Alþýðublaðið - 30.05.1995, Page 3
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ1995
S
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
n
Hún bara
Alþingi var kallað saman þann
ló.maí síðastliðinn. Samkvæmt for-
skrift forsætisráðherra, þá yrði þetta
stutt þing, svona 10 dagar, eins og
hann orðaði það - og þá einkanlega til
að afgreiða stefnumál ríkisstjómar í
sjávarútvegsmálum og GATT-málum.
Þegar þetta er skrifað, þá er þriðja
þingvikan að hefjast og liðnir einir
þrettán dagar frá þingsetningu. Ekki
hefur verið vikið einu einasta orði að
hinum stóru málum þingsins, GATT
og sjávarútvegsmálum, nema í fram-
hjáhlaupi, því frumvörp ríkisstjómar-
innar vegna þeirra hafa enn ekki verið
lögð fram.
Pallborðið
Samkvæmt lögum ber að kalla þing
saman að afstöðnum þingkosningum,
eigi síðar en 10 vikum eftir kjördag.
Það hefði þýtt að þing hefði átt að
koma saman eigi síðar en 17. júní. En
forsætisráðherra og forsvarsmenn rík-
isstjómarinnar vildu hespa þinghaldið
af og blésu til þingfundar mánuði fyrr.
En gleymdu Utlu atriði: þeir vom ekki
tilbúnir með stefhu ríkisstjómarinnar í
þeim málum, sem þeir hugðust af-
greiða í þinginu.
Og alla síðustu daga hefur ríkis-
stjómin verið að leita að stefnu í mál-
inu, þannig að hægt yrði að kynna
hana þingheimi og hugsanlega af-
greiða.- Vandræðagangurinn verið al-
gjör.
Ríkisstjómin hefur fallið á fyrsta
prófinu. Hún hefur f raun undirstrikað
það, sem margir ætluðu, að hún var
hreint ekki mynduð um nein málefni.
Öllum stóm álitamálunum sem uppi
em í okkar samfélagi var einfaldlega
ýtt undir teppið. Það átti að líta á þau
síðar. Myndun ríkisstjómar um hefð-
„...fyrstu vikur nýrrar ríkisstjórnar virðast í
einu og öllu ætla að staðfesta spár manna um
verklag og vinnubrögð stjórnarinnar: Kyrr-
staða, stefnuleysi og vandræðagangur. Pessi
ríkisstjórn hefur engin sérstök markmið. Hún
ætlar ekki að gera neitt sérstakt. Hún ætlar
bara að vera. Hún bara er..."
er...
bundin helmingaskipti var mark og
mið stjómarherranna og hinn rauði
þráður. Hitt, sem laut að aðgerðum og
stefnumálum, var eitthvað sem mátti
bíða betri tíma.
Þessar stundimar er að fæðast lítil
mús í sjávarútvegsmálunum, eftir
langar og strangar viðræður fulltrúa
stjómarflokkanna um helgina. Eftir
því sem fregnir herma hafa ráðherr-
amir þurft að snúa við blaði; sam-
þykkt ríkisstjórnarinnar um fyrir-
komulag á veiðum smábáta hlaut slík-
ar undirtektir í þjóðfélaginu öllu, þar á
meðal í þingflokkum stjómarflokk-
anna, að það varð að kúvenda. Enn og
aftur virðist sjávarútvegsráðherra vera
á ská og skjön við vilja meirihluta
þingmanna í afstöðunni til smábátaút-
gerðar í landinu. Og það breytir svo
sem ekki neinu í þeim efnum, þótt for-
ingi Framsóknar, sé honum sammála,
því í kosningabaráttunni í vor vom
yfirlýsingar fjölmargra þingmanna
stjómarflokkanna svo afdráttarlausar í
ýmsum álitaefhum er varðar sjávarút-
veginn, að þeir komast ekki lönd né
strönd frá sínum loforðum.
Það er hins vegar með ólíkindum
sambandsleysið milli ráðherra og
þingmanna stjómarflokkanna í þess-
um efnum. Að ráðherrunum skyldi til
hugar koma að hugmyndir þeirra um
smábátaútgerðina næðu fram að
ganga, er eitt út af fyrir sig rannsókn-
arefni. Þær tillögur hefðu lagt smá-
bátaútgerð á hliðina á örfáum ámm.
Ekki veit ég til dæmis hvemig þing-
menn Reykjaneskjördæmis á borð við
Hjálmar Amason, Siv Friðleifsdóttur
og Kristján Pálsson hefðu ætlað að
fara heim í hérað, f sjávarbyggðimar á
Reykjanesi, og útskýra stuðning sinn
við þessa ríkisstjóm. Þessir þingmenn
og margir fleiri í stjómarliðinu gengu
býsna langt í loforðum sfnum og yíir-
lýsingum um stuðning við útgerð
smábáta. Vafalaust fengið stuðning
þeirra margra vegna þeirra yfirboða.
Það er hálfur annar mánuður firá kjör-
degi og þegar er kominn falskur tónn í
fyrirheitin. Þegar þetta er ritað, er ekki
vitað nákvæmlega um endanlega gerð
frumvarps stjómarinnar um sjávarút-
vegsmálin. Samkvæmt fjölmiðlum
hafa upphaflegu hugmyndimar um að
leggja smábátaútgerðina í rúst, tekið
einhvetjum breytingum. Það á eftir að
koma á daginn hvemig sú útfærsla
verður.
Hitt er dagljóst að fyrstu vikur nýrr-
ar ríkisstjómar virðast í einu og öllu
ætla að staðfesta spár manna um verk-
lag og vinnubrögð stjómarinnar: Kyrr-
staða, stefiiuleysi og vandræðagangur.
Þessi ríkisstjóm hefur engin sérstök
markmið. Hún ætlar ekki að gera neitt
sérstakt. Hún ætlar bara að vera. Hún
bara er.,.
Höfundur er alþingismaöur og varafor-
maður Alþýðuflokksins - Jafnaðar-
mannaflokks (slands.
Framsóknarmenn voru
ekkert að flýta sér að taka
niður flennistórt flettiskilti af
Halldóri Asgrímssyni og
Finni Ingólfssyni sem
prýddi SVR-húsið við Laekj-
artorg. Fyrir skömmu var ís-
lenskur leiðsögumaður að
lóðsa hóp japanskra ferða-
manna um borgina og þeim
varð starsýnt á hina.tröll-
vöxnu foringjamynd, og
spurðu hver þessi maður
væri eiginlega. Jú, sagði
leiðsögumaðurinn, þetta er
nýi utanríkisráðherrann okk-
ar. Það er ekkert annað,
sögðu þeir japönsku: skolli
er þetta myndarlegur og
traustvekjandi maður-en
afhverju í veröldinni á hann
svona ófríða konu...?
að kom flestum í opna
skjöldu þegar Þorsteinn
Pálsson sjávarútvegsráð-
herra lagði til í síðustu viku
að kvóti yrði settur á smá-
báta. Með þessu setti hann
vestfirska sjálfstæðismenn í
mikla klemmu enda höfðu
þeir krafist grundvallarbreyt-
inga á sjávarútvegsstefn-
unni. Á þingflokksfundi sjálf-
stæðismanna var hart tekist
á um málið, og kom fram að
fjórir þingmenn að
minnsta kosti lögðust al-
farið gegn kvóta á smá-
báta. Það voru þeir Einar
Oddur Kristjánsson og
Einar Kristinn Guö-
finnsson af Vestfjörðum,
auk Vestlendinganna
Sturlu Böðvarssonar og
Guðjóns Guðmundsson-
ar. Þá kom og fram á þing-
flokksfundinum að þrír þing-
menn lýstu miklum efa-
semdum um frumvarp Þor-
steins. Það voru Reyknes-
ingarnirÁrni M. Mathie-
sen og Kristján Pálsson
og Guðmundur Hallvarðs-
son formaður Sjómannafé-
lags Reykjavíkur. Þegar við
þetta bættist einörð and-
staða Framsóknar var ein-
sýnt að tillögur Þorsteins og
Kristjáns Ragnarssonar
„yfirráðherra" næðu ekki
fram að ganga...
r
Ymsir af liðsoddum Al-
þýðubandalagsins reyna
nú að mynda sátt um það
innan flokksins að enginn
gefi kost á sértil
varaformennsku.
Þarmeð kæmi í
hlut landsfundar í
haust að kjósa í
embættið eftir að
Ijóst er hvort
Margrét Frí-
mannsdóttir eða Stein-
grímur J. Sigfússon verð-
ur fyrir valinu í formanns-
kosningunum. Alþýðu-
bandalagsmenn vilja fyrir
hvern mun halda friðinn, og
tryggja að sá formannsfram-
bjóðandi sem verður undir
geti fengið varaformennsku
t sárabætur...
„Jedúddemia. Enn ein hrodaleg framtíðarsýn. Ég sé höfuð
þitt aðskilið frá búknum, hreyfingarlaust í blóði drifinni
drullunni. Undrunin enn greinanleg i annars líflausum aug-
um... NÆSTir
Gunnhildur Eiríksdóttir,
framkvæmdastjóri: Ég held
að það sé Víkingur.
Gunnhildur Arnardóttir,
skrifstofumaður: Ég veit að
Val hefur gengið illa þannig að
ég giska á þá.
Helga Tómasdóttir, nemi:
Valur.
Gissur Páll Gissurarson,
nemi: Ég fylgist ekki með
íþróttum, en ég veit samt að
það er Valur.
Sigurbjörg Sigurjónsdótt-
ir, nemi: Er það ekki KR?
v i t i m e n n
Mér finnst þetta mál bara
svo langsótt að ég get ekki annað
en hlegið. Ég tel mig engra hags-
muna hafa að gæta.
Halldór Ásgrímsson guðfaöir kvótakerfisins, aö-
spuröur hvort afstaöa hans til sjávarútvegsmála
tengist þeirri staöreynd aö nánustu ættingjar
hans eiga kvóta fyrir 530 milljónir. MP í gær.
Blómstrum vonandi ekki of seint.
Hörður Hilmarsson þjálfari Vals í fótbolta. Eftir
tvær umferöir hefur liöiö ekkert stig og marka-
töluna 2-10. MP í gær.
Við vorum að spila vel fyrir átta
vikum en það telur bara ekki núna.
Höröur Hilmarsson á ferö í DV.
Lítil brjóst eru ekki lýti, þvert á
móti er þægilegt að hafa lítil brjóst
og ég sé enga ástæðu til að stækka
þau. Stór brjóst eru til óþæginda
og því sjálfsagt að minnka þau.
Kolfinna Baldvinsdóttir sagnfræöingur
og fréttamaöur. MP í gær.
Fegurðardísir, sem ná frægð,
fara í taugarnar jafnt á konum
sem körlum. Við erum afbrýðis-
söm. Við þolum þær ekki fyrr
en þær komast á ævisögualdurinn
og hrukkumar í andliti
þeirra hefna okkar.
Gérard Lemarquis kennari og fréttaritari.
Kjallaragrein í DV í gær.
Vilduð þið kaupa æviminningar
konu sem hefur alltaf verið falleg,
gáfuð, óhemju aðlaðandi og auk
þess nógu ósvífin til þess að hafa
líka leyft sér að vera hamingju-
söm? - Ekki ég!
Górard aftur.
Villtir á
Vefnum
Austurstrætis-Astró Helgasonar
Halls og Björnssonar Helga klikk-
aði ekki á föstudaginn var, enda frítt
að drekka frameftir öllu og Sigurðar
snakk Hall einsog hver gat i sig troð-
ið. Á öllu léttari hátt er vart hægt að
gera íslending hamingjusaman. Aö
öðru leyti var helgin hálfaum og
annarlegur drungi sem greip okkur
Villta eftir tíðindalitla heimsókn á
kjötmarkað íslensks skemmtanalífs.
Við erum nefnilega að eldast og
sennilega hafa djammdagar lífs okk-
ar lit sínum glatað - svona að mestu
(hmmmm...). Restin af helginni var
því notuð til uppbyggjandi þvælings
á Vefnum og á http://wmw.e
ngr. usask. ca/~ iee/cartoonlaws.
html fundum við kostulega heima-
síðu Eðlisfræðilögmáls teiknimynda-
heimsins. Einsog allir - jafnvel vit-
hálfir - kannast við, þá endurskil-
greindi teiknarinn Chuck Jones eðl-
isfræðilögmál Isaac gamla Newton
með sköpunarverkum sínum Daffy
Duck og Road Runner (honkl
honkl). Síðan þá höfum við komist í
kynni við aragrúa fólks á hvíta tjald-
inu og imbakassanum sem getur til
að mynda hlaupið framaf bjargbrún,
áttað sig á mistökunum og snúið við
í lausu lofti. Nýjasta Star Trek mynd-
in er ágætt dæmi um þessi nýstár-
legu og fullkomlega óeðlilegu eðlis-
fræðilögmál sem Jones sýndi og
sannaði, að væru mun skemmtilegri
en gamla Newton-draslið sem ekkert
er hægt að leika sér með...
veröld ísaks
Það er oft talað um að Bandaríkja-
menn hafi ákveðna minnimáttarkennd
vegna þess hve lítilli hefð þjóðin býr
við á flestum sviðum. Það var til
dæmis ekki fyrr en árið 1870 sem þeir
eignuðust mann sem byggði afkomu
sína einvörðungu á leikritaskrifum.
Það var þegar Howard Bronson
skrifaði leikritið Saratoga. Fram til
þess tíma - og reyndar tuttugu árum
betur - áttu Bandaríkjamenn engan
atvinnumann á þessu sviði. Þeir
reyndar standa sig betur hvað þetta
snertir en við íslendingar en það er
önnur saga.
Byggt á Isaac Asimov's
Book of Facts.