Alþýðublaðið - 19.05.1995, Qupperneq 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 19. MAÍ1995
■ Pólski kvikmyndaleikstjórinn Krzysztof Kieslowski hefur slegið eftirminnilega í gegn með sinni
rómuðu litatrílógíu, Rauður, Hvíturog Blár. í viðtali í Newsweek ræðir hann verk sín, ritskoðunina
og hlutverk lýðræðis í listum
Krzysztof Kieslowski: „Hvergi annarsstaðar í víðri veröld en í Sviss hef ég
fyrirhitt jafnmikinn fjölda fólks sem vildi ekkert frekar en að yfirgefa land
sitt fyrir fullt og allt."
Krzysztof Kieslowski kvikmynda-
leikstjóri er best þekktur fyrir hina
rómuðu litatrílógíu Rauður, Hvítur og
Blúr og sjónvarpsþáttaröðina Boðorð-
in tíu, sem framieidd var í heimalandi
hans, Póllandi, seint á síðasta áratug.
Þessi þrautreyndi leikstjóri hefur yfir
aldarfjórðungslanga reynslu af gerð
heimildakvikmynda, sjónvarpsmynda
- og vitaskuld kvikmynda í fullri
lengd. í viðtali sem Newsweek tók við
Kieslowski á Ítalíu fyrir skemmstu
segir hann meðal annars að listin sé
aíheitun lýðræðis; í hstinni ríki í raun
einræði og þannig hafi það alltaf ver-
ið.
Næstum öll
þín mikilvæg-
ustu verk eru
byggð á vest-
rænum kenni-
setningum á
borð við þau
sem við rek-
umst á í boð-
orðunum tíu
og grundvall-
arhugsjónum Upplýsingarinnar. Er
þetta hlutverk kvikmyndanna - og
listarinnar: að endurmeta og koma
fram fyrir hönd hefðbundinna
gilda?
.^iginlega er ég ekki svo viss um
að kvikmyndir séu list. En ef þannig
háttar til þá gæti það í sjálfu sér verið
eitt af hlutverkum þeirra.“
En ef kvikmyndir eru ekki list -
hvað í ósköpunum eru þær þá?
„Kvikmyndir eru írumstætt birting-
arform sögumennskunnar. Og maður-
inn hefur alltaf haft ríka þörf fyrir að
segja sögur og hlusta á sögur. Kvik-
myndatökuvélin getur hinsvegar ein-
ungis fest það á filmu sem er beint
fyrir framan hana. ímyndið ykkur ef
við reyndum að kvikmynda setning-
una: Hnnn fór að koma æ sjaldnar og
sjaldnar í heimsókn - og einn daginn
rann sá tími upp, að hann hœtti því
alveg. Þetta er gríðarlega algeng kli-
sja í heimi bókmenntanna. En það er
afar illmögulegt að kvikmynda þessa
klisju því hún ijallar um tímabil; við-
kvæmt sambandið milli tveggja
manneskja. Ef við reyndum að koma
þessari setn-
ingu til skila í
kvikmynd á
hvíta tjaldinu
þyrftum við
að minnsta
kosti hálftíma
til verksins.“
En hvers-
vegna vald-
irðu þér þá
kvikmyndalistina til að tjá þig ef
þetta listform er svona ófullkomið?
„Það er nú málið því svo sannar-
lega valdi ég ekki þessa starfsgrein.
Þetta bara einhvern veginn gerðist.
Ég geri kvikmyndir í dag til að koma
á samtali milli fólks - staðfesta sam-
bandið sem þannig myndast - og síð-
an að koma því til skila á tjaldinu. En
þá er ég ekki að tala um að koma
skilaboðunum á framfæri við ein-
hvem hóp fólks heldur til hvers þess
einstaklings sem kemur til að sjá
kvikmyndir mínar. Ég vil að áhorf-
endur spyrji sig sömu spurninga og
ég geri: Afhvetju er ég á lífi? Hvers-
vegna skyldi ég rísa úr rekkju minni
að morgni? Hví fer ég til vinnu?
Hvað mun gerast eftir að ég dey? Og
svo framvegis. Það sem ég vildi
fremst af öllu er að áhorfandinn fái
það skilið, að hann er ekki einn um að
óttast allt þetta og meira til; að hann
er ekki einn um að efast og velta fyrir
sér tilgangi lífsins; að hann er ekki
einn um að finnast þetta lífsstreð allt-
saman hálftilgangslaust. Þetta eru
einfaldlega spurningar sem engin
svör er hægt að finna við. Og ná-
kvæmlega sú staðreynd gerir þær svo
áhugaverðar. Spurningar án svara
krefjast þess að við leitum svara. Og
það er leitin sjálf
sem er langsam-
lega mikilvægust
í þessu sam-
hengi, en fráleitt
svörin."
Síðustu kvik-
myndir þínar
hafa allar fjall-
að fyrst og
fremst um firr-
ingu - aðskilnaðarkennd og ein-
angrun. Er einmanakennd manns-
ins kannski meiri á þessum síðasta
áratug aldarinnar heldur en
nokkru sinni fyrr?
,Já, og það á afgerandi hátt. Eftir
því sem löndin verða ríkari og hag-
sældin eykst, þeim mun meira ein-
mana verða íbúar þeirra. Ég hef aldrei
séð meira einmana og einangrað fólk
en í Sviss þar sem við kvikmynduð-
um myndin Rauður. Þarna kemur
maður til lands þar sem efnahagsleg
velmegun þegnanna er gífurleg, en í
sama mæli eru þeir afskaplega ein-
mana og einangraðir hver frá öðrum.
Hvergi annarsstaðar í víðri veröld en í
Sviss hef ég fyrirhitt jafnmikinn
Qölda fólks sem vildi ekkert frekar en
að yfirgefa land sitt fyrir fullt og allt.“
Heldurðu að
manneskjan
búi við meiri
einangrun í
velmegandi
ríkjum Vest-
urlanda held-
ur en til að
mynda í Pól-
landi og öðr-
um löndum
austurblokkarinnar undir járnhæli
Sovétríkjanna sálugu?
„An nokkurs vafa er það svo. Þján-
ingar sameina og þjappa nefnilega
fólki saman á meðan ríkidæmið klýf-
ur það og sundrar. Á okkar tímum er
velgengnin - frami og frægð - það
sem blívur. Styrkleikinn er í tísku og
til þess að njóta bæði velheppnaðs lífs
og styrkleika verða menn að varpa frá
sér allri siðferðiskennd. Og þegar
maður gerir slíkt tekur einmana-
kenndin óumflýjanlega við, því vita-
skuld missir maður alla vinina í leið-
inni. Veikleiki er ekki í tísku. Sam-
hyggja er ekki í tísku. Samtsem áður
eru það einmitt þessi atriði sem færa
fólk nær hvort öðru og sameina það.“
Myndir þú telja sjálfan þig vera
mann sem nýtur frama og vel-
gengni?
„Nei. Ég nýt ágætrar velgengni í
starfi mínu, en einsog ég skil þessi
hugtök þá er líf mitt á heildina litið
ekki velheppnað. Ég lít á að fullkom-
inni velgengni hafi ekki verið náð fyrr
en maður hefur náð að uppfylla
drauma sína og vonir. Það mun ég
aldrei geta gert því ég þrái það eitt að
lifa f sátt við sjálfan mig. Og það mun
ekki verða.“
Á tímum stjórnar kommúnista í
Póllandi háðir þú stöðugt stríð
gegn hverskonar ritskoðun stjórn-
valda...
„Ég myndi ekki taka svo sterkt til
orða, að kalla þessa baráttu mína
stríð. Orðið stríð vekur upp hinn
óskaplega dæmigerða veikleika Pól-
veija: þjáningamar. Við viljum helst
af öllu þjást. Við Pólveijar erum stöð-
ugt að sýna heiminum hversu mikið
við þjáumst og stöndum í þeirri mein-
ingu að með því að þjást þá séum við
meira virði sem manneskjur. Það sem
við kvikmyndagerðarmenn og rithöf-
undar gerðum í Póllandi á tímum
kommúnistastjómarinnar var að lifa
við - og með - ritskoðuninni; við
þrifumst á því að smeygja okkur
ifamhjá henni, fara undir hana og yf-
ir: að gabba yfirvöld varð dægrastytt-
ing. Þetta líktist einna helst því, að rit-
skoðunin væri svigbraut og við lista-
mennimir skíðamenn sem reyndum
að komast frá rásmarkinu klakklaust í
g e g n u m
brautina -
alla leið í
mark. Þetta
var auðvitað
f e i k i 1 e g a
góður lær-
dómur og
skóli sem
var ökkur
mikilvægur
og í reynd nauðsynlegur. Ritskoðunin
varð okkur innblástur rétt einsog allar
takmarkanir em menn ögmn og inn-
blástur. Til að yfirvinna takmarkanir
þínar þarftu að læra. Það er trú mín
og vissa að margar þær uppgötvanir
sem menntafólk og listamenn gerðu í
Austur-Evrópu á tímum kommúnist-
anna hafi einmitt komið til vegna
þess innblásturs sem ritskoðunin
vakti.“
Og nú þarftu að lifa og keppa við
þann raunveruleika sem vestrænn
kvikmyndaiðnaður er. Vestrænir
kvikmyndaframleiðendur senda
frá sér ótrúlega dýrar myndir og
margir þeirra kjósa að láta áhorf-
endur velja hvernig þær enda - á
forsýningum...
„Mér finnst það fáránlegt að ein-
hverjar þær
mikilvægustu
ákvarðanir
sem nokkur
listamaður
getur tekið um
verk sín séu
teknar á þenn-
an hátt: af ein-
hverju fólki
sem hefur
engan rétt á að ráða nokkm um þetta.
Kvikmyndirnar koma með þessum
vinnubrögðum út sem færibanda-
framleiðsla; sem skyndibitafæði þar
sem hver eining er nákvæmlega eins
og sú sem á undan kom. Auðvitað er
það þannig að ég kvikmynda margar
útgáfur af hveiju atriði - hverri senu,
en munurinn er sá að það er ég sem
ræð öllu um hver þeirra verður notuð
í lokaútgáfuna. Þetta eru þau býtti
sem ég ræð mig uppá og fæ borgað
fyrir; það er mitt hlutverk: að sjá um
þetta val. Aristóteles setti aldrei for-
sýningar á svið. Og hvað þá Fellini."
Er þetta ekki holdgerving lýð-
ræðisins: að láta áhorfendur velja í
atkvæðagreiðslu hvernig kvik-
myndirnar enda?
, Jú, í sjálfu sér. En hstin hefur ekk-
ert með lýðræðið að gera; Ust og lýð-
ræði eiga ekkert sameiginlegt. Listin
er afneimn lýðræðisins; í listinni ríkir
í raun einræði og þannig hefur það
alltaf verið.“ ■
Símanúmera-
mundu!
breytingarnar
taka gildi laugar-
stafa
símanúmer
daginn 3. júní
Númer breytast sem hér segir:
55 bætist framan við fimm stafa símanúmer á höfuðborgarsvæðinu
5 bætist framan við sex stafa símanúmer á höfuðborgarsvæðinu
42 bætist framan við öll símanúmer á Suðurnesjum
43 bætist framan við öll símanúmer á Vesturlandi
456 bætist framan við öll símanúmer á Vestfjörðum
45 bætist framan við öll símanúmer á Norðurlandi vestra
46 bætist framan við öll símanúmer á Norðurlandi eystra
47 bætist framan við öll símanúmer á Austurlandi
48 bætist framan við öll símanúmer á Suðurlandi
Eftir breytingarnar þarf ekki lengur að velja svæðisnúmer.
Farsíma- og boðtækjanúmer.
Talan 9 fellur burt þannig að farsímanúmer byrja á 85, GSM númer
á 89 og boðtækjanúmer á 84. Dæmi: 985 489 89 verður 854 8989.
POSTUR OG SÍMI
„Við Pólverjar erum
stöðugt að sýna heiminum
hversu mikið við þjáumst
og stöndum í þeirri
meiningu að með því að
þjást þá séum við meira
virði sem manneskjur."
„Listin hefur ekkert með
lýðræðið að gera; list og
lýðræði eiga ekkert sam-
eiginlegt. Listin er afneitun
lýðræðisins; í listinni ríkir í
raun einræði og þannig
hefur það alltaf verið."
„Það er trú mín að margar
þær uppgötvanir sem
menntafólk og listamenn
gerðu í Austur-Evrópu á
tímum kommúnistanna hafi
komið til vegna innblásturs
sem ritskoðunin vakti."