Alþýðublaðið - 06.07.1995, Side 1

Alþýðublaðið - 06.07.1995, Side 1
Nú stefnir í að útgjöld heilbrigðiskerfisins fari einn milljarð framúr fjárlögum ef ekkert verður aðhafst. - Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra útilokar ekki að stofnunum verði lokað Mikil ótíðindi verður raunin - segir Össur Skarphéðinsson, formaður heilbrigðis- og trygginganefndar Alþingis. „Heilbrigðis- og trygginganefnd Alþingis hefur ekki haft neinn pata af þessum fyrirætlunum ráðherrans. Af máli hennar í fréttum sjónvarps var ekki annað að skilja en það væri nú til mjög alvarlegrar yfirvegunar í ráðuneyti hennar 'að loka einhveijum stofnunum. Ég hlýt að spyija hvaða stofnunum eigi að loka,“ sagði Össur Skarphéðinsson, formaður heilbrigðis- og trygginganefndar Alþingis, í samtali við Alþýðublaðið. I fréttum sjónvarps í fyrrakvöld var rætt um að um einn milljarð króna skorti í heilbrigðiskerfið á þessu ári miðað við fjárlög. Ingi- björg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra kvaðst ekki útiloka að það þyrfti að mæta þessum vanda með því að loka einhverjum stofnunum. Alþýðublaðinu tókst ekki að ná tali af Ingibjörgu í gær þar sem hún var á ferð norður í landi. Blaðið sneri sér því til Össurar Skarphéðinssonar og spurði hvort þetta mál hefði komið til kasta heilbrigðis- og trygginga- nefndar. „Nei, og þetta er í algjörri mótsögn við það sem einmitt vor ást- kæri heilbrigðisráðherra sagði allt síðasta kjörtímabil og alla kosninga- baráttuna. Enginn var harðari gegn lokun deilda, hvað þá heilla stofnana en Ingibjörg Pálmadóttir. Ég tel þetta mikil ótíðindi ef þetta verður raunin. Hins vegar hjó ég eftir, eins og stundum verður vart í fari okkar ágæta ráðherra, að hún virtist ekki viss og hafði bersýnilega ekki komið sér niður á neina fasta stefnu um hvemig hún ætti að ná þeim spamaði sem krafist er af henni,“ sagði Össur. „Ég hefði hins vegar vænst þess í framhaldi af málflutningi hennar meðan hún var í stjómarandstöðu, að hún mundi leggja í harðara stríð við fjármálaráðherrann til þess að tryggja rekstrarfjármagn til stofnana sinna en nú virðist vera raunin. Það er sem sagt ekki sama hvort menn em í stjóm eða stjómarandstöðu. En verði það ofaná að stofnunum verði lokað held ég að það muni reynast ef þetta Ingibjörg Pálmadóttir: Vel hugsan- legt að mæta þurfi miklum fjár- hagsvanda ríkissjóðs með því að loka stofnunum. Össur Skarphéðinsson: Framsókn- armenn eyddu miklum tíma fyrir stuttu í að skammast í Alþýðu- flokknum fyrir mildari aðgerðir. erfiður biti að kyngja fyrir marga framsóknarmenn sem eyddu alltof miklum tíma fyrir örfáum mánuðum í að skammast í Alþýðuflokknum fyrir aðgerðir sem sýnast miklu mildari en þær sem ráðherrann boðar nú með bros á vör,“ sagði Össur Skarphéðinsson. Endurunnið lesmál í gær hófst umfangsmikil söfnun á dagblöðum, tímaritum og öðru prent- máli til endurvinnslu á höfuðborgarsvæðinu. Borgarstjórinn í Reykjavík, Ingibjörg Sólrún Gisladóttir, reið á vað- ið og henti dágóðum slatta af lesmáli. I kjölfarið fylgdu svo ungir umhverfissinnar. A- myndir: E.ÓI. ■ Fundahöld um vanda sauðfjárbænda Gera þarf kerfíð sveigjanlegra - segir Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna. „Ég geri mér vonir um að á næstu vikum náist samkomulag um megin- leiðir til að leysa vanda sauðfjárbænda. Þeir kostir sem mönnum bjóðast verða að liggja fyrir áður en sláturtíð hefst í haust. Það er ekkert sem heitir með það,“ sagði Sigurgeir Þorgeirsson, framkvæmdastjóri Bændasamtakanna, í samtali við Alþýðublaðið. Fundahöld hafa verið í gangi um endurskoðun búvörusamningsins með það fyrir augum að leysa vanda sauð- fjárbænda sem margir er komnir á fjár- hagslega heljarþröm. „Menn eru að horfa til þess hvemig hægt sé að ná einhverjum hluta ffam- leiðenda út og gera þetta kerfi sveigjan- legra um leið og reynt er að móta fram- tíðarkerfi sem býður uppá það að menn geti spjarað sig. Það er formlega skip- aðar nefndir ffá báðum aðilum sem em að fjalla um þetta mál. Nefndarmenn ríkisins koma úr landbúnaðarráðuneyt- inu, ffá fjármálaráðuneyti og Byggða- stofnun. Síðan em fulltrúar úr stjóm Bændasamtakanna og formaður Lands- samtaka sauðfjárbænda sem eru í samninganefndinni héma megin. Ég vinn með þeim að málinu ásamt hag- fræðingi Bændasamtakanna," sagði Sigurgeir. Hann sagði að ekkert væri hægt að segja til hvenær niðurstaða fengist í málinu. „Ég hef enga trú á að þessu ljúki fyrr en með haustinu eða í haust. En ég geri mér vonir um að við náum saman um meginleiðir innan mjög langs tíma þó að einhver vinna verði eftir við að út- færa þær í smáatriðum. En þetla er ekki einfalt mál og ég skal því ekki fullyrða að þetta náist. I raun og veru hefðu ákvarðanir þurft að liggja fyrir áður en bændur bám á í vor. Það gerði það ekki og þá má segja að næsta þrep sé slátur- tíðin í haust. Þeir kostir sem bjóðast verða að liggja fyrir áður en hún hefst,“ sagði Sigurgeir Þorgeirsson. ■ Helga Jónsdóttir borgarritari í Reykjavík í trássi við sjálfstæðismenn Óska Helgu ve\- farnaðar í starfi -segir Ámi Sigfússon oddviti sjálfstæðismanna, „Við höfum aldrei sagt að við ætl- uðum að segja þessum samningi upp. Við höfum setið hjá við ákvörðun þessa máls alveg ffá upphafi. Okkar at- hugasemdir hafa aldrei snúist um per- sónu Helgu Jónsdóttur eða hæfileika hennar til að gegna starfi borgarritara. Hæfileikar hennar til starfsins munu koma í ljós, og einstaklingurinn verður auðvitað bara metinn af verðleikum sínum. Ég vænti þess einfaldlega að hún eigi fyrir. höndum langt og farsælt starf, því ekki veitir af,“ sagði Arni Sigfússon, oddviti Sjálfstæðisflokks- ins í borgarstjórn Reykjavíkur, að- spurður hvort sjálfstæðismenn ætluðu að gera alvöru úr því að segja upp ráðningarsamningi Helgu Jónsdóttur. Helga var ráðin borgarritari í fyrradag með atkvæðum Reykjavíkurlistans en fulltrúar Sjálfstæðisflokksins sám hjá. Sjálfstæðismenn gagnrýndu ráðningu Helgu mjög harkalega á sínum tíma. Ami sagði að full ástæða væri til að undirstrika og ítreka harkaleg viðbrögð sjálfstæðismanna: „Þau voru vegna þess að það var aldrei farið yfir um- sóknir um starf borgarritara í borgar- ráði. Atta manns sóttu um stöðuna og aldrei var farið yfir umsóknirnar á þeim stað þarsem það skyldi gert. Síð- an er búið að ráða ýmsa forsvarsmenn stofnana borgarinnar, það er búið að ráða framkvæmdastjóra atvinnu- og ferðamálastofu, ferðamálafulltrúa, þjónustufulltrúa hjá dagvist bama og nýja yfirmenn hjá strætó. Umsóknir þeirra hafa verið teknar fyrir, nöfn allra umsækjanda hafa verið kynnt, starfs- ferill og reynsla rædd í fagnefndum. í framhaldi af þessu hefur síðan venð tekin ákvörðun, hvort sem menn em sammála henni eða ekki. Þetta eru eðlileg vinnubrögð. Þetta var ekki gert þegar borgarritari var ráðinn og því töldum við að þessi vinnubrögð væm í þeim anda sem R-listinn notaði þegar pólitískur aðstoðarmaður borgarstjóra var valinn. Þessvegna gagnrýndum við þetta mjög hart og sögðum að ef þann- ig yrði áfram staðið að ráðningum, þá þyrfti væntanlega að endurskoða slíkar ráðningar þegar R-Iistinn færi frá. Það tel ég vera mjög eðlileg viðbrögð við svona vinnubrögð. En málið hefur semsagt aldrei snúist um persónu Helgu Jónsdóttur, og margt bendir til þess að þama sé hæfur einstaklingur og við óskum henni auðvitað velfam- aðar í starfi," sagði Ámi Sigfússon. ■ Herstöðvaandstæðingar Norskt herlið Miðnefnd Samtaka herstöðvaand- stæðinga mótmælir harðlega fyrirhug- uðum heræfmgum Bandaríkjahers hér á landi og þátttöku norska hersins í þeim. Þetta kemur fram í ályktun sem samtökih sendu frá sér í gær. Þar segir ennfremur: „Heræfingar hér á landi þjóna engum vitrænum tilgangi. Of lengi hefur bandaríski herinn stundað þann ósóma hérlendis og ekki er þar á bætandi herjum fleiri ríkja. Það er „óvelkomið" krafa herstöðvaandstæðinga að ríkis- stjórnin stöðvi heræfingar utan her- stöðvarinnar og bjóði ekki fleiri er- lendum herjum afnot af fslandi. Þá mótmæla Samtök herstöðvaandstæð- inga því við norsk stjómvöld að þau séu að senda her til íslands og lýsa þann her óvelkominn. Samtök her- stöðvaandstæðinga munu fýlgja þess- um mótmælum eftir í verki er til her- æfinga hérlendis kemur.“

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.