1995, Síða 7

Alþýðublaðið - 27.04.1995, Síða 7
FIMMTUDAGUR 27. APRÍL 1995 ALÞÝÐUBLAÐIÐ n n 7 D a u ð i ■ Dauðinn hefur verið feimnismál en það er að breytast, segir Rúnar Geirmundsson útfararstjóri í samtali við Jakob Bjarnar Grétarsson, en honum lék meðal annars forvitni á að vita hvort útfararstjórar séu ekki upp til hópa grindhoraðir, grafalvarlegir, náfölir eldri menn með hrægamm á öxlunum og útstæð eyru sem standa undan pípuhattinum... og fékk svör við því „Etertak- marka- lausa virðingu fyrir starfl mlnu" - segir Rúnar en kannast við brandara tengda starfi útfararstjórans. Rúnar Geirmundsson: Ég fæ ekki séð að í því sé fólgín nein óvirðing við dauðann þó að þó að menn sem starfi við þetta séu ekki grafalvarlegir Út í eitt. A-mynd. E.ÓI Er samkeppni á sviði útfarar- þjónustu? ,Já og nei. Það er reyndar sam- keppni milli þessara þriggja fyrir- tækja en samt sem áður er um sam- vinnu að ræða og gagnkvæma virð- ing. Við látum í það minnst ekki hafa okkur út í það að beijast um líkin ef það er það sem þú ert að fiska eftir. En það er að sjálfsögðu samkeppni á öllum sviðum. Nú var ég að frétta það að útfararfyrirtæki af Skaganum ætli að hasla sér völl í Reykjavík og ég býð þá velkomna á þennan mark- að.“ En er þetta ekki ákaflega al- vöruþrungið og þungt starf? Eruð þið ekki alltaf eins og dauðinn uppmálaður? „Það var einu sinni prestur sem sagði að þetta væri andlegt og mjög líflegt staif. Það má kannski segja að í því felist sannleikskom. Það er að sjálfsögðu lykilatriði að útfarir fari fram í vinsemd og virðingu fyrir hin- um látna og að hann sé kvaddur með þeim sóma sem honum ber. Það eiga allir rétt á því að fá sómasamlega at- höfn. En húmor þarf ekki endilega að vera víðsfjarri þegar dauðinn er ann- ars vegar. Til dæmis er stutt í húmor á milli okkar sem standa að þvi ver- aldlega sem snýr að útförinni og prestanna. Enda skilar samstarf sér einfaldlega betur ef það er á léttari nótunum. Það held ég að flestir geti verið sammála um. Eg held að það hafi orðið ákveðin viðhorfsbreyting gagnvart þessu. Til dæmis urðum við fyrir því í Kirkjugörðunum fyrir um tíu árum að kvartað var undan því til Kirkjugarðanna að við sáumst hlæja í líkbíl með prest á milli okkar. Þetta var eftir útför og athöfnin afstaðin. Það þótti ekki við hæfi en ég fæ ekki séð að í því sé fólgin nein óvirðing við dauðann þó að þó að menn sem starfi við þetta séu ekki grafalvarleg- ir út í eitt.“ Nú hafa útfararstjórar verið í gegnum tíðina skotspónn grínista og teiknara sem draga upp mjög afgerandi mynd. Þar getur að líta grindhoraðan, náfölan eldri mann, helst mcð útstæð eyru sem standa undan pípuhattinum og með dollaramcrki í augunum. Jafnvel með hrægamm á öxlunum. Þetta er ekki beinlínis fögur mynd? Jú, þetta er kannski ekki beinlínis draumastarf krakka sem hafa þessa ímynd fyrir augunum. Eg skal ekki segja hvort það hafi einhvem tíma verið eitthvert sannleikskom í þess- ari ímynd útfararstjóra. A undan- fömum ámm hafa komið margir ungir menn inn í þessa starfsgrein og þeim er það vissulega ekkert fagnað- arefni að það sé litið á það sem slíka. Við emm að reyna að breyta þessari ímynd og meðal annars emm við með í burðarliðnum stofhun Félags fslenskra útfararstjóra í samvinnu við Kirkjugarðana þar sem meðal annars þetta atriði verður skoðað. Eg er kannski ekkert að kveinka mér und- an því sérstaklega en óneitanlega verður maður fyrir ýmsum bröndur- um vegna starfsins. Ég hef til dæmis sungið með ópemnni og kórfélagar mínir þar, sem jafnffamt syngja mik- ið fyrir mig við jarðarfarir, skjóta oft á mann. Deyi einhver á sviðinu, sem er nú ekki óalgengt í ópemm, þá fæ ég undantekningarlaust að heyra það: ,3rtu ekki með málbandið?" Slíkt er fylgifiskur sem ég tek sem góðlátlegu gríni. En þó að ég sé létt- ur að eðlisfari þá ber ég takmarka- lausa virðingu fyrir starfi mínu.“ Hafa átt sér einhverjar breyt- ingar í þessu starfl frá því að þú kynntist því? „Eðli útfararinnar hefúr lítið sem ekkert breyst. Það er þessi venjulega kirkjulega athöfn. Það sem einna helst hefur breyst er að það hefur komið meira val á söngfólki, söngur- inn er orðinn meiri frá því sem var, meira val á líkkistum og krafa fólks hefur orðið æ meiri í átt persónulegri þjónustu. Þetta er að gerast víðs veg- ar um heiminn. Þetta var í miklu fast- ari skorðum áður en fólk vill tengja athöfnina meira persónu hins látna. Það lýsir sér meðal annars í því sem ég nefndi varðandi söng og kistur og einnig í samskiptum við þá sem ann- ast útförina. Þetta held ég að sé vegna þess að fólk er farið að ræða dauðann miklu meira en það gerði áður. Þá var dauðinn feimnismál. I því sambandi má nefna að böm inn- an fermingar máttu ekki helst ekki vera viðstödd jarðarfarir þegar ég var ungur en f dag er svo ekki. Þama hafa prestar unnið mikið starf til dæmis með því að tala um dauðann við böm. Krakkar spyija mjög mikið um þessi mál og áður fyrr var bara sussað á þau en núna fara prestamir í gegnum þetta ferli með þeim sem að sjálfsögðu er jákvætt og hjálpar þeim að takast á við þessa hluti. Þetta hjálpar ekki síður þeim foreldmm að komast sjálf í gegnum sorgina með bömum sínum.“ Nú eru mismunandi trúarbrögð í þessu landi. Mismunandi trúar- brögð hljóta að kalla á mismun- andi athafnir þegar látinn að- standandi er kvaddur? „Við sem störfúm í útfararþjón- ustu tökum ekki afstöðu til trúar fólks - enda teljum við það ekki í okkar verkahring. Við reynum að fara í einu öllu eftir óskum aðstand- enda og vilja hins láma varðandi at- höfnina. Samkvæmt nýrri reglugerð sem gefin var út núna í mánuðinum af Dóms- og kirkjumálaráðuneytinu þá ber okkur, sem höfum leyfi til reksturs útfararþjónustu, að kunna skil á hinum ýmsu siðum mismun- andi trúarbragða. Þetta er sterkt atriði í siðareglum útfararstjóra á Norður- löndum, siðareglum sem við erum að tileinka okkur. Ef við tökum dæmi þá eru athafnir kaþólskra frábrugðn- ar athöfnum lútherskra. Það er meiri kirkjuleg athöfn sem er eins og hefð- bundin messa. Þar er gengið til altar- is í miðri athöfninni og síðan kastar presturinn vígðu vatni á kistuna og gengur í kringum hana með reykelsi. Vottar Jehova kjósa að hafa sínar at- hafnir í ríkissal sínum við Sogaveg og uppbygging athafnarinnar er frá- brugðin lútherskum ef við miðum við þá. Nú annað dæmi má nefna. Víetnamar kveðja sitt fólk með því að konur úr fjölskyldunni koma og smyija líkið og klæða það í sérstök föt og leggja hann í kistu. Síðan er ávaxtaskál sett ofan á kistuna í stað blóma eins og viðtekið hefur verið hjá okkur." Hefur þú orðið fyrir því að sá látni hafi verið með einhverjar sér- stakar óskir sem ekki hefur verið hægt að verða við? Einn veit ég til dæmis sem ætlast til þess þegar hann skilur við að leikið verði lag- ið „Don’t let me down“ með Bítl- unum án þess að ég sé endilega að segja það óyfirstíganlegt atriði? „Nei, nei, það væri ekkert mál að leika þetta lag. Ég gæti hæglega út- vegað til dæmis útvegað organista sem gæti spilað það. En útfærsla á slíkum atriðum em í höndum prests- ins og aðstandenda og það er ekki mitt mál að taka afstöðu til slíkra mála. Það em mismunandi óskir í gangi, einkum varðandi sálmalög og dægurlög, og við reynum að leysa þau mál til dæmis með því að spila lagið fremur en að syngja það. Og þama ert þú reyndar kominn inn á nokkuð flókinn hlut og ákveðið vandamál sem prestar eiga við að stríða. Þetta á þó einkum við um brúðkaup ffemur en jarðarfarir. Ég veit eitt dæmi þess að einn ágætur prestur hér í bæ þurfti að þýða texta fyrir brúðhjón sem vildu láta spila lagið Please realese me, let me go. Cause I don 't love you anymore með Tom Jones við athöfnina. Það er sem betur fer ffemur sjaldgæft að slíkar óskir komi ffam við jarðarfar- ir. Eitt sinn var ffægur maður hér í bæ sem skildi eftir blað með ósk um að vera jarðaður í sérstakri kistu sem var þannig að hún átti að vera eikarmáluð upp á gamla mátann. Það er þannig að það eru ekki nema mjög fáir gamlir menn sem kunna það handbragð. Því miður var ekki hægt að verða við því vegna þess að hand- bragðið er næstum horfið. í staðinn fékk hann kistu með eikaráferð eins og þær eru í dag. Þetta er eina dæm- ið sem ég man sem ekki var hægt að verða við ósk þess látna.“ Er líkbrennsla vaxandi? ,Já, þeim hefur farið fjölgandi með árunum. Nú em um 150 bálfarir á ári sem em um 15% af jarðarförum hér í Reykjavík. Athöfnin fer ffam nákvæmlega fram eins og hefðbund- in útför nema kistan er að sjálfsögðu ekki keyrð í kirkjugarðinn heldur í bálstofuna í Fossvoginum. í öllum engilsaxneskum löndum ern bálfarir um 90% af öllum jarðarfömm. Það kemur til vegna plássleysis fyrst og fremst. Við höfum enn nægt pláss þannig að sú er ekki ástæðan fyrir því hvers vegna fólk kýs ffentur bál- för. Þar ræður hugarfarsbreyting og mér sýnist yngra fólk jákvæðara gagnvart bálför en eldra þannig að ég á von á enn ffekari aukningu í þessa átt.“ Það er líkast til rúmenska leik- skáldið og einn af forkólfum absúrd- leikhússins, Ionesco, sem á setning- una þess efnis að dauðinn er það eina sem menn geta gengið út ffá sem gefnum hlut í þessu jarðlífi. Samt er það nú svo að dauðinn hefur verið hálfgert tabú og kannski ekkert skrýtið: Flestir óttast dauðann ein- faldlega. Og orð verða ósköp fátæk- leg þegar staðið er frammi fyrir sorg- inni sem fylgir því þegar náinn að- standandi fellur frá. Dauðinn er dauðans alvara og ein af fáum leið- um sem menn hafa fundið til að nálgast hann er með hálfkæringi. Fjöldi vafasamra gamansagna og orðaleikjabrandara hafa þróast með tímanum: Það er lík-legt að við hitt- umst í kirkjugarðinum, og svo ffam- vegis. Ótti manna við dauðann holdgerist í útfararstjómm eins og til dæmis teikningar í Lukku-Láka bera með sér. í dag em slétt fimm ár síðan Útfararþjónustan hf. hóf starfsemi í Reykjavík. Útfararstjóri fyrirtækis- ins og einn stofnanda er Rúnar / Geirmundsson en hann hefur starf- að í návist dauðans um langt skeið. / Hvemig er að starfa í þetta nánu samneyti við sorgina? „Þetta er mjög krefjandi starf og ég gef virkilega af mér. Ég lenti eig- inlega fyrir tilviljun í þessu starfi en ég er lærður bólstrari. Ég hóf störf hjá Kirkjugörðum Reykjavíkur 1983 þar sem ég kynntist því ferli sem liggur að baki útför. Þar var ég í sjö ár og ákvað þá að stoffia fyrirtæki mitt. í starfinu felast talsverð sam- skipti við aðstandendur og eðlilega þá snertir mann sú sorg sem þeir hafa orðið fyrir. Öllu skiptir að hin prak- tísku atriði þurfi ekki að leggjast of- an á áfallið og við gemm okkar besta til að létta áhyggjum af fólki varð- andi þau. Ég er auðvitað mannlegur og þetta snertir mig en það lærist að lifa með þessu - annars gæti ég ekki starfað við þetta. Dauðinn er hluti af okkar lífi, það er það eina sem er ör- uggt og ég hlýt að temja mér heim- spekilega afstöðu gagnvart honum. Svo má ekki líta fram hjá því að það veitir mér ákveðna lífsfýllingu að geta hjálpað fólki í neyð.“ í hverju felst starfið? Við andlát á spítala fá aðstandend- ur bæklinga fra öllum útfararstofn- unum sem em starfandi í Reykjavík. Þær eru þijár, það er Útfararþjónust- an, Útfararstofa Kirkjugarðana og elsta fyrirtækið er Líkkistuvinnu- stofa Eyvindar Amasonar sem er 95 ára gamalt Ijölskyldufyrirtæki. í þessum bæklingum er að finna upp- lýsingar um hvað það er sem þarf að annast eftir andlát. Það em margvís- leg atriði svo sem flutningur á hinum látna frá dánarstað í líkhús, kistu- leggja og ganga ffá hinum látna í kistu, ákveða kistulagningartíma í samráði við prest og aðstandendur og kirkju fyrir útförina. Allt þetta er í höndum útfararstjóra. Jafnffamt þurfum við að hafa milligöngu um að útvega söngfólk, organista, panta blómaskreytingar, prentun á sálma- skrá, pöntun legstaða í garði og fleira. Af þessu má sjá að starfið er umfangsmeira en flestir gera sér grein fyrir." Rúnar Geirmundsson: Ég veit eitt dæmi þess að einn ágætur prestur hér í bæ þurfti að þýða texta fyrir brúðhjón sem vildu verða láta spila lagið Please realese me, let me go. Cause I don't love you anymore með Tom Jones við athöfnina. Það er sem betur fer fremur sjaldgæft að slíkar óskir komi fram við jarðarfarir. A-mynd: E.ÓI.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.