Alþýðublaðið - 06.07.1995, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 6. JÚLÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐHD
7
m e n n i n g
„Ég reyni einfaldlega að nýta mér þau
A-mynd: E.ÓI.
kom heim frá námi í Stokkhólmi eft-
ir að hafa unnið árin þar á undan sem
offsetljósmyndari - og það útlærður.
Sýningin í Listhúsi 39 verður opin
virka daga frá klukkan 10:00 til
18:00, laugardaga klukkan 12:00 til
18:00 og sunnudaga 14:00 til 18:00.
Sýningin stendur til 20. júlí.
■ Víólutónleikar í Keflavíkurkirkju
Bach, Britten, Hind-
emith og Brahms
Margrét Theódóra I
Hjaltested víóluleikari
heldur tónleika fl
Keflavíkur-kirkju
sunnudaginn 9. júh' og
hefjast þeir klukkan I
16:00. Flytjendur auk J
Margrétar eru píanó-
leikarinn Eduard
Laurel og Ingvcldur
Ýr Jónsdóttir mess-
ósópransöngkona.
Á tónleikunum I
verður boðið upp á |
blandaða efnisskrá fyr- prenningin sem treður upp í Keflavíkurkirkju:
ir víólu, með verkum Margrét Theódóra Hjaltested víóluleikari, Eduard
eftir J.S. Bach, Benj- [_aure| pfanóleikari og Ingveldur Ýr Jónsdóttir
amin Bntten Paul messósópransöngkona.
Hmdemith og Johann-
es Brahms, en verk þess síðastnefhda
er samið fyrir víólu og messósópran.
Margrét Theódóra stundaði nám við
Tónlistarskólann í Reykjavík, lauk það-
an burtfarar- og fiðlukennaraprófi árið
1989, og hélt sama ár í framhaldsnám
til Bandaríkjanna. Hún lauk BM-gráðu
frá Juilliard skólanum árið 1992 og
Mastergráðu vorið 1994 frá Mannes
College of Music í New York. Auk
þess hefur hún tekið þátt í tónlistarhá-
tíðum vfðs vegar um Bandaríkin.
Margrét býr og starfar í New York, þar
sem hún leikur með ýmsum hljóm-
sveitum og kammerhópum, þar á með-
al The Opera Orchestra of New York
og Long Island Philharmonic.
Píanóleikarinn Eduard Laurel nam
við University of Texas og Manhattan
School of Music í New York. Hann
hefur víða komið fram á einleiks- og
kammertónleikum, starfar meðal ann-
ars við Mannes School of Music, og er
eftirsóttur undirleikari á New York
svæðinu.
Ingveldur Ýr Jónsdóttir nam við
Söngskólann í Reykjavík, Tónlistarhá-
skólann í Vínarborg og Manhattan
School of Music. Hún hefúr tekið þátt i
óperuuppfærslum, haldið tónleika hér á
landi og víða erlendis, og verður fast-
ráðin við óperuna í Lyon í Frakklandi
komandi vetur.
■ í tilefni 100 ára afmælis kvikmyndalistarinnar
Félag frönskukennara á íslandi í
samvinnu við franska sendiráðið og
kvikmyndahús hyggst efna til rit-
gerðasamkeppni um franskar kvik-
myndir í tilefni 100 ára afmælis
kvikmyndalistarinnar - sem er í ár.
Markmið samkeppninnar er að
verðlauna nemendur sem náð hafa
góðum árangri í frönskunámi sínu og
hvetja þá til frekara frönskunáms í
framhaldsskólum og stuðla þannig
að því að kynna betur franska tungu
og menningu hérlendis. Keppninni
verður hleypt af stokkunum í sept-
ember næstkomandi en þá geta nem-
endur farið að sjá franskar kvik-
myndir í kvikmyndahúsum, en sjálf
samkeppnin ntun eiga sér stað í mars
eða apríl. Allir framhaldsskólanem-
endur geta tekið þátt, ef þeir uppfylla
ákveðin inntökuskilyrði sem verður
skýrt nánar frá í haust.
Félag frönskukennara á íslandi
hélt upp á 20 ára afmæli sitt í nóv-
ember síðastliðnum og af því tilefni
var Vigdís Finnbogadóttir forseti
gerð að heiðursfélaga. Vigdís er
menntuð í frönskum leikbókmennt-
um og stundaði meðal annars
frönskukennslu áður en hún varð for-
seti. Hún hefur verið ötull talsmaður
R'rtgerðasam-
keppni um franskar
kvikmyndir
Ferðumst aldrei án korta
- er slagorð Landmælinga íslands.
Landmælingar íslands hafa gefið
út nýtt ferðakort af íslandi í mæli-
kvarðanum 1:500.000. Kortið er
gefið út í hefðbundinni kartonkápu,
en um mitt sumar verður það einn-
ig fáanlegt í plastpoka ásamt nafna-
skrá. Ferðakortið veitir nýjustu
upplýsingar um þjóðvegakerfið,
veganúmer, vegalengdir og gerð
slitlags, auk bestu fáanlega heimilda
um slóða á hálendi landsins. Á kort-
inu er auk þess að finna upplýsing-
ar um gististaði, söfn, sundlaugar og
fleira - og á kápu má finna upplýs-
ingar um ferðaþjónustu í öllum
þéttbýlisstöðum.
frönskukennslu og er einn af stuðn-
ingsmönnum og málsvörum fransk-
íslenskrar orðabókar sem unnin hef-
ur verið í samvinnu við félag
frönskukennara, íslenska og franska
ríkið. Orðabókin er væntanleg á
markað í haust. Stjórn félags
frönskukennara skipa Petrína Rós
Karlsdóttir formaður, Soffía Kjar-
an ritari, Guðný Árnadóttir gjald-
keri, meðstjórnendur Sigrún H.
Halldórsdóttir og Fanný Ingvars-
dóttir.
■ Myndlist
Breti sýnir í Fold og Þrastarlundi
Nú standa yfrr sýningar á verkum
enska listamannsins Hugh Dunford
Wood í Gallerí Fold við Rauðarár-
stíg og í Þrastarlundi.
Wood er fæddur á Englandi árið
1949. Hann nam myndlist við ýmsa
skóla í Bretlandi, meðal annars við
hin virta skóla Ruskin School of
Drawing and Fine Art, svo og í Bras-
ilíu, Frakklandi og á Spáni. Hann
hefur haldið einkasýningar og tekið
þátt í samsýningum víða um heim.
Myndirnar sem hann sýnir hér eru
landslagsmyndir, gerðar með akrýl-
litum.
Opið er í Gallerí Fold virka daga
frá klukkan 10:00 til 18:00 og laug-
ardaga frá klukkan 10:00 til 16:00.
Kynningunni þar lýkur 15. júlí en
sýningunni í Þrastarlundi þann 16.
■ Klúbbur Listasumarsins - á Akureyri - í kvöld
Einu sinni var...
- er söngdagskrá Höipu Harðardóttur, Ágústu
Sigrúnar Ágústsdóttur og Reynis Jónassonar.
í Klúbbi Listasumars Akureyrar í
kvöld verður flutt dagskrá sem ber
nafnið Einu sinni var.... Söngdag-
skráin sem þær Harpa Harðardóttir
og Ágústa Sigrún Ágústsdóttir flytja
ásamt harmoníkuleikaranum Reyni
Jónassyni, er að mörgu leyti ólík því
sem gengur og gerist.
I dagskránni er að frnna margar af
þeim perlum íslenskrar dægurtónlistar
sem urðu vinsælar um miðbik aldar-
innar. Lagasmiðimir áttu þá sameigin-
legu þörf að túlka tilfmningar og hug-
hrif sem þeir urðu fyrir í amstri dags-
ins. Fæstir höfðu þeir tónlistina að að-
alstarfi og margir komu fyrst fram í
tengslum við danslagakeppnir á árun-
um í kring um 1950. Þeir áttu það
sameiginlegt að semja lög sem þjóðin
tók fagnandi. Þeir voru andlegir fagur-
kerar og sannkölluð alþýðutónskáld.
Flutt verða lög í kvöld eftir Sigfús
Halldórsson, Oddgeir Kristjánsson,
Freymóð Jóhannesson og marga
fleiri snillinga. I hópi textahöfunda
eru menn á borð við Tómas Guð-
mundsson og Kristján frá Djúpa-
læk.
Söngkonurnar Harpa og Ágústa
Sigrún hafa báðar lokið byrtfararprófi
frá Söngskólanum í Reykjavík. Þær
hafa báðar sungið á tónleikum og tek-
ið þátt í óperuuppfærslum, Ágústa
Sigrún söng hlutverk Madame Giry í
Óperudraugnum hjá Leikfélagi Akur-
eyrar árið 1994. Reyni Jónasson þarf
vart að kynna en hann er löngu lands-
frægur tónlistarmaður. Auk þess að
vera organisti í Neskirkju hefur hann
leikið margskonar tónlist á harm-
ónikku. Hann hefur Ieikið bæði djass
og dægurtónlist með tónlistarmönnum
á við Szymon Kuran og Bubba
Morthens.
Tónlistina sem þau flytja í Deigl-
unni hafa þau áður flutt við góðar
undirtektir í Kaffileikhúsinu í Reykja-
vík.
Húsið opnar klukkan 21:00 og tón-
leikamir heijast klukkutíma síðar.
■ Evrópska kvikmyndasjóðnum
Eurimages líst vel á Djöflaeyjuna
Friðrik Þór fær 17
millión króna styrk
Eurimages, kvikmyndasjóður Evr-
ópuráðsins, veitir 17 milljón króna
styrk til gerðar kvikmyndarinnar
Djöflaeyjan, sem íslenska kvikmynda-
samsteypan framleiðir undir stjórn
Friðriks Þórs Friðrikssonar kvik-
myndagerðarmanns. Framleiðendur í
Þýskalandi og Noregi munu einnig
vinna að myndinni. Uthlutunin var
ákveðin á fundi stjómar Eurimages í
Osló hinn 20. júní.
Eurimages veitir styrki til sam-
starfsverkefna í kvikmyndagerð, sem
framleiðendur í þremur eða fleiri Evr-
ópulöndum vinna að. Á fundinum í
Osló voru lagðar fram umsóknir
vegna 40 nýrra kvikmynda frá fram-
leiðendum i ýmsum Evrópulöndum.
Samþykkt var að styrkja 18 þessara
verkeftia.
Á fundi stjómar Eurimages í apríl
síðastliðnum var einnig samþykktur
17 milljón króna styrkur til kvikmynd-
arinnar Agnes, sem Snorri Þórisson
Friðrik Þór: Með 17 milljónir í vas-
anum frá Eurimages. A- mynd: E.ÓI.
framleiðir í samvinnu við aðila í
Þýskalandi og Danmörku. Fulltrúi ís-
lands í stjóm Eurimages er Markús
Örn Antonsson.
DAGBLOÐ; TÍMf W
Sérstakir gámar hafa verið settir upp undir blöð og tímarit.
■ Söfnun á prentmáli til endurvinnslu
Stefnt að 15 þúsund
tonna útflutningi
í gær hófst söfnun á dagblöðum,
tímaritum og öðm prentefni til endur-
vinnslu á höfuðborgarsvæðinu. Sér-
stakir söfnunargámar hafa verið settir
upp á fjölfömum stöðum svo sem við
verslunarmiðstöðvar og bensínstöðv-
ar. Jafnframt er tekið við pappír á öll-
um gámastöðvum Sorpu.
Þetta átak er gert í tilraunaskyni en
söfnunin verður til frambúðar ef vel
tekst tíl. f fyrra vom flutt út rúm þijú
þúsund tonn af pappír til endurvinnslu
og markmiðið er að fimmfalda þenn-
an útflutning að minnsta kosti. Pappír-
inn er fluttur til Svíþjóðar og endu-
mnninn þar.