Alþýðublaðið - 03.05.1995, Blaðsíða 12

Alþýðublaðið - 03.05.1995, Blaðsíða 12
'm'ÍVFILl/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar MÞBUSLMIID Miðvikudagur 3. maí 1995 65. tölublað - 76. árgangur Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk ISjálfstæðar konur og Landssamband sjálfstæðiskvenna í hár saman um stöðu kvenna innan Sjálfstæðisflokksins Veldur titrmgi og reiði qA QiolfctínAíir l/nni ir tolo rtiAiir+il ciolfctnQAiclA /onnn conir Amrlíp IAnr>rlA44-iw - að Sjálfstæðar konur tala niður til sjálfstæðiskvenna, segir Amdís Jónsdóttir, formaður Landssambandsins. Hún krefst þess að konur verði valdar í veigamikil embætti. „Þessar Sjálfstæðu konur segjast vera ánægðar með þessa útkomu kvenna í flokknum og það er nokkuð sem við getum ekki tekið undir. Þær hafa líka talað niður til okkar og það er kannski það sem gerði mestu reiðina vegna þess að þær telja að við getum ekki beðið um neitt núna af því kom- umst ekki ofar á framboðslista við prófkjör," sagði Arndís Jónsdóttir formaður Landssambands sjálfstæðis- kvenna í gær í samtali við Alþýðublað- m ■ SKOÐUIMARSTOÐ Fyrir öll ökutæki Sparaðu þér tíma og fyrirhöfn. Pantaðu tíma sem hentar þér í síma 588-6660^ ..ER . r :: 4F> &A.RÐAR ■O * SONDABORG °4/) SÆBRAUT a. m Við erum miðsvæÖis með sveigjanlegan opnunartíma ATHUGUN HF SKOÐUNARSTOFA Klettagörðum 11 • 104 Reykjavík • Sími 588 6660 • Fax 588 6663 ið. Sambandið hélt fundi í Borgamesi á laugardaginn til að ræða þá stöðu að enga konu er að finna í ráðherraliði Sjálfstæðisflokksins. í ályktun fundar- ins segir meðal annars að hlutur kvenna hafi þar algjörlega verið fyrir borð borinn. Enn sé eftir að tilnefha í veigamikil embætti og trúnaðarstörf á vegum þingflokksins. Sjálfstæðiskon- ur geri kröfúr til að þeim verði treyst til slíkra trúnaðarstarfa. Konur innan Sjálfstæðisflokksins eru hins vegar klofnar í þessu máli. Hreyfmgin Sjálfstæðar konur, sem lét mikið til sín taka í kosningabaráttunni, sættir sig við orðinn hlut og telur að velja eigi einstaklinga eftir verðleikum en ekki kynferði. „Sjálfstæðar konur segja beinlínis að við þurfum að byrja á byijuninni því sú vinna hafi ekki verið unnin sem þurfi að vinna. En Landssamband sjálfstæðiskvenna eru fjörutíu ára sam- tök sem hafa stýrt félögum um land allt og haldið fram þeirri stefnu sem Sjálfstæðisflokkurinn hefúr alltaf haft að leiðarljósi. Svona er ekki hægt að tala til okkar og þess vegna hefur þetta auðvitað valdið titringi og reiði meðal margra. Ég get ekki annað en viður- kennt það. Málflutningur þeirra er ekki sæmandi og ég er þeirrar skoðunar að þær þekki bara ekld nógu vel söguna. Þær konur sem hafa setið í ríkisstjóm fyrir Sjálfstæðisflokkinn hafa komið úr okkar röðum, eins og Ragnhildur Helgadóttir fyrrverandi formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna," sagði Amdís. ,J>að var því urgur í konum á fund- inum í Borgamesi eins og eðlilegt er. En við lítum til þess að eftir er að skipa formann og varaformann þing- flokksms. Hins vegar virðist það liggja í loftinu að Geir Haarde haldi áfram sem þingflokksformaður svo þá er næst að líta á varaformann þingflokks- ins og svo formennsku í nefndum. Ég veit ekki til að búið sé að ákveða neitt í þeim efnum. Konur em mjög ósáttar við að fram- hjá þeim var gengið við val á ráðherr- um og erfitt fyrir okkur að verja það. Þetta er hins vegar mjög skemmtileg staða fyrir andstæðingar flokksins ekki síst þar sem Framsóknarflokkurinn hefur virkilega breytt um ímynd og komið konum í ráðherrastól og for- mennsku í þingflokknum," sagði Arn- dís ennfremur. „Það er ekki hægt annað en ræða þetta af hreinskilni á opinbemm vett- vangi. Ef við gemm það ekki og látum ekki málin til okkar taka þá er erfitt fyrir okkur að beijast í þessum flokki. Ef við tækjum þessu þegjandi hlyti það að skoðast þannig í augum hins al- menna kjósenda að við væmm bara ánægðar með ástandið. Konur vilja ekki láta þetta yfir sig ganga þegjandi og hljóðalaust. Sjálfstæðisflokkurinn var fyrsti flokkurinn til að koma konu í ríkisstjóm og staðan í dag er því mjög slæm miðað við fortíðina. Ég vil taka undir það sem Katrín Arndís Jónsdóttir: „Þessar Sjálfstæðu konur segjast vera ánægðar með þessa útkomu kvenna í flokknum og það er nokkuð sem við getum ekki tekið undir." Ragnhildur Helga- dóttir. „Þær konur sem hafa setið í rikisstjórn.haf a komið úr okkar röðum, eins og Ragnhildur Helga- dóttir." Geir Haarde. „Hins vegar virðist það liggja í loftinu að Geir Haarde haldi áfram . svo þá er næst að lita á vara- formann þing- flokksins og svo formennsku í nefndum." Katrín Fjeldsted. „Ég vil taka undir það sem Katrín Fjeldsted hefur sagt að flokkurinn verður að standa undir nafni." Hrefna Ingólfsdótt- ir. „Ég hef ásamt Hrefnu Ingólfsdótt- ur...sent bréf til formanns flokks- ins...Viöbrögö við þessu bréfi eru hins vegar engin." Fjeldsted hefur sagt að flokkurinn verður að standa undir nafni. Hann verður að bera skynbragð á það að þama verður að koma fram fólk úr öll- um stéttum þjóðfélagsins með tilliti til kynja og aldurs til að endurspegla rétt sjónarmið. Ég hef ásamt Hrefnu Ingólfsdótt- ur, formanni Hvatar, sem er stærsta sjálfstæðiskvennafélag landsins, sent bréf til formanns flokksins, varafor- manns og formanns þingflokks þess efnis að enn sé eftir að ákveða í nokk- ur embætti og við förum fram á að óskir kvenna fái jákvæðar undirtektir. Viðbrögð við þessu bréfi em hins veg- ar engin,“ sagði Amdís Jónsdóttir. Vinningstölur 29. apríl 1995 VINNINGAR FJÖLDI VINNINGA UPPHÆÐ Á HVERN VINNING H 5 af 5 0 2.045.917 a +4af 5 5 60.720 El 4 af 5 84 6.230 0 3 af 5 2.954 410 Aðaltölur: iojvpj30 BÓNUSTALA: 33j kr. 4.083.977 UPPLÝSINGAR, SÍMSVARI 91-681511 LUKKUÚNA 991000 - TEKTAVARP 451

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.