Alþýðublaðið - 19.05.1995, Blaðsíða 8
» t
'míVFILL/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Föstudagur 19. maí 1995
75. tölublað - 76. árgangur
*• t
miVFILL/
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
15 88 55 22
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Reykdælingur á
Grensásveginum
Torfi Harðarson opnar mynd-
listarsýningu á morgun (laug-
ardag) klukkan 16:00 í Lista-
safni ASÍ að Grensásvegi 16a.
Torfi sýnir þar 25 pastel- og
vatnslitamyndir sem unnar eru
á síðastliðnum þremur árum.
Sýningin er opin daglega frá
klukkan 14:00 til 19:00 - alla
daga nema miðvikudaga. Torfi
er fæddur í Reykjadal í Hruna-
mannahreppi, en fluttist árið
1971 til Reykjavíkur. Sýningin í
Listasafni ASÍ er tíunda einka-
sýning hans.
■ Tónleikará Höfn í
Hornafirði
Stærsti karlakór
landsins syngur
með Sinfóníunni
Yfir 300 manna karlakór syngur
með Sinfóníuhljómsveitinni í íþrótta-
húsinu á Höfh í Homafirði á morgim,
laugardag. Kórinn samanstendur af sjö
karlakórum í Kötlu - sambandi sunn-
lenskra karlakóra, sem koma saman til
söngmóts á Höfh um helgina. Um 550
manns taka þátt í þessu Kötlumóti,
þaraf syngja um 300.
Kóramir syngja hver um sig nokkur
lög á kóramótinu sem hefst klukkan
14:00. Síðan syngja kóramir saman
fjögur lög ásamt Sinfóníuhljómsveit
Islands undir stjóm Bernharðs Wilk-
insonar. Sinfóníuhljómsveitin leikur
síðan tvo forleiki: Hátíðarmars Páls
ísólfssonar og Meistarasöngvarana
frá Niimberg eftir Wagner.
Kötlumót eru haldin á fimm ára
fresti. Innan sambandsins em tíu kórar
á suðurhluta landsins - allt frá Borgar-
firði í vestri til Homafjarðar í austri.
Þrír kóranna eiga því miður ekki
heimangengt að þessu sinni - vegna
anna við sauðburð.
■ Nýjasta mynd meistara
Woody Allen loksins
komin til landsins
Kúlnahríð
á Broadway
í dag frumsýnir Regnboginn nýjasta
meistarastykki snillingsins Woody
Allen: Bullets Over Broadway eða
Kúlnahríð á Broadway. Myndin hefur
vakið feikna athygli og eru flestir
þeirrar skoðunar að langt sé síðan Al-
Íen hafi tekist frábærlega upp. Kúlna-
hríð á Broadway var þannig tilnefnd
til sjö Óskarsverðlauna: Chazz Pam-
interi var tilnefndur sem besti karl-
leikari í aukahlutverk, Jennifer Tilly
og Diane West sem bestu leikkonur í
aukahlutverki, Woody Allen sem
besti leikstjórinn og auk þess var
myndin tilnefnd fyrir besta frum-
samda handritið og var það í höndum
Allen og Douglas McGrath, listræna
stjórnun og búningahönnun. Diane
West var þó sú eina hlaut verðlaunin.
Meðal annarra leikara má nefna John
Cusack, Tracey Ulhnan, Rob Rein-
er og Mary-Louise Parker.
■ Tilraun Ingibjargar Pálmadóttur heilbrigðisráðherra til að leysa kjaramál
hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni fær slæmar undirtektir.
Neyðarástand blasirvið 1. júní
„Málið er einfald-
lega algjört klúður"
- segir Bjami Arthúrsson framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Suðurlands.
„Heilbrigðisráðherra hefur sent
okkur boltann til baka en við fáum
engin svör um það hvemig á að leysa
málið. Ráðherra segir að það eigi að
gera það með samningum en fjármála-
ráðuneytið segir að við megum ekki
gera það með samningum. Það hefur
verið afar illa haldið á þessu af hálfu
ráðuneytanna og málið er einfaldlega
algjört klúður," sagði Bjarni Art-
húrsson framkvæmdastjóri Sjúkra-
húss Suðurlands og Heilsugæslu-
stöðvar Selfoss í samtali við Alþýðu-
blaðið.
Ráðstafanir Ingibjargar Pálma-
dóttur heilbrigðisráðherra til að leysa
úr ágreiningi vegna sérkjarasamninga
hjúkrunarfræðinga á landsbyggðinni
virðast lítt gagnast stjórnendum
sjúkrahúsanna til lausnar málinu. Ef
svo fer fram sem horfir hætta um 200
hjúkrunarfræðingar vítt og breytt um
landið störfúm þann 1. júm og neyðar-
ástand skapast. Einstaklingsbundnum
ráðningarkjömm þeirra var sagt upp 1.
mars síðast liðinn með þriggja mánaða
fyrirvara. Hjúkrunarfræðingar sætta
sig ekki við að kjör þeina verði skert
og líta á þetta sem uppsögn. Heil-
brigðisráðuneytið krafðist þess að
þessum samningum yrði sagt upp að
ósk fjármálaráðuneytisins.
„Við erum algjörlega milli steins og
sleggju í þessu máli. Fjármálaráðu-
neytíð segir að við megum ekki gera
nýja samninga við hjúkmnarfræðinga
og rökstyður það með tilvitnunum í
lög og dóma. Svo sendir heilbrigðis-
ráðherra okkur bréf og í niðurlagi þess
segir:
„Að lokum vill ráðuneytið hvetja
stjómendur tíl að fara nánar ofan í alla
einstaklingsbundna samninga sem
gerðir hafa verið við aðra starfsmenn
þannig að eftir endurskoðun einstak-
lingsbundinna samninga við hjúkrun-
arfræðinga verði fullt samræmi í
launasetningu í hlutaðeigandi sjúkra-
stofiiun."
Ég veit ekki hvort við eigum að
hækka alla aðra til samræmis við
hjúkrunarfræðinga eða lækka hjúkrun-
arffæðinga til samræmis við aðra. Ég
veit ekki hvað svona setning þýðir,“
sagði Bjami Arthúrsson.
En var ekki heiibrigðisráðherra
að lofa ykkur peningum svo þið
gætum leyst máiið?
„Ráðherra lofar okkur peningum
þetta árið en það er algjör óvissa um
hvað verður á næsta ári. Hún segir að
við verðum að leysa þennan vanda
innan fjárlagaramma. Heilbrigðisráðu-
neytið er fagráðuneyti okkar en fjár-
málaráðuneytið er yfir okkur í launa-
málum. Á fundi með fulltrúum þess-
ara ráðuneyta nú í vikunni bar ég
þrisvar sinnum fram sömu spuming-
una: Hvemig eigum við að ljúka þessu
máli? Ég fékk aldrei neitt svar.“
Hafið þið þá ekki leyfi til að
semja upp á nýtt við hjúkrunar-
fræðinga?
,JEkki samkvæmt því sem íjármála-
ráðuneytíð segir. En í bréfi heilbrigð-
isráðherra segir hins vegar:
,Eftir samráð við fjármálaráðuneyt-
ið og fulltrúa stjómenda sjúkrahúsa
hefur heilbrigðisráðuneytíð nú ákveð-
ið viðbótarfjárveitingu til einstakra
sjúkrahúsa. Annars vegar til að mæta
kostnaði vegna tafar á uppsögn ein-
■ Tíu ára afmæli kínverska veitingahússins Sjanghæ
Drekadans, dúndur-
fjör og bjór á tíkall
Um þessar mundir eru liðin tíu ár frá stofnun Sjanghæ, kínverska veit-
ingahússins við Laugarveg. í tilefni afmælisins hefur Sjanghæ boðið
hingað til lands dönsurum og trúðum frá Kína sem ætla á morgun
(laugardag) að dansa fyrir Reykvíkinga og forvitna aðkomumenn,
ásamt því að berja bumbur, slá gjöll og láta öllum illum látum - vita-
skuld skrýddir íburðarmiklum og litskrúðugum klæðnaði. Farið verður í
ósvikna kínverska dreka-skrúðgöngu og drekinn ógurlegi lætur sig ekki
vanta. Lagt verður af stað á morgun klukkan 15:00 og gengið sem leið
liggur niður á Ingólfstorg. Boðið er uppá sérstakan hátíðarmatseðil á
veitingastaðnum frá 19. maí til 25. maí og verður markverðast að telja
verðið á bjórnum sem er aðeins tíu krónur - eða ein króna fyrir hvert ár
sem Sjanghæ hefur starfað. A-myrd: e.ói.
staklingsbundinna samninga og hins
vegar tíl að veita stjómendum svigrúm
við gerð nýrra samninga." Það sést á
þessu að ráðuneytin ganga ekki í takt.
Og þegar maður spyr fulltrúa beggja
ráðuneytanna segja þeir ekki neitt.“
Hvaða áhrif hefur þessi staða á
starfsemi sjúkrahúsanna?
,J>etta er búið að valda sjúkrahús-
unum verulegum vanda. Hér höfum
við til dæmis misst hjúkrunarffæðinga
ffá ökkur vegna þessa. Einkastofnanir
og sjálfseignarstofnanir hafa boðið í
okkar hjúkrunarfræðinga. Þetta hefur
skapað leiðinlegan móral og tor-
tryggni milli stjómenda og starfsfólks.
Hér starfa 21 hjúkrunarffæðingur og
ef þeir hætta 1. júní verðum við ein-
faldlega að loka. En við erum að fín-
kemba alla möguleika til þess að leysa
máhð og þá þannig að það teljist lög-
legt. Það er hins vegar erfitt að stjóma
svona ríkisstofhun þar sem gefin em
ein fyrirmæh í dag og önnur á morg-
un. Það verður ákveðinn trúnaðar-
brestur milli heilbrigðisstofnana og
ráðuneytanna.“
Hvernig komu þessi sérkjör
hjúkrunarfræðinga til í upphafi?
„Þetta var upphaflega hugsað með
tvennum hætti. Annars vegar var þetta
hrein staðaruppbót og hins vegar
greiðslur fyrir aukið álag í vinnu. Það
er mjög algengt að sjúkrahús úti á
landi reki líka heilsugæslustöð. Þá
þjónusta hjúkrunarfræðingar sjúkra-
húsa einnig bráðamóttöku heilsugæsl-
unnar og auðvitað þarf að greiða fyrir
það sérstaklega. Mín tilfmning er sú
að upphaflega hafi verið farið á stað
með máUð án þess að menn gerðu sér
grein fýrir því fyrir hvað var verið að
borga. Ég held að fyrrverandi heil-
brigðisráðherra hafi ekki verið gerð
grein fyrir því á sínum tíma að við er-
um að greiða fýrir aukna vinnu. Sig-
hvatur Björgvinsson fór í þetta að
kröfu fjármálaráðuneytisins sem vildi
hreinsa þetta út. Þar töldu menn að
með gerð kjarasamnings við Félag ís-
lenskra hjúkrunarfræðinga hefðu þessi
kjör átt að falla niður. En sá samning-
ur miðaðist alfarið við þær greiðslur
sem gilda á stóru sjúkrahúsunum í
Reykjavík. Þar var verið að færa
samninginn til vemleikans en lands-
byggðin var ekki höfð með.“
En það voru ekki öll sjúkrahús
úti á landi sem sögðu upp þessum
einstaklingsbundnu samningum?
„Á sínum tíma kallaði heilbrigðis-
ráðuneytið í tvígang saman formenn
sjúkrahússtjórna og framkvæmda-
stjóra til að koma þessu máli á.
Ingibjörg Pálmadóttir. „Heilbrigðis-
ráðherra hefur sent okkur boltann
til baka en við fáum engin svör um
það hvernig á að leysa málið. Ráð-
herra segir að það eigi að gera það
með samningum en fjármálaráðu-
neytið segir að við megum ekki
gera það með samningum," segir
Bjarni Arthúrsson. A-mynd: E.ÓI.
Sjúkrahússtjórnir féllust á að segja
samningunum upp að því tilskildu að
allir yrðu með. Síðan vikust tvö
stærsm sjúkrahús landsins, á Akureyri
og Akranesi, undan þessu og þá var
máhð f raun strax sprungið. En það er
eins og ráðuneytið hafi gert í því að
halda okkur sundruðum. Þetta er mjög
flókið mál og leiðinlegt," sagði Bjami
Arthúrsson. ■