Alþýðublaðið - 06.07.1995, Blaðsíða 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ1995
Cynthia Payne og Screaming Lord Sutch
í einlægu viðtali um vináttu sína
Cynthia Payne, 64 ára, fæddist í Bognor. Árið 1980
sat hún af sér fjögurra mánaða fangelsisdóm fyrir að
reka vændishús. Cynthia hefur verið umfjöllunarefni
tveggja kvikmynda, Personal Services og Wish You
Were Here. Árið 1988 bauð hún sig fram í bresku
þingkosningum undir merkjum The Payne and
Pleasure Party-sem á íslensku gæti útlagstsem
Þjáninga- og unaðsflokkurinn... Cynthia Payne
náði því miður ekki kjöri á þing.
David Sutch, 54 ára, er leiðtogi Official Monster
Raving Loony Party-Opinbera og skrýmslislega
brjálæðingaflokksins (?) - og hefur gengt
leiðtogahlutverkinu lengur en nokkur annar
foringi stjórnmálaflokks á Bretlandi. Hann bauð
sig fyrst fram til breska þingsins 22 ára gamall árið
1963 og hefur frá þeim tíma boðið sig fram í alls
37 þingkosningum og aukakosningum. David Sutch
býr einn í London og á einn son, hinn tvítuga Tristan.
Cynthia Payne
Þegar ég losnaði úr fangelsi árið
1980 benti ein vinkona mín í blaða-
mannastétt mér á, að ég ætti að reyna
fá kynlífslögunum breytt. Hún sagði
að besta leiðin til að gera það væri að
bjóða sig fram til þings og ef Scream-
ing Lord Sutch gæti gert það, þá gæti
ég líka gert það. Auðvitað kannaðist
ég strax við nafnið hans, en vissi svo-
sem ekki mikið um kappann. Það var
ekki fyrren árið 1988 sem ég hitti
Sutch í fyrsta skipti í eigin persónu því
að þá bauð ég mig fram í aukakosn-
ingunum í Kensington sem ffambjóð-
andi eigin flokks, The Payne and
Pleasure Party.
Einn daginn í kosningabaráttunni
stóð ég síðan á aðalgötunni í Kensing-
ton og var í miðju sjónvarpsviðtali
þegar bijálaður náungi með pípuhatt
stökk skyndilega fyrir framan sjón-
varpsmyndavélamar. Ég var frekar
pirruð á þessari ffamkomu og spurði
næstu manneskju: „Hver í ósköpunum
er þetta?“ Kosningastjórinn minn
svaraði að bragði: „Þetta, Cynthia, er
Screaming Lord Sutch." Hann sá strax
að ég var fúl yftr atvikinu þannig að
hann lét sig hverfa, en sneri tilbaka
hálftíma síðar og við fómm að spjalla
saman. Ég held að Sutch haft verið að
reyna sleikja mig upp því hann vissi,
að ef Cynthia Paype myndi bjóða sig
fram til þings myndi hann fá góða
auglýsingu útúr því sömuleiðis. Kosn-
ingamar og úrslit þeirra vom frábær.
Ég fékk 400 atkvæði, en hann í kring-
um 193 atkvæði - svipað og hann
hlýtur venjulega.
Hveiju sem því h'ður þá urðum við
vinir uppfrá þessu. Þegar ég kynntist
Sutch fyrst var ég hálfgáttuð á honum.
Ég hef hitt margt vemlega undarlegt
fólk yftr ævina, en enginn þeirra kom-
ist í hálfkvisti við hann í furðulegheit-
um. Ég hef lært mikið af Sutch um
popptónlist því hann er með svona
rokksýningar á krám og í klúbbum og
aflar sér þannig lífsviðurværis. Hann
hefur komið mér í kynni við mikið af
góðri tónlist. Sutch er í gmnninn ham-
ingjusamur og skemmtilegur gaur;
þegar hann kemur inná krá eða inná
einhvem stað kemur hann öllum um-
svifalaust til að hlæja. Hann segir
þessa undirfurðulegu brandara og
venjulega þarf ég að heyra þá nokkr-
um sinnum áður en ég skil þá, en þá
fer ég líka að skellihlæja. Sutch hefur
aldrei staðið í því að elta hvert pils í
augsýn - hann er ekki einsog svo
margir karlmenn sem em hreinlega á
konuveiðum allan liðlangan daginn.
Hann hefur heldur aldrei viljað giftast
eða neitt þvíumlíkt þrátt fyrir að hann
hafi auðvitað átt margar yndislegar
vinkonur.
Hann er gjörsamlega hugfanginn af
öllu þessu kosninga- og framboðs-
vafstri. Hann elskar það af öllu hjarta.
Og Sutch er stórkostlegur því hann
kemur frá lágstéttarfjölskyldu og ég
dáist að því hvemig hann ákvað einn
daginn að sanna sjálfur fyrir fólki, að
hver sem er gæti boðið sig fram í
þingkosningum. En hann er alltaf
seinn fyrir. Seinn til alls og ég get orð-
ið alveg brjáluð útaf því. Skömmu eft-
ir að ég kynntist Sutch bauð ég honum
heim í kringum 19:30 og hann mætti á
miðnætti. Það var afar dæmigert.
Hann hefur alls ekkert tímaskyn eða
auga fyrir tímasetningum atburða. Og
ég held að það hafi verið risastór
áhrifavaldur á allan hans stjómmála-
feril. Ég held að Sutch hefði komist á
toppinn ef ekki væri fýrir kolbrenglað
tímaskynið.
Ég held að Sutch haft líkað vel við
mig því hann vissi að ég vildi ekki
þekkja hann einungis vegna þess að
hann var frægur. Töluvert margir vilja
láta sjá sig með Sutch af þeirri ástæðu
einni; hann fær svo mikla athygli
hvert sem hann fer. Ég vissi hinsvegar
að hann þarfnaðist ekki slíkrar fram-
komu af minni hálfu og gat því slakað
rækilega á í nærveru minni. Og hann
kemur hingað í heimsókn til mín og
við spjöllum saman í rólegheitunum.
Ég held að við Sutch eigum það
helst sameiginlegt, að við vitum fátt
skemmtilegra en að hneyksla fólk.
Hann er með nokkurskonar hryllings-
atriði um Kviðristu-Kobba sem hann
fer með á krár og klúbba og hneykslar
fólk með. Ég geri ráð fyrir að sumt
fólk fmnist ég að mörgu leyti hneyksl-
anleg. Ég hafði sérstaklega gaman af
því að hneyksla fólk þegar ég var lítil
stelpa. Ég gerði það gjaman sem bam
og unglingur að draga niðumm mig
nærbuxumar í garði foreldra minna og
sýna nágrönnunum rassinn eða jafhvel
dansa kviknakin um túnblettinn. Og
nágrannamir vom hneykslaðir. Sutch
hefúr enn afskaplega gaman af því að
hneyksla fólk þó að ég sjálf sé nokkuð
viss um að vera laus við þessar til-
hneigingar í dag.
Eitt er það sem ég kann best við í
fari hans og það er þessi náttúrulega
gáfa til að kæta fólk og koma því í
gott skap. Hann er trúður; kemur öll-
um til að hlæja og það þótt hann sjálf-
ur sé í þunglyndiskasti. Og Sutch er
ótrúlega snöggur að kveikja á leikara-
skapnum og gríninu; maður nær varla
að slíta hann frá áheyrendunum. Ég
tek hann oft með á fínar fmmsýningar
sem fylgdarmann minn, en hann er
ekki Iengi í fylgd minni því jafnskjótt
og hann er mættur á staðinn hverfur
hann á braut til að koma öllum um-
hverfis sig að hlæja. Það er eitthvað
svo bamslegt við hann. Auk þess get
ég ekki afborið félagsskap manna sem
drekka og Sutch snertir ekki áfengi -
bara te og drekkur svona tuttugu bolla
af því uppá hvern einasta dag. Ég
kalla hann Sutch, en ekki David því
þegar ég hélt veislumar í gamla daga
var ég vön að kalla gestina með ættar-
nöfnum þeirra til að ég ruglaðist ekki
á öllum þessum náungum sem hétu
annaðhvort David, Robert eða John.
Ef ég á að vera fullkomlega heiðar-
leg held ég, að ég sé betri vinur hans
en hann minn. En þegar ég veiktist al-
varlega árið 1989 og átti fyrir höndum
erfiðan uppskurð sem ég skelfdist
gríðarlega mætti hann galvaskur á
sjúkrahúsið og gladdi mig ósegjanlega
mikið með fíflaskapnum í sér. Þetta
var ómetanlegt á svona hræðilegu
tfmabili. Sutch hjálpaði mér þannig
við að komast yfir þunglyndið, nokk-
uð sem engum öðmm karlmanni hefur
tekist.
Hann er mjög nærgætin sál. En það
er eitthvað hálf yfirnáttúrulegt við
hann - eitthvað sem ég get ekki alveg
neglt niður. Ég kann ofboðslega vel
við sérvitra menn og konur og fólk
segir einnig að ég sé hálf sérvitur. Ég
hef hinsvegar miklu meira viðskipta-
vit en Sutch. Yfir heildina litið emm
við sennilega ágætt par: tvær svona
sérvitrar manneskjur.
Ég hitti hann enn mjög oft. Annaðs-
lagið fer ég útað versla með honum -
kannski á Portobello-markaðinn eða
eitthvað svoleiðis - og hann segir
ósköp vandræðalegur: „Heyrðu, ég
þarf rétt að skreppa inní þessa verslun
þarna. Verð bara mínútu." Þremur
klukkustundum síðar stend ég enn í
sömu sporunum og ekkert bólar á
Sutch. Hann er bilaður. Hvernig
myndi líf mitt vera án hans? Allavega
miklum mun rólegra. Það er afturám-
óti alltaf eitthvað mikið og afskaplega
áhrifamikið að gerast í lífi hans og ef
ég myndi aldrei framar hitta hann þá
myndi ég sakna þessa hamagangs heil
ósköp. ■
Screaming Lord Sutch
Ég hitti Cynthiu fyrst í kringum
aukakosningamar í Kensington. Við
vomm í sömu andrá stödd í áróðurs-
skyni á aðalgötunni og rákumst bara á
hvort annað. Vitaskuld vissi ég hver
hún var vegna allrar umfjöllunarinnar
sem hún naut á þessum tfma. Við
mættumst, spjölluðum smástund og
létum síðan taka myndir af okkur
saman. Það var dáh'tið skrýtið hvemig
þetta kom allt saman til, en um leið og
við hittumst réðumst við hálfvegis að
hvort öðm og uppgötvuðum um leið
og við kunnum bara rækalli vel við
hvort annað. Cynthia sakaði mig um
að reyna stela kastara sviðsljóssins frá
sér, en í dag nýt ég miklu meiri at-
hygli en hún - þannig að þetta hefur
gengið upp og niður hjá okkur í gegn-
um tíðina.
Ég hélt fyrst að Cynthia væri dæmi-
gerður vingull, loftkennd kona með
ótakmarkað skopskyn og gleðigandur
hinn mesti þannig að ég gat vel
ímyndað mér hana reka vændishúsin
sín í þessum gamla og góða mellu-
mömmustíl. Síðan komst ég að því að
hún tók inní vændishúsaveislurnar
síhar allar stærðir og gerðir af körlum
og konum, jafnvel fólk í hjólastólum.
Cynthia var í þá tíð kölluð Freddie
Laker (hinn breski Jóhannes í Bónus)
kynlífsins vegna þess að öll hennar
starfsemi var rekin á neytendavænum
spottprís. Eitt stykki vændiskona og
allt það sem maður gat étið og drukkið
kostaði hlægileg 20 pund (2.000 krón-
ur) sem óneitanlega þótti frekar lítill
peningur fyrir svo góða skemmtun.
Mér fannst Cynthia rosalega fyndin
persónuleiki og okkur kom afar vel
saman þannig að við gerðum náttúr-
lega svolítið af þvf að troða upp
saman.
Ég hélt sigurveislu nóttina fyrir
kjördag ásamt hljómsveit minni,
Screaming Lord Sutch and the Sava-
ges, og Cynthia mætti á staðinn og tók
fullan þátt í fjörinu. Ég held ávallt sig-
urveislu nóttina fyrir kjördag. Hún
fékk fleiri atkvæði en ég og ég var
verulega fúll yfir því vegna þess að
hún gerði ekkert annað en að herma
eftir mér - að bjóða sig fram til þings
og allt það - og vegna þess að hún
fékk svo mikla fjölmiðlaathygli útaf
kynlífsveislunum sem hún hélt. En nú
hef ég jafnað mig fullkomlega á þeim
vonbrigðum og tekið sjálfan mig og
flokkinn saman í andlitinu: fæ nú allt-
af á milli 600 og 800 atkvæði. I
Rotherham fékk ég meira að segja
tæplega 1.200 atkvæði þannig að við
erum augljóslega að færa okkur núna
yfir í þungavigtardeildina.
Eftir að Kensington-aukakosning-
unum lauk var stjömum prýdd veisla
haldin á skemmtistaðnum String-
fellows, við Cynthia ræddum þar mik-
ið saman og náðum prýðilega vel til
hvors annars. Hún álpaðist þar hins-
vegar til að segja mér hversu frábær
kosningastjórinn sinn, Gloria, væri og
í næstu kosningum gerði ég mér auð-
vitað lítið fyrir og stal frá henni kosn-
ingastjóranum. Gloria stóð sig með
prýði og þökk sé henni fengum við
helling af atkvæðum.
Cynthia er fi'n til að hlæja með og
gera grín, en það er gjörsamlega
ómögulegt að segja henni brandara.
Maður kemur að fyndna hlutanum í
brandaranum og Cynthia starir bara á
mann skilningsvana augum. Það er
ekki bara mínir brandarar sem fara
svona skakkt í hana, það skiptir nefni-
lega nákvæmlega engu máli hver segir
henni brandara. Ég hef reynt að ganga
í augun á henni með því að fá fólk sér-
staklega til að segja henni hrikalega
fýndna brandara. Sögumaðurinn kem-
ur st'ðan að fyndna hlutanum og bíður
í ofvæni eftir að Cynthia skelli uppúr,
en það gerist ekki. Andlitið er alveg
svipbrigðalaust því hún nær ekki
fyndninni. Jafhvel dónalegir brandarar
fara fyrir ofan garð og neðan hjá
henni. Meira að segja þegar maður út-
skýrir brandarann í smáatriðum þá
skilur hún ekki fyndnina. Aldrei. Ég
veit ekki afhveiju.
Ég fer á margar fi'nar kvikmynda-
frumsýningar með henni; ég virkilega
nýt þess og það er langoftast tilkynnt í
blöðunum daginn eftir að við höfum
mætt á svæðið - blöðin kalla okkur
yfirleitt ,JFurðuparið frábæra".
Það sem mér finnst einna skemmti-
legast við Cynthiu er að hún hittir
mjög oft ákaflega frægt og umtalað
fólk, en hefur ekki græna glóru um
hver þau eru vegna þess að hún fylgist
ekkert með fjölmiðlunum. Stundum er
hún kynnt fyrir einhverri risastórri
kvikmyndastjömu á borð við Harrison
Ford og hún hefur aldrei heyrt á
manninn minnst. í kvöldverðarboðum
kemur fræga fólkið til Cynthiu og bið-
ur náðarsamlegast um eiginhandarárit-
un hennar og hún spyr blásakleysis-
lega á móti hvernig nöfn þessa fræga
fólks séu stöfuð.
• Einu sinni var ég staddur heima hjá
Cynthiu og hún fékk símhringingu frá
einhveijum náunga sem sagðist endi-
lega vilja bjóða henni í veislu þarsem
faðir hans væri gríðarmikill aðdáandi
hennar. Þessi náungi sagðist ætla
senda eftir henni í li'mósínu ef hún
væri til í veisluna. Cynthia sagði hins-
vegar: „Og hver ert þú, með leyfi að
spyrja?" Hann sagði: „George
Michael." Hún sagði: „Ég hef aldrei
heyrt þín getið, góði minn. Vertu
blessaður." Að þessum orðum sögð-
um lagði hún símtólið á. Ég gat ekki
trúað henni þegar hún sagði mér hver
hefði verið að hringja. Ég sagði Cynt-
hiu strax að hún bókstaflega yrði að
fara því í veislunni yrði statt fullt af
frægu fólki - til dæmis Elton John og
Paul McCartney. En hún hafði aldrei
heyrt um þessa menn áður vegna þess
að hún þekkir ekkert til poppheimsins.
Ef þú nefnir hljómsveitir einsog Pink
Floyd eða Led Zeppelin við hana
færðu einungis spurnarsvip á móti.
Málið er að Cynthia þekkir bara menn
einsog Frank Sinatra og Tom Jones.
George Michael var hinsvegar nægi-
lega hugaður til að hringja aftur og
þrábiðja hana um að mæta í veisluna
og loksins gaf hún eftir.
Cynthia er virkilega þijósk og skilur
þarafleiðandi hlutina oft á versta veg:
þann vitlausa. Og það skiptir engu
þótt maður útskýri fyrir henni í smáat-
riðum hvemig hún hafi gjörsamlega
og algjörlega rangt fyrir sér. Hún tek-
ur það ekki í mál. Cynthia á það til að
halda því fram að Paddy Ashdown sé
leiðtogi Ihaldsflokksins og ég segi:
,J4ei, Cynthia, ekki láta svona. Paddy
er leiðtogi Frjálslyndra demókrata."
Það hrín af henni liíctog vatn af gæs og
hún heldur því áfram statt og stöðugt
fram að Paddy sé leiðtogi íhalds-
flokksins. Þessu er þannig háttað, að
hún einfaldlega trúir ekki að hún geti
haft rangt fyrir sér. Hvað sem gengur
á.
Ég held að Cynthiu þyki afar vænt
um mig. Henni finnst ég vera
skemmtilegur og ólíkur hinum strák-
unum. Hún hefur eldað fyrir mig eina
og eina máltíð og er vel liðtæk í garð-
inum. Ég dáist að þessum hæfileikum
hennar. Það eina sem er í raun og vem
bogið við Cynthiu er að hún hefur til-
hneigingu til að vera öll útötuð í katta-
hámm því hún tekur hvem flæking-
skött sem á vegi hennar verður uppá
arma sfna. Hún hefur að minnsta kosti
tuttugu ketti í húsinu sínu. Heimili
hennar er í raun og vem kattahótel.
Cynthia er mjög væn kona og blíð.
Hún getur endalaust hlustað á mig
þusa um vandamál mín og við verðum
alltaf félagar. Ég hef átt mína góðu og
slæmu daga með henni því hún á það
til að rífast dálítið í mér og er frekar
fhaldssöm í háttemi. En hún er svona
aðeins að róast í rifrildisdeildinni.
Hvers myndi ég mest sakna ef ég hitti
hana aldrei framar? Ekki eldamennsk-
unnar, það eitt er víst. En þetta
brosandi og hamingjusama andlit...
já, ég held ég myndi sakna þess mest
af öllu. ■
Byggt á The independent