Alþýðublaðið - 05.07.1995, Síða 3

Alþýðublaðið - 05.07.1995, Síða 3
MIÐVIKUDAGUR 5. JÚLÍ1995 ALÞÝÐUBLAÐHD 3 s k o ð a n i r Matargat(t)ið. m Um þessar mundir er gúrkutíð í mínu lífi rétt eins og íjölnnðlanna. Á sumrin er eins og öll félagsstarfsemi leggist niður, meira að segja sauma- klúbbamir mínir koma sjaldnar saman og þá aðallega um helga til að fagna lífinu. Það íyrsta sem mér dettur í hug þeg- ar ég hef skyndilega nægan tíma þegar ég kem heim úr vinnunni er að borða. Það er fátt skemmtilegra en að prófa nýjar uppskriftir og festast í húsmóður- hlutverkinu í nokkrar vikur. Mittið er hins vegar farið að breikka ískyggilega og því datt mér það snjallræði í hug að prófa grænmetisuppskriftir; þær geta varla verið alvondar. Nú, ég skrifa nið- ur hvað mig vantar og storma galvösk í matvöruverslun. Pallborðið Þar sem ég stend við grænmetisúr- valið í versluninni verð ég smám sam- an reynslunni ríkari. Rétturinn sem ég ætla að búa til væri ódýrari ef ég skipti út grænmetinu íyrir kjöthakk. Otrúlegt en satt. Ég sem hélt í einfeldni minni að nú væri ódýrt að borða grænmeti. Hmmm, og ekki virðist sem GATT- samningurinn bjargi neinu. Alþýðu- flokknum var ekki treyst til að halda áffam með málið og allt h'tur út fýrir að innflutningur á grænmeti verði lítill sem enginn. Sennilega verður græn- metið jaíhvel heldur dýrara heldur en það hefur verið. Neytendur hafa verið gabbaðir. Þarna sem ég stend (ennþá) við grænmetisborðið varð mér hugsað til móður minnar sem ól mig vel upp (hvemig sem sjálfsuppeldið gekk svo síðar). Og eitt það besta sem hún kenndi mér var gildi þess að borða hollan og góðan mat: ,A hvetjum degi verðurðu að borða fæðu úr öllum fæðu- hringnum, þannig færðu öll næringar- efnin, þú ert það sem þú borðar...“ Viðskiptafræðingurinn kemur skyndilega upp í mér og ég reyni að h'ta á málið írá öðrum sjónarhóh: ef hollur matur er dýrari en óhollur má gera ráð fyrir því að neytandinn sé tilbúinn að borga meira fyrir hollari mat, hann/hún vill hugsa vel um heilsuna. En hvaða neytendur geta borgað meira fýrir mat? Frá sjónarhóli blanks neytanda sem er að bera saman tvenns konar hráefni þá skiptir hollustan litlu máli (maður verður jafh saddur hvort eð er). Hollara hráefnið væri þá ef til vill aðeins keypt tíl hátíðarbrigða. Fæða er undirstaða mannsins. Heil- brigði - og þar af leiðandi andlegt ástand - byggist að miklu leyti á fæð- unni. Ef hollustufæði er dýrara en msl- fæði leitar fólk að sjálfsögðu frekar í ruslfæðið. Hvar endar þá hin heilbrigða íslenska þjóð ef hollt fæði verður að- eins fyrir þá sem geta borgað meira fyrir mat, vegna þess eins að hann er hollari? En það er ekki aðeins grænmetið sem er dýrt heldur er diet-cola drykkur ódýrari en undanrenna. Ætli diet-cola sé gott út á hafragrautinn? Það setur að mér hroll og ég tek rándýra grænmetið og set það í kþrfuna. Ég sleppi bara að kaupa fötin sem ég ætlaði að kaupa mér, sennilega meira vit í því að nota þau sein ég á. Og þá verður mér enn og afitur hugs- að til móður minnar. Hún hafði ekki þetta val. Hún gat ekki sleppt einu til að geta keypt annað, hún vann bara því meira og var alltaf í tveimur vinnum. Allt tíl þess að ungunum liði sem best og matargatið, dóttirin, hefði nóg að borða. Ætli ég hringi ekki í haha í kvöld og bjóði henni í mat, hún á það svo sann- arlega inni hjá mér. Eg gríp síðan gúrku með mér í salat- ið, já, gúrkutí'ðin er ekki svo slæm þrátt fyrir allt. ■ Höfundur er viðskiptafræðingur og jafnaðarmaður. Þar sem ég stend við grænmetisúrvalið í versluninni verð ég smám saman reynsl- unni ríkari. Rétturinn sem ég ætla að búa til væri ódýrari ef ég skipti út grænmetinu fyrir kjöthakk. Ótrúlegt en satt. Hmmm, og ekki virðist sem GATT-samningurinn bjargi neinu. Alþýðuflokknum var ekki treyst til að halda áfram með málið og allt lítur út fyrir að innflutningur á grænmeti verði lítill sem enginn. h i n u m e g i n “FarSide" eftir Gary Larson. Nýtt Mannlífer komið út, og er í fínu formi. Forsíðuna prýða sómahjónin Egill Ólafs- son og Tinna Gunnlaugs- dóttir og telja kunnugir að þarmeð sé þriðja hringferð þeirra um forsíður glanstíma- ritanna hafin. Að þessu sinni er að vísu bryddað uppá þeirri nýbreytni að Ólafur sonur þeirra er með í för og viðtali. Áhugamenn um pólitik munu lesa viðtal Elísabetar Þor- geirsdóttur við Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur með mikilli athygli. Þar segir hún frá reynslu sinni af fyrsta árinu í borgarstjórastólnum, og veltir meðal annars fyrir sér hvort hún þurfi að taka upp stjórnun- araðferðir Davfðs Oddssonar, forvera síns í embætti, til að ná tökum á embaettismannakerf- inu. Rithöfundurinn og fót- boltagarpurinn Þorgrímur Þróinsson gerir sér lítið fyrir og tekur viðtöl við dauða menn - „stjórnendur" miðils- ins Þórhalls Guðmundsson- ar. Þeir sem hafa meiri áhuga á fólki af holdi og blóði munu eflaust gleðjast yfir myndum af fegurðardrottningu íslands, Hrafnhildi Hafsteinsdóttur, á sumarklæðum. Aðdáendur Hugh Grant ættu siðan að lesa vandlega umfjöllun Gerð- ar Kristnýjar um framhjá- hald... in tíðu verkföll uppá síð- kastið hafa orðið til þess að vekja heitar umræður um hvort verkfallsvopnið sé úrelt. I gær sögðum við frá heitstreng- ingum Guðmundar Birkis Þorkelssonar skólameistara á Húsavík, sem ætlar að beita sér fyrir því að kennarar afsali sér verkfallsrétti. Jóhannes Sig- urjónsson ritstjóri Víkurblads- insá Húsavík kemur með frumlega lausn á málinu, ein- sog honum einum er lagið, í leiðara nýs tölublaðs. Hvað hefði gerst, spyr Jóhannes, ef kennarar hefðu ekki farið í verkfall heldur safnað skuld- bindandi undirskriftum meðal kennara, nemenda og annarra stuðningsmanna, þess efnis aö þeir myndu ekki kjósa sitjandi ríkisstjórnarflokka næstu 10 ár- in, nema viðunandi samningar næðust? Ritstjórinn kemur með þá hugmynd að Verka- mannasambandið gæti safnað 50 þúsund undirskriftum þar- sem menn skuldbinda sig til þess að kaupa ekki kók(!) næstu 10 árin, né heldur borga áskrift að Stöð 2, Mogganum eða DV. Myndi slík hótun ekki valda meiri þrýstingi á farsæla lausn mála en venjulegt verk- fall? spyr Jóhannes. Við kom- um þessu hérmeð áleiðis... Hrókeringará Máli og menn- ingu vekja mikla athygli, enda um að ræða stærsta bókaforlag landsins og það sem mest ocj best sinnir bók- menntum. Arni Einarsson, sem þykir hafa stýrt forlaginu með glæsibrag síðustu ár, átti sjálfur frumkvæði að skipu- lagsbreytingum, sem meðal annars fela í sér að hann mun frá 1. september einbeita sér að rekstri verslana MM. Sig- urður Svavarsson sem hefur haldið utanum skólabókaút- gáfu forlagsins sest hinsvegar í framkvæmdastjórastólinn. Skólabókaútgáfa MM hefur einmitt blómstrað síðustu árin og því er Sigurður talinn verð- ugur arftaki Árna. I bókaheim- inum heyrum við talað um ákvörðun Árna Einarssonar af mikilli virðingu: raunar þykir hann sanna einu sinni enn að hann er hvergi smeykur að taka djarfarákvarðanir... Það fyrsta sem Oli H. Þórðarson, fyrrverandi framkvæmda- stjóri Umferðarráðs, gerði þegar hann fluttist til Egypta- lands var að taka svokallað kamel-ökupróf. Öllum á óvart fúxaði Óli með lítilli sæmd og hverju sem leið þrálátum bænarskjalasendingum til Hosni Mubaraks forseta var hon- um ekki veitt annað tækifæri til að taka prófið. Telur þú að Dagblaðið í Tævan (The United Peoples Daily) hafi rangt eftir forseta íslands? Þráinn Gunnlaugsson, dyravörður: Ég tel að það sé ekkert mark takandi á þessu liði í Tævan. Birna Anna Björnsdóttir, nemi: Já, að sjálfsögðu treystí ég orð- um Vigdísar forseta. Hulda Björk Garðarsdóttir, verslunarmaður: Ég treysti orðum forsetans fúll- komlega. Lára Aðalsteinsdóttir, verslunarmaður: Þetta er orðamisskilningur. Ari Allansson, smur- brauðsdama: Að sjálfsögðu. Það hefur orðið einhver misskilningur milli blaðamanns og forsetans. v i t i m e n n Lömbin þagna. Frásögn Noröurslóöar af riöuveiki á Tjörn í Svarfaðardal. Aðkoman var hryllileg. Ibúðin var í rusL íbúi í Vesturbænum um innrás sex starra í íbúö hans. Mogginn í gær. Hræsni heimsins ríður ekki við einteyming. Um fátt fólk í fréttum er meira rætt en hin sjálfsögðu og eðlilegu skyndikynni g skyndisamfarir breska leikarans og (júfmennisins Hughs Grants og iituðu gleðikonunnar Divine Brown í Los Angeles nú nýverið. Magnús H. Skarphéöinsson, dýra- og mannvinur, bauð lesendum DV uppá óvænt sjónarhorn á „óheppni" Hugh Grant. Sjálfsagðara en allt sem sjálfsagt er er fyrir þá sem ekki eiga nægan kost á samförum (að eigin mati) á ógreiddum framboðs- og eftir- spurnarmarkaði samtímans að geta keypt samfarir og aðrar þær kynlífsnautnir og athafnir hvar sem er og helst hvenær sem er ... Það eru engin skynsamleg rök lengur til í dag gegn frjálsum ástum ... Hvílík hræsni og hvílík heimska. Áfram Hugh Grant. Hann er okkar maður! Sami Magnús í sama DV. Davíð Oddsson hefði líklega ekki verið svona ákafur að byggja húsið ef hann hefði vitað að hann væri að byggja það fyrir mig! Ingibjörg Sólrún Gísladóttir á skrifstofu sinni í Ráðhúsinu í viðtali við Mannlíf. ímynd Kvennalistans var einfaldlega mjög veik í síðustu kosningum. Ingibjörg Sólrún í Mannlífi. Kratarnir eyða, Jóhann Gunnar framkvæmir og Ellert borgar. Fyrirsögn á pistli Oskars Bergssonar um Hafnarfjaröarmál. Tíminn í gær. Þú verður uppnuminn af nýju áhugamáli í kvöld sem mun eiga hug þinn og hjarta næstu vikurnar. Ef þú ert að spá í hjónaskilnað er semsagt rétti tíminn núna. Stjörnuspá vatnsberans íTímanum í gær. Framkoma stúlkunnar er allt í senn; lágkúruleg, heimskuleg og dónaleg og standa gamanyrði mín engan veginn undir ásökunum hennar. Ævareiöur Þorsteinn Thorarensen bókaútgefandi að bera af sér ásakanir Kolfinnu Baldvinsdóttur um rasisma og Arabahatur. Mogginn í gær. Vaxandi kreppueinkenni setja mjög mark sitt á samskipti Bandaríkjamanna og Evrópu. Það er afskaplega mikilvægt að snúið verði af þeirri glötunarbraut. Úr forystugrein Morgunblaðsins í gær. Lesendur Alþýðublaðsins kannast vel við hversu grimmir sálfræðingar geta oft og tíðum verið í orðum sínum og athæfi. Sigmund Freud kastaði þannig Victor Tausk, langefnilegasta nemanda sínum, útí ystu myrkur eftir að hafa fyllst tvöfaldri afbrýðissemi í hans garð: annarsvegar vegna frnrn- leika hugmynda hans og hinsvegar vegna ástkonu hans. Svosem nokkuð dæmigerð viðbrögð lærimeistara í garð nemenda sem taka þeim fram, en Tausk var ekki að tvínóna við að sýna óánægju sína með þennan út- legðardóm Freud og framdi umsvifa- laust sjálfsmorð. Þegar Freud heyrði af dauða fyrrverandi nemanda síns varð honum að orði: ,Æg sakna hans ekki í' raun og veru. Mér hafði lengi fundist hann gagnslaus með öllu - eiginlega ógn við framtí'ðina." Já, ekkert vera að skafa utanaf því. Byggt á Isaac Asimov's Book of Facts.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.