Alþýðublaðið - 30.05.1995, Blaðsíða 5
ÞRIÐJUDAGUR 30. MAÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
5
) p u s a m t ö k
■ í 2. grein laga nýstofnaðra Evrópusamtakanna eru öll tvímæli tekin af um hvert samtökin vilja stefna til framtíðar:
„ísland sæki um aðild
að Evrópusambandinu"
Evrópusamtökin hafa verið í
sviðsljósinu undanfama daga, eink-
um vegna afdráttarlausrar stuðn-
ingsyfirlýsingar þeirra við aðildar-
umsókn að Evrópusambandinu, en
jafnframt sökum þess að þrjátíu vel
nafnkunnar persónur úr ísiensku
þjóðféiagi skipa stjóra og fulltrúaráð
samtakanna. Athyglisvert verður að
teljast, að þar eru sjálfstæðismenn,
kvennalistakonur og alþýðufiokks-
menn mest áberandi. Reyndar er
þaraa í fremstu röð einnig að finna
nokkra einstaklinga sem lítt eða ekk-
ert hafa verið bendlaðir við flokka-
pólitík. Hinsvegar var greinilega
vandað til við valið á fyrrnefndum
þrjátíu og þannig gaumgæfilega
passað uppá kynja- og flokkaskipt-
ingu. Ef ekki kæmi til skorturinn á
fólki úr hinum flokkunum þremur
væru þetta sannarlega þverpóiitísk
samtök, en þar mun einkum vera
um að kenna hræðsiu forystumanna
„flokkanna sem vantar“ um að ein-
staklingar innan þeirra raða færu að
flykkja sér til liðs við stefnu sem
andstæð er stefnu viðkomandi
flokka. Næstkomandi mánudag mun
stjóra Evrópusamtakanna að öllum
líkindum skipa þá tuttugu sem eftir
er að skipa í fulltrúaráðið og verður
fróðlegt að sjá hvort hlutur fulltrúa
„flokkanna sem vantar“ aukist Stef-
án Hrafn Hagalín kynnti sér samtök-
in í gærdag, ræddi við nokkra af
stofnendum þeirra og spurði: Af-
hverju takið þið þátt í stofnun Evr-
ópusamtakanna?
„Markmið Evrópusamtakanna eru:
að starfa að virkri þátttöku íslands í
samstarfi Evrópuríkja; að vinna að því
að ísland sæki um aðild að Evrópusam-
bandinu; að stuðla að skipulegri sam-
vinnu þjóða Evrópu á lýðræðislegum
grundvelli, í því skyni að standa vörð
um frið, frelsi, mannréttindi og auka
gagnkvæman skilning og menningar-
leg samskipti; að stuðla að upplýstum
og fordómalausum umræðum á Islandi
um samstarf Evrópuríkja; að útbreiða
upplýsingar og þekkingu um evrópskt
samstarf, jafrít um þau samstarfsform
sem nú em við lýði og ffamtíarmögu-
leika á samvinnu Evrópuríkja; að láta
fara fram athuganir og rannsóknir á
þeim málum sem tengjast evrópskri
samvinnu; að starfa með öðrum ís-
lenskum og evrópskum samtökum og
stofríunum sem hafa skylda starfsemi
með höndum." Svo hljóðar önnur grein
laga Evrópusamtakanna sem stofnuð
vom á fundi í Átthagasal Hótel Sögu
síðastliðið fimmtudagskvöld.
Vel á annað hundrað manns sóttu
stofrífundinn og var þar meðal annars
kosin sjö manna aðalstjóm sem nú hef-
ur skipt með sér verkum: Ólafur Þ.
Stephensen blaðamaður er formaður,
Drífa Hrönn Kristjánsdóttir mann-
fræðingur er varaformaður, Davíð
Stefánsson stjórnmálafræðingur er
varaformaður, Þórunn Sveinbjaraar-
dóttir stjómmálafræðingur er ritari,
Sigríður Björk Guðjónsdóttir lög-
fræðingur er gjaldkeri, Ágúst Þór
Áraason framkvæmdastjóri er útgáfrí-
stjóri, Jón Þór Sturluson hagfræðing-
ur er alþjóðlegur tengiliður.
Þriggja manna varastjóm samtak-
anna skipa Friðrik Jónsson alþjóða-
fræðingur, Magnús M. Norðdahl lög-
maður og Margrét S. Björnsdóttir
endurmenntunaistjóri.
Jafríffamt vom kjömir tuttugu full-
trúar í fulltrúaráð samtakanna: Aðal-
heiður Sjgursveinsdóttir skrifstofu-
maður, Ása Richardsdóttir fram-
kvæmdastjóri KafBleikhússins, Auður
Styrkársdóttir stjómmálafræðingur,
Birgir Hermannsson stjómmálafræð-
ingur, Ellen Ingvadóttir löggiltur
skjalaþýðandi, Guðni Guðmundsson
rektor, Gylfl Þ. Gíslason fyrrverandi
ráðherra, Inga Dóra Sigfúsdóttir
stjórnmálafræðingur, Jón Hákon
Magnússon framkvæmdastjóri, Jón
Baldvin Hannibalsson formaður Al-
þýðuflokksins, Jónas H. Haralz fyrr-
verandi bankastjóri, Markús Öm An-
tonsson ffamkvæmdastjóri RÚV, Pét-
ur J. Eiríksson framkvæmdastjóri
Flugleiða, Ragnhildur Helgadóttir
fyrrverandi ráðherra, Sigríður Ingi-
björg Ingadóttir sagnffæðingur, Sig-
urður E. Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri Húsnæðisstofnunar,
Sveinn Hannesson framkvæmdastjóri
Samtaka iðnaðarins, Valgerður
Bjarnadóttír deildarstjóri EFTA, Víg-
lundur Þorsteinsson forstjóri og Þóra
Amórsdóttir lífffæðinemi.
f lögum Evrópusamtakanna kemur
ffam að fulltrúaráðið skuli skipað fjör-
tíu mönnum, tuttugu em kosnir af aðal-
fundi og aðrir tuttugu em skipaðir af
stjóm samtakanna. Líklegt er að stjóm-
in skipi þessa tuttugu á fundi sínum
næstkomandi mánudag.
Þijátíu nafnkunnar persónur úr ís-
lensku þjóðfélagi skipa nú stjóm og
fúlltrúaráð Evrópusamtakanna og sér-
staka athygli vekur að í stjóm og full-
trúráði Evrópusamtakanna em sjálf-
stæðismenn, kvennalistakonur og al-
þýðuflokksmenn einna mest áberandi.
Það er að segja: flest af þessu fólki hef-
ur verið sterklega bendlað við þessa
þijá flokka en kannski misvirkt í starf-
inu innan þeirra. Einungis tvo til þrjá
framsóknar-, þjóðvaka- og alþýðu-
bandalagsmenn er hinsvegar að finna á
listanum og hlýtur það að sæta nokk-
urri furðu sé tekið tillit til fjölda
kvennalistakvenna þar inni. Hinsvegar
var greinilega vandað til við valið á
fyrmefrídum þijátíu og þannig gaum-
gæfilega passað uppá kynja- og flokka-
skiptingu. Ef ekki kæmi til skorturinn á
fólki úr hinum flokkunum þremur væm
þetta sannarlega þverpóhtísk samtök,
en þar mun einkum vera um að kenna
hræðslu forystumanna „flokkanna sem
vantar“ um að einstaklingar innan
þeirra raða fæm að flykkja sér til liðs
við stefríu sem andstæð er stefríu við-
komandi flokka. Fróðlegt verður að sjá
hvort eitthvað aukist hlutur þessara
þriggja flokka innan fulltrúaráðsins á
fundi stjórnarinnar næstkomandi
mánudag þegar áætlað er skipa þá tutt-
ugu sem eftir er að skipa í ráðið. Rétt er
að geta þess, að innan forystusveitar
samtakanna er einnig að finna fólk sem
lítt eða ekkert hefur verið bendlað við
flokkapólitíkina.
Alþýðublaðið ræddi við fjóra sjálf-
stæðismenn og tvær kvennahstakonur í
gær og spurði: Afhveiju takið þið þátt í
stofnun Evrópusamtakanna?
■ Davíð Stefánsson
Sjálfstæðisflokki
Eigum að
sækja um
aðild að Evrópu-
sambandinu
,Ég er þeirrar skoðunar að við eig-
um að sækja um aðild að Evrópusam-
bandinu. Það em okkar hagsmunir að
taka þátt í þessu samstarfi og það verð-
ur best gert með aðild að Evrópusam-
bandinu. Hinsvegar eigum við að anda
djúpt og taka þessu rólega, við verðum
að vita hvert stefría skal og umfram allt
er þetta ekki kapphlaup. Það er ekkert
sjálfgefið að þrátt fyrir að menn séu
fylgjandi aðild, að aðild verði lokanið-
urstaðan. Mín persónulega skoðun er
sú, að við eigum að sækja um aðild og
reyna ná íslenskum hagsmunum fram í
þeim samningaviðræðum. Ef þeir hags-
munir nást hinsvegar ekki fram þá ætla
ég síðastur manna að vera talsmaður
aðildar. Mér þykir hinsvegar líklegast
að það muni koma í ljós, að við eigum
fulla samleið með öðrum lýðfijálsum
Evrópuþjóðum og að það sem mestu
skiptir í þessu sé að sjálfstæði íslands
verði best tryggt með MlgildriJjátttöku
okkar í samfélagi þjóðanna. Eg er al-
veg sannfærður um að á næstu mánuð-
um muni stór hópur fólks úr öllum
flokkum gerast aðilar að Evrópusam-
tökunum. Það á jafnt við um minn
flokk, Sjálfstæðisflokkinn, sem aðra.
Þetta eru þverpólitísk samtök sem
vinna ekki eftir flokkalínum og innan
okkar raða er að finna fólk allsstaðar
að. Ég vil nú ekki gera mikið úr átök-
um innan einhverra flokka um hvort
fólk taki þátt eða taki ekki þátt í starfi
Evrópusamtakanna. Þama er um að
ræða spumingu sem gengur þvert á
flokkakerfið og það er auðvitað erfitt
fyrir kerfið - að minnsta kosti í fyrstu -
að taka á málinu. En ég hef litlar
áhyggjur á slíkum byijunarörðugleik-
um,“ sagði Davíð Stefánsson, fyrrver-
andi formaður Sambands ungra sjálf-
stæðismanna.
■ Þórunn Sveinbjamar-dótt-
ir Kvennalista
Hef lengi verið
á öndverori
skoðun við
Kvennalistann
,Mig langaði einfaldlega til að taka
þátt af alvöm í starfi af þessu tagi og
þessum Evrópuumræðum. Þetta hefur
lengi verið að geijast í mér og ég hef
um allnokkum tírna verið á öndverðri
skoðun við mín ágætu samtök í Evr-
ópumálunum. Ástæðan fyrir því að ég
úttalaði mig ekkert sérstaklega um
þessar skoðanir mínar í kosningabarátt-
unni er sú, að ég er auðvitað í minni-
hluta í þessum málum í Kvennalistan-
um og það er jú þannig að meirihlutinn
ræður stefríunni. Þannig er það bara í
þessum stjórnmálaflokkum," sagði
Þórunn Sveinbjamardóttir sem skipaði
þriðja sæti Kvennalistans í Reykjavík í
síðustu Alþingiskosningum.
■ Ólafur Þ. Stephensen
Sjálfstæðisflokki
Hef stutt tillögur
um ESB-aðildar
umsókn
„Ég vil nú íýrst og fremst taka þátt í
að koma af stað raunverulegri umræðu
um kosti og galla hugsanlegrar Evr-
ópusambandsaðildar íslands. Ég tel að
slík umræða hafi hingaðtil verið van-
rækt, ýtt til hliðar og menn hafi forðast
það að ræða til dæmis tengingu ís-
lenskrar þjóðemishyggju og sjálfstæðis
við nútímalegar aðstæður í heiminum.
Ég vil fyrir alla muni ræða þessi mál og
skoða þá kosti sem okkur standa til
boða í alþjóðlegu samstarfi af raunsæi
- og fordómalaust. Þessarar skoðunar
hef ég verið í allmörg ár og studdi
meðal annars fyrst tillögu um aðildar-
umsókn að Evrópusambandinu á lands-
fundi Sjálfstæðisflokksins 1989. Þann-
ig að menn á þeim bæ hafa í öllu falli
ekkert þuríf að fara í grafgötur með af-
stöðu mína í þessum málum,“ sagði
Ólafur Þ. Stephensen sem um nokkurt
árabil hefur verið áberandi í starfi innan
Sjálfstæðisflokksins.
■ Markús Öm Antonsson
Sjálfstæðisflokki
Fylgjandi
virkri patttöku
íslands í Evrópu-
sámstarfinu
„Þannig hefur nú háttað til í gegnum
starf mitt á ýmsum vettvangi, að ég hef
haff töluverð kynni af Evrópusamtök-
um og tel að það sé mjög mikilvægt
fyrir Islendinga að eiga greiða aðild þar
að. Einsog dæmin sanna höfum við
margfaldlega hagnast á því í ýmsu til-
liti og megum ekkert slaka á þeim
tengslum. Ég hef mjög lengi verið
mjög áhugasamur um Evrópusam-
vinnu og virka aðild Islands að henni.
Það sem mér finnst afar brýnt nú, er að
við fáum sem gleggstar upplýsingar
um hver staða okkar er varðandi hugs-
anlega aðild að Evrópusambandinu.
Það sem hefúr verið sagt um þá hluti er
mjög misvísandi og stangast hvað á
annars hom. Ekki síst hefur það gerst
hjá þeim erlendu aðilum sem að um-
ræðunni hafa komið. Ummæli hafa
þannig verið höfð eftir einum af ffam-
kvæmdastjómm framkvæmdanefndar
sambandsins þarsem kemur fram mjög
ákveðin skoðun hans um sjávarútvegs-
mál, að við íslendingar myndum þurfa
í einu og öllu að lúta ákvæðum Rómar-
sáttmálans um þau efríi. Ungir stjóm-
málamenn frá Þýskalandi hafa síðan
nýlega tjáð sig um að góðir möguleikar
séu á því að við fáum þama undanþágu
vegna sérstöðu okkar sjávarútvegs.
Manni fmnst það náttúrlega mjög nríð-
ur að heyra hversu misvísandi þessi
umræða er og það þarf að fá þessi mál
og ýmisleg önnur á hreint. Hvaða kost-
ir eru það til að mynda 'sem okkur
bjóðast hvað vaiðar framhaldið - hver
er okkar staða? Eftir úrslit þjóðarat-
kvæðagreiðslunnar í Noregi tel ég að
hafi myndast betra ráðrúm til að skoða
þessi mál og kannski ættu menn að
velta þvf fyrir sér hversu æskilegt það
hlutskipti það er fyrir ísland að vera
mjög lengi í þessu sérstaka kompaníi
við Norðmenn. Ég vonast til að Evr-
ópusamtökin muni geta þjónað þessu
upplýsinga- og samvinnuþróunarhlut-
verki mjög vel,“ sagði Markús Öm An-
tonsson, fyrrverandi borgarstjóri Sjálf-
stæðisflokksins.
■ Drífa Hrönn Kristjáns-
dóttir Kvennalista
Margar Kvenna-
listakonur eru á
sama máli og ég
„Ég hef í nokkur ár verið áhuga-
manneskja um að opna umræðugrund-
völl hér um hugsanlega Evrópusam-
bandsaðild íslands og tengd mál og tók
þannig afstöðu fyrir nokkmm árum.
Þessi umræða verður að fara fram á
eðlilegum nótum og við innan Kvenna-
listans höfum til að mynda alltaf getað
rætt þessi mál á skynsamlegum grund-
velli. Ég veit að margar Kvennalistak-
onur em sömu skoðunar og ég. Auðvit-
að em mjög skiptar skoðanir um þessi
mál innan allra stjómmálaflokkanna,
en ég varð eigi að síður fyrir nokkrum
vonbrigðum með að ekki skyldu koma
fleiri úr þeirra röðum til stofríunar Evr-
ópusamtakanna - það er að segja frá
Alþýðubandalagi, Framsóknarflokki og
Þjóðvaka. Ég held nefríilega að þessi
vettvangur geti orðið mjög góður til
raunsærrar og pólitískrar umræðu á
öðrum nótum en eftir flokkspólitískum
líríum. Ég veit til þess að fólk úr nokkr-
um flokkum dró sig í hlé á síðustu
skrefunum við stofnun þessara sam-
taka. Fátt vil ég segja til um hvaða
ástæður lágu þar að baki, en gmnar þó
að forystumenn flokkanna hafi talið
það miður heppilegt fyrir pólitíska
heilsu flokka sinna. Það virðist að vísu
vera þannig í pottinn búið innan
Kvennalistans að við njótum nokkurs
frelsi í þessum málum, allavega varð
ég ekki var við neinn þrýsting,“ sagði
Drífa Hrönn Kristjánsdóttir, sem um
nokkurt nokkurt skeið hefur verið virk í
starfi Kvennalistans.
■ Jón Hákon Magnússon
Sjálfstæðisflokki
Lífsspursmál fyrir
þessa þjóð að
ræða ESB-aðild
„Ég er mikill áhugamaður um al-
þjóðleg málefni og er meðal annars
formaður Samtaka um vestræna sam-
vinnu þannig að þetta Evrópusam-
bandsmál er eitthvað sem ég hef lengi
velt fyrir mér. Tíminn þrengist í sífeUu
og við verðum að fara hefja leikinn. Ég
tel því mjög nauðsynlegt fyrir þessa
þjóð að ræða þetta Evrópusambandsað-
ildarmál afar ítarlega til þess að komast
að niðurstöðu um hvað við ætlum að
gera. Við þurfum að fara átta okkur á
þvf hvar við ætlum að staðsetja okkur í
heiminum. Það er lykilmál og hefst
ekki nema við skoðum þá valkosti sem
í boði em. Þegar við erum búin að því
emm við komin í þá aðstöðu að geta
tekið ákvörðun um hvort við ætlum
þama inn eða ekki. Þannig sé ég Evr-
ópusamtökin; sem vettvang til að ræða
þessi mál og það er lífsspursmál að
gera það,“ sagði Jón Hákon Magnús-
son, bæjarírílltrúi Sjálfstæðisflokksins á
Seltjamamesi.