Alþýðublaðið - 30.05.1995, Blaðsíða 8
* *
\V\WEWílZ/
4 -8 farþega og hjólastólabílar
5 88 55 22
Þriðjudagur 30. maí 1995
79. tölublað - 76. árgangur
v *
\WRE WÍU7
4 - 8 farþega og hjólastólabílar
588 55 22
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Félagsmálaráðherra leggur EES-mál fram á Alþingi
Páll á móti eigin
frumvarpi
Páll Pétursson. Lagði fram frumvarp sem hann er sjálfur á móti.
-Er hægt að treysta
svona stjórnmálamanni
sem tekur ekki sjálfur
mark á sér? spurði Jón
Baldvin Hannibalsson.
Á Alþingi í gær þurfti Páll Pét-
ursson félagsmálaráðherra enn að
mæla fyrir EES-frumvarpi. Þetta
frumvarp fjallaði um breytingar
varðandi frjálsan atvinnu- og búsetu-
rétt launafólks innan Evrópska efna-
hagssvæðisins. Jón Baldvin Hanni-
balsson fór hinum háðulegustu orð-
um um það hlutskipti þessa krossfara
gegn EES að flytja mál sem hann
segðist vera á móti. Jón Baldvin
spurði hvort hægt væri að treysta
svona stjómmálamanni.
Þetta er þriðja atrennan til að flytja
frumvarpið. Fyrst var það flutt af fé-
lagsmálaráðherra Jóhönnu Sigurð-
ardóttur, þvínæst af félagsmálaráð-
herra Guðmundi Árna Stefánssyni
og nú í þriðja sinn af félagsmálaráð-
herra Páli Péturssyni. Hann tók fram
að hann ætlaði ekki að flytja óbreytt-
ar ræður þeirra Jóhönnu og Guð-
mundar Árna enda væri það nú svo
að hann væri eiginlega á móti þessu
máli. Honum finndist þetta vera
mjög óvenjulegt mál. Þetta bara
dyndi yfir mann og væri eitt af því
sem menn yrðu bara að kyngja. Með
þessum ummælum lagði hann málið
fyrir þingið.
Jón Baldvin Hannibalsson kvaddi
■ Arsskýrsla OECD um
íslensk efnahagsmál
Umtals-
verður
árangur
náðist
„Miðað við fyrri reynslu náðist
umtalsverður árangur í efnahags-
málum á síðasta ári,“ segir í árs-
skýrslu OECD um íslensk efna-
hagsmál 1995, en skýrslan var
birt í París í gær.
í lok niðurstöðukafla skýrsl-
unnar segir ennfremur:
„Framleiðslan hefur farið vax-
andi, atvinnuleysið hefur hætt að
aukast, verðbólga hefur verið í
lágmarki og viðskiptajöfnuðurinn
hefur sýnt viðunandi afgang. Og
horfur eru á öðru jafn góðu ári
1995. Engu að síður má gera enn
betur. Ef stjórnvöld hröðuðu að-
gerðum til að ná betri tökum á
ríkisfjármálunum, hættu að auka
útgjöld í tengslum við kjarasamn-
inga og sýndu meiri sveigjanleika
við að laga vexti að alþjóðlegri
vaxtaþróun, legðu þau sitt að
mörkum til að tryggja áframhald-
andi stöðugleika.
I samræmi við þetta ber brýna
nauðsyn til að skipulagsbreyting-
um í íslensku efnahagslífi verði
haldið áfram, sérstaklega hvað
varðar ábyrga fiskveiðistjórnun
og minni ríkisafskipti. Með því
móti má skapa skilyrði fyrir ný-
sköpun í atvinnulífinu og fyrir
auknum hagvexti þegar til lengri
tíma er litið.“
sér því næst hljóðs. Hann sagðist
hafa hlýtt með mikilli athygli á fram-
söguræðu félagsmálaráðherra og víst
væri þetta nokkuð söguleg stund.
Ráðherrann væri að flytja mál sem
hann væri á móti, tæki það samt
fram að hann yrði að kyngja þvf og
legði það fram með greinargerð þar
sem öll rök alþýðuflokksmanna sem
stýrt höfðu félagsmálaráðuneytinu
væru tíunduð. Jón Baldvin rifjaði
upp að í heil fjögur ár hefði Páll Pét-
ursson óbreyttur þingmaður í stjóm-
arandstöðu farið fremstur í flokki
þeirra sem fóm hamfömm gegn Evr-
ópska efnahagssvæðinu. Hann hefði
bókstaflega fundið því allt til foráttu.
Fullyrðingar hans hefðu verið af því
tagi að þetta væri brot á stjórnar-
skránni, framsal á landsréttindum,
löggjafar, dóms- og framkvæmda-
valdi. Hann hefði sérstaklega tekið
það fram að þetta þýddi að óvígur
floti Evrópusambandsins yrði að
veiðum hér uppi í fjörusteinum, auð-
lindir íslendinga yrðu í eigu útlend-
inga, láglaunalið úr útlöndum mundi
fylla landið, undirbjóða innfædda og
hér yrði stórfellt atvinnuleysi. Þetta
tíundaði Jón Baldvin allt með bein-
um tilvitnunum og greinarskrif Páls
Péturssonar.
Jón Baldvin sagði að síðan hefðu
þær breytingar orðið á högum Páls
að hinn galvaski krossfari gegn EES-
samningnum væri nú orðinn ráðherra
og sendiboði ríkisstjómarinnar til að
biðja Alþingi að samþykkja öll mál á
- segir Valgarður Egilsson
formaður nefndarinnar.
„Það heitir að við höfum haldið
eina 10 fúndi en þeir vom miklu fleiri
óformlegir þar sem rætt var við hina
og þessa. Númer eitt er að þetta var
sérlega skemmtilegt verkefni," segir
Valgarður Egilsson læknir. Hann er
formaður nefndar sem samgönguráð-
herra skipaði í desember 1994 og nú
er nýlega komin ffam skýrsla á vegum
nefndarinnar. Skýrslunni er ætlað að
setja fram hugmyndir og tillögur um
hvemig nýta megi sögu þjóðarinnar,
sögustaði, þjóðhætti, verkmenningu
og bókmenntir til að efla og bæta
ferðaþjónustu innanlands. í skýrslunni
kennir ýmissa grasa og í samtali sem
Alþýðublaðið átti við Valgarð kemur
ífam að margt mætti betur fara.
„Skýrslan kemur inn á allt milli
himins og jarðar en það gefur augaleið
að ekki er hægt að gera öllu skil. Við
emm ekki að fxnna upp hjólið heldur
koma með hugmyndir sem gætu bætt
ferðaþjónustuna eins og hún er núna,“
segir Valgarður en þama er víða pott-
ur brotinn en margir möguleikar.
„Það sem blasir strax við er að
Þingvellir em lokaðir 8 mánuði ársins.
Það er alveg sér á parti að það skuli
ekki einu vera hægt að kasta af sér
vatni eða finna afdrep fyrir fólk á
þessum merkasta stað þjóðarinnar."
í skýrslunni kemur fram að nauð-
synlegt sé að lágmarksþjónusta sé
veitt árið um kring. Valgarður nefnir
einnig Leiðsöguskólann sem hefur
fyrst og fremst miðast við erlenda
ferðamenn. „En við emm með aðal-
gmndvelli EES-samningsins. Þetta
væri hið fyrsta en þau ættu eftir að
koma mörg. Þetta vekti óhjákvæmi-
lega upp eina spumingu: Er það eðli-
Iegt að stjórnarandstæðingur sem
áhersluna á íslenska ferðamanninn: a.
íslendingurinn og b. hinn erlendi
ferðamaður. Við stingum upp á að
þjálfúmn miðist við það og námsbraut
við ffamhaldsskóla og jafnvel við Há-
skólann verði komið á fót,“ segir Val-
garður og telur brýnt að þar sé lögð
áhersla á íslenska sögu og bókmennt-
ir. Hann segir einnig að nefndaxmenn
hafi verið sammála um að söfn íslend-
inga þurfi að færa til nútímalegrar
móttöku ferðamanna. „Það þýðir með-
al annars," segir Valgarður, „að safna-
leiðsögumenn þurfa að vera til staðar í
söfnunum og þá einnig afdrep fyrir
gesti."
í upphafi skýrslunnar má finna
stiklur um helstu niðurstöður. Þær em
tuttugu og tvær og svo einhver sé
nefnd: „Kynna þarf heiminum að
Leifur heppni var Islendingur en ekki
Norðmaður."
Valgarður segir: „Leifur Eiríksson
er næstum því kominn með lögheimili
í Noregi í augum Ameríkana. Jú, auð-
vitað er þetta viss ffekja í Norðmönn-
um en það verður að vísu að viður-
kennast að þetta er umdeilanlegt. Var
hann kannski Grænlendingur? En það
er vitað að Leifúr ólst upp á íslandi.
Eiríkur bjó á Dröngum á Ströndum,
Öxney á Breiðafirði og vitað er að
íjölskyldan bjó einnig á Eiríksstöðum
í Dölum.“
Eiríkur var á faraldsfæti en hann
lenti í vígaferlum og þurfti að flytja
búsetu sína. Valgarður nefnir einnig
athyglisvert atriði sem ekki væri úr
vegi að koma að hjá Ameríkumönn-
um.
varar með jafn sterkum orðum við
framgangi EES-samningsins gerist
síðan ráðherra og láti eins og ekkert
hafi ískorist. Flytji á færibandi hvert
málið á fætur öðru í krafti þessa
„Guðríður Þorbjarnardóttir, sem
var mágkona Leifs, var fyrsta evr-
ópska móðirin á amerískri grund. Hún
var gift Þorsteini Eiríkssyni og
seinna Þorfinni karlsefni.
sama samnings. Framsóknarflokkur-
inn hefði í kosningabaráttunni sér-
staklega lagt á það áherslu að vinnu-
brögð í stjórnmálum skiptu höfuð-
máli. Formaður flokksins hefði verið
sérstaklega auglýstur upp sem holdg-
ervingur, ekki kvótakerfisins, heldur
traustsins og saman yrðu að fara orð
og efndir. Menn ættu að geta treyst
Framsóknarmönnum. Ut á það hefðu
þeir fengið fylgi.
„Nú er spurningin: Er hægt að
treysta stjórnmálamanni sem full-
vissaði kjósendur um það að hann
væri í krossferð gegn EES-samn-
ingnum? Varaði þjóðina svo sterk-
lega við samningnum af því hann
brýti stjórnarskrá og annað sjálf-
stæði. Sest síðan í ráðherrastól og
lætur sem ekkert hafi ískorist," sagði
Jón Baldvin Hannibalsson. Hann
sagði að ef Páll Pétursson tæki sjálf-
ur eitthvert mark á orðum sínum
hefði hann að sjálfsögðu í stjómar-
myndunarviðræðunum barist fyrir
sínum skoðunum, sínum viðhorfum
og þeirri kröfu sinni að þessum
samningi yrði sagt upp, enda væru
uppsagnarákvæði í honum. Það hefði
hann ekki gert heldur sæti Páll niður-
lútur og skömmustulegur og flytti
sama mál og hann hefði formælt áð-
ur. Páll væri eitt í stjómarandstöðu
og annað í stjórn. Það sem væri al-
varlegast væri ekki að aðrir tækju
ekki mark á honum heldur hitt, að
hann tæki ekki sjálfur mark á sér.
Hann væri orðinn að holdgervingi
ótrúmennskunnar í íslenskum stjóm-
málum. En ekki bara Páll, heldur
Framsóknarflokkurinn sem slíkur.
Af þessu spunnust síðan nokkrar
umræður. Að lokum var nauðvörn
Páls sú að segja að hann ætti eigin-
lega engan hlut að þessu máli.
Þegar Svavar Gestsson fór að
finna að því að þetta væri ekki einu
sinni á íslensku sagðist Páll
ekkert hafa þýtt þetta. Það hefði ver-
ið þýtt í tíð kratanna.
Niðurstaðan var því eiginlega
sú að þetta væri frumvarp fyrrver-
andi ríkisstjómar.
Þessi sjarmerandi kona var víðförl-
ust allra kvenna í veröldinni á þeim
tíma og fór meðal annars til Ameríku
og Rómar. Guðríður er alin upp á
Amarstapa fyrir vestan.“
■ Leifur heppni var Islendingur, ekki Norðmaður og það má gjarnan nýta Internetið til að segja frá víkingum,
norðurljósum og Björk. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá samgönguráðuneytinu þar sem settar eru fram
hugmyndir um hvernig nýta megi söguna til að efla ferðaþjónustu
„Guðríður var fyrsta evrópska
móðirin á amerískri grund"
Valgarður Egilsson: Það er alveg sér á parti að það skuli ekki einu vera
hægt að kasta af sér vatni eða finna afdrep fyrir fólk á Þingvöllum.