Alþýðublaðið - 13.06.1995, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
3
■ ■
■ Oflugustu umhverfisstríðsmenn veraldar á tímamótum
ÞRIÐJUDAGUR 13. JÚNÍ1995
Greenpeace
fullorðnast
Eftir innbyrðis deilur í heilt ár eru grænfriðungar þess albúnir að velja sér nýjan skipstjóra og breyta í leiðinni um
starfsaðferðir á róttækan hátt. Thilo Bode, tilvonandi aðalstjórnandi Greenpeace, er
nútímavæðingarmaður sem hefur sterklega gefið til kynna að þessi heimsins öflugustu og áhrifaríkustu
samtök umhverfisverndarsinna séu nú að búa sig undir að færa víglínurnar frá reginvíðáttum hafsins til
fundarherbergja stórfyrirtækjanna.
Umhverfisstríðsmenn í gamla stílnum þeysa í
áttina að úreltum olíuborpalli til að koma í veg
fyrir að honum verði sökkt. Þrátt fyrir að
Greenpeace muni vitaskuld áfram um ókomna
framtíð beita sér með aðgerðum af þessu tagi
hafa fullorðnari og þroskaðri umhverfisstríðs-
menn samtakanna sætt sig við þá stefnu að
stýra fleyjum sínum um lygnari en þó jafn skað-
vænleg vötn meginstraumsins.
Getur það verið að Greenpeace-
samtökin séu tekin að þroskast og
mýkjast með aldrinum? Ófá rök
hníga að því í dag, en það var ekki
margt sem benti til þess atama fyrir
svosem einsog áratug. Glöggt dæmi
um það er í annálum ársins 1985
þegar franska ríkisstjómin varð völd
að dauðsfalli grænfriðungs vegna
þess hversu logandi hrædd hún var
um að hinir herskáu umhverfisstríðs-
menn samtakanna myndu alvarlega
tmfla vafasamar og vægast sagt um-
deildar kjarnorkuvopnatilraunir
Frakklands í Suður-Kyrrahafinu.
Það hlýtur að teljast eitt sorgleg-
asta augnablik umhverfisvemdamm-
ræðu ofanverðrar tuttugustu aldar-
innar þegar frönsk yfirvöld sendu
tvo af leyniþjónustumönnum sínum
til að sprengja í loft upp og þannig
sökkva Rainbow Warrior, flaggskipi
Greenpeace-samtakanna, í ný-sjá-
lenskri höfn með þeim ófyrirsjáan-
legu afleiðingum að einn af ljós-
myndumm Greenpeace lét lífið.
En síðan þá hefur mikið vatn
mnnið til sjávar og yfirvofandi út-
nefning Þjóðverjans Thilo Bode sem
hins nýja aðalstjómanda Greenpeace
gefur sterklega til kynna að heimsins
öflugustu og áhrifaríkustu samtök
umhverfisverndarsinna séu að búa
sig undir að færa víglínumar frá reg-
invíðáttum hafsins til fundarher-
bergja stórfyrirtækjanna.
Á fundum sem haldnir vom í höf-
uðstöðvum Greenpeace á veraldar-
vísu í Amsterdam, Hollandi, í þar-
síðustu viku kynnti Bode til sögunn-
ar nokkuð sem samkvæmt áður
þekktum starfsaðferðum samtakanna
þýðir ekkert minna en nýja hug-
myndafræði. Bode lagði í Ámster-
dam nefnilega til að opinberum
uppákomum umhverfisstríðsmanna
Greenpeace verði héðanífrá fylgt eft-
ir með náinni samvinnu samtakanna
við aðila viðskipta- og athafnalífsins
og beinni íhlutun á mörkuðum svo
finna megi ásættanlegar úrlausnir á
umhverfisvandamálum.
Ef tilnefning Thilo Bode sem að-
alstjórnanda Greenpeace verður
samþykkt af alþjóðastjórn samtak-
anna mun hún marka endalok harð-
vítugrar innbyrðis valdabaráttu sem
staðið hefur yfir í meira en ár. Þar
hefur gefið á að líta annarsvegar hóp
umhverfisstríðsmanna af gamla skól-
anum sem staðfastlega halda fram
viðteknum starfsaðferðum herskárra
átaka og hinsvegar eru það nútíma-
væðingarmenn á borð við Boden er
einlæglega trúa því að opinberar
uppákomur sem sérhannaðar eru fyr-
ir fjölmiðla dugi hreinlega ekki leng-
ur einar sér. Nú er semsé tími til-
kominn, að finna nýjar og raunsærri
leiðir til að bjarga hnettinum frá
glötun.
Nútímavæðingarmaðurinn Thilo
Bode. Líklegastur kandídat í emb-
ætti aðalstjórnanda Greenpeace-
samtakanna.
Þrátt fyrir að flestar líkur bendi til
þess nútímavæðingarmenn með Bo-
den í broddi fylkingar muni fara með
sigur af hólmi í þessari valdabaráttu
þá hefur fómarkostnaðurinn við það
verið umtalsverður og eftir því sárs-
aukamikill. I maímánuði nýliðnum
upplifðu nútímavæðingarmenn sitt
versta áfall þegar alþjóðastjórn
Greenpeace - sem skipuð er þaul-
reyndustu grænfriðungunum - rak
aðalstjórnanda samtakanna, Paul
nokkum Gilding að nafni.
Gilding hafði ekki setið lengi á
valdastóli því það var árið 1993 sem
þessi „fýrrverandi átakasinni" var til-
nefndur og setti hann sér það tak-
mark frá upphafi að umbreyta bar-
áttuaðferðum og þarmeð ásýnd sam-
takanna, meðal annars á þann hátt að
leita liðsinnis viðskiptaheimsins. En
ekki náði viðleitni Gilding að tryggja
honum starfið nema um tveggja ára
skeið - þegar að alþjóðastjórnin
sparkaði honum. Og hverjar voru
sakimar? Jú, sagt var um Gilding að
hann hefði glapist inná slóðir „trú-
villu“ einsog þeirrar að opinberlega
lýsa yfir stuðningi við sterklega um-
hverfistengt boð Sidney í Ástralíu
um að halda Ólympíuleikana árið
2000 og að stinga saman nefjum
með viðskiptajöfrum á heimsstefnu
um efnahagsmál sem haldin var í
ferðamannabænum Davos í Sviss á
síðasta ári.
Hverju sem því leið, að Paul Gild-
ing naut gríðarlegs stuðnings meðal
starfsmanna Greenpeace um víða
veröld þá gat alþjóðastjómin - sem
er æðsta yfirvald hvað varðar störf
og stefnu samtakanna - ekki lengur á
sér setið og ávítti hann harðlega fyrir
að hafa farið alltof geyst inná brautir
samvinnu með viðskiptalífi og
stjómvöldum.
Brottrekstur Gilding varð samtsem
áður ekki til þess að kæfa nútíma-
væðingarmálið. Síður en svo, því
innbyrðis átök hinna tveggja fyrr-
nefndu hreyfinga grænfriðunga færð-
ust enn í aukana í kjölfar þess að
tvær umferðir yfirgripsmikillar
heimsleitir að aðalstjómanda skiluðu
engu.
Þegar alþjóðastjómin loksins bætti
síðan gráu ofaná svart og gekk svo
langt að gera það að tillögu sinni, að
150 til 300 milljóna niðurskurður
yrði framkvæmdur á fjárlögum
Greenpeace þá varð óánægjan svo
megn að uppreisnar varð vart - jafn-
vel á hæstu stöðum. Þannig náði al-
þjóðastjómin afar naumlega að halda
sér á floti f vantraustsatkvæða-
greiðslu í síðasta mánuði og varð í
kjölfar þess að samþykkja afarkosti
níu landssamtaka Greenpeace svo
lægja mætti öldumar: Útneíhið Thilo
Bode sem aðalstjómanda Grenpeace-
samtakanna eða horfið framá hugs-
anlegan stuðningsskort og van-
traustsyfirlýsingu - bæði að fjár-
hagslegu og öðru leyti - af hálfu
landssamtakanna.
Allt þykir benda til þess að al-
þjóðastjórnin fari að óskum lands-
samtakanna og að hinn 48 ára Thilo
Bode taki við stjómtaumunum innan
skamms. Ef útnefning hans verður
að vemleika er deginum ljósara að
sigur nútímavæðingarmanna er stað-
reynd.
Sem yfirstjórnandi Greenpeace-
samtakanna í Þýskalandi frá árinu
1989 hefur Bode leitt eina best
heppnuðustu og frumlegustu herferð
samtakanna til vemdar umhverfinu.
Takmark númer eitt, tvö og þijú var
áþreifanlegur árangur og undir ör-
uggri og hugmyndaríkri stjóm Bode
fóru samtökin f fararbroddi þeirra
umbreytinga sem kynntu óson-vina-
legan green-freeze-kæliskáp til sög-
unnar á Þýskalandsmarkaði árið
1993.
Og þannig háttaði til að Green-
peace-samtökin í Þýskalandi störf-
uðu að því verkefni náið með þar-
lendu iðnfyrirtæki svo takast mætti
að þróa og síðan markaðssetja þessa
óson-vinalegu tækni og nú em meira
að segja lönd einsog Kína og Indland
farin að vakna til vitundar um hvem-
ig nýta megi hana umhverfinu til
heilla. Þetta verkefni er litið á sem
nánast fullkomið dæmi um hvernig
hyggilegast sé Greenpeace-samtökin
starfi í framtíðinni.
Umhverfisstrfðsmennirnir af
gamla, herskáa skólanum eru hins-
vegar ekki par hrifnir af þessari
framvindu mála. Á meðan þýskir
grænfriðungar taka sér sæti í fundar-
herbergjum stórfyrirtækjanna er slík
samvinna (og öll álíka hegðun) enn-
þá álitin í meira lagi vafasöm meðal
grænfriðunga í til dæmis Bandaríkj-
unum og Kanada.
„Enn sem komið er má finna
þrjóskufulla hreyfingu fólks innan
Greenpeace-samtakanna er lítur á
bindisskrýdda jakkafata-náungana
sem illa að upplagi og innræti," segir
Paul Gilding, er í dag starfar sem
umhverfisúrlausna-ráðgjafi.
Richard Titchen, boðskiptastjóri
Greenpeace, er tilaðgera sammála
þessu viðhorfi Gilding: „Beinar að-
gerðir eru hjartað og sálin í Green-
peace. Óróatilfinning hefur gripið
um sig meðal háværs minnihluta
samtakanna; fólks sem óttast að of
langt sé nú þegar gengið eftir vegi
skynsamlegra úrlausna og að þessi
ganga geti leitt samtökin í hættu.“
Hversvegna í ósköpunum þarfnast
Greenpeace-samtökin nýrra starfsað-
ferða og hugmyndafræði, nú loksins
þegar þau hafa sannað sig sem rót-
tækt afl er umhverfisfjendur þurfa að
taka með í reikninginn? Þetta er
spurning sem gömlu umhverfis-
stríðsmennirnir velta fyrir sér þes?a
dagana. Umbótamennirnir svara
þessháttar vangaveltum með því að
segja umhverfismálin einfaldlega
gríðarmiklum mun flóknari en þau
voru fyrir tuttugu árum. Breyttar að-
stæður kalli á breyttar starfsaðferðir
„Undir öruggri og hugmyndaríkri stjórn Bode
fóru samtökin [í Þýskalandi] í fararbroddi þeirra
umbreytinga sem kynntu óson-vinalegan green-
freeze-kæliskáp til sögunnar á Þýskalandsmark-
aði árið 1993. Og þannig háttaði til að Green-
peace-samtökin í Þýskalandi störfuðu að því
verkefni náið með þarlendu iðnfyrirtæki."