Alþýðublaðið - 13.06.1995, Síða 1
■ Gríðarlega hörð mótmæli trillukarla þegarfrumvarp Þorsteins Pálssonar um stjórn fiskveiða
var samþykkt við 2. umræðu á Alþingi
Við munum brjóta lögin,
verði þau samþykkt!
■ Þingmenn Framsóknar samþykktu frumvarp um fiskveiðar um leið og þeir lýstu sig andvíga því
tr pu svik-
urokkur...
Trillukarlar höfðu margt að segja
Einari Oddi Kristjánssyni, bjarg-
vætti frá Flateyri og þingmanni
Sjálfstæðisflokksins, á Austurvelli í
gær. Framundan var örlagarík at-
kvæðagreiðsla, og einn af sjó-
mönnunum sagði við Einar Odd:
„Ef þú svíkur okkur, verð ég biðjast
opinberlega afsökunar á því að
hafa kosið þig." Siðar um daginn
kom í Ijós að Einar Oddur varð ekki
við tilmælum sjómannanna en
fylgdi Þorsteini Pálssyni. A-mynd: E.ÓI.
Greenpeace
fullorðnast...
Eftir innbyrðis deilur í heilt ár
hafið aftur? Er það raunverulega
markmið löggjafarsamkomunnar að
neyða hundruð útgerða til sömu verka
með því að þvinga þá inn í aflamarks-
kerfið? Hefur þeirri spumingu verið
svarað, hvaða vandamál er verið að
leysa og hvaða vandamál er verið að
skapa? Nei, þeirri spurningu hefur
ekki verið svarað. Og ástæðan er ein-
föld: Það eru engin vandamál sem
leysast, fyrir utan það, að örfáir stórút-
gerðarmenn munu komast í betra
skap, en hinsvegar munu vandamálin
verða óteljandi og neyðin mikil hjá
ijölmörgum ljölskyldum og eigendum
krókabátanna. Og hveijum er verið að
þjóna? Er það raunverulega svo, að
hagsmunir þeirra stóru og fáu skulu
valta yfir hagsmuni hinna litlu og
mörgu? Er það raunverulega svo að
stjómvöld hafi í höndunum vísindaleg
gögn sem réttlæta gjörðir og fyrirætl-
anir sem nú em hér uppi? Engin rök
hafa verið lögð á borðið, sem réttlæta
útrýmingu krókaflotans. Sú klisja, að
sé einum fært sé frá öðmm tekið innan
fiskveiðistjómunarkerfisins, er orðin
tóm. Við spyijum: Frá hveijum er sá
afli tekinn sem er kastað í hafið aftur?
Frá hvaða aflaheimildum er hann
dreginn? í ljósi alls þessa, þá hljótum
við að neita að trúa því, að löggjafar-
samkomunni sé það ljóst, hvað hún er
nú að fara að gera. Við eigum heimt-
ingu á því, að engin þau lög verði sett
sem rústa atvinnu okkar og heimilum.
Við mótmælum því fyrirætlunum
stjómvalda og löggjafarsamkomunnar
og krefjumst þess, að það fólk sem við
höfum valið til löggjafarstarfanna,
hafi að leiðarljósi þau lögbundnu
gmndvallarmannréttindi, sem stjómar-
skráin okkar á að tryggja okkur. Ég
ætla að gera fleyg orð að mínum hér í
dag: Vér mótmælum allir!“
- sagði Arnar Barðason frá Suðureyri í ávarpi til
Davíðs Oddssonar fyrir utan Alþingishúsið í gær.
Arthur Bogason: „Hér í þessum húsakynnum er til
afgreiðslu lagafrumvarp sem í einni sviphendingu
kallar neyð og atvinnuleysi yfir hundruð fjölskyldna ...
Vér mótmælum allir!"
„Ég kem úr þorpi sem á allt sitt
undir trillubátaútgerð og ég ætla að
spyrja Davíð: Hvað ætlar hann að
setja mikið á fjárlögin til að kaupa upp
þessi þorp, um leið og þeir samþykkja
þetta?“ sagði Arnar Barðason, sem
var einn margra vestfirskra trillukarla
sem komu gagngert til Reykjavíkur í
gær, til að taka þátt í mótmælum gegn
ffumvarpi ríkisstjómarinnar um stjóm
fiskveiða. Fmmvarpið felur í sér, að
smábátaeigendur þurfa að gangast
undir mjög strangt banndagakerfi,
aukþess sem gert er ráð fyrir vemlegri
aflaskerðingu. Eftir að Arthur Boga-
son hafði afhent Davíð Oddssyni for-
sætisráðherra harðorð mótmæli trillu-
karla iyrir utan þinghúsið vildi Amar
nota tækifærið og koma skilaboðum á
framfæri til Davíðs: „Staðan er sú að
byggðin leggst í eyði, og staðan er sú
við munum ekki hlusta á þessi lög.
Það er ósköp einfalt. Við munum
bijóta þau, verði þau samþykkt.
Annaðhvort eigum við heima á
Suðureyri við Súgandafjörð, og fáum
að fiska á okkar trillubátum, eða þá að
við munum flytja úr landi. Það er ekki
um neitt að ræða. Þetta er byggðarlag
sem fiskaði fyrir tíu ámm 10 þúsund
tonn. Við emm komnir niður í tvöþús-
und tonn - og við fömm ekki neðar.
Punktur."
„Neyð og atvinnuleysi"
„Meðal fámennrar þjóðar í litlu
landi skyldum við ætla að^ekki sé ýkja
mikil hætta á að tengsl löggjafarsam-
komunnar slitni við þá þjóðfélagshópa
sem ljallað er um hveiju sinni,“ sagði
Arthur Bogason í ávarpi til útifundar-
ins á Austurvelli í gær, skömmu fyrir
atkvæðagreiðsluna á Alþingi um
frumvarpið umdeilda. Hann sagði
ennfremur: „En raunin er, svo sorglegt
sem það er, allt önnur. Hér í þessum
húsakynnum er til afgreiðslu laga-
frumvarp sem í einni sviphendingu
kallar neyð og atvinnuleysi yfir hundr-
uð ijölskyldna. Það mun á þeirri sömu
stundu og það er samþykkt gera
stærsta hluta krókaveiðiflotans verð-
lausan með tilheyrandi afleiðingum."
Hvaða herrum er
verið að þjóna?
Þá sagði Arthur: „Hvað gengur hér
á? Hvaða forsendur eru lagðar til
gmndvallar og hvaða herrum er verið
að þjóna? Trillukarlar liggja undir
ámæli vegna þess að þeir veiða meira
en gert er ráð fyrir. En getur það verið
að allur hinn fiskiskipaflotinn sé jafn-
framt að veiða meira en gert er ráð
Svartir dagar Falur Þorkelsson frá Bolungarvík var einn margra sjómanna sem fylgdust
með umræðum á Alþingi í gær. Hér heldur hann á yfirliti yfir þá daga sem krókabátum verður bannað að veiða,
verði frumvarp Þorsteins Pálssonar að lögum. Þá verða banndagar trillukarla á næsta fiskveiðiári samtals 234 -
sem er fjölgun um 73% frá því sem nú er. A-mynd: E.ÓI.
Haraldurog
hin skáldin á
Sólon Islandus
Bókaútgáfan BJARTUR gengst
fyrir bókmenntadagskrá á veitinga-
húsinu Sólon Islandus í kvöld,
þriðjudag, klukkan 20:30. í brenni-
punkti uppákomunnar verður Har-
aldur Jónsson - betur þekktur sem
samræðusnillingur og myndlistar-
maður - sem les uppúr splunkuhý-
útkominni ljóðabók sinni, Stundum
alltaf. Á Sólon í kvöld koma auk
þess fram til upplestrar skáldin:
Bragi Ólafsson fyrrverandi banka-
starfsmaður, Kristín Ómarsdóttir
bókmenntagagnrýnandi og Gerður
Kristný ísffegnritari.
Eg kannast ekki við öll þessi loforð
eru grænfriðungar þess albúnir að
velja sér nýjan skipstjóra og breyta
í leiðinni um starfsaðferðir á rót-
-sagði Siv Friðlerfsddttirviðtrillukarla á Austurvelli sem kröfðust efnda á kosningaloforðum framsóknarmanna á Reykjanesi.
„Ég kannast ekki við öll þessi
loforð," sagði Siv Friðleifsdóttir
við trillukarla á Austurvelli í gær,
sem kröfðust þess að hún upplýsti,
hvar hún hefði orðið viðskila við
kosningaloforðin um grundvallar-
breytingar í sjávarútvegsmálum. í
gær var samþykkt við aðra umræðu
á Alþingi stjórnarfrumvarp Þor-
steins Pálssonar sjávarútvegsráð-
herra um stjórn fiskveiða. Ýmsir af
þingmönnum Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks lýstu sig andvíga
ákveðnum greinum frumvarpsins,
einkum þeim sem lúta að trillukörl-
um og stjórn krókaveiða.
Trillukarlar fjölmenntu á þing-
palla og hlýddu á Siv Friðleifs-
dóttur og Hjálmar Árnason,
þingmenn Framsóknarflokksins á
Reykjanesi, þegar þau gerðu grein
fyrir atkvæði sínu. Þau kváðust
greiða atkvæði með frumvarpinu -
í trausti þess að því yrði breytt í
grundvallaratriðum. Guðjón A.
Kristjánsson varaþingmaður Sjálf-
stæðisflokksins á Vestfjörðum
greiddi atkvæði gegn umdeildustu
lagagreinunum, en athygli vakti að
Einar Oddur Kristjánsson frá
Flateyri fylgdi sjávarútvegsráð-
herra að málum.
Miklar umræður spunnust í kjöl-
far þeirrar yfirlýsingar Hjálmars
Árnasonar, sem situr í sjávarút-
vegsnefnd og skrifaði uppá meiri-
hlutaálit í málinu, að hann hefði í
reynd gert fyrirvara við stuðning í
málinu en vegna „tæknilegra mis-
taka“ hefði sá fyrirvari ekki fylgt
frumvarpinu. Ólafur G. Einarsson
forseti Álþingis upplýsti að engin
tæknileg mistök hefðu orðið í
vinnslu frumvarpsins.
tækan hátt. Thilo Bode, tilvonandi
aðalstjórnandi Greenpeace, er nú-
tímavæðingarmaður sem hefur
sterklega gefið til kynna að þessi
heimsins öflugustu og áhrifaríkustu
samtök umhverfisstríðsmanna séu
nú að búa sig undir að færa víglín-
urnar frá reginvíðáttum hafsins til
fundarherbergja stórfyrirtækjanna.
- Siá umfjöllun í miðopnu.