Alþýðublaðið - 03.05.1995, Side 4

Alþýðublaðið - 03.05.1995, Side 4
4 ALÞÝÐUBLAÐHD MIÐVIKUDAGUR 3. MAÍ1995 ■ JC-hreyfingin hefur hrundið af stað söfnunarátaki svo senda megi 10 þúsund eintök af myndum Magnúsar Guðmundssonar kvikmyndagerðarmanns til bandarískra háskóla. Ætlunarverkið er að upplýsa nemendur þannig um sjónarmið íslendinga og annarra þjóða í sjávarspendýradeilunni. Stefán Hrafn Hagalín ræddi í gær við Magnús um vinnu hans n Ég er alls ekki trúboði í eðli mínu' - segir Magnús og kveðst ekki ætla að gera „hvalamálið" að lífsstarfi sínu; hann hafi ekki getað sloppið undan málinu frá því að fyrsta myndin var sýnd árið 1989: einhver hafi orðið að standa uppfyrir sannleikann í málinu. rÉg er fremur ligeglad maður og alls ekki ákafamaður eða funheitur eldklerkur - hvort sem er á þessum eða öðrum sviðum. Ég hef aldrei verið ginkeyptur fyrir hugmyndafræði af neinu tagi...Einhver verður einfaldlega að standa upp fyrir sannleikann í þessum máli og það hefur svona lent á mér." JC Nes á Seltjamamesi hefiir hrund- ið af stað söfnunarátaki á landsvísu svo senda megi eintök af myndum Magnúsar Guðmundssonar kvik- myndagerðarmanns til fjölmargra bandanskra háskóla. Ætlunarverkið er að upplysa nemendur þannig um sjón- armið Islendinga og annarra þjóða - sem að hluta til eða eingöngu eru veiðimannasamfélög - í sjávarspen- dýradeilunni. Sem kunnugt er hafa þijár síðustu myndir hans fjallað um ákaflega umdeilda starfsemi umhverf- is- og dýravemdunarsamtaka á borð við Greenpeace og Sea Shepard, áhrif þeirra á veiðimannasamfélög - sér- staklega þau sem byggja norðurhvel jarðar - og hefur Magnús verið óþreyt- andi við að kynna þær á erlendum vettvangi. Alþýðublaðið hafði sam- band við Magnús og spurði hann fyrst um hvað þetta söfnunarátak snerist. „Það snýst um það, að háskólar í Bandaríkjunum hafa sýnt vaxandi ■ Bjarni Kr. Grímsson, fiskimálastjóri Eðlilegt að nýta audlindina á skynsam- legan hátt „Það blandast engum hugur um að fisk- stofnar í heiminum eiga undir högg að sækja, en að allir fiskstofnar séu annað hvort ofveiddir eða fullnýttir er of mikið sagt. Hins vegar er eðlilegt að sú auðlind sem fiskstofnar eru verði nýtt á eðlilegan og skynsaman hátt og þá af þeim sjómönn- um sem hafa gert það um áraraðir, undir eftirliti þeirra löglegu stjómvalda. Það er þetta sem er kjami málsins, auðlindir hafs- ins á að nýta allar á skynsamlegan hátt en ef einn hlekkur slíkrar keðju er slitinn, til dæmis með þvf að friða hval, seli, fugla og fleiri dýr, er þessu jafnvægi raskað ekki síð- ur en ef einhver þessara dýrategundar hyrfi af sjónarsviðinu. Með friðun hvala hefur þeim fjölgað mjög og nú er svo komið að hvalir og selir em orðin algeng sjón, jafnvel svo að hvalir era famir að valda sjómönn- um veralegum erfiðleikum við fiskveiðar, bæði með því að flækjast inní loðnunætur svo og með forvitni í nálægð smábáta...Þá ber einnig að nefna að þessi dýr þurfa tals- vert til sín í fæðu og hefur rannsókn sér- fræðinga á Hafrannsóknastofnuninni leitt í Ijós að fæða hvala er um 40% Ijósáta og 60% fiskur, mest er þó um smokkfisk og aðrar tegundir heldur en þær er við nytjum en ljóst er að engar fisktegundir eru hér undanskildar. í umræddri rannsókn kom í ljós að varlega áætlað er fæðunám hvala hér á hafinu við ísland um 4,6 milljónir tonna af sjávarfangi og er fiskneysla þeirra því um 2,8 milljónir tonna árlega. Þetta á við einungis fáar hvalategundir sem við nyttum einu sinni og þá eru allar aðrar hvalategundir eftir og einnig selurinn og fuglinn. Það er því ein mikilvægasta for- senda okkar til nýtingar auðlinda hafsins, að allar dýrategundir séu nýttar á skynsam- an hátt og því á ekki að undánskilja ein- stakar dýrategundir, nema sannað sé að þær séu að hverfa af svæðinu. Sú úlraun sem JC Nes stendur fyrir er mjög virðingarverð og verðskuldar allan þann stuðning sem hægt er að veita og hefði átt að vera hafin fyrir mörgum áram. Það er aldrei of seint og því skora ég á sjómenn, útgerðarmenn og alla sem nálægt sjávarútvegi koma, að veita þessu málefni lið.“ Útdráttur úr bréfi sem Bjarni Kr. Grímsson fiskimálastjóri hefur sent út fyrir hönd Fiski- félags íslands til styrktar átakinu „Eigi aö víkja - sókn er besta vörninr áhuga á því, að fá myndir mínar til skoðunar svo nemendur þar kynnist hirrni hliðinni á þessum umdeildu mál- um. Það hefur alltaf verið mikið rætt um það hér á landi, að það þyrfti að gera átak í að kynna íslensk sjónarmið í þessum málum. JC-hreyfmgin - eða réttara sagt JC Nes á Seltjamamesi - tók síðan af skarið og ákvað að heíja hér landssöfnun til að fjármagna dreif- ingu á tíu þúsund eintökum af mynd- unum í bandaríska háskóla. Hugsan- legt er einnig að farið verði með þær til annarra landa, en aðalfókusinn verður þó á Bandaríkjunum til að byija með. Þetta er nokkuð skemmtilegt verkefni, því það verður í rauninni ís- lenska grasrót - hið vinnandi fólk - sem ánafnar eða gefur viðkomandi há- skólum myndimar, en ekki einhveijar stofnanir eða þrýstihópar. Ef þetta gengur eftir og vel tekst til má búast fastlega við því að strax næsta haust komi upp hörkuumræða innan banda- rískra háskóla um þessi mál - okkur í hag. Það er stefnt að því ljúka söfnun- arátakinu núna í vor því það tekur nátt- úrlega nokkurn tíma að koma öllu þessu í kring.“ Hver er kveikjan að þessu - hafa myndir þínar eitthvað verið sýndar áður í bandarískum háskólum? ,Já, og viðbrögðin hafa verið alveg með ólíkindum. Fyrir síðustu jól var myndin sýnd í mjög virtum bandarísk- um háskóla - viljandi segjum við ekki frá nafni hans svo nemendur fái frið fyrir umhverfisvemdarsamtökunum. Það vom þijátíu nemendur í umhverf- isfræðum sem sýnd var Lífsbjörg í Norðurhöfum af prófessor sínum og þau síðan beðin að skrifa ritgerð um málefnið; segja sína skoðun umbúða- lausa á þeim hlutum sem þama er ver- ið að íjalla um. Ég fékk þessar ritgerð- ir uppí hendumar eftir áramótin og í ljós kom að hver einasti nemandi hafði skipt um skoðun; öll kúventu þau í af- stöðu sinni og lýstu megnustu andúð á framferði umhverfisverndarsamtak- anna í málinu. Það er athyglisvert að þetta er fólk um tvítugt og hefur ekki heyrt annað alla sína ævi heldur en þennan mergjaða áróður samtakanna og tekið það inn með móðurmjólkinni, að hvalir séu þeilagir og umræddar hreyftngar séu það besta af öllu hinu góða. Amy Kress, einn nemendanna, ritar til dæmis eftirfarandi: -Ég hef alltaf borið takmarkalausa virðingu fyrir Greenpeace, en eftir að hafa séð myndina hefur ímyndin sundrast. Ég hafði aldrei hugsað um fólkið sem þjá- ist vegna herferðanna gegn hval- og selveiðum. Nú geri ég mér grein fyrir að líf þess er háð þessum dýrum.- Það þarf greinilega ekki nama eina kennslustund til þess að skynsemin kvikni og áróðurinn ristir því ekki dýpra en þetta þegar upp er staðið." Er þetta í samræmi við þína reynslu af sýningum á myndum þín- um? „Alveg tvímælalaust. Það þarf ekki mikið til að snúa skoðunum fólks - ekki annað en að koma okkar sjónar- miðum á framfæri. Skynsemin reynist brjálseminni yfirsterkari þegar allt kemur til alls. Fólk í Bandaríkjunum og öðrum löndum er ekkert vitlausara en gengur og gerist, en það þarf náttúr- lega að fá upplýsingar frá fýrstu hendi til að geta myndað sér sjálfstæðar og heilbrigðar skoðanir. Sérstaklega er mikilvægt að koma þessum upplýsing- um á ffamfæri í æðri menntastofnun- um því þar er fólkið sem maður skyldi ætla að sé hvað víðsýnast og með fijó- asta hugsun. Þrátt fyrir að mínar myndir séu ef til vill heimildarmyndir þá eru þær einnig áróðursmyndir - áróðursmyndir fyrir sannleikann. Sannleikurinn reynist lyginni ávallt öflugri þegar sjónarmiðunum er stillt upp hlið við hlið. Allsstaðar þar sem ég hef sýnt myndimar og haldið fyrir- lestra um efni þeirra hefur álit fólks snarsnúist." Nú kömstu fyrst fram í sviðsljósið með fyrstu mynd þína árið 1989 og hefur síðan staðið í ströngu: ferðast um allan heim, valinn maður ársins í Japan og haldið fyrirlestra í Bandaríkjaþingi. Hver er undirrót- in að öllum þessum látum? „Þetta hófst í Grænlandi árið 1985 þegar ég var staddur þar sem frétta- maður dönsku fréttastofunnar Ritzau og varð vitni að miklum hörmungum; sá hvemig þessar umhverfishreyfingar höfðu gjöreyðilagt heilt samfélag og brotið niður stolta þjóð. Tilefni ferðar minnar var í sjálfu sér nauðaómerki- legt miðað því ég var þama að fjalla um einhveija ákveðna getjun í stjóm- málunum. En eftir að hafa kynnst ástandinu frá fyrstu hendi fór ég sem- sagt að hugsa málið og gerði fyrstu myndina. Upphaflega var ætlunin að gera aðeins þessa einu mynd, en ég hef frá þessum tíma ekki sloppið útúr þessu. Mér reyndist ómögulegt annað en að fylgja málinú eftir og gerði tvær aðrar myndir. Eftir því sem ég rann- saka þessar hreyftngar nánar og starfs- aðferðir þeirra, hafa sífellt meiri og stöðugt vaxandi upplýsingar leitt í ljós, að þetta er hinn versti ófénaður og mjög neikvætt og eyðandi afl. Það hef- ur síðan ekki annað hvarflað að mér, en að segja frá því sem ég hef lært og þeim uppgötvunum sem ég hef gert. Einhver varð að gera það.“ Séröu kannski framá að verður fastur í þessu um ókomna framtíð og þetta verði þinn lífsstarfi? „Nei, þetta er ekki gaman; vægast sagt óskemmtilegt. Hinsvegar er þessi vinna ákaflega nauðsynleg. Það er kannski fullgróft að segja þetta leiðin- lega vinnu útí eitt, en hún reynir mjög mikið á mann og er afar strekkjandi í heild sinni. Ennífemur er þetta gríðar- lega dýrt íyrirtæki.“ Þannig að þetta hlutverk „trúboð- ans“ á ekki svo vel við þig? „Nei, ég er nefnilega alls ekki trú- boði í eðli mínu. Ég er fremur ligeglad maður og alls ekki ákafamaður eða funheitur eldklerkur - hvort sem er á þessum eða öðrum sviðum. Ég hef aldrei verið ginnkeyptur fyrir hug- myndafræði af neinu tagi þannig að hjá mér er þetta ekki spuming um ein- hveija hugmyndafræði hjá mér heldur miklu fremur vinnu og blaðamennsk- una sjálfa í raun og veru. Einhver verður einfaldlega að standa upp fýrir sannleikann í þessum máh og það hef- ur svona lent á mér. Þetta er ekki hlut- verk sem ég kaus mér neitt sérstak- lega, en fyrst ég er lentur í því ætla ég mér ekki að hlaupa undan því.“ Ertu kannski með önnur og alls „Petta hófst í Grænlandi árid 1985 þegar ég var staddur þar sem fréttamaður dönsku fréttastof- unnar Ritzau og varð vitni að miklum hörmungum; sá hvernig þessar umhverfishreyfingar höfðu gjöreyðilagt heilt samfélag og brotið niður stolta þjóð." A-myndir: E.ÓI. óskyld verkefni í bígerð? , já, ég er nú með ýmislegt í bígerð en það er ekki eitthvað sem er komið á það stig að óhætt sé að segja ffá opin- berlega. Einhvem veginn verður mað- ur að lifa því ekki gerir maður það á þessu. Þetta er ekki arðbært og er ekki nægilegt sem lifibrauð. Svo að segja allur peningur sem ég hef fengið fyrir myndimar hefur farið aftur í slaginn ef þannig má taka til orðs; farið í að borga reikninga. Meira að segja matar- reikningurinn heima hefur sætt af- gangi. Einmitt vegna þessa streðs hef- ur verið kærkomið að fá þennan liðs- auka og aðstoð við fjármögnun á dreif- ingu sem JC Nes ætlar að inna af hendi." Er þetta fyrsta beina skrefið sem stigið hefur verið af almenningi til styrktar baráttu þinni? ,,Já. Það má segja það. Mig langar til að geta þess einnig að ég var mjög ánægður með það, að Fiskifélag fs- lands hefur lýst opinberlega yftr stuðn- ingi sínum við framtakið og ftskimála- stjóri sjálfúr keypti fyrstu tíu spólumar fyrir hönd Fiskifélagsins. Það er já- kvæður hugur í þeim geira að þessi kynning verði framkvæmd. Það er hinsvegar mjög sterkt útávið að það er hinn almenni Islendingur - grásrótin sjálf - sem stendur fyrir átakinu því það er grasrótin sem þetta ofstækislið hræðist mest. í upphaft þóttust þessar hreyftngar allar vera sprottnar úr gras- rótinni, en annað hefur nú komið í Ijós því mestmegnis em þetta einfaldlega bissnessmenn sem þama fara með öll völd.“ Þú ert að fara enn á ný út í næstu viku til að halda fyrirlestur í Banda- ríkjaþingi. Segðu mér aðeins frá því. „Ég er að fara þama út til að sýna hátt í tvöhundruð bandarískum þing- mönnum myndirnar og ræða við þá um efni þeirra að sýningu lokinni. Það eru nokkrar nefndir þingsins sem standa fyrir fundinum og þarna eru þingmennimir að leita sér ffóðleiks og að heyra málin frá fleiri hliðum en einni. Sumir hafa þeir hlustað á mig áður og draga nú aðra með sér og vekja athygli þeirra á málinu. Þessi viðleitni sýnir glögglega að nú er fam- ir að blása jákvæðar vindar fyrir okkur í Bandaríkjunum og löggjafarvaldið þar hefUr vel tekið við sér og sýnir nú í verki að það er tilbúið til að hlusta á önnur rök en bara öfgamannanna.“

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.