Alþýðublaðið - 11.07.1995, Page 2

Alþýðublaðið - 11.07.1995, Page 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 11. JÚLÍ1995 s k o ð a n i r MPYDUBIMÐ 20948. tölublað Hverfisgötu 8-10 Reykjavík Sími 562 5566 Útgefandi Alprent Ritstjórar Hrafn Jökulsson SiguröurTómas Björgvinsson Fréttastjóri Stefán Hrafn Hagalín Auglýsingastjóri Ámundi Ámundason Umbrot Gagarín hf. Prentun ísafoldarprentsmiðjan hf. Ritstjórn, auglýsingar og dreifing Sími 562 5566 Fax 562 9244 Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði. Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk Davíð og vinir hans Davíð Oddsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðis- flokksins, hefur eignast nýja vini og pólitíska samheija. Þá sækir hann í hugmyndalegt þrotabú Alþýðubandalagsins, og hefðu einu sinni þótt fréttir. í ræðu sinni á þjóðhátíðardaginn afneitaði Davíð á mjög af- dráttarlausan hátt mögulegri aðild íslands að Evrópusambandinu (ESB), og skipaði sér þarmeð í fremstu röð andstæðinga ESB einsog leiðarahöfundur Morgunblaðsins orðaði það. Ræða Dav- íðs hafði meðal annars í för með sér að fjöldi sjálfstæðismanna gekk til liðs við nýstofnuð Evrópusamtök - en fagnaðarlæti heyrðust einkum frá afdönkuðum þjóðemissósíalistum Alþýðu- bandalagsins. í síðustu viku skrifaði Ámi Bergmann, fyrrum ritstjóri Þjóðvilj- ans, afar athyglisverða grein í DV þarsem hann bar lof og pns á Davíð fyrir afstöðu hans til Evrópusambandsins. Bjöm Bjamason menntamálaráðherra, og einn nánasti samherji Davíðs, háði á ár- um kalda stríðsins marga hildi við Áma Bergmann. Það er því ekki nema von að Bjöm hafi hrokkið við þegar hann sá hinn nýja pólitíska rekkjunaut formanns Sjálfstæðisflokksins. Bjöm skrifar grein í DV í gær um málið og segir meðal annars: „Fáir hefðu vænst þess, að umræður um utanríkismál þróuðust á þann veg hér á landi, að Ámi Bergmann, fyrrverandi ritstjóri Þjóðviljans, sem ávallt var tilkvaddur áður fyrr til að halda á málstað Sovétríkj- anna og sósíalisma, tæki upp hanskann fyrir formann Sjálfstæðis- flokksins í utanríkismálaumræðum.“ Sú var tíð, að margir höfðu trú á Davíð Oddssyni sem fijáls- lyndum og nútímalegum stjómmálamanni. Annað hefur komið rækilega á daginn. Davíð Oddsson leiðir einu ríkisstjómina í heiminum sem notar GATT, samning um aukið ffelsi í viðskipt- um milli landa, til þess að hækka tollamúra og torvelda innflutn- ing. Davíð Oddsson stendur dyggan vörð um ranglátt lénskerfi í sjávarútvegi sem er að leiða til þess að sameiginlegar auðhndir þjóðarinnar safnast á æ færri hendur. Davíð Oddsson lætur sem vind um eyru þjóta þótt ríflega helmingur kjósenda Sjálfstæðis- flokksins vilji láta á það reyna með aðildammsókn hvemig samn- ingum er hægt að ná við ESB. Davíð Oddsson hefur reynst vera gamaldags og hugmyndasnauður valdapólitíkus, sem mest á sam- eiginlegt með gjaldþrotamönnum þjóðemissósíalismans. Samanber hið fomkveðna: Segðu mér hveijir vinir þínir em - og ég skal segja þér hver þú ert. Islendingar í bóndabeygju EES „Pósturinn Páll" og Alþingi verða að taka við EES-póstinum og afgreiða hann, og dómstólar ESB og EES skapa nýjan rétt með dómstörfum sínum sem við verðum að fylgja. Að mati lög- fróðra verður réttarsköpun dómstólanna áhrifameiri á EES-svæðinu en íslendingar gerðu almennt ráð fyrir. Það hefur komið æ betur í ljos a síðustu mánuðum að samningurinn um Evrópska efnahagssvæðið er stjómarfarsleg gildra. Hann tryggir okkur sambærilegt viðskiptaumhverfi og grannþjóðir njóta en við erum því sem næst áhrifalaus um framvindu mála. „Pósturinn Páll“ og Alþingi verða að taka við EES-póstinum og afgreiða hann og dómstólar ESB og EES skapa nýjan rétt með dómstörf- um sínum sem við verðum að fylgja. Að mati lögfróðra sem fylgjast með málum, eins og Davíðs Þórs Björg- vinssonar, verður réttarsköpun dóm- stólanna áhrifameiri á EES-svæðinu en íslendingar gerðu almennt ráð fyrir við samþykkt EES-samningsins. EES nægir okkur og tryggir hags- muni okkar, sögðu Sjálfstæðisflokkur- inn og Mogginn. EES er vegabréf Is- lands inn í 21. öldina, sagði Jón Bald- vin Hannibalsson. Hvorttveggja var rangt. Hið rétta er að EES-samningur- inn var ófullnægjandi út frá fullveldis- sjónarmiði þjóðanna. Þá er fullveldis- hugtakið fyrst og fremst skilgreint sem möguleikinn til þess að hafa áhrif á ákvarðanir, hvort sem þær em tekn- ar á þinginu heima eða í alþjóðasam- tökum. Þessvegna sóttu Finnland, Noregur og Svíþjóð um aðild að Evr- ópusambandinu. EES var stjómarfars- leg bóndabeygja sem hægt var að una við um hríð, en ekki til lengdar. Brotist um f bóndabeygjunni íslendingar em nú að bijótast um í bóndabeygjunni. Alþýðuflokkurinn vill komast út úr henni inn í Evrópu- sambandið. Evrópusamtök hafa verið stofnuð með ESB- aðild á stefnuskrá. Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra er enn að leita að leið til aukaaðildar eða aukinna áhrifa okkar á þær ákvarðanir ESB sem skipta máli fyrir íslenska hagsmuni. Alþýðubandalagið vill tvíhliða viðskptasamning við ESB í stað EES. Og Davíð Oddsson vitnar í Jónas Hallgrímsson. Enda þótt for- sætisráðherra uni vel við EES þá held- ur Sjálfstæðisflokkurinn opnu fyrir því að endurmeta afstöðu sína í ljósi ríkjaráðstefnu Evrópusambandsins sem hefst á næsta ári og mun taka ákvarðanir um stækkun bandalagsins og innra skipulag. Hver vill sprikla í bóndabeygju um alla framtíð? Enginn! Þessvegna er verið að spyija Emmu Bonino, sem fer með sjávarútvegsmál hjá ESB, að því hvort það sé tU í dæminu að íslending- ar geti fengið varanlega undanþágu ffá sjávarútvegsstefnu ESB. Svarið er auð- vitað nei. Rómarsáttmálunum verður ekki breytt vegna skuldsettra fiski- manna norður í Dumbshafi þegar það var ekki gert til þess að krækja í skuld- lausa olíuþjóð eins og Norðmenn. Þessvegna fer Halldór á vit Þjóðveija og spyr hvað sé til ráða? Kohl kanslari varðaði veginn fyrir Norðurlandaþjóð- imar inn í Evrópusambandið og sagði nákvæmlega fyrir um inngönguleiðina. Enn höfum við ekki heyrt annað af þeim málaleitunum en að Þjóðverjar vilji íslendingum vel. Hvað segir kanslarinn Kohl? íslenska stjómkerfið, stofnanir og fyrirtæki, laga sig nú að reglum Evrópusambandsins. Reglurnar breytast, reglusviðið eykst og inngrip- ið í viðskipta- og atvinnulíf verður meira en ætlað var. Þar með er ekki sagt að það verði allt til bölvunar, síð- ur en svo. Hitt er ljóst að við höfum ekkert um það að segja hvert stefnir. Það er ekki viðunandi. Við getum ekki gengið í ESB vegna fiskveiðistefnu sambandsins og getum varla gengið úr EES vegna viðskiptahagsmuna. í þessari bóndabeygju verða íslendingar fram yfir ríkjaráðstefnu ESB. Og enginn veit svosem enn hvort þar finnst form fyrir einhverskonar aukaaðild eða tvíhliða viðskiptasamninga sem tryggja sambærilegar reglur í viðskiptum en gera okkur kleift að gæta fullveldis og Kfshagsmuna. Hvað skyldi kanslarinn Kohl hafa að segja um það? Vill hann leysa okkur úr eða halda okkur í bóndabeygjunni? M___________________ Höfundur er framkvæmdastjóri Alþýöubandalagsins Víkingar fyrr og nú Á sunnudaginn lauk í Hafnarfirði afar velheppnaðri víkingahá- tíð, sem vakti mikla athygli. Boðið var upp á viðamikla dagskrá, sem spannaði allt frá bardögum vígamanna til fýrirlestra þeirra fræðimanna sem best eru heima í veröld hinna fomu víkinga. Sú mynd sem einatt er dregin upp af víkingunum er að ýmsu leyti fegruð: þeir vom víst áreiðanlega, margir hveijir, nauðgarar, morðingjar og geðsjúklingar. En auðvitað ekki allir. I samtali við Alþýðublaðið í dag vekur nútímavíkingurinn Phil Burthun at- hygli á því, að margt megi læra af hinni gömlu norrænu speki. Hann segir: „Við emm þeirrar skoðunar að víkingamir hafi margt að kenna bömum okkar enn í dag: um heiður, hvemig við eigum að koma fram gagnvart öðmm og hvaða lífssýn við eigum að til- einka okkur. Þegar öllu er á botninn hvolft - hvaða aðra kosti höfum við fyrir bömin okkar? Sjónvarpið? Eiturlyf? Nei, við get- um lært margt af víkingunum um heiður, aga, sjálfsstjóm." ■ Atburðir dagsins 1935 Alfred Dreyfús deyr, að- alpersónan í mesta hneykslis- máli Frakklands. 1937 Banda- ríska tónskáldið George Gersh- win deyr, samdi meðal annars Rhapsody in Blue. 1972 Boris Spassky og Robert James Fi- scher settust að tafli í Reykja- vík í einvígi aldarinnar. 1977 Breska tímaritið Gay News sektað um þúsund pund fyrir að birta ljóð þarsem ýjað var að því að Jesú hafi verið hommi. 1989 Sir Laurence Olivier deyr, einn besti leikari allra tíma. Afmælisbörn dagsins Róbert I Skotakóngur, knúði Englendinga til að viðurkenna Skotland, 1274. Yul Brynner bandarískur kvikmyndaleikari af rússneskum ættum, 1915. Leon Spinks bandarískur hnefaleikameistari, sem árið 1978 sigraði Múhameð Ali, 1953. Annálsbrot dagsins Skar fjögra vetra gamalt stúlkubarn sig til dauðs á Reynistað með mathníf. Sjóvarborgarannáll, 1718. Ástamaöur dagsins Hann var meiri ástamaður en títt var íslendingum og glæsi- menni, meðan heilsan entist. Hann var meiri vinur íslenskrar fornaldar en flestir aðrir og hafði ort betur ástarkvæði og fleira á hennar máli og í hennar stíl en lengi hafði þekkst á fs- landi. Eiríkur Hreinn Finnbogason um Gísla Brynjúlfsson. Málsháttur dagsins Hér mun eldur af verða, sagði refur, dreit á ísinn. Orð dagsins Forlög koma ofan að, örlög kringum sveima, álögin úrýmsum stað, en ólögfœðast heima. Páll Vídalín. Skák dagsins Tveir lítt kunnir ítalskir meist- arar leika listir sínar í skák dagsins. Natalucci (2235 ELO-stig) hefur hvítt og á leik gegn G. Rossi (2145 stig). Skákin var tefld í Mflanó á síð- asta ári: svart peð á a2 er með derring og hótar að breytast í drottningu. Natalucci fær and- stæðingi sínum hinsvegar önn- ur umhugsunarefni. Hvað gerir hvítur? 1. Hxh7!l Kxh7 2. Hh3+ Rh5 3. Dg5 Kg8 4. Hxh5 Rossi gafst upp: 4. ... Rh7 5. Hxh7 Kxh7 6. Dh4+ Kg8 7. Dh8 mát.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.