Alþýðublaðið - 10.05.1995, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 10. MAI 1995
ALÞYÐUBLAÐIÐ
11 H. Hi II i HBIWp*]
■ Nýverið kom út í Bandaríkjunum bókin Alien Nation eftir Peter Brimelow. í bókinni er varpað fram erfiðum spurningum
um málefni innflytjenda í Bandaríkjunum og sitt sýnist hverjum um þau svör sem höfundurinn hefur fram að færa. í nýjasta
tölublaði Newsweek tætir Tom Morganthau bókina í sig og mótmælir sjónarmiðum sem þeim er koma fram í bókinni
Ottinn við innflytjendur er óþarfur
-og „suðupotturinn" virkar ennþá ágætlega, þóttfull ástæða sé hinsvegar að beina þvítil bandarískra stjómvalda aðtaka
innflytjendalöggjöf landsins til endurskoðunar.
Bandariskir Kóreumenn í Los Angeles taka sér matarhlé frá hátíðar-
höldum og gæða sér á Kentucky Fríed kjúklingum.
„Skiptir það einhverju máli að yfirgnæfandi
meirihluti innflytjenda til Bandaríkjanna er
ekki af evrópskum uppruna? Og skiptir það
einhverju máli að árið 2050 munu Bandaríkin
ekki lengur vera byggð af meirihluta hvítra
manna? Já, er svar Peter Brimelow við báðum
þessum spurningum."
'Ef við gefum okkur það sem senni-
lega staðreynd að málefni innflytjenda
verði að lykilumræðuefhi í Bandaríkj-
unum í baráttunni um forsetaembættið
árið 1996 þá sýnist sömuleiðis líklegt
að maður að nafni Peter Brimelow
verði einn af þeim sem sjá um að svo
verði. Brimelow - sem fæddur er í
Bretlandi en er nú bandarískur þegn -
er einn af ritstjórum Forbes-fjölmiðla-
veldisins og sendi nýverið ffá sér bók-
ina Alien Nation sem útlagst gæti sem
Útlendingaþjóðin á ástkæra ylhýra. í
bókinni er sterklega varað við því að
núverandi innflytjendalöggjöf Banda-
ríkjanna sé hrein og klár uppskrift að
hörmungaástandi. Tom Morganthau
tætir bók þessa í sig í síðasta tölublaði
Newsweek.
Á sama hátt og repúblikaninn Pat
Buchanan hefur Brimelow þungar
áhyggjur af því hvort og þá hvemig
hin enskumælandi arfleifð Bandaríkj-
anna muni lifa af núverandi hræringar
í þjóðlífmu og hvemig þessari arfleifð
muni famast í „suðupottinum" (The
Melting Pot).
„Og alveg einsog Buchanan er
Brimelow alls óhræddur við að tala
ftjálslega og opinskátt um þau málefni
innflytjenda er varða kynþátt þeirra og
þjóðemi," segir Morganthau. „Spum-
ingin um samfélag kynþáttanna varðar
örlög í bandarískum stjórnmálum,"
stendur skrifað í Alien Nation og einn-
ig þetta: „Það er einfaldlega almenn
og fullkomlega heilbrigð skynsemi, að
Bandaríkjamenn láti jafhvægi kynþátt-
anna í landi sínu sig skipta. Banda-
ríkjamenn hafa allan rétt á að velta
þessu fyrir sér. Og það er einnig heil-
brigð skynsemi að almenningur hafi
rétt til að segja við stjórnvöld sín:
Hættið að koma þessum málum úr
jafnvægi með gjörðum ykkar. Og í
raun virðist það afar eðlilegt að
Bandaríkjamenn krefjist þess að
stjómvöld hlíti því boði.“
Hvað svosem segja má um þessa
bók Peter Brimelow, Alien Nation, þá
er þar á aðdáunarverðan hátt útskýrt
hvaða ómeðvitaðar afleiðingar og
breytingar innflytjendalögin sem sett
vom árið 1965 höfðu í för með sér, en
þau útrýmdu öllum fyrri tilhneiging-
um bandarískra stjómvalda til að taka
evrópska innflytjendur framyfir aðra.
Setning þessara laga leiddi til þess
að mjög áhrifaríkar breytingar litu
dagsins ljós hvað varðaði stöðu inn-
flytjendamála því komur þeirra til
landsins urðu sífellt fleiri og fleiri og
fleiri - og næstum öll sú aukningin
varð á innflytjendum frá ríkjum Róm-
önsku Ameríku, Karíbahafsins og As-
íu.
Gagnrýnendur laganna frá 1965 -
sem eru ófáir - segja ennfremur að
þau hafi gert það að verkum að áhersl-
an hafi flust í alltof miklum mæh yfir
á ættemi og fjölskyldutengsl viðkom-
andi og keðjuáhrifm hafi verið gríðar-
leg: bandarísk dvalarleyfi hafi f alltof
miklum mæli verið gefin út til handa
Ijölskyldumeðlimum þess innflytjenda
sem upprunalega kom til landsins;
milljónir manna hafi eftir þeim leiðum
komið til Bandaríkjanna frá ríkjum
þriðja heimsins. Við þetta nær óhöndl-
anlega vandamál bætist að Bandaríkin
hafa í reynd misst mikið til stjóm á
landamærum sínum og „stefnan er
pólitískt jámbrautarslys" - svo gripið
sé til orða hins ódauðlega Ronald Re-
agan.
Ólöglegir innflytjendur, þeir sem
misnota kerfi sem hannað var fyrir
flóttamenn er leita hælis og þeir sem
dvelja í landinu undir yfirskyni ferða-
mannadvalarleyfis em nú samtals 500
þúsund á áh í Bandaríkjunum. Og það
þrátt lyrir allar hinar alvarlegu tilraun-
ir bandaríska þingsins á Capitol Hill
til að þétta allan hugsanlega leka í
kerfinu - til dæmis með setningu
hinna umdeildu umbótalaga árið
1990.
„Algengar áætlanir gera ráð fyrir
því að allt uppí 80 prósent þessara
nýju innflytjenda séu af lituðum
uppruna og í umræðum um þann
vemleika í Alien Nation koma kyn-
þáttafordómar Peter Brimelow inní
dærnið," segir Tom Morganthau í
grein sinni. Brimelow spyr: Skiptir
það einhverju máli að yfirgnæfandi
meirihluti innflytjenda til Bandaríkj-
anna er ekki af evrópskum uppmna?
Og skiptir það einhverju máh að árið
2050 - ef svo fer fram sem horfir í
málefnum innflytjenda - munu
Bandaríkin ekki lengur vera byggð af
meirihluta hvítra manna? Já, er svar
Peter Brimelow við báðum þessum
spurningum og öðrum í sama stíl.
Hann virðist raunverulega skelfingu
lostinn standandi frammi fyrir slíkum
framtíðarhorfum.
Brimelow segir að eining þjóðar
krefjist þess að fólk hennar sé „tengt
blóðböndum". Hann sér fyrir sér og
spáir þjóðemis- og kynþáttalegu nið-
urbroti þjóðarinnar, samfélagsumbylt-
ingu, aðskilnað og klofning - líktog
gerðist í Júgóslavíu og Líbanon. Þetta
em þjóðemisfordómar - ef ekki hrein-
ir og beinir kynþáttafordómar. Brim-
elow segir kynþátt fólks skipta gífur-
legu máli þótt hvergi megi sjá það
svart á hvítu í bókinni að hvíti kyn-
stofninn hafi yfirburði yfir aðra hópa.
Afturámóti má lesa fordóma höf-
undarins afar auðveldlega milli lín-
anna í þeirri aðferð hans að sjóða upp
einhliða á nýjan leik rannsóknir á vel-
ferðaránetjun innflytjenda og þeim
byrðum sem innflytjendur leggja
þannig á innfædda í viðkomandi landi.
Ennfremur gerir Brimelow mjög mik-
ið úr þeirri tiltölulega léttvægu stað-
reynd að innflytjendur era nú 25 pró-
sent af þeim fjölda Bandaríkjamanna
sem dvelja nú í ríkisfangelsum.
„Þú þarft hinsvegar ekki að vera
haldinn kynþáttafordómum til að hafa
þá skoðun að bandaríska þingið þurfi
að taka stefnu sfna í innflytjendamál-
um til rækilegrar endurskoðunar. Það
hlýtur að vera sjálfgefið mál. Banda-
ríkin hafa boðið yfir 16 milljónir inn-
flytjenda velkomnar á síðustu 30 áram
og einsog Brimelow bendir á þá era
Bandaríkjamenn fæddir á erlendri
grandu í dag alls 7,9 prósent þjóðar-
innar. Sú staðreynd útaf fyrir sig hlýt-
ur að vekja upp spumingar um hversu
vel hafi tekist til með aðlögun og sam-
lögun þessa fólks að bandarísku sam-
félagi. Hvaða merkingu hefur það að
vera Bandaríkjamaður á tímum fjöl-
þjóðlegra samfélaga sem samansett
eru af menningararfleifð fjölda þjóða?
Hvaða gildi er nauðsynlegt að innifela
í pólkitískri menningarstefnu Banda-
ríkjanna og hversu vel á að innræta
þau innflytjendum?
Það er rétt hjá Peter Brimelow að
innflytjendastraumurinn til Bandaríkj-
anna hefur ekki alltaf verið samfelldur
og rof á flóðinu hefur orðið til þess að
þjóðin hefúr fyrir vikið fengið að að-
lagast þessum nýju íbúum sínum á ró-
legri og yfirvegaðri hátt. Brimelow
gerir einnig rétt í að spyija langsam-
lega mikilvægustu spumingarinnar í
þessu máli öllusaman: Afhverju ná-
kvæmlega er það sjálfgefið að straum-
ur innflytjenda til Bandaríkjanna verði
órofinn til framtíðar? Hann bendir á
að stuðningur Washington við áfram-
haldandi innflytjendastraum njóti ekki
stuðnings meirihluta kjósenda. (Kjós-
endur era að vísu harla illa dómbærir
á ástandið því ekki nema örsmátt
brotabrotabrot þeirra hefur nokkra
þekkingu yfirhöftið á ótrúlega flókinni
og margslunginni virkni innflytjenda-
laganna.)
Einn af mikilvægari þáttum málsins
er síðan sá, að þörf bandaríska hag-
kerfisins íyrir ákveðinn fjölda innflytj-
enda (samkvæmt hagfræðinni þýðir
ódýrt vinnuafl og aukinn fjöldi neyt-
enda hækkandi þjóðarframleiðslu)
skiptir alltaf minna og minna máli fyr-
ir ofuriðnvædd samfélög nútímans.
Brimelow bendir í þessu samhengi á
Japan sem eina af þeim þjóðum sem
risið hefur til gífurlegs þjóðarauðs og
velsældar án nokkurra innflytjenda. Ef
velmenntað vinnuafl er lykillinn að
hátæknivæddri velmegun afhverju
skyldu þá Bandaríkin halda stöðugt
áfram að flytja inn ódýrt vinnuafl?
Þetta era hinar raunverulega spum-
ingar sem beina verður til þeiira sem
stjóma og setja lög um innflytjendur í
Bandaríkjunum. Spurningamar eiga
ekki að snúast um kynþátt innflytjend-
anna, upphaflegt þjóðerni þeirra,
áhyggjur af samsettri og íjölþjóðlegri
menningararfleifð eða tvítyngislitaðri
menntun. Bandaríkin hafa alltaf verið
margbreytileg og litrík og það hefur á
einn eða annan hátt gengið ágætlega
upp framað þessu.
Afhveiju skyldi önnur kynslóð pak-
ístanskra Bandaríkjamanna í dag vera
eitthvað síður aðlögunarhæf banda-
rísku þjóðfélagi en pólskir Bandaríkja-
menn sjötíu árum fyrr? Peter Brim-
elow ætti að hafa það hugfast í skrif-
um sínum í framtíðinni að suðupottur-
inn svokallaði virkar ennþá - og að
dómsdagskenndar spár hans sem
snerta þjóðemi og kynþætti eru ein-
mitt það sem núverandi fósturjörð
hans hefur verið að reyna vaxa uppúr
á undanförnum áratugum," segir
Morganthau að lokum. ■
VEÐURSTOFA
ÍSLAHDS
Eftirfarandi stöður hjá Veðurstofu íslands
eru lausar til umsóknar:
Snjóflóð
Tvær stöður sérfræðinga við snjóflóða-
rannsóknir og snjóflóðavarnir.
Nauðsynlegt er að umsækjendur hafi háskóla-
menntun á sviði jarðvísinda, veðurfræði, haffræði
eða í skyldum greinum og auk þess menntun
eða reynslu á sviði tölvufræða.
Umsóknum skal skilað til veðurstofustjóra sem veitir
nánari upplýsingar um störfin ásamtTrausta
Jónssyni og Magnúsi Má Magnússyni.
Tölvunarfræðingur
Staða tölvunarfræðings í upplýsingadeild. Nauðsynlegt
er að umsækjendur hafi háskólamenntun á sviði
tölvufræða eða hafi sambærilega menntun.
Um er að ræða áhugaverð verkefni
í fjölbreyttu tölvuumhverfi.
Umsóknum skal skilað til veðurstofustjóra sem veitir nánari
upplýsingar um starfið ásamt Höllu Björgu Baldursdóttur.
Æskilegt er að umsækjendur geti hafið störf sem fyrst.
Umsóknarfresturertil og með 16. maí nk.
Veðurstofa íslands,
Bústaðavegi 9,
150 Reykjavík, sími 560-0600.
Húsbréf
Útdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa
í eftirtöldum flokkum:
1. flokki 1991-14. útdráttur
3. flokki 1991-11. útdráttur
1. flokki 1992 - 10. útdráttur
2. flokki 1992 - 9. útdráttur
1. flokki 1993 - 5. útdráttur
3. flokki 1993 - 3. útdráttur
1. flokki 1994 - 2. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. júlí 1995.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess eru númer úr fjórum fyrsttöldu
flokkunum hér að ofan birt í dagblaðinu Degi
miðvikudaginn 10. maí. Upplýsingar um útdregin
húsbréf liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins,
á Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
cSg HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
LJ HÚSBRÉFADEILD • SUÐURLANDSBRAUT 24 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 69 69 00