Alþýðublaðið - 19.05.1995, Side 7
FIMMTUDAGUR 19. MAÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
m ó ð m i n j i a 9
A-mynd: E.ÓI.
Þjóðminjasafn opnað aftur
Þjóðminjasafnið hefur verið lokað vegna viðgerða í næstum heilt ár.
Þessi lýðveldisgjöf íslensku þjóðarinnar 1944 var að drabbast niður
og húsið hélt hvorki vatni né vindum. Stórfelldar utanhússviðgerðir
hafa staðið yfir: búið er að skipta um alla glugga í húsinu og það var
múrað og steinað á nýjan leik. Eftir eru miklar viðgerðir innanhúss og
vona starfsmenn að þær geti hafist hið fyrsta. Alþýðubladiö leit við í
Þjóðminjasafninu í gær þegar húsið var opnað aftur. Á fyrstu hæð
eru til sýnis munir frá fyrstu öldum íslandsbyggðar: kirkjugripir,
útskurður og textílar auk baðstofu og sýningar um eldhúsáhöld og
matargerð fyrr á öldum. Á þriðju hæð er sýningin Nútíd vid fortíd
þarsem getur að líta 130 muni úr sögu safnsins frá upphafi þess.
Gersemi. Þessi 12. aldar
róöa meö rómönsku lagi
er úr birki og hefur varö-
veist ótrulega vel. Hún er
úr Ufsakirkju í Svarfaöar-
dal.
Hýbýli forfeðranna. Lilja Árnadóttir safnstjóri situr
viö rokk í baðstofu sem reist var að Sköröum i
Dalasýslu áriö 1857. Baðstofan var tekin niöur 1955
en framundir þann tima var búiö í henni.
Islensk maddama á
Hauskúpuhæð. Myndin
var gerö 1693 og sýnir
Katrínu riku Erlends-
dóttur krjúpa viö kross
Krists. Algengt var aö
fyrirfólk léti mála af sér
myndir í kompaníi meö
guölegum verum.
Ekki eru allir hlutir í Þjóðminja-
safninu orönir ævagamlir. Jón
Sen framleiddi sjónvarpstæki af
þessari tegund á sjöunda ára-
tugnum og þóttu þau kostagripir.
Ég elska þig í fyrsta sinn. Þessi litla
askja er frá 1799 og merkileg fyrir þá
sök, aö þar koma orðin ég elska þig
fyrst fyrir i íslensku máli.
Islenskir Olympíumeistarar!
íslenska unglingalandsliðið sigraði
mjög óvænt en verðskuldað á Ólymp-
íuskákmóti barna og unglinga sem
lauk í Las Palmas a i • i
á Kanaríeyjum OK9K
síðustu helgi. Is-
lenska sveitin
tryggði sér sigur-
inn með því að
leggja Englend-
inga að velli í síð-
ustu umferð með
minnsta mun.
Fyrir mótið var
ungverska sveitin
með Peter Leko, yngsta stórmeistara
heims (2570 Elo-stig!), í broddi fylk-
ingar álitin sigurstranglegust en Ung-
veijamir urðu að lokum að sætta sig
við annað sætið, einum og hálfum
vinning á eftir íslensku Ólympíusveit-
inni. I þriðja sæti varð Georgfa, og
vakti það nokkra athygli að sú sveit
var sú eina frá fyrrum Sovétríkjunum
sem blandaði sér í toppbaráttuna.
Sveit Rússa, sem sigraði síðustu tvö
ár, var til dæmis heilum fimm vinn-
ingum á eftir íslensku sveitinni.
Islenska liðið byrjaði mótið með
látum og strákamir unnu heimamenn
4-0 í fyrstu umferð. í kjölfarið fylgdi
svo sigur yfir sjálfum Ólympíumeist-
umm Rússa, 2,5-1,5 og þarmeð var
tónninn gefinn.
Fyrir sjöundu og síðustu umferð var
íslenska sveitin með 16,5 vinning en
sú ungverska með 15. Ungverjamir
tefldu við Júgóslava, töpuðu einni
skák snemma, og eftir það var íslensk-
ur sigur aldrei í hættu.
Jón Viktor stýrir svörtu mönnunum til sigurs gegn Englendingnum
Williams.
Lokastaðan: 1. ísland 19 v. af 28
mögulegum. 2. Ungveijaland 17,5 3.
Georgía 17 v. 4.-5. Júgóslavía A og
IEngland 16,5 6.
Rússland B 16 7.
Spánn A 15,5 8.-9.
Frakkland og Úkra-
Þröstur ína 15 10.-13. Arg-
entína, Spánn B,
Þórhallsson Noregur og Holland
14,5 14. Svíþjóð 14
skrifar 15.-16. Rússland A
og Portúgal 13,5
^— 17.-18. Marokkó og
Bosm'a 13 19. Kan-
aríeyjar A 10,5 20. Kanaríeyjar 10 21.
Júgóslavía B 9,5 22. Lúxemborg 5.
Árangur íslensku keppendanna var
sem hér segir:
1. borð: Jón Viktor Gunnarsson,
4,5 v. af 7, 64,3%.
2. borð: Bragi Þorfinnsson, 5 v. af
7 af, 71,4%.
3. borð: Bergsteinn Einarsson, 4
v. af 7, 57,1%.
4. borð: Björn Þorfinnsson, 5,5 v.
7, 78,6%.
Einar Hjalti Jensson varamaður
fékk ekki tækifæri í þessari keppni
vegna velgengni félaga sinna.
Fararstjóri og jafnframt liðsstjóri
var Haraldur Baldursson formaður
Taflfélags Kópavogs og stjómarmað-
ur í Skáksambandi Islands.
fslensku strákamir em allir nem-
endur í Skákskóla íslands og hafa
einnig notið öflugs unglingastarfs hjá
Taflfélagi Reykjavíkur. í sameiningu
eiga þessir tveir aðilar stóran þátt í
velgengni íslenska liðsins á mótinu.
Jón Viktor Gunnarsson stóð sig
mjög vel á fyrsta borði og við skulum
líta á ömggan sigur hans á 1. borðs
manni Englendinga í síðustu umferð.
Hvítt: Jón Viktor Gunnarsson.
Svart: Wiliiams.
Frönsk vöm.
1. e4 e6 2. d4 d5 3. e5 c5 4. c3 Rc6
5. Be3 Db6 6. Dd2 Bd7 7. f4 Rh6 8.
RO Hc8 9. Be2 cxd4 10. cxd4 Ra5
11. Rc3 Rc4
Svartur hefur komist klakklaust út
úr byijuninni og gerir sig líklegan til
að sækja á drottningarvængnum.
12. Bxc4 Hxc4 13. h3 Rf5 14. Bf2
Bb4 15. g4!
Jón Viktor ætlar ekki að sitja að-
gerðalaus meðan svartur þreifar fyrir
sér á drottningarvængnum.
15. ... Re7 16. 0-0 Da5 17. Hfcl
0-0 18. De3 Bxc3 19. bxc3
Hvítur tekur á sig bakstætt peð á
drottningarvæng og vonast í staðinn
eftir sókn á kóngsvæng.
19. ... Ha4 20. Hc2 Bb5 21. Bh4
Rg6 22. Bel Da6 23. Hd2 Bd7 24.
Hg2!
Loksins er hrókurinn kominn á rétt-
an stað. Áætlunin hjá hvítum er ein-
faldlega að ýta peðunum áfram og
opna svörtu kóngsstöðuna.
24.... Dc4 25. h4 Re7 26. h5 Ha3
27. f5! exf5 28. Dg5!
Þar lá hundurinn grafinn! Hvíta
drottningin er allt í einu komin í sókn-
ina meðan sú svarta er aðgerðalaus á
drottningarvæng.
28.... fxg4 29. Dxe7 Bb5
Allt í einu uppgötvar svartur að 29.
... gxf3 er auðvitað svarað með 30.
Hxg7+ Kxg7 31. Df6+ Kg8 32. h6 og
mátar.
30. Dxa3
Hvítur er kominn með vinnings-
stöðu en vegna tímahraks hjá Jóni
Viktor teflir Englendingurinn áfram.
30. ... DH+ 31. Kh2 gxf3 32. Hf2
Dd3 33. De7 f6 34. De6+ Kh8 35.
Dd6 He8 36. exf6 Df5 37. fxg7+ Kg8
38. h6 Dh5+ 39. Kgl Dg4+ 40. Khl
Dh4+ 41. Dh2 Df6 42. Dh5 He4 43.
Hxf3 og Williams gafst upp.