Alþýðublaðið - 10.05.1995, Síða 1
r
■ „Oskiljanleg afstaða" Guðmundar Bjamasonar í garð bænda, neytenda og launþega í Borgarnesi
Mikið á sig lagt til að koma
í veg fyrir samkeppni
-segir Páll Kr. Pálsson forstjóri Sólar hf. Kaupfélagsstjórinn sagði ósatt um viðræðurnar.
' „Mjólkurbúið í Borgamesi er eina
búið sem gæti farið í framleiðslu á
mjólk sem yrði í samkeppni hér á höf-
uðborgarsvæðinu. Það vita allir sem
hafa unnið í samkeppni að samkeppni
er eitthvað sem Mjólkursamsalan og
Osta- og smjörsalan leggja mikið á sig
til að koma í veg fyrir. Það þarf eng-
inn að segja mér að ekki hafi verið
hringt í Guðmund Bjarnason af
mönnum sem vildu stöðva þetta mál,“
sagði Páll Kr. Pálsson forstjóri Sólar
hf. í samtali við Alþýðublaðið.
Forráðamenn Sólar vildu kanna
möguleika á að stofna fyrirtæki í fé-
lagi við aðila í Borgamesi og bændur í
héraðinu til að vinna safa og mjólkur-
vörur í mjólkurbúinu í Borgamesi. Ef
þetta hefði orðið að veruleika hefðu
skapast störf fyrir að minnsta kosti 80
manns í Borgamesi. Fyrir lá samning-
ur um úreldingu á búinu en undir hann
hafði ekki verið skrifað af fyrrverandi
landbúnaðarráðherra.
„Ég taldi- að nýr landbúnaðarráð-
herra, sem ekki hefði gefið út neinar
yfirlýsingar í máhnu, hefði svigrúm til
að kanna þann valkost sem Sól bauð.
Ég talaði við Guðmund Bjamason á
þriðjudaginn í síðustu viku og gerði
honum grein fyrir okkar hugmyndum.
Hann tók mér mjög vel en sagðist
þurfa skilaboð frá einhveijum stjóm-
armönnum í Kaupfélagi Borgfirðinga
um að þeir hefðu áhuga á að skoða
þennan valkost. Hann sagði að ég
skyldi fara að vinna í málinu sem ég
og gerði,“ sagði Páll.
Páll hafði sfðan samband við Þóri
Pál Guðjónsson kaupfélagsstjóra sem
ekki komst til fundar fyrr en á
fimmtudag. Á þeim fundi kvaðst Þórir
Páll bundinn fyrri ákvörðun um úreld-
ingu mjólkurbúsins en Páli væri fijálst
að ræða við hvaða stjómarmann kaup-
félagsins sem væri. ,Eyrstu viðræðum
um málið fóm raunar fram í septem-
ber þegar ég kynnti Þóri Páli hug-
myndir okkar en þá hafði hann ekki
áhuga. Það er því ósatt sem hann segir
í Tímanum að hann hafi fyrst heyrt um
málið á fundinum á fimmtudaginn,"
sagði Páll Kr. Pálsson.
„Eg lét boð berast til aðila í ríkis-
stjóminni að við værum að vinna í
þessu máli og reyndi þar með að
vinna landbúnaðarráðherra stuðning
þar. Klukkan átta á föstudagsmorgun
átti ég fyrsta fundinn með einum
stjómarmanni kaupfélagsins, síðan
fund með öðmm stjómarmanni í há-
deginu og þeim þriðja síðdegis. Þeir
vom allir mjög jákvæðir en þá kom í
ljós að um morguninn hafði landbún-
aðarráðherra ákveðið að skrifa undir
úreldingarsamninginn. Miðað við það
sem ráðherra sagði við mig óundirbú-
inn á þriðjudaginn og síðan afstöðu
hans á föstudagsmorgun er augljóst að
hann var búinn að skipta um skoðun.
Það gera menn ekki upp á eigin spýtur
á tveimur dögum í svona máli,“ sagði
Páll.
„Sá valkostur sem við vildum að
yrði skoðaður án allra skuldbindinga
var að við flyttum alla okkar safalfam-
leiðslu upp í Borgames," sagði Páll.
„Nokkrir aðilar, kaupfélagsstjórinn í
Borgarnesi, landbúnaðarráðherra,
Mjólkursamsalan og Osta- og smjör-
salan komu í veg fyrir að þessi val-
kostur kæmist á umræðugrundvöll.
Með hagsmuni bænda, launþegar í
Borgamesi og neytenda í huga er þetta
óskiljanlegt," sagði Páll Kr. Pálsson.
Andstaðan
gegn „Evrópu"
í Alþýdubladinu í dag er fyrri hluti greinar sem nýverið birtist í Foreign
Affairs, hinu virta tímariti um alþjóðamál, eftir breska rithöfundinn
Noel Malcolm. Þar segir hann Evrópusambandinu hressilega til syndanna.
Malcolm segir í upphafi: „Andstaðan gegn „Evrópu" er ekki það sama og
andstaða gegn Evrópu. Þvert á móti. „Evrópa" er áætlun, hugtak, málstaður:
hið endanlega markmið sem Evrópusambandið hefur verið að þróast í átt til,
allt frá því að það steig sín fyrstu hikandi skref á sjötta áratugnum. í hugtak-
inu „Evrópa" felst sameinað evrópskt ríki með eigin stjórnarskrá, ríkisstjórn,
þing, myntkerfi, utanríkisstefnu og her. Hin samansúrraða áætlun um
„Evrópu" er næstum alveg búin að leggja undirsig hina upprunalegu merk-
ingu orðsins. í flestum Evrópulöndum talar fólk nú á dögum einfaldlega um
að vera með eða á móti „Evrópu"; og hver sá sem lýsir yfir efasemdum sín-
um um aukinn pólitískan samruna á yfir höfði sér að vera sakaður um ein-
tóma þjóðrembu í garð annarra þjóða í álfunni." Sjá nánar á miðopnu.
Freyja afhjúpuð í Fjörukránni Fjörukráin í
Hafnarfirði setur sterkan svip á ferðaþjónustu á íslandi og í dag verður
haldið upp á fimm ára afmaeli staðarins með látum. Jóhannes Viðar
Bjarnason staðarhaldari stendur þarna við líkneski af Freyju sem sjálfur
Sverrir Ólafsson gerði. Allsherjargoðinn Jörmundur Ingi Hansen mun láta
til sín taka og vígja nýtt hof (t baksýn) sem tileinkað er Freyju. A-mynd: E.ÓI.
Léttolía.. . Jón G. Þórísson hjá Eureka sést hér breyta áfengri bjórauglýsingu yfir í létta bjórauglýsingu í
Laugardalshöll í gær. Samkvæmt fyrirmælum lögreglustjórans í Reykjavík ákváðu forráðamenn HM '95 að bæta
orðinu „léttöl" inn á bjórauglýsingar frá þýska fyrirtækinu Warsteiner. Það verður fróðlegt fyrir þýska sjónvarps-
áhorfendur að spá í það hvað islenska orðið „léttöl" þýðir. Síðari hluti orðsins „öl" þýðir olía á þýsku. A-m»nd:E.ói.
■ Hópur alþýðubandalagsmanna stofnar „Landsnet um
formannskjör Margrétar Frímannsdóttur"
Margrét tilkynnir um
framboð sittá morgun
Framboð Margrétar uppgjör við flokkadrætti og deilur innan Alþýðubandalagsins,
segja stuðningsmenn.
Væntanlegur formannsframbjóðandi Alþýðubandalagsins naut veðurblíð-
unnar í miðbænum i gær. „Við viljum glaðbeittan formann," segja stuðn-
ingsmenn hennar. A-mynd: E.ÓI.
Samkvæmt mjög áreiðanlegum
heimildum Alþýðublaðsins mun
Margrét Frímannsdóttir tilkynna á
morgun að hún gefi kost á sér til for-
mennsku í Alþýðubandalaginu. Hún
mun því væntanlega takast á við
Steingrím J. Sigfússon, núverandi
varaformann, um hvort þeirra leysir af
hólmi Ólaf Ragnar Grímsson í
haust. f samtali við Alþýðublaðið í
gær vildi Margrét ekki tjá sig um mál-
ið en sagði að hún myndi kynna
ákvörðun sína síðar í vikunni.
Hópur alþýðubandalagsmanna hef-
ur stofnað „Landsnet um formanns-
kjör Margrétar Frímannsdóttur".
Landsnetið sendi frá sér tilkynningu í
gær þarsem sagt er að framboð
Margrétar sé uppgjör við flokkadrætti
og deilur liðins tíma innan Alþýðu-
bandalagsins. Fyrir hönd Landsnets
skrifa undir bréfið þau Róbert Mars-
liall úr Vestmannaeyjum, sem skipaði
5. sæti G-listans í vor, og Þuríður
Pétursdóttir úr Mosfellsbæ.
í tilkynningunni segir að Margrét sé
óumdeildur stjórnmálamaður sem
leggi „meira uppúr gleði, fræðslu og
þjálfun í flokksstarfi heldur en að
safna um sig hörðum kjama sem öllu
ræður.“ Landsnetsmenn Alþýðu-
bandalagsins vilja „heiðarlega, mál-
efnalega og glaðbeitta konu sem for-
mann.“